Þjóðviljinn - 26.01.1984, Qupperneq 4
4 StÐA — ÞJÓÐVILJINN.' Fimmtudagur 26. janúar l!>84
DJÚÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýðs-
hreyfingar og þjóðfrelsis
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Ritstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson.
Umsjónarmaður Sunnudagsblaðs: Guðjón Friðriksson.
Auglýsingastjóri: Sigríður H. Sigurbjörnsdóttir.
Afgreíðslustjóri: Baldur Jónasson.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pótursdóttir.
Blaðamenn: Auður Styrkársdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Helgi Ólafsson, Lúðvík Geirsson,
Magnús H. Gíslason, ólafur Gíslason, Óskar Guðmundsson, Sigurdór Sigurdórsson,
Valþór Hlöðversson.
Iþróttafróttaritarí: Víðir Sigurðsson.
Utlit og hönnun: Guðjón Sveinbjörnsson, Þröstur Haraldsson.
Ljósmyndir: Einar Karlsson, Magnús Bergmann.
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Auglýsingar: Áslaug Jóþannesdóttir, Ólafur Þ. Jónsson.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Jóhannes Harðarson.
Símavarsla: Sigríður Kristjánsdóttir, Margrét Guðmundsdóttir.
Húsmóðir: Bergljót Guðjónsdóttir.
Bílstjóri: Ólöf Sigurðardóttir.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson.
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir.
Útkeyrsla, afgreiðsla og auglýsingar:
Síðumúla 6, Reykjavík, sími 81333.
Umbrot og setning: Prent.
Prentun: Blaðaprent hf.
Hvað verður um
sjúklingaskatdnn?
Á síðustu vikum ársins 1983 greindi Þjóðviljinn frá
því að ríkisstjórnin hefði ákveðið að leggja á sérstakan
sjúklingaskatt. í fyrstu neituðu ráðherrarnir að kannast
við þessi áform en við aðra umræðu fjárlaga síðustu
þingviku fyrir jól viðurkenndi Lárus Jónsson, formaður
fjárveitinganefndar, að slíkur skattur væri meðal meg-
inforsendna fjárlaga fyrir árið 1984. ‘
í þessum umræðum sagði Lárus Jónsson: „Á vegum
heilbrigðisráðuneytisins er nú unnið að undirbúningi
frumvarps sem fela mun í sér að sjúklingar sem leggjast
inn á sjúkrahús greiði 300-600 kr. gjald í 10 daga að(
hámarki á hverju ári. Undanþegnir yrðu elli- og ör-'
orkulífeyrisþegar og börn, svo og munu koma til fleiri
undantekningar. “
Fulltrúar allra stjórnarandstöðuflokkanna mót-
mæltu harðlega þessum áformum um sjúklingaskatt og
fjölmargir læknar og aðrir forráðamenn í heilbrigðis-
málum töldu fráleitt að búa til slíkan tekjustofn fyrir
ríkiskassann. Fjármálaráðherra Albert Guðmundsson:
varði hins vegar sjúklingaskattinn í frægri ræðu á Al-
þingi. Taldi ráðherrann mikið vafamál að þeir sem
gagnrýndu sjúklingaskattinn ættu að fá að vera í friði á
Islandi. Var greinilegt að Albert taldi þá eiga minni rétt
en hundinn heimsfræga, Lucy á Laufásveginum.
Albert Guðmundsson var þó þeirrar skoðunar að
Matthías Bjarnason heilbrigðisráðherra ætti að eiga
höfundarrétt að sjúklingaskattinum: „Ég reikna með
því að leggi heilbrigðisráðherra til að þetta gjald verði
tekið hafi ríkisstjórnin ekkert við það að athuga. Hann
framkvæmir niðurskurð í heilbrigðiskerfinu. Það er
ekki rétt að fjármálaráðherra leggi á þennan skatt eða
hafi fundið hann upp.“
Þegar Svavar Gestsson spurði Matthías Bjarnason
um sjúklingaskattinn við þriðju umræðu fjárlaga eftir
að Albert hafði komið skattlagningunni yfir á Matthías
trylltist heilbrigðisráðherra í ræðustól Alþingis og kall-
aði stjórnarandstæðinga öllum illum nöfnum um leið og
hann viðurkenndi að undirbúningur sjúklingaskattsins
væri í fullum gangi.
Við þessa umræðu vakti Svavar Gestsson athygli á
því að ráðherrarnir væru greinilega farnir að skámmast
sín fyrir sjúklingaskattinn. Svavar lét í ljós þá ósk „að
bak jólum getum við mætt nýjum ráðherra með nýjar,
betri og skynsamlegri hugmyndir en þær sem hann
hefur hér lagt fram - þá munum við þingmenn Alþýðu-
bandalagsins fagna þeim sinnaskiptum“.
