Þjóðviljinn - 05.01.1984, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 5. janúar 1984
Ofsaveður um allt sunnan- og vestanvert landið
Mikil ófærð
en engin slys
Veðurofsinn sem geysaði um allt sunnan og vestan-
vert landið í gær og nótt olli hvergi slysi á fólki, en víða
varð nokkurt tjón af völdum veðursins, þegar bifreiðar
fuku út af vegum og eins er snjóflóð féll á íbúðarhús á
ísafirði. Hér á eftir verður sagt í stuttu máli frá ástand-
inu eins og það var um miðjan dag í gær í helstu byggð-
um sunnan- og vestanlands.
Selfoss:
„Allt
stopp“
- Hér er allt stopp, en engin
óhöpp hafa orðið, sagði lögreglan á
Selfossi um miðjan dag í gær. Hell-
isheiði var ófær og sjúkrabifreið
sem fór að austan skömmu eftir há-
degi í gær var tveimur tímum síðar í
þæfingi í Svínahrauni. Lítil umferð
var á Selfossi, enda brýndi lögregl-
an fyrir fólki að halda sér heima
eða á vinnustað. Ekkert sást út úr
augum en aðeins var farið að bleyta
í snjóinn.
Vestmannaeyjar:
Komin
rigning
Hvasst var í Eyjum í allan gær-
dag, en lítið skóf nema fyrst um
mqrguninn. Um miðjan dag var
þar rigning en mikið hvassvirði.
Þar var allt í sómanum, eins og lög-
reglan á staðnum orðaði það og
lítið sem þurfti að aðstoða fólk.
Herjólíur hélt frá Eyjum í gær-
morgun en snéri aftur við á miðri
leið þegar sýnt var hvernig viðraði
á meginlandinu.
Grindavík:
Mjólkur-
bíll útaf
Um hádegisbilið í gær fór mjólk-
urbfll útaf Grindarvíkurvegi og valt
einar fjórar veltur. Engin slys urðu
á mönnum en bflinn er nokkuð
skemmdur. Leiðindaveður var í
Grindavík fram eftir degi í gær og
aftur í gærkvöld en ekki mikil ó-
færð í bænum. Lögreglan þurfti að
aðstoða marga bflstjóra sem höfðu
lent í erfiðleikum á Grindavíkur-
vegi.
Keflavík:
Reykj a-
nesbraut
kolófær
- Ástandið hér er þokkalega
gott. Farið að blotna svo sér á milli
húsa, en sama rokið, sagði lögregl-
an í Keflavík um miðjan dag í gær.
Þá var rafmagnslaust á öllum
Suðurnesjum og þakplötur farnar
að fjúka af nokkrum húsum. Lítil
umferð var í bænum enda sást ekki
handa skil. Á Reykjanesbraut sat
fjöldi bfla fastur, en öll umferð um
brautina tepptist snemma í gær-
morgun eftir að stór flutningabíll
sat fastur miðju vegar á brautinni.
Fjöldi manns yfirgaf bifreiðar sínar
og skildi þær eftir á veginum, þar
sem ljóst var að ekki yrði rutt til
Hafnarfjarðar enda ófært á milli
allra bæja á höfuðborgarsvæðinu.
Akranes:
Björgun-
arsveitir
kallaðar
út
Veðurhæðin var mikil á Akra-
nesi frameftir degi í gær og var
Hjálparsveit skáta og björgunar-
sveit slysavarnarfélagsins á staðn-
um kallaðar út lögreglunni til að-
stoðar við að hjálpa fólki í ófærð-
inni. Akraborg komst ekki úr höfn
vegna veðurofsans, en að sögn lög-
reglunnar var fólk í basli út um all-
an bæ vegna veðurhamsins.
Boð fyrir íslenska unglinga
Námskeið í
Ungu fólki á aldrinum 14-18 ára
frá Islandi og öðrum Norður-
löndum er boðið að taka þátt í 3ja
vikna námskeiði og ferðalagi um
Danmörk. Námskeiðið byrjar nk.
mánudag og stendur til 29. janúar
og er boðið uppá frítt þátttökugjald
fyrir 3 íslenska unglinga en við-
komandi þurfa að sjá sjáifír fyrir
ferðum til og frá Danmörku.
