Þjóðviljinn - 17.01.1984, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 17.01.1984, Blaðsíða 8
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 16. janúar 1984 Fyrstu verðlaun hlutu þeir Finnur Björgvinsson og Hilmar Þór Björnsson vegna frumlegra hugmynda, sem lýst er á skemmtilegan máta i framsetningu, að sögn dómnefndar. Kjarninn í hugmynd þeirra Finns og Hilmars Þórs að eldhúsi, er að fólk standi andspænis hvort öðru við matargerð en snúi ekki bökum saman eins og tíðkast nú víða í eldhúsum. Vinnuaðstaðan cr sett á mitt gólf í eldhúsinu, eins og vonandi sést vel á myndinni. (Ljósm. -eik-) Vinnu- og snyrtirými íbúða Drœm þátttaka olli vonbrigðum Húsnæðisstofnun ríkisins efndi á síðasta ári til hugmyndasam- keppni um vinnu- og snyrtirými í íbúðum og hefur dómnefndin nú skilað áliti sínu. Alls bárust 7 til- lögur og voru veitt þrenn verð- laun. Fyrstu verðlaun hlaut til- laga tveggja arkitekta, þeirra Finns Björgvinssonar og Hilmars Þórs Björnssonar og fyrir hana hlutu þeir 60 þúsund krónur. Önnur verðlaun hlaut tillaga Kjartans A. Kjartanssonar, hús- gagnaarkitekts og þriðju verð- laun hlaut tillaga frá Helgu Gunn- arsdóttur, arkitekt, Jóni Þóris- syni, arkitekt, og Ragnheiði Ragnarsdóttur, arkitekt. Að auki keypti dómnefndin tillögu Guð- jóns Magnússonar, arkitekts- nema, þar sem hún þótti sýna skemmtilega hugmynd um bað- herbergi. Þá hlaut tillaga Ernu Ragnarsdóttur, innanhússarki- tekts, verðlaun fyrir athyglis- verða tillögu, en samstarfskona Ernu var Elísabet Gunnarsdóttir, arkitektsnemi. I áliti dómnefndar segir, að dómnefndinni hafi verið mikil vonbrigði hve þátttaka í sam- keppninni var dræm, en hún var opin öllum landsmönnum. Þá olli einnig vonbrigðum hve lítið var um ferskar hugmyndir í þeim til- lögum, sem bárust. Einnig olli vonbrigðum, að engin tillaga tók tillit til fatlaðra. V er ðlauna ti Ilagan I dómnefndarálitinu segir um tillöguna, sem hlaut 1. verðlaun: „Öll framsetning tillögunnar er til fyrirmyndar, skýr og fagmann- lega unnin. Hugmynd höfunda að eldhúsi er, að menn vinni störfin andspænis hver öðrum. Að nota modulstærð flugvéla- eldhúss 30x30 cm er bráðsnjallt, m.a. taka skápahurðir mjög lítið pláss. En benda má á, að öll vinna í flugvélaeldhúsi miðast við að maturinn kemur fullunninn og er aðeins hitaður þar upp. Innréttinguna má stækka og minnka að vild. Grind til upp- henginga á efri skápum og lömp- um býður upp á marga mögu- leika. Innréttinguna má staðsetja nánast hvar sem er, þar sem hún krefst engra veggja. Höfundar 'stinga upp á ýmsum möguleikum varðandi efnisval. Tillaga höfunda að snyrtirými byggist á U-formuðum kjarna, sem er mjög skemmtileg hug- mynd, og gefur fleirum kost á að nýta aðstöðuna samtímis án á- rekstra. Dómnefnd telur þó æski- legt að loka af salerni til þess að hugmyndin nýtist til fullnustu og ættu ekki að vera nein vand- kvæði á því. Gufugleypir fyrir ofan sturtu er góð hugmynd. Lýsing í kjarna og lofti er góð. Efnisval er mjög gott með tilliti til þrifnaðar. Kjarni í þvottaaðstöðu er góður og vinnu- borð gott. Hins vegar er staðsetn- ing kjarna ósannfærandi, þar sem þvottarými nýtist illa. Tillagan uppfyllir allar kröfur, sem gerðar voru í útboðslýs- ingu.