Þjóðviljinn - 17.01.1984, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 17.01.1984, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 16. janúar 1984 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5 mali Kafka í þýska bókasafninu Nú stendur yfir í þýska bóka- safninu, Tryggvagötu 26, sýning um ævi og störf austuríska rithöf- undarins Franz Kafka, en hann átti aldarafmæli 1983. Sýningin er opin alla virka daga frá íd. 14-18. Vigdís til Finnlands Forseti íslands Vigdís Finnboga- dóttir hefur þegið boð forseta Finnlands, Mauno Koivisto, um að koma í opinbera heimsókn til Finn- lands dagana 11.-14. apríl n.k. Alþjóðaár œskunnar 1985 Sameinuðu þjóðirnar hafa tii- einkað æskunni árið 1985 undir kjörorðinu: - þátttáka - þróun - friður. 17 manna framkvæmda- nefnd hefur verið skipuð hér á landi og er formaður hennar Níels Árni Lund. Nefndin hefur gefið út upplýsingabækling, en nánari upp- lýsingar veitir formaður og heimil- isfang nefndarinnar er Mennta- málaráðuneytið, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík. Stjórnarnefnd um málefni fatlaðra Félagsmálaráðherra hefur skipað eftirtalda í stjórnarnefnd um málefni fatlaðra frá 1. janúar 1984 til fjögurra ára: Sigurfinnur Sigurðsson, formaður, Ingimar Sigurðsson, Magnús Magnússon, Húnbogi Þorsteinsson, Ólöf Rík- arðsdóttir, Baldur Kristjánsson og Ásgerður Ingimarsdóttir. Það er 8.8% dýrara að reka heimili nú en var fyrir hálfu ári. Könnun Verðlagsstofnunar Gífurlegar Gífurlegar hækkanir hafa irðið á ýmsum neysluvörum að jndanförnu. Til dæmis hafa egg lækkað um 38%, kakó um 13% og ýsa í soðið kostar 17% meira í dag en fyrir nokkrum mánuðum. Smjörlíki hefur hækkað um 26% sem á sér ef til vill einhverjar rætur í því að matarolía hefur hækkað mjög mikið á heimsmarkaðnum, eða allt að 100%. Almennt verðlag til heimilis- halds hefur hækkað um 8.8% á síð- ustu fimm mánuðum. Þetta gerist þrátt fyrir það að ýmsar innfluttar vörutegundir hafi lækkað á sama tíma. Landbúnaðarvörur hafa hækkað mjög mikið ásamt mörg- um öðrum innlendum vörutegund- um og erlendum. Þótt undarlegt sé hækkanir hafa t.d. brauð og kökur hækkað um 6,5% á meðan sykur og hveiti hafa lækkað. ' Upplýsingar eru fengnar hjá Guðmundi Sigurðssyni á hagdeild Verðlagsstofnunar. Hann sagði Þjóðviljanum, að á móti þessum hækkunum kæmi að erlendar vörur hafa í mörgum tilvikum lækkað og afleiðing er sú að meðaltalshækkun verður um 8,8%. Við útreikning þennan var miðað við vísitölu framfærslukostnaðar á fimrn mán- aða tímabili, frá ágúst 1983 til janú- ar 1984. Guðmundur upplýsti Þjóðvilj- ann einnig um það að ýmsar aðrar vörur hefðu hækkað á þessurh vetri. Til dæmis eru fatnaður og húsgögn orðin 10-20% dýrari en í- haust. -jP Hangikjöt Svið Sviðasulta Eistnavefjur Grísasulta Hrútspungar Lundabaggar Súrar bringur SLATURFÉLAG SUÐURLANDS Skúlagötu 20 s=25355

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.