Það eru nemendur og kennarai
frá lýðháskólunum í Vanderup,
Bustrup, Sid-Vestjylland og Asser-
Danmörku
bohus sem eru gestgjafar á þessu
vetrarnámskeiði. Fyrstu vikuna
verður farið í rútuferðalag um
Danmörk og margir staðir heim-
sóttir. Seinni vikurnar tvær verður
bókleg kennsl;. fyrri hluta dagsins
um sögu Norðurlandanna og stöðu
þeirra í nútíð og framtíð. Þá er
frjáls tími fyrir ferðalög, íþróttir og
aðrar tómstundir.
Frekari upplýsingar um vetrar-
námskeiðið í Danmörku gefur
Ásdís Ásgeirsdóttir í síma 53589
eftir kl. 17.00.
Borgarnes:
Bílar
fuku útaf
vegum
- Það eru almenn vandræði hér.
Rafmagnslaust frá því fyrir hádegi
og veðurhæðin mikil, sagði lög-
reglan í Borgarnesi. Einhverjir bfl-
ar fuku út af þjóðveginum á Hafn-
armelum. Af þeim sökum biðu
margir bflstjórar af sér veðrið í
Svignaskarði og langferðabifreiða-
stjórar þorðu ekki fyrir Hvalfjörð-
inn og áðu í Ferstilku. í Borgarnesi
var að byrja að rigna um miðjan
daginn en veðurhæðin var enn
mikil og mikil ófærð á götum
bæjarins.
Stykkishólmur/
Ólafsvík:
Fólk of
vogað
- Veðrið er búið að vera alveg
vitlaust hér á Snæfellsnesi frá því í
morgun. Þetta hefur valdið mikl-
um óþægindum og ófærð. Fólk er
of vogað og vill brjótast heim, en
það getur verið talsvert hættuspil í
þessum veðraham, sagði lögreglan
í Stykkishólmi um miðjan dag í gær
en þá var þar ofsarok og mikill
skafrenningur. Veðrið skall fyrr á
úti á Nesi eða strax um 10-leytið
um morguninn en var þokkalegt í
Stykkishólmi fram undir hádegis-
bil. Fólk var víða í vandræðum
bæði akandi og gangandi en allt
hafði gengið áfallalaust fyrir sig á
Nesinu.
Blönduós:
Sjúk-
lingur
á
hrakhól-
um
Veðurofsinn skall á Blönduós-
búum um kl. 1.30 í gærdag. Mikill
skafrenningur var og umferðin f
bænumnærstöðvaðist. Rafmagnið
var að fara af og til af bænum og allt
orðið ófært innanbæjar. Sömu
sögu var að segja úr nágrannasveit-
um. Sjúkrabifreið sem var á leið
með sjúkling frá Hvammstanga á
sjúkrahúsið á Blönduósi varð teppt
í ófærðinni og var þá brugðið á það
ráð að flytja sjúklinginn á næsta bæ
í Víðidal, en um síðir komst hann
undir læknishendur á sjúkrahúsið á
Blönduósi. Það er óhætt að segja
að óveðrið hafi sett strik í reikning-
inn hjá mörgum landsmönnum
víða um land í gær.
Jafnvel stórir sendibflar nær hurfu í snjóskaflana á miðjum akbrautum.
Það var sama hvað þeir puðuðu, ekki vildi bfliinn úr stað og það þurftu
fleiri bflstjórar að reyna í gær.
Gísli Guðbrandsson og aðrir starfsmenn lögreglunnar höfðu í nógu að
snúast í gær við að aðstoða borgarbúa. Hér situr Gísli við símann, svarar
fyrirspurnum og aðstoðar meðborgara sína við að ná sambandi við fjöl-
skyldur og ættingja til að láta vita af ferðum sínum.
Þessar stúlkur tóku lífínu létt á lögreglustöðinni, enda fátt annað að gera
en drepa tímann með prjónaskap eða námslestri. Myndir:- eik.