Þjóðviljinn - 05.01.1984, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 05.01.1984, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 5. janúar 1984’ ' tJÓÐVILJINN - SÍÐA 3 Hundruð borgarbúa leituðu húsaskjóls í aðalstöðvum lögreglunnar við Hverfisgötu og biðu þess að vera selfluttir í úthverfln, þegar hlé varð á veðurofsanum síðdegis. Myndir: -eik ;JfJf JlllL í ^ l 0 Jt.1 M v - • ||É| S5'* ' í ^ i Ijt Jff JP ~ J&fk Hk Óveðrið sem skall yfir landið í gær olli miklum erfið- leikum á höfuðborgarsvæðinu, þegar kom fram yfir hádegið. Fólk lagði hikiaust af stað á bílum sínum mis- jafnlega búnum til aksturs í slæmri færð og auðvitað endaði það svo með því að bílar sátu fastir eins og hráviður um aliar götur og komu í veg fyrir að stærri og velbúnir bílar kæmust leiðar sinnar. Um miðjan dag lokuðu flestar leigubifreiðastöðvarnar, enda var það sjálfgert og skömmu síð- ar hættu strætisvagnar að aka, en gátu hafið akstur á sumum leiðum aftur um kl. 18. Fólk sem festi bfla sína reyndi fyrst í stað að sitja um kyrrt í þeim, en síðan var auglýst í út- varpinu að fólk gæti leitað skjóls í ýmsum húsum, svo sem lögregl- ustöðinni, Bíóhöllnni, hjá sendi- ttlastöðvum o.fl. Síðdegis var lögreglustöðin orðin full af fólki, sem ekki komst leiðar sinnar. Sömu sögu er að segja frá Bíó- höllinni. Þröstur Árnason, starfs- maður þar, sagði í samtali við Þjóðviljann síðdegis í gær að fólk streymdi þangað inn, enda væri endalaus röð bfla sem sátu fastir á Breiðholtsbraut og alla leið inní Breiðholtshverfin. Björgunar- sveitir voru kallaðar út lögregl- unni til aðstoðar og sömuleiðis voru öll moksturs og ruðnings- tæki sem tiltæk voru send af stað. Veðrinu slotaði um kl. 17 og var þá ekki vitað til að nein alvar- leg óhöpp hefðu orðið í Reykja- vík. í nágrannabyggðum, eins og Hafnarfirði, Garðabæ og Bessa- staðahreppi, fór rafmagnið af um miðjan dag með öllum þeim óþægindum sem slíku fylgir. -S.dór Félagar í björgunarsveitum höfðu í nógu að snúast í gær. Hér eru félagar í björgunarsveitinni Ingólfl að draga bifreið úr skafli á Kleppsveginum en fyrr um daginn höfðu þeir aðallega veríð í sjúkraflutningum. „Brosið“ sagði -eik Ijósmyndari þegar við ókum fram á þessa pilta á Sætúninu. „Það væri nær að þið kæmuð að hjálpa okkur en vera að þessum blossaleik“, svöruðu þeir að bragði. Þannig var ástandið á hverrí einustu götu borgarinnar. Borgarbúar komnir að vitja um bfla sína sem þeir urðu að skilja eftir fyrr um daginn. Þessi mynd er tekin á Miklubrautinni. Myndir: -eik.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.