Þjóðviljinn - 28.12.1983, Side 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 28. desember 1983
Tryggvi Felixson skrifar:
Fær Reagan Ijögur ár í
viðbót í Hvíta húsinu?
Hann er 72 ára, beinn í baki
og hraustlegur á aö líta. Á frí-
dögum sínum heldur hann
upp í sveit þar sem hann
heggur eldivið og skreppur í
útreiðatúra. Hann vinnur4-6
tíma á dag, fær sér góðan
eftirmiðdagslúr og gefur sér
tíma til að stunda líkamsæf-
ingar^aglega. Fyrirstuttu lét
hannnriyndasigí
trimmgallanum og skrifaði
grein um heilsurækt í útbreitt
tímarit. Hann er brosmildur og
kjarkmikill, stoltur og myndar-
legur. Hann er íhaldssamur
og, ef markamáaftilsvörum,
fremur illa að sér í sögu,
landafræði og alþjóðamálum.
Hann er dáður leiðtogi ríkustu
þjóðar jarðarinnar. Hann er
Ronald Reagan forseti
Bandaríkjanna.
Hverjir eiga samleið?
Ef þú ert sjálfumglaður Banda-
ríkjamaður sem trúir á mátt frjáls
markaðskerfis til að skapa gott
samfélag þá er R.R. þinn maður.
Ef þú efast ekki um rétt Banda-
ríkjanna til að hlutast til um mál-
efni sjálfstæðra ríkja þá er R.R.
réttur maður á réttum stað. Ef þú
trúir því að aukin hernaðarupp-
bygging og fleiri kjarn-
orkusprengjur efli öryggi Banda-
ríkjanna þá R.R. sammála þér.
Og þið eruð margir, svo margir
að ef forsetinn kærir sig um að fá
dvöl sína í Hvítahúsinu lengda
um fjögur ár þá er honum það
leikur einn.
En ef þú heldur að frjálst mark-
aðskerfi sé ekki allra meina bót í
samfélaginu, þá er ekki R.R.
þinn maður. Ef þú heldur að
hagsmunum Bandaríkjanna sé
ekki ógnað af smáríkjum sem eru
að fást við eilífðarverkefnið, um
það hvernig á að stýra samfé-
laginu, þá er R.R. ómögulegur
forseti. Og ef þú telur að diplóm-
atískar viðræður og frysting nú-
verandi kjarnorkuvopnaforða
skapi meira öryggi en vopnaskak,
þá er R.R. stórhættulegur. Já, og
ef þú ert svo ólánsamur að vera
einn af 30 milljónum Banda-
ríkjamanna sem búa við fátækt
og þú hefur horft upp á það
hvernig félagshyggjan hefur rotn-
að í höndunum á núverandi vald-
höfum í Washington, þá er
syndalisti R.R. langur. Þið eruð
margir, en ekki nægilega margir
til að koma Reagan úr Hvítahús-
inu, nema örlögin komi til hjálp-
ar.
Hvað veldur
vinsæidunum?
Við verðum að horfast í augu
við þá staðreynd að málflutning-
ur Ronald Reagan virðist eiga
góðan hljómgrunn í Bandaríkj-
unum. Sá sem fyrir fjórum árum
var háð og spott í mörgum virðu-
legum blöðum og tímaritum
vegna fákunnáttu á sviði stjórn-
mála er í dag vinsæll forseti.
Hvað veldur? Batnandi efna-
hagslíf, vel smurð áróðursmask-
ína, vinsæl innrás á Grenada og
brosmildur forseti sem trúir að
hagsmunir bandarískra kapítal-
ista og velferð jarðarbúa eigi
samleið.
Keppinautar
Við vitum ekki enn hvort Re-
agan verður í framboði til forseta
1984. Flestir telja þó að svo verði,
jafnvel þó tilkynning þess efnis
verði ekki gefin út fyrr en á næsta
ári. En ef hann býður sig fram,
verður einhver til að hindra að
hann nái endurkjöri? Ekki færri
en sjö demókratar hafa boðist til
að stoppa Reagan. Þessa dagana
og þar til næsta sumar berjast þeir
innbyrðis um útnefningu til for-
setaframboðs. Þeir eru allir á
móti Reagan og því sem hann
stendur fyrir, en misjafnlega mik-
ið.
Þessa stundina virðist Walter
Mondale varaforseti í stjórnartíð
Carters vera líklegastur til að
hljóta þann heiður að verða
frambjóðandi demókrata í for-
setakosningunum að ári liðnu. En
samflokksmaður Mondale og
keppinautur, fyrrverandi geim-
farinn John Glenn, gæti hreppt
hnossið. Mondale er talinn frjáls-
lyndur demókrati sem vill að
ríkisstjórnin noti hagstjórnar-
tækin í auknum mæli til að stýra
efnahagslífinu og hafa áhrif á
tekjudreifingu. Mondale virðist
ekki þeirrar skoðunar að aukning
í vopnabúri Bandaríkjanna sé
forsenda þess að hægt sé að ná
samningum við Sovétríkin um
einhverja afvopnun. Glenn er ta-
linn hægri sinnaður demókrati og
hefur í mörgum málum fylgt Re-
agan forseta.
