Þjóðviljinn - 26.01.1984, Page 14
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINNI Fimmtudagur 26. janúar 1984
BLAÐAUKI
Decubal
er alhliða krem sem mýkir og verndar húð-
ina, og viðheldur eðlilegu rakastigi.
Ofnæmisprófað.
í apótekum
HERMES HF
DUMEX
Tvíbu ra-
móðir
Nærði börn in á
brjóstamjóik í 7 mánuði
Sjaldan heyrist aö tvíbura-
mæður hafi nægilega mjólk
fyrir bæði börn sín og aðstæður
til að veita þeim þennan lífs-
vökva í langan tíma.
Þjóðviljinn hafði þó upp á einni
tvíburamóðursem nærði börn
sín á brjóstamjólk mánuðum
saman. Húnvarfús tilaðsegja
frá því hvernig þetta gekk fyrir
sig og um hvað lífið snerist
fyrstu 8 mánuðina eftir fæð-
ingu.
Hún heitir Helga Bogadóttir og
fæddi tvo drengi þann 14. septemb-
er 1982 éftir 8 mánaða meðgöngu.
Drengirnir heita: Húni, sem vó 7
merkur við fæðingu, og Hrafn sem
vó rúmar 11 merkur. Faðirinn
Hilmar J. Malmquist aðstoðar
Helgu við að rifja þetta tímabil
upp.
Vökudeildin
- Þeir þurftu báðir að fara beint
á Vökudeildina. Hún er ætluð
veikum börnum sem þurfa sérstaka
umönnun. Húni var mjög lítill og
þurfti að fara í „glerbúr" og Hrafn
fékk vatn í lungun í fæðingu og þeg-
ar hann var 4 daga gamall fékk
hann heilahimnubólgu og var hætt
kominn. Húni veiktist einnig af far-
aldi sem gekk á Fæðingadeildinni
um tíma.
- Þeir voru í stöðugri lífshættu í
meira en hálfan mánuð. Þetta var
ólýsanlega erfiður tími, sögðu
Helga og Hilmar foreldrar drengj-
anna.
- Á Vökudeildinni voru þeir í
mánuð. Þann tíma lagði ég þá ekki
á brjóst heldur notaðist við
„mjaltavélina“ eða mjólkaði mig
sjálf sagði Helga. Þetta var mjög
erfitt, einkum vegna þess að
aðstaðan á Vökudeildinni er engin
fyrir foreldra. Plássleysi mikið og
ég gat hvergi lagt mig og varð að
borða úti í sjoppu. Þarna vorum
við allan daginn fram á kvöld.
- Ég lagði alla áherslu á að halda
mjólkinni hvað sem á gengi. Ég
hugsaði um það sem mitt mikilvæg-
asta hlutverk eins og málin stæðu.
Með því að gefa þeim móð-
urmjólkina taldi ég að þeir fengju
þann besta lífsvökva sem ég gat
gefið. - Ég grét mikið þennan
tíma og hef trúlega losað um innri
spennu með því móti. Ég grét yfir
rúmi barnanna, innan um fjölda
fólks og hvar sem var. Mjólkin
hvarf ekki enda lagði ég einnig
mikla áherslu á langan nætursvefn.
Heimkoman
- Hvílík hátíð, segja hinir
lífsreyndu foreldrar.
- Dásamlegt að leggja börnin á
brjóst eftir allan þennan tíma. Það
er alveg ólýsanleg tilfinning, segir
Helga og Hilmar öfundar hana af
þeirri reynslu.
- Við byrjuðum á að kaupa okk-
ur þurrmjólk og pela, en þurftum .
ekki að nota þetta nema fyrstu þrjá
dagana eftir heimkomu. Þá hafði
mjólkin aukist svo mikið að þeir
þurftu ekki ábót nema undir nótt-
ina.
Lífið var bleyjur og
brjóst
- Þeir fengu 6 gjafir hvor fyrstu
dagana. Þetta voru 12 gjafir hjá
mér á dag. Það reyndist mér full
mikið svo við gáfum þeim pela
undir nóttina. Því héldum við allan
tímann. Að öðru leyti voru þeir
eingöngu á brjósti. Tíu gjafir á dag
tóku allt að 8-9 klukkustundir með
tilheyrandi bleyjustandi og ropi.
- Drengirnir þyngdust fljótt og
það var mikil hvatning. Mér finnst
ekki mikill stuðningur frá Fæðing-
ardeildinni. Mér fannst ég ekki
vera hvött mikið til að hafa börnin
á brjósti.
- Ég gerði ekki mikið annað en
að sjá um að börnin fengju brjóst.
Bleyjuþvottur var helsta viðfangs-
efnið þar fyrir utan. Hilmar sá um
heimilið og alla aðdrætti.
- Ég prófaði að hafa þá báða í
einu til að spara tíma en það gekk
ekki. Mér fannst of erfitt að halda
þeim þannig, fann ekki réttu stöðu-
na. Þá þurfti ég líkaalltaf áhjálp að
halda til að leggja þá á og láta ropa.
Þess vegna fengu þeir ávallt hvor í
sínu lagi og það tók oftast um hálf-
tíma í senn.
Fæðingarorlofið
þyrfti að lengja
- Ég fékk fjóra mánuði í fæðing-
arorlof og auk þess sumarfrí. Síðan
var ég í launalausu leyfi í tvo mán-
uði - sagði Helga, sem er sjúkra-
þjálfari á Geðdeild Borgarspítal-
ans. Hilmar er líffræðingur og var í
hálfu starfi sem hann gat stundað
heima að miklu leyti.
- Þannig bjargaðist þetta fjár-
hagslega, reyndar með stuðningi
frá fjölskyldunni, þegar húsaleigan
hækkaði svo mikið að við réðum
ekki við hana.
- Við gátum því bæði verið
heima, annars hefði ég ekki getað
verið með börnin meira og minna á
brjósti allan daginn.
- Þetta var tími sem helgaðist
börnunum nær eingöngu, lítið var
um gestakomur og við fórum sjald-
an af bæ. Ófærðin var svo mikil í
fyrravetur.
Næturnar erfiðastar
- Drengirnir hafa alltaf þurft
lítinn svefn. Þeir voru aldrei veikir
fyrstu mánuðina eftir að þeir komu
heim. Þeir voru hressir og þurftu
lítið að sofa. Vöknuðu allt upp í
fimm sinnum á nóttu.
VELTIR HF
SUÐURLANDSBRAUT 16. SÍMI 35200
Stólarnir eru fyrir Volvo 140, 240,340
Yfirgripsmiklar tilraunir hafa sýnt fram á að
lítil börn eru best varin í barnastólnum sem
snýr öfugt.
Bílbeltið, sem Volvo var fyrsta bíla-
verksmiðjan til að nota sem fastan
fylgihlut, hefur sýnt notagildi sitt sem
vörn fyrirfullorðna. En lítil börn hafa
tiltölulega stórt höfuð, brothættan háls, lítinn
brjóstkassaog óþroskaða mjaðmagrind, þau
geta því ekki notfært sér þessa tegund af vörn.
Böm á aldrinum níu mánaða til sex ára eru
best varin í barnastól sem snýr öfugt, og
barnastóllinn frá Volvo er eini barnastóllinn
sem ver börn af stærðinni allt að 117 cm.
Barnastólinn frá Volvo er hægt að staðsetja
bæði í framsæti og aftursæti og hann er með
þriggja punkta öryggisbelti með barna-
læsingu.