Þjóðviljinn - 30.12.1983, Blaðsíða 12
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 30. descmber 1983
Minning
Þorvalda Hulda Sveinsdóttir
Fœdd 18.2. 1916 - Dáin 16.12. 1983
Hulda fæddist í Bolungarvík 18.
febrúar 1916, dóttir Guðrúnar
Pálmadóttur og Sveins Halldórs-
sonar skólastjóra Hún var elst af
fimm systkinum. lóáragömulfékk
Hulda að fara suður til Reykjavík-
ur til náms í Kvennaskólanum í
Reykjavík, en það þóttu mikil for-
réttindi á þeim tímum. Hulda gift-
ist árið 1937 séra Guðmundi
Helgasyni og eignuðust þau fjögur
mannvænleg börn, Baldur, Gylfa,
Helga og Kristínu. Hulda og Guð-
mundur bjuggu fyrstu árin í Hafn-
Smáveislur í húsinu“
Mjólkurdagsnefnd fínnur upp á
ýmsu. Nú hefur hún gefíð út
skemmtilegan 8 síðna bækling með
mörgum athyglisverðum upp-
skriftum á smáréttum. Heitir bæk-
lingurinn „Smáveislur í húsinu“ og
verður honum dreift ■ verslanir á
næstu dögum. Þar verður hann
seldur á 15 kr.
Efninu er skipt í 2 kafla, annars-
vegar „Smápartí unga fólksins" og
hinsvegar „Smáveisla gamla fólks-
ins“.
í inngangi að kafla unga fólksins
stendur m.a.: „Ætlarðu að hafa
partí bráðum - hlusta á plötur með
vinum þínum eða bjóða þeim að
sjá góða Videó-mynd? Spáðu í
þessar uppskriftir - það er ekkert
mál“. Og uppskriftirnar eru m.a.:
Miðnæturglaðningur. Kjúk-
lingur marengo. Ungverskt salat,
Pizza með kjöthakki, Kókó-
ísdrykkur. Samtals eru 9 mismun-
andi uppskriftir, sem ætlaðar eru
sérstaklega fyrir unga fólkið.
Þá eru 6 uppskriftir fyrir „gamla
fólkið“. Reyndar er þetta „gamla“
fólk á öllum aldri, frá fermingu og
upp úr. Meiningin er að þessir rétt-
ir séu boðnir í rólegheitum þegar
boðið er heim í saumaklúbb eða
spilamennsku. Gefnar eru upp-
skriftir af heitum karrírétti,
rússnesku fiski-pie, síldarsalati
catalína og þrem öðrum frábærum
réttum.
f þessum fallega bæklingi eru
ennfremur nytsamar upplýsingar
fyrir þá, sem bjóða til sín gestum,
þarsem m.a. er bent áaðekki þurfi
að kosta margra daga vinnu að út-
búa huggulegt veisluborð.
Uppskriftirnar af réttunum eru
til orðnar í tilraunaeldhúsum
Mjólkursamsölunnar og Osta- og
smjörsölunnar.
Rétt er að geta þess að bækling-
urinn „Prjú hátíðarborð", hefur
verið endurútgefinn og á að fást í
flestum matvörubúðum.
-mhg
..t, Auglýsing
J*f til skattgreiðenda
Samkvæmt lögum um tekjuskatt og eignarskatt eru
gjalddagar tekjuskatts og eignarskatts tíu á ári hverju
þ.e. fyrsti dagur hvers mánaðar nema janúar og júlí.
Dráttarvexti skal greiða af gjaldfallinni skuld sé skattur
ekki greiddur innan mánaðar frá gjalddaga. Gilda
sömu reglur um greiðslu annarra þinggjalda.
