Þjóðviljinn - 05.01.1984, Síða 12

Þjóðviljinn - 05.01.1984, Síða 12
12SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN ALÞÝÐUBANDALAGIÐ Alþýðubandalagið í Reykjavík Árshátíð og þorrablót Árshátíð og þorrablót Alþýðubandalagsins í Reykjavík verður laugardaginn 28. janúar 1984. Þegar eru bókanir farnar að berast og eru menn hvattir til að skrá sig fyrir miðum sem allra fyrst. f fyrra komust færri að en vildu. Dagskrá og skemmtiatriði auglýst síðar. - Skemmtinefnd ABR* Alþýðubandalagið á Akureyri Árshátíð Árshátíð Alþýðubandalagsins á Akureyri verður haldin laugardaginn 21. janúar nk.‘ Glæsileg dagskrá með heimsþekktum skemmtikröftum. Látið skrá ykkur sem fyrst til þátttöku hjá Ragnheiði í síma 23397 eða Óttari í síma 21264. Nánar auglýst síðar. Skemmtinefndin. Alþýðubandalagið Grundarfirði Opinn fundur um sjávarútvegsmálin Alþýðubandalagið í Grundarfirði boðar til fundar um viðhorfin í sjávarútvegsmálum og kvótakerfið í safnaðarheimilinu í Grundarfirði fimmtudagskvöldið 5. janúar næstkomandi kl. 20.30. Framsögumaður Skúli Alexandersson alþingis- maður. Fyrirspurnum svarað að aflokinni fram- sögu. Stjórn AB í Grundarfirði. Æskulýðsfylking Alþýðuba nda lagsins Ungt fólk í Kópavogi! Jæja, nú kýlum við á að stofna eitt stykki Æskulýðsfylkingu AB. í Kópavogskaupstað. Undirbúningsstofnsetningarmannfagnaðurinn verður háður í Þinghól félagsmiðstöð AB. í Kópavogi mánudaginn 9. janúar 1984. Félagsmiðstöðin er ítölusettu húsi nr. 11 við Hamraborg. Fundurinn hefst kl. 20.30 að staðartíma. - Hópnefndarráð. Skúll Drögum vel úr ferð við blindhæðir og brýr. GÓÐA FERÐ! lUMFERÐAR Práð Pökkum innilega samúð og vinarhug við andlát og útför Ástþórs B. Jónssonar Kleppsvegi 28 Ester Rut Ástþórsdóttir og fjölskylda Reynir Ástþórsson og fjölskylda. Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför Halldórs Þorsteinssonar vélvirkja Rut Guðmundsdóttir Sigurður R. Halldórsson Kristín Sigurbjarnardóttir Birgir Halldórsson Sigríður Auðunsdóttir Barnabörn og barnabarnabörn. Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og bróðir Högni Högnason bóndi Bjargi, Arnarstapa andaðist að Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund 2. janúar. Soffía Þorkeisdóttir Sigurlína Högnadóttir Ólöf Högnadóttir Þorkell Geir Högnason Dorothea M. Högnadóttir Högni UnnarHögnason Björk Högnadóttir Tryggvi Högnason Heiðlindur Högnason Högni Hjörtur Högnason Kristján Högnason barnabörn og barnabarnabörn Jón Þór Ólafsson Hafdís Ásgeirsdóttir Sigurður Sigurjónsson Hrund Sigurbjörnsdóttir Jóhann Bjarnason Elísabet Jónsdóttir Birgitta Borg Viggósdóttir Ester Rut Astþórsdóttir I Sömu lífeyrisréttindi fyrir alla sjómenn Vegna misræmis á lífeyrisrétti sjómanna innan Lífeyrissjóðs sjó- manna og mismunandi aðstöðu þeirra til lífeyris við 60 ára aldur leggja sjö þingmenn Alþýðubanda- Frá Bláfjallanefnd Skíða- svæðið opnað Skíðasvæðið í Bláfjöllum hefur verið opnað og er þar nú nægur snjór og gott skíðafæri. Lyfturnar verða opnar sem hér segir eftir því sem veður og færð leyfa: Mánudaga frá kl. 10.00- 18.00. Þriðjudaga frá kl. 10.00- 22.00. Miðvikudaga frá kl. 10.00- 22.00. Fimmtudaga frá kl. 10.00- 22.00. Föstudaga frá kl. 10.00- 18.00. Laugardaga frá kl. 10.00- 18.00. Sunnudaga frá kl. 10.00- 18.00. Göngubraut verður lögð alla daga. Verð aðgöngumiða í vetur er: 8 miða kort, fullorðnir kr. 70.00 tveir miðar í stólal. 