Þjóðviljinn - 30.12.1983, Síða 3

Þjóðviljinn - 30.12.1983, Síða 3
Föstudagur 30. desember 1983' ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3 1983 - Ár at vinnur ekenda Þjóðviljinn leitaði á dögunum til forráða- þessa menn vörðuðu fyrst og fremst hag fyrir- manna nokkurra stórfyrirtækja á íslenskan tækja þeirra í lok árs. Þetta eru þeir Sigiirður mælikvarða og forsvarsmanna kaupmanna í Helgason forstjóri Flugleiða, Erlendur Ein- landinu. Spurningar sem lagðar voru fyrir arsson forstjóri SÍS, Sigurður Haraldsson formaður Kaupmannasamtakanna og Páll Bragi Kristjónsson fjármálastjóri Hafskips. Svör þeirra fara hér á eftir: Sigurður Haraldsson formaður Kaupmannasamtakanna: Afkoma versl- unarinnar góð „Það er ekkert grín að gera grein fyrir stöðu verslunarinnar nú á þessum tíma þegar reikningsyfirlit liggja ekki fyrir. Það gefur hinsveg- ar auga leið að þegar tekist hefur að halda verðlagi stöðugu og jafn- framt lækka vexti að þá styrkist hagur verslunarinnar. Hér á árum áður þurftu kaupmenn oft á tíðum að taka á sig gengisfellingar upp á tugi prósenta og það gat reynst dýrt spaug ef verðhækkanir fengust ekki á móti,“ sagði Sigurður Har- aldsson formaður Kaupmanna- samtakanna sem jafnframt rekur verslunina Elfur þegar Þjóðviljinn ræddi við hann um stöðu versiun- arinnar við áramót. „Það kom okkur nokkuð á óvart og hefur reyndar allt að því bjargað við mörgum greinum verslunarinn- ar hversu mikil verslun var yfir jól- in, hún stórjókst frá því sem var í fyrra, jafnvel þó svo menn tali nú um minni kaupmátt. Tilkoma greiðslukortanna þarf ekki að vera skýringin þar sem hlutur þeirra í versluninni var tiltölulega lítill, eitthvað um 15%, þó svo maður hafi heyrt um allt að 30% hlut- deild.“ Mikil fjárfesting er í verslunar- húsnæði. Bendir þetta ekki til þess að staða verslunarinnar sé mjög góð? „Eg er ekki viss um að útþensla á því sviði sé af þvf góða. í mörgum tilvikum er hér um að ræða til- færslu á fjármunum. Ég nefni Miklagarð sem dæmi. Maður heyrir oft talað um Hús verslunar- innar sem dæmi um gróðann, en hafa verður í huga að þarna leggja fjölmargir aðilar saman, og ekki aðeins þeir sem standa í beinum verslunarrekstri." Þrjú ár eru síðan myntbreyting tók gildi, og því löngum haldið fram að kaupmenn hefðu grætt stórkostlega á breytingunni. Hvert er þitt álit á þeim fullyrðingum? „Ég kannast ekki við það í mín- um verslunarrekstri að myntbreyt- ingin hafi orðið þess valdandi að við færum að græða einhver ósköp. Ég geri hinsvegar ráð fyrir því að þeir kaupmenn hafi fundist sem laumuðu ýmiss konar smávöru upp í verð sem ekki var í neinu sam- ræmi við almennar verðhækkanir. Þetta mál snertir raunar það sem við kaupmenn verðum varir við á hverjum degi: fólk hefur ekkert verðskyn lengur. Jafnvel þó svo að það sé allt að því helmingsverð- munur á sömu vörutegund þá tekur fólk ekki eftir þvf. Þannig hefur verðbólguþjóðfélagið leikið okk- ur. Að því viðbættu að fólk treystir um of á verðlagseftirlitið í landinu sem verður býsna vanmáttugt þeg- ar verðbólgan æðir áfram.“ Sigurður Haraldsson formaður Kaupmannasamtakanna: Verslun- in stórjókst yfir jólin. Hver er hugur ykkar kaup- manna til þeirrar ríkisstjórnar sem nú situr að völdum? „Nú ertu að leggja gildru fyrir; mig. Ég ætla ekki að skrifa uppáj víxil fyrir þessa ríkisstjórn. Stund- um kemur það nú fyrir að við kaup- menn fáum stuðning úr óvæntustu áttum talsvert umfram það sem við megum búast við frá þeim sem við ætlum að séu okkur vinveittir. En þegar allt er saman tekið þá held ég að kaupmannastéttin þurfi ekki að örvænta þegar litið er fram á veg- inn, til næsta árs. Svo framarlega sem það verði ekki stórkostlegur aflabrestur og almennur samdrátt- ur í þjóðfélaginu öllu, þá er ástæða til bjartsýni tel ég. Ég þakka bætt- an hag verslunarinnar því, að tekist hefur að ná verðbólgunni niður.