Af tæknilegum ástæðum hefur til þessa ekki verið
unnt að miða dráttarvaxtaútreikning við stöðu gjald-
enda um hver mánaðamót. Hefur því í framkvæmd
verið miðað við stöðuna 10. dag hvers mánaðar sbr.
auglýsingu ráðuneytisins dags. 27. apríl 1982. Drátt-
arvextir hafa því í reynd verið reiknaðir 10 dögum
seinna en lög kveða á um. Er nú stefnt að því að stytta
þennan frest eins og kostur er. Geta gjaldendur því
framvegis búist við að dráttarvextir verði reiknaðir
þegar eftir að mánuður er liðinn frá gjalddaga.
Þá er sérstök athygli vakin á því að launagreiðendum
ber að skila því fé sem haldið er eftir af kaupi launþega
innan sex daga frá útborgunardegi launa.
Fjármálaráðuneytið, 27. desember 1983.
arfirði, síðar á Staðarstað á Snæ-
fellsnesi og í Neskaupsstað. Hulda
og Guðmundur voru samrýmd
hjón og gátu unnið mikið saman
þessi fáu ár sem þau áttu saman.
Hulda var gædd góðum tónlistar-
hæfileikum og lærði að spila á orgel
í föðurhúsum. Hún tók virkan þátt
í prestsstarfi manns síns sem organ-
isti og kórsöngvari.
Eina skiptið sem ég man eftir
Huldu og Guðmundi saman var
þegar hann skírði Ástu systur mína
heima í stofunni í Eskihlíðinni, en
það er ein af fyrstu bernskuminn-
ingum mínum. En séra Guðmund-
ur lést sumarið 1952 og fluttist
Hulda þá til Reykjavíkur.
Hulda frænka hafði ætíð mikið
saman við fjölskyldu mína að
sælda. Foreldrar mínir reyndust
henni einstaklega vel í hennar
miklu erfiðleikum og sorg eftir að
hún missti mann sinn og alla tíð
síðan. Móðir mín var hennar besta
og sannasta vinkona og systir bæði
fyrr og síðar.
Hulda frænka kom oft til okkar
og við fórum oft til hennar. Eitt
það skemmtilegasta sem ég upp-
lifði sem krakki var að hlusta á
Huldu spila á píanóið og horfa á
hana leika atriði úr ýmsum leikrit-
um eða spaugileg atvik sem hún
hafði upplifað sjálf. En Hulda
hafði mikla leiklistarhæfileika og
átti auðvelt með að túlka leikrænt
spaugilegu hliðarnar á lífinu.
Hulda átti oft við erfið veikindi
að stríða eftir að hún missti mann
sinn, en átti þó góð tímabil inn á
milli. Síðustu ár ævi hennar voru
henni erfið og við sem höfðum
samband við hana heyrðum hana
oft segja að hún væri hrædd, en hún
gat aldrei sagt okkur við hvað hún
væri hrædd. Skyldi það hafa verið
dauðinn sem hún óttaðist? Skáldið
Kahlil Gibran segir:
EBE hvetur
Sovétríkin að
fara með her
sinn frá
Afganistan
Ríki Efnahagsbandalagsins hafa
gert samþykkt um Afganistan í til-
efni þess að fjögur ár eru liðin frá
því að Sovétríkin fóru með her inn í
landið.
Þar segir að aðildarríki EBE, tíu
talsins, hafi miklar áhyggjur sem
fyrr af áframhaldandi hernámi
landsins og afbrotum, gegn sjálf-
stæði þess lands, sem að hefð hafi
verið hlutlaust og utan hernaðar-
bandalaga. Þau fordæmi mannrétt-
indabrot og árásir sovéska hersins
gegn óbreyttum borgurum.
Aðildarríki EBE hvetja Sovét-
ríkin til að verða á brott með her
sinn frá Afganistan, enda verði
lausn mála til langframa ekki fund-
in með öðrum hætti. Vitnað er til
nýlegra atkvæðagreiðslu hjá Sam-
einuðu þjóðunum til stuðnings
þeirri kröfu. Þá er það tekið fram
að EBE-löndin séu reiðubúin til að
styðja hvaða jákvætt frumkvæði
sem vera skal sem miði í áttina til
lausnar mála í Afganistan. (Skv.
frétt frá EBE).
