Þjóðviljinn - 30.12.1983, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 30.12.1983, Blaðsíða 5
Föstudagur 30. desember 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5 Baldur Kristjánsson Séra Emil Björnsson Óháði söfnuðurinn: Baldur Kristjánsson settur inn í embætti á nýársdag Séra Emil Björnsson lœtur nú af starfi eftir 34 ára þjónustu Á nýársdag kl. þrjú verður guðsþjónusta í kirkju Óháða safn- aðarins í Reykjavík. Þar mun séra Emil Björnsson, sem þjónað hefur söfnuðinum í þrjátíu og fjögur ár, setja Baldur Kristjánsson, tilvon- andi prest safnaðarins inn í emb- ætti. Baldur Kristjánsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Emil. Organleikari er Jónas Þórir. Baldur Kristjánsson er 34 ára gamall Reykvíkingur. Hann hefur lokið prófi í almennri þjóðfélags- fræði og lýkur væntanlega kandí- datsprófi í guðfræði á vori kom- anda. Hann hefur m.a. starfað hjá landbúnaðarráðuneytinu, Banda- lagi starfsmanna ríkis og bæja og við blaðamennsku. Hann er sonur Kristján Benediktssonar borgar- fulltrúa og konu hans Svanlaugar Ermenreksdóttur kennara. Séra Emil Björnsson kveður nú söfnuð sinn eftir að hafa þjónað honum frá upphafi, eða í 34 ár. Mikið starf hefur alla tíð verið í söfnuðinum og á fyrstu árunum byggði hann sér þá fallegu kirkju sem stendur á mótum Háteigsveg- ar og Stakkahlíðar. Hann og kona hans frú Álfheiður Guðmunds- dóttir hafa alla tíð verið mjög virk í starfi safnaðarins og hefur frú Álf- heiður verið formaður kvenfélags- ins frá stofnun þess árið 1950. Séra Emil hefur jafnframt starfað sem fréttastjóri Sjónvarps frá árinu 1967. Safnaðarstjórn vill við þessi tímamót þakka séra Emil Björns- syni og frú Álfheiði áratuga þjón- ustu og býður Baldur jafnframt velkominn til starfa. Sláturleyfíshafar skili betra uppgjöri í Ijós hefur komið að ekki muni öllum sláturleyfishöfum takast að greiða bændum grundvallarverð fyrir sauðfjárinnlegg frá haustinu 1982. Er einkum talið að tekjur af vaxtagjaldi nægi ekki til greiðslu vaxta af afurðalánum og eftirstöðv- um til framleiðenda. Fyrir því hefur Framleiðsluráð óskað eftir uppgjöri frá 5-6 stærstu sláturleyfishöfunum þegar um ára- mót. Skal þar glögglega sýnt hvern- ig útkoman er í einstökum at- riðum, hvort vanti upp á verðið og þá á hvaða vörutegundum og hversu mikið. Vaxtakostnaður og vaxtatekjur séu sérgreindar og vaxtagjöld vegna rekstrar vel að- greind frá vöxtum vegna fjárfest- ingar. „Löggiltum endurskoðanda verði falið að meta reikningana og samræma frágang þeirra og niður- stöður“, eins og segir í ályktun Framleiðsluráðs. „Þyki nauðsyn til bera verði þess freistað að fá leiðréttingu á þeim verðlagsþátt- um, sem verst koma út, fyrir 1. fe- brúar n.k.“, segir þar ennfremur. - mhg Laus staða í verkfræði- og raunvísindadeild Háskóla (slands er laus til umsókn- ar dósentstaða í sjávarlíffræði. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf umsækjenda, ritsmiðar og rann- sóknir svo og námsferil og störf, skulu sendar menntamálaráðu- neytinu, Hverfisgötu 6,101 Reykjavík, og skulu þær hafa borist fyrir 31. janúar 1984. Menntamálaráðuneytið, 27. des. 1983 Sonur minn og bróðir Hallur Friðrik Pálsson Borgarnesi sem andaðist 22. þessa mánaðar, verður jarðsunginn frá Borgarneskirkju laugardaginn 31. desember kl. 13.30. Ferð verður frá Umferðarmiðstöðinni kl. 10.30 fyrir hádegi. Jakobína Hallsdóttir Vigdís Pálsdóttir „Grænmeti úr eigin garði“ „Grænmeti úr eigin garði“ heitir 84 bls. fræðslurit, sem komið er út hjá Búnaðarfélagi íslands. Ritið hefst á eftirfarandi ábendingum: „Grænmeti er hitaeininga- og fit- usnautt, en ýmsar tegundir þess ríkar af trefjaefnurrí'. „Grænmet- isræktun er ekki vandasöm en það þurfa allir, sem við hana fást, að vita nokkur deili á áburðarþörf, vaxtarrými, sáðmagni o.s.frv.“ Á það er bent, að ræktun græn- metis sé árvissari í litlum heimilis- görðum en í stórum garðlöndum. Svör við flestum spurningum varð- andi ræktun algengustu tegupda grænmetis er að finna í fræðslurit- inu, en það kostar kr. 100 og fæst hjá Búnaðarfélagi fslands. Höfundar ritsins eru þeir Magn- ús Óskarsson kennari á Hvanneyri og Óli Valur Hansson, garðrkju- ráðunautur Búnaðarfélagsins. - mhg vinum okkar upp á almenna gjaldeyrísþjónustu s.s.: • stofnun innlendra gjaldeyrísreikninga • afgreiöslu ferðamanna- og námsmannagjaldeyris • útgáfu Eurocard kredítkorta auk allrar aimennrar bankaþjónustu. VÆRZlUNRRBRNKiNN Bankastræti og Húsi verslunarinnar.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.