“ - hól. Erlendur Einarsson forstjóri SÍS: Útflutningsgreinar hafa spjarað sig „Þó ýmsar blikur séu á lofti í þjóðlífinu, þá held ég megi segja að staða SÍS í árslok sé nokkuð góð. Við höfum náð allverulegum ár- angri í ýmsum útfiutningsgreinum. Ef ég tek t.d. fyrstu 10 mánuði árs- ins þá varð aukning í sölu fiskaf- urðadeildar Sambandsins til Bandaríkjanna um 26% og þakka ég það kraftmikilli sölustarfsemi vestan hafs. Þá varð einnig talsverð magnaukning á útflutningi fiska- furða til Bretlands. A öðrum svið- um hefur orðið samdráttur og við höfum orðið að bregðast þannig við í sumum tiivikum með því að fækka starfsfólki. Það hefur þó ekki orðið nein veruleg fækkun á mannskap hjá Sambandinu á þessu ári; þó fækkað hafi verið í einni deild er aukið við mannahaid í ann- arri,“ sagði Erlendur Einarsson forstjóri SÍS þegar Þjóðviljinn ræddi við hann um stöðu Sam- bandsins við áramót. Líkt og hjá öðrum viðmælendum blaðsins gat Erlendur ekki tíundað cinstaka rekstraliði nákvæmlega. Arsupp- gjör liggur ekki fyrirfyrr en þegar nokkuð er liðið á næsta ár. Hvernig virkuðu aðgerðir ríkis- stjórnarinnar á rekstur SÍS? „Aðgerðir ríkisstjórnarinnar frá því í vor, hvað varðar launaá- kvæðin hafa sjálfsagt gert eitthvað til að rétta við hag Sambandsins, en ég tel þó meira um vert að með lækkun vaxta og stöðugu gengi hef- Sigurður Helgason forstjóri Flugleiða: Hagnaður af rekstrinum i ar ,JÉg á fastlega von á því að rekst- ur Flugleiða á árinu 1983 verði hag- stæður. Því þakka ég ýmsum þátt- um í efnahagsbúskap okkar sem reynst hafa hagstæðir. Olíuverð hefur lækkað um 15% frá því sem var í fyrra, fjárhagskostnaður hef- ur stórlækkað, og vaxtakjör hafa reynst viðráðanlegri en mörg und- anfarin ár. Þá hefur gengið vel á nokkrum flugleiðum í millilanda- fluginu,“ sagði Sigurður Helgason forstjóri Flugleiða í samtali við Þjóðviljann. Það er einkum Ameríkurútan sem er farin að skila sér aftur og taldi Sigurður að stefnubreytingar sem gerðar hefðu verið í Ameríku- fluginu yllu því. „New-York-flugið hefur nokkurn veginn staðið í stað, en við höfum hinsvegar haslað okkur völl á flugleiðum þar sem samkeppnin er ekki jafn hörð. Þetta er flug til Chicago og Baltim- ore og reynslan af flugi þangað gef- ur okkur tilefni til þess að reyna nýja flugleið Luxemburg - Baltim- ore,“ sagði Sigurður. Hann bætti því við að 40 þús. fleiri farþegar hefðu verið í Ameríkufluginu nú í ár frá því sem var í fyrra. Rekstrarlega séð var árið 1982 nálægt því að vera í járnum en Cargolux-málið varð til þess að rekstrarhallinn varð um 60 miljón- ir. Tap á innanlandsfluginu Þrátt fyrir að Flugleiðir hafi fengið verðhækkanir á gjaldskrám í innanlandsflugi langt umfram al- mennar launahækkanir er innan- landsflugið rekið með halla. „Svo virðist sem fólk taki bflinn umfram flugið í mun fleiri tilvikum en áður. Bágur efnahagur gerir þetta að verkum og hann kemur líka fram í því að fólk ferðast minna. í fyrsta sinn í langan tíma höfum við fengið fram hækkanir í samræmi við aukinn tilkostnað og það hefur orðið til þess að þrátt fyrir allt hef- ur innanlandsflugið gengið betur en undanfarin ár,“ sagði Sigurður. Endurnýjun flugvélaflotans Nýlega undi'rrituðu Flugleiða- menn leigusamning á tveim DC-8 vélum sem notaðar verða í milli- landafluginu á næsta ári. Raddir hafa heyrst um að endurnýjun flug- vélaflotans stæði fyrir dyrum og kæmi sú endurnýjun til fram- kvæmda þegar á næsta ári. Sigurð- ur sagði að verið væri að kanna þessi mál en ekkert hefði verið ákveðið með flugvélakaup þó skoðaðar hefðu verið vélar til nota í millilandaflugi jafnt sem innan- landsflugi. „Ég á ekki von á að árið 1984 verði ár mikilla breytinga hjá Flugleiðum. Það stendur ekki til að opna neina nýja skrifstofu og starfsmönnum verður ekki fjölgað. Þeir eru nú um 1100 talsins, en voru flestir um 1600.