Þjóðviljinn - 30.12.1983, Blaðsíða 1
UOmUNN
Hvaðsegjaút-
gerðarmenn um
horfurnar í sjáv-
arútvegiá
næsta ári? |PÍ|É|
Sjá 16
30
desember
föstudagur
300. tölublað
48. árgangur
. 4wM. *
,»** *'X i
P irrJ
Stórfyrirtœkin og verslunin gera upp árið 1983:
Gott ár - Gróðaár“
Methagnaður hjáflestumfyrirtœkjum • Forstjórar ánœgðir
Umrœður að hefjast um ráðstöfun gróðans
Staða Sambandsins I árslok er
góð. Rekstur Flugleiða hefur
skilað verulegum hagnaði á
þessu ári. Útkoma verslunarinn-
ar hefur reynst mjög góð.
Þetta er dómur stjórnenda
nokkurra stærstu fyrirtækjanna í
íslensku efnahagslífi og forráða-
manna atvinnurekenda þegar
Þjóðviljinn leitaði álits þeirra á
rekstrarniðurstöðum ársins sem
nú er á enda.
Árið 1983 hefur verið metár í
kjaraskerðingu hjá launafólki í
landinu. Rekstrarútkoma fyrir-
tækjanna hefur hins vegar verið
einstaklega hagstæð. Það var létt
yfir forstjórunum í viðtölum
þeirra. Árið 1983 hefur verið
einstaklega gott. „Gróðaár -
Gott ár“ eru einkunnarorð við
hæfi þegar forsvarsmenn ýmissa
stærstu fyrirtækjanna líta yfir
farinn veg.
Sjá 3
Gífurleg aukning greiðslna úr Atvinnuleysistrygginga-
sjóði í ár
Þreföldun á niilli ára
Sjóðurinn átti að kaupa skuldabréf fyrir 76 miljónir af Byggingasjóði
ríkisins - Gat ekki keypt eitt einasta bréf
Hjálparstofnun
kirkjunnar á ís-
landi er þekkt
um allan heim
fyrir gott
dreifingarkerfi
matvæla, segir
Jón Ormur Hall-
dórsson, nýkom-
inn úr ferð til
Póllands.
Bætur til atvinnulausra úr At-
vinnuleysistryggingasjóði í ár nema
á annað hundrað miljónum króna
en á árinu 1982 voru greiddar 49
mitjónir króna, í atvinnuieysisbæt-
ur. Sjóðurinn átti samkvæmt
lögum að kaupa skuldabréf af
Byggingasjóði ríkisins fyrir 76 milj-
ónir króna en ekkert varð af þeim
kaupum í ár vegna hins mikla
atvinnulevsis sem gengið hefur yfir.
„Atvinnuleysistryggingasjóð
skortir ekki fjármagn, því höfuð-
stóli hans er stór, en hins vegar að
miklu leyti bundinn í skuidabréfum
Byggingasjóðs ríkisins. Með hinu
aukna atvinnuleysi hefur hins veg-
ar gengið verulega á lausaféð en
ríkissjóður er ábyrgur gagnvart
greiðslu bóta ef fjármagnið hjá
okkur þrýtur", sagði Eyjólfur
Jónsson forstöðumaður Atvinnu-
leysistryggingasjóðs í samtali við
Þjóðviljann í gær.
Tekjur Atvinnuleysistrygginga-
sjóðs eru þær að atvinnurekendum
er skylt að greiða 1% af byrjunar-
taxta Verkamannasambands ís-
lands fyrir hvern starfsmann, við-
komandi sveitarfélag greiðir sömu
upphæð og fyrirtæki innan þess og í
þriðja lagi leggur ríkissjóður til
samsvarandi upphæð og atvinnu-
rekendur og sveitarfélög greiða.
Ráðstöfunarfé sjóðsins í ár var
rúmlega 150 miljónir króna. Þegar
hafa verið greiddar um 100 miljón-
ir til atvinnulausra og eru horfur á
að sú upphæð verði um 110 miljón-
ir þegar árið verður endanlega gert
upp. Til umsjónarnefndar eftir-
launa hefur sjóðurinn greitt um 60
miljónir króna í ár en sérstök lög
kveða á um að Atvinnuleysistrygg-
ingasjóður greiði 3A af útgjöldum
vegna viðbótarréttinda nokkurra
eldri félaga í verkalýðsfélögunum.
í árslok 1984 mun þeirri kvöð létt
af Atvinnuleysistryggingasjóði— v.
Sjá 10
Það gengur ekki
lengur að lönd i
Vestur-Evrópu
haidi áfram að
vera bandarísk-
ar nýlendur
segir norski
friðarsinninn
Johan Galtung í
viðtali.