Þjóðviljinn - 17.01.1984, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 17.01.1984, Blaðsíða 2
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 16. janúar 1984 Dökkt útlit hjá strákunum í Slippstöðinni ef ekki tekst að tryggja fyrirtækinu verkefni í náinni framtíð. Svavar á tali við starfsmennina í gær. Kosningastemning á Akureyrarhelgi________ Rjúfum vítahring vonleysisins Gestsson á Akureyri Sigríður Stefánsdóttir bæjarfulltrúi og Steingrímur Sigfússon alþingis- maður á tali við menn í Slippstöðinni á Akureyri í gær. (Ljósm.: Árni). Vibtal við Svavar - Niðurstaða viðtala okkar við launafólk er sú, að við verðum að rjúfa vítahring vonleysisins sem heldur áfram að snúast gegn launa- fólki ef stefna ríkisstjórnarinnar fær að ganga óáreitt, sagði Svavar Gestsson formaður Alþýðubanda- lagsins en hann hefur um helgina ásamt Margréti Frímansdóttur, Sigríði Stefánsdóttur og Steingrími Sigfússyni haldið fundi á Akureyri og farið á vinnustaði: - Það var nánast kosninga- stemning hérna um helgina. Hér var iðandi félagsstarf og maður fékk á tilfinninguna að Lárusarhús væri miðpunktur tilverunnar hér á Akureyri. Þjóðviljinn er hér með áskriftarherferð þarsem tugir manna komu við sögu og skilaði góðum árangri. - Strax á laugardagskvöldið var haldinn fundur fulitrúaráðs Al- þýðubandalagsins á Akureyri þar- sem farið var almennt yfir stöðuna í atvinnumálum og bæjarmálum á Akureyri. Síðdegis á sunnudag var haldinn fundur með framkvæmda- stjórn Kjördæmisráðs Alþýðu- bandalagsins á Norðurlandi eystra. Á þeim fundi voru félagar víða að úr kjördæminu. Á sunnudags- kvöldið var svo vel heppnaður fundur Verkalýðsmálaráðs Al- þýðubandalagsins á Akureyri. Ráðið kaus sér stjórn og Kristín Hjálmarsdóttir formaður Iðju fékk það verkefni að kalla stjórnina saman. Brjótast út úr herkvínni - Á fundinum var ítarlega rætt um stöðu verkalýðshreyfingarinn- ar og möguleika hennar til að brjótast út úr þeirri herkví hægri stefnu og atvinnuleysis sem nú blasir við. Hér á Akureyri er ein- mitt um að ræða verulega alvarlegt ástand í atvinnumálum. í fram- haldi af fundi Verkalýðsmálaráðs- ins ákvað Alþýðubandalagið hér að leggja fram ítarlegar tillögur í atvinnumálanefnd bæjarins sem haldinn var klukkan átta í gær- morgun. Forðast atvinnuleysið - Þar eru tillögur um sérstakar aðgerðir til að tryggja áframhald- andi rekstur'Slippstöðvarinnar; til að tryggja Útgerðarfélagi Akur- eyrar eðlilegan hlut í aflamagni þessa árs. í tillögunni erí raun bent á leið til að tryggja mörg hundruð störf sem ella myndu verða atvinnuleysisvofunni að bráð. - f morgun hittum við að máli starfsfólk Slippstöðvarinnar, töl- uðum við mikinn fjölda manns. Menn eru satt að segja skelfingu lostnir þarna, vegna þess að þeim sem sagt hefur verið upp, eiga eng- an annan kost. Það er engin önnur atvinnutæki í málm- og skipasmíði hér í bænum. Það er mjög dökkt útlit hjá þessu fólki ef ekki tekst að tryggja áframhaldandi rekstur. - Síðan héldum við á fund starfs- manna Sambandsverksmiðjanna, sem eru betur staddir að því er at- vinnuöryggi varðar, en kaupið er hins vegar að sama skapi bágborið. Þaðan fórum í heimsókn til Út- gerðarfélagsins og töluðum við starfsfólkið þar. Þar kom fram að unnið hefur verið að undanförnu með takmörkuðum afköstum, i frystihúsinu unnið fjóra daga af fimm á viku. Þannig að þar er einn ig um að ræða þetta óöryggi í at- vinnumálum einsog víðar hér. Fyrirtæki að lokast - Þá sóttum við heim í gær, hús- gagnafyrirtækið Haga, sem stend- ur frammi fyrir því að þurfa að loka starfsemi sinni 1. mars næstkomandi. Það er svo mikill samdráttur í eftirspurn eftir fram- leiðslu þessa fyrirtækis að ekki er lengur talinn vera starfsgrund- völlur fyrir fyrirtækið. Þannig að þegar maður lítur yfir sviðið hér á Akureyri þá er greinilegt að byggð- arlagið hefur orðið fyrir áfalli vegna samdráttar í fiskveiðum. Því til viðbótar kemur svo samdráttar- og kreppustefna ríkisstjórnarinn- ar. Stöðvum stjórnina - Það er greinilega vaxandi skilningur meðal launafólks á þessu svæði að það verði gripið inní og komið í veg fyrir að þessi víta- hringur vonleysisins fái að velta áfram, sem að gerist ef að stefna stjórnarinnar fær að ganga áfram óáreitt. - Við höldum svo áfram vinnu- staðafundum í dag og erum með almennan fund hér á Akureyri í kvöld, sagði Svavar Gestsson for- maður Alþýðubandalagsins að lok- um. -óg. Æskulýðsfylking Alþýðubandalagsins Æskulýðsfylkingin boðar til opins fundar Saga ísl. verkalýðshreyfingar og þróun stéttabaráttunnar Þrtðjudaginn 17. janúar verður opinn fundur undir ofangreindri yfirskrift og hefst hann kl. 20.30 í Flokksmiðstöð AB að Hverfis- götu 105. Það eru þeir Björn Arnórsson hagfræðingur BSRB og Skúli Thoroddsen lögfræðingurDagsbrúnar sem ætla að ræða þetta merka málefni. Eru auðvitað allir áhugamenn um sögu verkalýðshreyfingar- innar hvattir til að mæta og taka með sér gesti. Verkalýðsmátanefnd ÆFAB Björn Skúli

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.