Þegar Alþingi kemur nú saman til funda á ný vaknar
sú spurning hvort jólahátíðin hefur megnað að milda
skap ráðherranna og breytt áformum ríkisstjórnarinnar
um sjúklingaskattinn. Frumvarp um þennan nýja skatt
hefur ekki enn verið lagt fram. Vonandi sér það aldreii
dagsins ljós. Ef ríkisstjórnin gefst upp á sjúklingskattin-
um sýnir það mikinn árangur stjórnarandstöðunnar.
Vörn fyrir
Blazer og Benz
Forystumenn Framsóknarflokksins Steingrímur
Hermannsson og Tómas Árnason hafa verið fremstir í
flokki þeirra sem hafa knúið launafólk til að fórna,
fjórðungi kjara sinna í þágu baráttunnar gegn verð-
bólgunni. A sama tíma hafa þeir látið ríkið gefa sér
andvirði 10 árslauna verkamanna í formi fríðinda við
kaup á Blazer og Benz.
Málgagn Framsóknarflokksins Tíminn ver þetta sið-
leysi í forystugrein í gær. Þar með hefur varanleiki
spillingarinnar orðið stefna flokksins.
klippt
Samningafréttir
Fréttir Þjóðviljans og Morgun-
blaðsins um að hugsanlegt væri
að ASí og VSÍ væru að ná samn-
ingum vöktu mikla athygli sl.
þriðjudag, en var ekki sérstak-
lega fagnað af öllum. Forseti ASí
og framkvæmdastjóri Vinnuveit-
endasambandsins lögðu áherslu á
það strax í útvarps- og sjónvarps-
fréttum um kvöidið að hér væri
aðeins um óformlegar áþreifing-
ar að ræða, engin tilboð hefðu
gengið á milli aðila, margt hefði
verið reiknað út, en engin ein
niðurstaða lægi fyrir. Forsætis-
ráðherra kannaðist hinsvegar vel
við „þessar hugmyndir“ og taldi
þær skoðunarverðar þó að þær
færu út fyrir sultarramma ríkis-
stjórnarinnar.
NÚ-Tíma viðhorf?
í blöðunum í gær, miðvikudag,
eru ýmis fróðleg ummæli sem
varpa ljósi á þetta fréttamál.
Þannig segir Tíminn í fyrirsögn
að ekki hafi allir verið ánægðir
með þreifingar Ásmundar og
Magnúsar og spyr hvort nota hafi
átt blöðin til að eyðileggja
samkomulagsgrundvöllinn. Þaö
er fallegt til afspurnar ef það er
rétt að hægt sé að nota Morgun-
blaðið og Þjóðviljann til „óhæfu-
verka“ af þessu tagi! Ber að skilja
þessar aðdróttanir Tímans á þann
hátt að fréttamenn eigi að þegja
um stórfrétt, sem þeir fá nasasjón
af? Er það kannski NÚ-Tíma við-
horf?
„Þetta“ var
trúnaðarmál
„Við vorum beðin fyrir þetta
sem algjört trúnaðarmál, en
tveimur tímum eftir fundinn var
Þjóðviljinn búinn að fá þetta í
hendur“, segir Aðalheiður
Bjarnfreðsdóttir í samtali við Al-
þýðublaðið. Hún viðurkennir
semsagt að eitthvað „þetta“ hafi
menn fengið í hendur upp úr við-
ræðum Magnúsar framkvæmda-
stjóra VSÍ og Ásmundar forseta
ASÍ á fundi verkalýðsleiðtoga á
þriðjudag. Þar fyrir þarf það alls-
ekki að vera rangt hjá þeim
Magnúsi og Ásmundi að óform-
legar viðræður þeirra hafi ekki
skilað niðurstöðu, og engar prós-
entuhækkanir hafi verið boðnar
formlega. En allavega er ljóst að
reynt hefur verið að glöggva það
fyrir mönnum hvaða niðurstaða
hugsanlega gæti fengist í samn-
ingum án stórátaka.
„ Úrslitaviðrœðuru
Og hvað segir forsætisráð-
herra, sem sjaldnast liggur á hlut-
arliðnum“, segir Magnús Gunn-
arsson í samtali við Alþýðublað-
ið. „Það er rétt og hefur ekki far-
,ið leynt, að við Asmundur Stef-
ánsson höfum rætt málin og fund-
að á milli hinna föstu samninga-
funda, en það er ekkert nýtt; slík
vinnubrögð eru áður þekkt.“
Þjóðviljinn hallast að því að mat
forsætisráðherra á stöðu mála
gefi réttari mynd af atburðum
heldur en yfirlýsing Magnúsar.