Tilraun demókratans og
blökkumannaleiðtogans Jesse
Jakcson til að hljóta útnefningu
er sögulegt atvik. Aldrei áður
hefur blökkumaður boðið sig
fram til forsetaembættis í Banda-
ríkjunum. Jackson var á sínum
tíma samstarfsmaður Martin Lut-
her King og hefur verið ötull tals-
maður jafnréttiskröfu blökku-
manna.
Jackson er fulltrúi þeirra sem
telja að alríkisstjórnin í Washing-
ton eigi að standa við hlið 30
milljón fátækra Bandaríkja-
manna og sjá til þess að lífskjör
þeirra verði bætt. Jackson telur
að öryggi Bandaríkjanna sé
hvorki ógnað í Mið-Austur-
löndum né Mið-Ameríku, heldur
miklu fremuraf fátækt, kynþátta-
hatri, spillingu og ríkisstjórn sem
eingöngu ber hagsmuni þeirra
sem meira mega sín fyrir brjósti.
Ekki er talið líklegt að Jackson
hljóti útnefningu demókrata, en
framboð hans á eftir að hafa var-
anleg áhrif á stjórnmálaþátttöku
blökkumanna.
Á meðan demókratar berjast
innbyrðis um útnefningu til for-
setaframboðs bíða repúblikanar
spenntir eftir yfirlýsingu Reagans
um framboð. Þeir, sem telja
aukna fátækt í Bandaríkjunum
og meiri spennu milli austurs og
vesturs helstu afrek Reagans,
spyrja: „Lifir jörðin af fjögur ár
til viðbótar með kúreka í Hvíta-
húsinu?".
Glundroði á Grenada
Paul Scoon: valdagírugur, hrokafullur og óhæfur að sögn Bandarískur hermaður með fanga á
dómsmálaráðherrans. Grenada.
Bandaríkin og
Paul Scoon geta
ekki fyllt það
tómarúm sem
Maurice Bishop
skilur eftir sig
Óvissa og glundroði í
stjórnarfari virðist af frétt-
um að dæma það sem ein-
kennir mannlíf á Grenada
rúmum 2 mánuðum eftir að
bandaríski herinn gerði
innrás í landið og gerði Paul
Scoon landsstjóra Breta á
eynni að leiðtoga nýrrar
bráðabirgðastjórnar. Nú
eru einungis um 300
Bandaríkjamenn eftir á
eyjunni af þeim 5000 sem
upphaflega komu til þess
að steypa byltingarráði
hersins. Af þessum 300
Bandaríkjamönnum eru
150 herlögreglumenn, en
hinir hafa með höndum
ýmis sérhæfð verkefni. Tal-
ið er að landinu muni engu
að síður verða stjórnað
beint eða óbeint af Banda-
ríkjastjórn enn um sinn og
fréttaskýrendur telja vafa-
samt að unnt verði að hafda
þær kosningar sem lofað
hefur verið á næsta ári.
Óvirk stjórn
Ástæðan er fyrst og fremst
glundroði í stjórn landsins, þar
sem sú stjórn sem Paul Scoon út-
nefndi á sínum tíma er enn meira
og minna óvirk. Sá sem Scoon
tilnefndi í forsætisráðherraemb-
ættið hefur ekki getað tekið við
embætti af heilsufarsástæðum og
staðgengill hans eða eftirmaður
hefur ekki verið tilnefndur. Það
var Alister Mclntyre sem Paul
Scoon útnefndi í þetta embætti,
en hann er nú vararitari
UNCTAD, Viðskipta- og þróun-
arstofnunar Sameinuðu þjóð-
anna. Telja sumir fréttaskýrend-
ur að Mcíntyre muni ekki þykja
fýsilegt að taka að sér embættið
eftir því sem málin hafa nú þró-
ast.
Paul Scoon útnefndi sérfræð-
ing í stjórnskrárrétti starfandi í
London sem dómsmálaráðherra.
Hann hafði ma. áður fjallað um
Grenada fyrir breska utanríkis-
ráðuneytið og var það öllum hnú-
tum kunnugur að sögn. Lögfræð-
ingur þessi, sem heitir Anthony
Rushford kvaddi þó Grenada í
fússi eftir þriggja vikna embætti-
ssetu og lét ekki svo lítið sem
kasta kveðju á landsstjórnina.