„Óttinn við dauðann er aðeins
ótti smaladrengsins við konung,
sem vill slá hann til riddara.
Er smalinn ekki glaður í hjarta
sínu þrátt fyrir ótta sinn við að bera
merki konungsins?
Og finnur hann þó ekki neitt til
óttans?
Því að hvað er það að deyja ann-
að en standa nakinn í blænum og
hverfa inn í sólskinið?
Og hvað er að hætta að draga
andann annað en að frelsa hann frá
friðlausum öldum lífsins, svo að
hann geti risið upp í mætti sínum og
ófjötraður leitað á fund guðs síns?
Aðeins sá, sem drekkur af vatni
þagnarinnar, mun þekkja hinn
volduga söng.
Og þegar þú hefur náð ævitind-
inum, þá fyrst munt þú hefja fjall-
gönguna.
Og þegar jörðin krefst líkama
síns, muntu dansa í fyrsta sinn“.
Elsku Hulda frænka, við sem
eftir lifum söknum þín en við vitum
að þú hefur ekkert að óttast og að
loksins líður þér vel.
Friður sé með þér.
Guðbjörg Emilsdóttir
ALÞYÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Árshátíð og þorrablót
Árshátíð og þorrablót Alþýðubandalagsins í Reykjavík verður laugardaginn
28. janúar 1984. Þegar eru bókanir farnar að berast og eru menn hvattir til
að skrá sig fyrir miðum sem allra fyrst. I fyrra komust færri að en vildu.
Dagskrá og skemmtiatriði auglýst síðar. - Skemmtinefnd ABR
Alþýðubandalagið á Akureyri
Árshátíð
Árshátíð Alþýðubandalagsins á Akureyri verður haldin laugardaginn
21. janúar nk.
Glæsileg dagskrá með heimsþekktum skemmtikröftum. Látið skrá
ykkur sem fyrst til þátttöku hjá Ragnheiði í síma 23397 eða Óttari í
síma 21264. Nánar auglýst síðar.
Skemmtinefndin.
Blaðberar óskast
Tjarnarból
Sörlaskjól
Fagraskjól
Sporðagrunn
Dalbraut
DJÚÐVIUINN Sími:
81333
Laus staða:
Sálfræöingur óskast til starfa á vegum menntamála-
ráðuneytisins.
Starfssvið: Ráðgjöf til starfsliðs sálfræðideilda
fræðsluskrifstofa, dagvistarstofnana og foreldra
vegna fatlaðra barna yngri en 7 ára.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og starfs-
reynslu, sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfis-
götu 6, Reykjavík, fyrir 23. janúar 1984.
Menntamálaráðuneytið,
23. des. 1983
Styrkur til háskólanáms
í Noregi
Norsk stjórnvöld bjóða fram styrk handa íslenskum stúdent eða
kandídat til háskólanáms í Noregi háskólaárið 1984-85. Styrktíma-
bilið er níu mánuðir frá 1. september 1984 að telja. Til greina kemur
að skipta styrknum ef henta þykir. Styrkurinn nemur 3.000 n.kr. á
mánuði.
Umsækjendur skulu vera yngri en 35 ára og hafa stundað nám
а. m.k. tvö ár við háskóla utan Noregs.
Umsóknum um styrk þennan, ásamt afritum prófskírteina og
meðmælum, skal komið til menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu
б, 101 Reykjavík, fyrir 1. febrúar nk.
Sérstök umsóknareyðublöð fást í ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið
28. des. 1983
Happdrætti
Þjóðviljans
Enn er hægt að gera skil!
Dregíö hefur veriö en númerin
innsigluö hjá borgarfógeta.
Vinningsnúmerin birt innan skamms.
■\
Greiða má með
gíró 6572
í aðalbanka
Alþýðubankans
Laugavegi 31