8. miða kort, börn kr. 35.00, tveir miðar í stólal. Dag- kort, fullorðnir kr. 175.00. Dag- kort, böm kr. 85.00. Kvöldkort, fullorðnir kr. 130.00. Kvöldkort, böm kr. 65.00. Árskort, fullorðnir kr. 2.600.00. Árskort, börn kr. 1.300.00. Bamagjöld gilda fyrir 15 ára og yngri. Nýja stólalyftan er fullbúin að öllu leyti og verður vígð á næst- unni. Borið var ofan í mestan hluta vegarins í sumar og er hann nú allgóður. Þegar nýja stólalyftan hefur verið tekin í notkun verða afköst í lyftum Bláfjallanefndar orðin 3600 ferðir á klst. Skíðafélög reka lyftur er flytja 2800 manns á klst. I Bláfjöllum er því orðinn lyftukostur sem flutt getur 6400 manns á klst. Til viðbótar eru svo nokkrar barnalyftur, sem nota má án endurgjalds. Tveir snjótroðarar eru í Bláfjöll- um til að troða og leggja brautir. Hjálparsveit skáta mun annast öryggisgæslu um helgar. í Bláfjallaskála verða seldar veitingar á tímum sem lyftur eru opnar. í sklaianum verða leigð út skíði, skór og stafir. Daglegar áætlunarferðir verða í Bláfjöll frá Reykjavík, Seltjarnar- nesi, Kópavogi, Garðabæ og Hafn- arfirði. Upplýsingasími fyrir Bláfjöll er 80111. Farið fram á leiðréttingu á lífeyrisrétt- indum sjómanna lagsins til að Alþingi feli rflris- stjórninni að skipa nefnd til að at- huga lífeyriskjör sjómanna og gera tillögu um samræmingu lífeyris- réttinda þeirra. í greinargerð sem fylgir tillög- unni kemur fram að í tíð síðustu ríkisstjórnar var tekin ákvörðun um að sjómenn gætu átt rétt til elli- lífeyris við 60 ára aldur. Einnig fengu sjómenn rétt til lífeyris innan Lífeyrissjóðs sjómanna við 60 ára aldur, en þar er um aðstöðumun að ræða eftir því hvort í hlut eiga báta- sjómenn, farmenn eða togarasjó- menn. Þannig getur t.d. mismunur á ellilífeyrisgreiðslum til bátasjó- manns annars vegar og togarasjó- manns hins vegar með sama starfs- tíma orðið allt að þrefaldur. í til- lögunni kemur fram að fjöldi sjó- manna sem er innan almennu líf- eyrissjóðanna gerir kröfu um sömu réttindi. Fjallað er um nauðsyn þess að allir sjómenn njóti lífeyris- réttinda við 60 ára aldur en að jafn- framt þurfi að leysa það hvernig greiða á þann umframkostnað sem slík ráðstöfun hefur í för með sér. Bent er á að í almannatryggingun- um sé þessi kostnaður greiddur með beinum skattgreiðslum í gegn- um ríkissjóð. - JP Byggingarhugur í kattavinum Fjölbreyttir styrktartónleikar að Hótel Borg í kvöld í kvöld, fimmtudagskvöld, verða haldnir tónleikar til styrktar húsbyggingasj óði Kattavinafélags- ins að Hótel Borg og hefjast þeir kl. 21. Þeir sem fram koma eru Böðvar Guðmundsson, Róbert Amfínnsson ásamt Skúla Hall- dórssyni, Unnur Jensdóttir ásamt Guðna Guðmundssyni, og söng- hópurinn Hálft í hvoru en hann skipa Aðalsteinn Ásberg Sigurðs- son, Eyjólfur Kristjánsson, Gísli Helgason, Ingi G. Jóhannsson og Örvar Aðalsteinsson. Hljóm- sveitin Aldrei aftur, þau Bergþóra Ámadóttir, Pálmi Gunnarsson og Tryggvi Hubner syngja og leika nokkur lög. Kynntur verður tilvon- andi bassaleikari Aldrei aftur, Geir, Atli Johnsen, en hann starfaði áður með norska söng- og leikhópnum Symre. Kynnir verður Arnþrúður Karisdóttir og hljóðmaður Guð- mundur Árnason. Aðgöngumiðar verða seldir við innganginn og kosta 190 kr. fyrir fullorðna og kr. 90 fyrir börn.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.