Hins vegar hefur hann síðar ráð-
ist heiftarlega á Paul Scoon, með-
al annars í viðtali sem birtist í
New Statesman, þar sem hann ás-
akar landsstjórann fyrir vanhæfni
í starfi og segir jafnframt að allar
ákvarðanir séu teknar á dag-
legum fundum landsstjórans með
sendiherra Bandaríkjanna og yf-
irmanni bandaríska herliðsins á
eyjunni. Rushford segir að Paul
Scoon sé fullur valdahroka og
valdagræðgi og allsendis ófær um
að valda því starfi sem aðstæð-
urnar hafi komið honum í.
Segir Rushford að Scoon, sem
á sínum tíma lýsti því yfir að
bandaríska herliðið ætti að
hverfa á brott svo fljótt sem auðið
væri, sé nú helsti talsmaðurinn
fyrir framlengdri dvöl þess, því
hann óttist að missa nýfengin
völd, verði Bandaríkjamenn al-
gjörlega á brott.
Tómarúm
eftir Bishop
Eftir því sem frá líður verður æ
ljósara hvílfkt tómarúm hefur
myndast á Grenada við fall
Maurice Bishops. Vinsældir hans
eru enn miklar, og hefur sú krafa
meðal annars komið fram, að
flugvöllurinn umdeildi sem Kú-
banir og Bretar stóðu að, verði
við hann kenndur. Mönnum
verður nú að sögn fréttaritara
tíðrætt um ýmsar þær félagslegu
umbætur sem Bishop hafði kom-
ið á, eins og ókeypis mjólk til
barna, og ókeypis lækna- og
tannlæknaþjónusta. Til þess að
koma til móts við fyrri þjónustu
hafa Bandaríkjamenn komið á
svokallaðri velferðar- og góð-
gerðaráætlun sem felur í sér
margs konar ívilnanir sem Reag-
an myndi aldrei geta samþykkt
fyrir bandaríska þegna, þar með
talið ókeypis tannlækna- og lækn-
aþjónusta. Segja fréttaritarar
jafnframt að Bandaríkjamenn
hafi beitt vel undirbúnum og út-
hugsuðum áróðri til þess að auka
sér vinsældir á eyjunni, og hafi í
þessu skyni verið send 60 manna
liðssveit sálfræðinga og sérfræð-
inga í auglýsingatækni til eyjar-
innar. Segja fréttaritarar Financi-
al Times og Observer að áróðurs-
veggblöð og annað áróðursefni
Bandaríkjamanna beri það með
sér að það hafi verið vel undirbú-
ið löngu fyrir innrásina, enda nær
almennt viðurkennt að innrásin
var ekki ákveðin með tveggja
daga fyrirvara eins og Reagan
sagði, heldur átti hún sér lengri
aðdraganda.
Dollarar fyrir
sjálfstæði
Danska blaðið Information
segir að Bandaríkjamenn hafi
hingað til lagt 18 miljónir dollara
í Grenadaævintýrið, og að ríkis-
stjórn Paul Scoon hafi farið fram
á 70 miljón dollara framlag á
næsta ári auk þeirra fjármuna
sem reynast nauðsynlegir til þess
að Ijúka hinni umdeildu flug-
braut við Point Salines.
Bandaríkjamenn hafa passað
sig á því að ráðast ekki lengur
gegn Maurice Bishop persónu-
lega, og er nú þegar í undirbún-
ingi að reisa bókasafn sem á að
verða til minningar um hann.
Þjóðin virðist nú smám saman
vera að vakna úr þeim pólitíska
doða sem morðið á Bishop
skapaði, og margir einstaklingar
og flokkar - sumir nýstofnaðir -
gera sig nú líklega til þess að fylla
það tómarúm sem hann skilur
eftir sig. Segja fréttaritarar að sú
pólitíska mynd sem við blasi sé
glundroða lík og litlar líkur á að
Bandaríkjamenn geti haft mikinn
hemil þar á. f það minnsta muni
þurfa mikinn straum dollara til
þess að halda þjóðinni við ein-
hvern þann valkost sem sé
Bandaríkjastjórn þóknanlegur í
einu og öllu. Þá segja fréttaritar-
ar að þau ríki Karíbahafsins sem
stóðu með Reagan að innrásinni
geri nú æ háværari kröfur um
aukna fjárhagsaðstoð. Svo kunni
að fara að sú túlkun Reagans að
innrásin í Grenada hafi verið pól-
itískur og hernaðarlegur sigur að
mati ýmissa fréttaskýrenda eftir
að verða æ tvíræðari og svo kunni
að fara að Grenadaævintýrið eigi
ekki bara eftir að skapa Reagan
auknar óvinsældir í Grenada,
heldur einnig í nágranna-
ríkjunum sem studdu hann ákaf-
ast til innrásarinnar. Þvf fjár-
austur í Karíbahafsríkin mun
ekki vera vinsælt ráð meðal
bandarískra skattgreiðenda um
þessar mundir þegar fjárlög
þingsins hljóða uppá methalla.
ólg./DN, Inf.