“ _ Sigurður Helgason forstjóri Flug- leiða: Minni fjármagnskostnaður, lækkun olíunnar og bætt staða Ameríku-flugsins hefur styrkt stöðu Flugleiða verulega. Erlendur Einarsson forstjóri Sam- bandsins: Nokkur fækkun á starfs- liði hjá SÍS. ur fjármagnskostnaður minnkað verulega. Launakostnaður á þessu ári, að starfsmönnum verksmiðj- anna slepptum, er 57,8% hærri heldur en á árinu 1982.“ Nú starfa hjá ykkur, einkum í verksmiðjunum, stórir hópar lág- launafólks. Hvernig er atvinnuör- yggi þessa fólks háttað nú þegar kreppueinkennin hafa gert vart við sig? „Hvað varðar lágu launin þá vil ég benda á að í verksmiðjum er unnið eftir launahvetjandi kerfi sem gerir það að verkum að launin eru oft langt umfram það sem samningar segja til um. Mér sýnist atvinnuöryggið vera meira en hjá mörgum aðilum þó svo við höfum orðið að gera skipulagsbreytingar sem hafa þýtt fækkun starfsfólks. Atvinnuöryggið er auðvitað best í þeim deildum þar sem vel gengur. Þannig hefur skinnaiðnaðurinn gengið vel, við höfum getað sýnt fram á 40% aukningu í framleiðslu á Mokkakápum og reyndar hefur aukning verið veruleg í þeim grein- um sem stunda útflutning. Staða fataiðnaðarins á innlendum mark- aði er hinsvegar heldur bágborin hjá okkur, en við höfum fylgt þeirri stefnu hingað til að láta fram- leiðslugreinarnar ganga með ein- um eða öðrum hætti.“ Hvernig horfir árið 1984 við Sambandsmönnum? „Ég get nú ekki verið mjög bjart- sýnn. Gengi þjóðarbúsins veltur á þeim fjölda fiska sem við drögum úr sjó og ef marka má spár manna um vetrarvertíðina þá sýnist mér ástandið vera harla alvarlegt. Hvað Sambandið áhrærir höldum við áfram á okkar braut, reynum að gera okkar besta.“ _ j^j Hafskip hf.: Reksturinn skilar sér drjúgum „Það er auðvitað alltaf erfitt að gefa nákvæma skýrslu um stöðu fyrirtækisins við áramót þegar árs- uppgjör liggur ekki fyrir, en okkur hjá Hafskip þykir sýnt að árið 1983 verði ekki lakara en síðasta ár sem var eitt hið besta í sögu félagsins, en þá var rekstrarafgangur um fjórar miljónir,“ sagði Páll Bragi Krist- jónsson fjármálastjóri Hafskips um stöðu fyrirtækisins við áramót. Páll sagði að við gerð rekstrará- ætlunar fyrir þetta ár hefði verið gengið út frá spám um almennan samdrátt í viðskiptum; þegar í upp- hafi árs þótti mönnum sýnt að inn- flutningur yrði heldur minni, en út- flutningur með svipuðum hætti. „Það hefur ekkert í rekstrinum beinlínis komið okkur á óvart og sumir rekstrarliðir hafa verið mun hagstæðari en oft áður. Ég minni á lækkun olíukostnaðar, vaxtalækk- un og stöðugt gengi. Á móti því hversu bandaríkjadollar hefur reynst sterkur, þvert ofan í spá- dóma manna, hefur slaknað nokk- uð á Evrópugjaldmiðlunum. Ytri aðstæður hafa semsagt hjálpað til í rekstrinum. Launakostnaður hefur verið í mjög svipuðu hlutfalli og áður. Við höfum verið að færa út kvíarnar á þessu ári, opnað skrifstofur í New York, Kaupmannahöfn, Hamborg og Ipswich. Þá hefur einu skipi fjölgað í flotanum sem þýðir 13 manna fasta áhöfn. Við höfum náð að lækka milliliðakostnað um tug- miljónir þannig að þegar allt er samanlagt þá hljóta menn að áætla að rekstur Hafskips skili sér drjúg- um,“ sagði Páll Bragi að endingu. - hól.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.