Það sem verið er að reyna er
hvort flötur finnst á heildarsamn-
ingum við ASí sem myndu skapa
munstur á vinnumarkaði amk. til
eins árs, án þess að til átaka
komi. Þessa skoðun styður viðtal
við Guðmund J. Guðmundsson í
Viðræðurnar hafa ekki
skilað neinni niðurstöðu
— segir Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ
alrangt aft þaft sé samkomulag
okkar í milli um eitt eða neitt,
mál-
' •Í-JMæ Æ* okkar í milli um eitt eða nei
- - - - £.
unum, í samtali við Morgunblað-
ið í gær?:
„Við munum hafa formlegt
samstarf og samband við aðila
vinnumarkaðarins um aðgerðir
og það hefur ekki verið talið
tímabært núna á meðan þeir
standa í úrslitaviðræðum um
kaup og kjör, en við erum tilbún-
ir að ræða málin hvenær sem er.“
Að mati Steingríms Hermanns-
sonar er hér um úrslitaviðræður
að ræða, og er hann því sammála
fréttamati Þjóðviljans og Morg-
unblaðsins.
Feluvísitalan
og Guðmundur
„Það er ekkert til í því að samn-
ingar milli ASÍ og VIS séu í burð-
)iefur , . ,
b*r4«unni vií
DV í gær, þar sem hann segir
m.a. að Verkamannasambandið
sé að ræða framkomnar hug-
myndir: „Flöt prósentuhækkun
yfir alla línuna væri það háskaleg-
asta sem út úr þessum samning-
um gæti komið og ég vara við því.
Hins vgar líst mér út af fyrir sig
vel á hugmyndir um endurskoð-
unarkerfi; eða nokkurskonar fel-
uvísitölu, sem gerði ráð fyrir að
kaupmáttur færi þó aldrei niður
fyrir það sem hann var á síðasta
ársfjórðungi í fyrra.
En þeir lægstlaunuðu verða að
fá eitthvað umfram það hvort
sem það verður kallað kauptryg-
ging, afkomutrygging, kaup-
hækkun eða niðurskurður lægstu
taxta“.
- ekh
Sköpuðu óvissu
í nýútkomnum Félagstíðind-
um Starfsmannafélags ríkisstofn-
ana er birt örstutt viðtal við Þór-
hildi Salómonsdóttur forstöðu-
konu Þvottahúss ríkisspítalanna
um niðurstöður útboðanna
frægu. í inngangi segir:
„Stjórnendur heilbrigðismála í
landinu sköpuðu mikla óvissu
meðal heilbrigðisstétta í landinu
með ákvörðun sinni um útboð á
ýmissri starfsemi ríkisspítalanna.
Niðurstaða útboðanna varð hins-
vegar með þeim hætti, að starfs-
fólkið gat vel við unað - því að í
ljós kom að reksturinn yrði mun
dýrari í höndum einkaaðila“.
Sigur fyrir fólkið
„Ég var vissulega fegin þessari
niðurstöðu, því hún var okkur í
hag og við fundum það að við
vorum ekki einskis virði. Þetta
var erfiður tími meðan á óviss-
unni stóð, og það er ekkert
launungarmál að við misstum
fólk á meðan þessi óvissa var.
Það var helst yngra fólkið, því
það á auðveldast með að fá
vinnu“, segir Þórhildur og bætir
við að hugmyndin um að láta
aðra aðila taka við rekstrinum
hljóti að vera úr sögunni. „Það er
dýrara að fara annað, það sýndu
þau tilboð sem bárust.“ - ekh
2
FÉLAGSTlÐINDi
„Fundum að við
vorum ekki
einskis virði“
Stjómemur heiIhrigóLsmála i landinu skcp-
uóu mikla óvissu meóal heilhrigóisstétta i
lardinu meó ákvöróun sinni um úthoó á
ýmissri starfsemi rikisspitalanna. Nióur-
staóa útboóanna varó hins vegar meó þeim
fvetti, aó starfsfólkió gat vel vió unað -
þvi i ljós kcrn aó reksturinn yrói mun dýrari
i höndum einkaaóila.
"Ég var vissulega fegin þessari nióurstöóu,
þvi hún var okkur i hag og vió fundum þaó,
aó vió vorum ekki einskis virói", sagði
tórhildur Salónonsdóttir, forstöóukona
Þvottahúss rikisspitalanna, er hún var innt
álits á nióurstöóum úrboóanna.
"Þetta var erfióur eimi nteðan á óvissunni
stóó, og l>að er ekkert iaunungarnál aó vió
misstum fólk á meóan þessi óvissa var.
Þaó var helst yngra fólkió, þvi þaó á auó-
veldast meó aó fá vinnu".
Þórhildur sagói aó hugmyndin um aó láta aóra
aóila taka vió þessum rekstri hlyti aö vera
úr sögunni. "Þaö er dýrara aó fara annaó,
þaó sýndu þau tilboó sem bárust."
■