“ I dómnefndinni áttu sæti: Guðni Pálsson, arkitekt, Arna Guðmundsdóttir, kennari, Grét- ar J. Guðmundsson, verkfræð- ingur, Klaus Holm, arkitekt, Kristín Guðmundsdóttir, híbýla- fræðingur, og Ólafur Jensson, framkvæmdastjóri, sem var trún- aðarmaður nefndarinnar. kenninguna „athyglisverð tillaga“. Meðal þess sem þær teiknuðu var þetta bogadregna píanó með Ijósum. (Ljósm. -eik-) ast Frábærir drykkir Drykkirnir, sem Búsýslan kynnir að þessu sinni, henta kannski betur í sól og sumaryl, þ.e.a.s. sól og sumaryl erlendis. Við á þessu ísaköldu landi vitum lítið um slíkt og getum því gert okkur dagamun allan ársins hring úr ís-, mjólkur- og jógúrtréttum. Þesir drykkir henta vel sem eftirréttir þegar kryddaðir kjöt- réttir hafa verið á borðum, en eru alltaf velþegnir. ísjógúrt 4 glös 2 stórir bananar 2 dl hrein jógúrt (þessi heimatil- búna er best) U2 dl þeytirjómi H2 l vanilluís suðusúkkulaði Merjið banana með gaffli eða í kvörn. Blandið saman banana- maukinu, jógúrtinni, rjömanum og um 2/3 af ísnum í kvörn eða með hrærivél. Hellið í glös og látið afganginn af ísnum efst í glösin. Skreytið með rifnu suðusúkkulaði ef vill. íssúkkulaði 1 glas l'/l dl mjólk 1 msk kakó 1 tsk vanillusykur eða sykur 3 msk vanilluís Mjólk og jógúrt eru uppistaðan í þessum drykkjum, sem alls staðar eru vel þegnir. Hrærið allt nema ísinn. Hellið í stórt glas og látið ísinn ofan á. Mokkamjólk 1 glas 1 l/i dl mjólk 1 tsk kakó 1 ‘/2 tsk kaffiduft 1 tsk sykur 3 msk vanilluís Hrærið öllu saman nema ísn- um. Hellið í hátt glas og setjið ísinn ofan á. ast Heimilisbókhald frá Neytendasamtökum Neytendasamtökin hafa gefið út vandaða bók undir heimilis- bókhaldið. Bókinni fylgir hand- hæg innkaupablokk, þar sem fólk getur skráð allar vörur, sem keyptar eru í verslunarferðum, og fært inn í bókhaldið síðar meir. í heimilisbókhaldinu eru dálk- ar fyrir tekjur heimilisins og út- gjöld og að auki opna fyrir fjár- hagsáætlun heils árs. Auðvelt er að átta sig á því hvernig færa skal í reitina og þetta er því hið mesta þarfaþing. Á hverri síðu er sparnaðarráð, þ.e. ábendingar um hvernig bet- ur má halda utan um peningana. Bent er m.a. á að fólk skyldi skipuleggja innkaup sín vel og gera innkaupalista, nota verð- kannanir til að gera verðsaman- burð milli verslana og vöru- merkja og koma sér upp eigin matjurtagarði ef kostur er. Þá fylgja með upplýsingar um neytendafélög innan Neytenda- samtakanna. Heimilisbókhald Neytenda- samtakanna fæst í flestum bóka- búðum landsins og kostar 130 krónur. Áreiðanlega eyðir fólk annarri eins upphæð í hluti, sem koma að minna gagni en heimilis- bókhaldið. ast

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.