Þjóðviljinn - 26.01.1984, Page 18
18 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 26. janúar 1984
Minning
Magnús Guðmundsson
F. 13.3. 1910 D. 20.1. 1984.
Kallið
Af lifandi gleði var lund
þín hlaðin,
svo loftið í kringum þig hló,
en þegar síðast á banabeði
brosið á vörum þér dó,
þá sóttu skuggar að sálu minni
og sviptu hana gleði og ró.
En seinna skildi ég:
Hér áttirðu ekki
að eiga langa töf.
Frá drottni allsherjar
ómaði kallið
yfir hin miklu höf:
Hann þurfti bros þín
sem birtugjafa
bak við dauða og gröf.
(Grétar Fells)
Afi í Ásgarði er dáinn.
Ennþá er fjölskyldan ekki búin
að átta sig á því til fulls. Hann afi í
Ásgarði var barnelskur maður,
hann fylgdist með barnabörnunum
sínum sjö, hvernig þeim gekk í
skólanum og hvort þau væru komin
heim. Þau fylgdust líka með afa
sínum, ekki hvað síst er hann lá á
sjúkrahúsi, því það var ósjaldan að
hann háði þar grimma baráttu fyrir
lífi sínu og hafði til þessa ætíð farið
með sigur af hólmi.
Afi í Ásgarði var Strandamaður,
fæddur að Melum í Árneshreppi,
sonur hjónahna Guðmundar Guð-
mundssonar bónda (Jónssonar) og
EÍísabetar Guðmundsdóttur (Pét-
urssonar í Ófeigsfirði). Hann var
1X2 1X2 1X2
20. leikvika - leikir 21. janúar 1984
Vinningsröð: xlx-1 1 1-121-1 1 1
1. vinningur: 12 réttir - kr. 73.605.-
4404(2/11)+ 6022+ 38091(4/11) 40490(4/11) 60974(4/11) +
2. vinningur: 11 réttir - kr. 1.303.-
1363 16136 44911 56238 60982+ 91495 42753(2/11)+
3518 20244 44978 56575 61232 91837 58377(2/11)
3520 20853 + 45252+ 57449+ 61708 92423 60772(2/11)
5495 20862+ 47157+ 58147 62331 93378 62344(2/11)
6340+ 35115 47681 58371+ 85254 93448+ 91259(2/11)
6434 35760 49186 58374+ 87765 94479+ 91717(2/11)
6507 38130 51439 58382+ 89198 161730 162250(4/11) +
9966 38131 51145 58383+ 89370 161801 162251(2/11) +
13167 39145 52026 58674 89596 162242+ Úr 19. viku:
13618 39196 52458 59350+ 89716 162243+ 45653
13914 40629+ 52574 59398+ 90166 13623(2/11)
13918 41420+ 53093+ 60047+ 90554 38146(2/11)
15455+ 41608 53364 60971 + 90555 40666(2/11) +
15615 43944 54812+ 60973+ 90611 42546(2/11) +
Kærufrestur ertil 13. febrúar kl. 12 á hádegi. Kærur skulu vera skriflegar.
Kærueyðublöð fást hjá umboðsmönnum og á skrifstofunni í Reykjavík.
Vinningsupphæðír geta lækkað, er kærur verða teknar til greina.
Handhafar nafnlausra seðla (+) verða að framvisa stofni eða senda
stofninn og fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang til Getrauna fyrir
lok kærufrests.
GETRAUNIR
íþróttamiðstöðinni
REYKJAVIK
Auglýsing
um styrki/lán til kvikmyndagerðar
Kvikmyndasjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki og lán
til kvikmyndagerðar.
Sérstök umsóknareyðublöð fást í menntamálaráðuneytinu,
Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík.
Umsóknarfrestur er til 19. febrúar.
Reykjvík, 19. febrúar 1984.
Stjórn Kvikmyndasjóðs
m ÚTBOÐ
ígr
Tilboð óskast í vatnsmæla fyrir Hitaveitu Reykjavíkur.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Fríkirkjuvegi
3, Reykjavík.
Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 6. mars
1984 kl. 11. f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800
Utför
Halldórs Sigurðar Backman
byggingameistara
Sóleyjargötu 7, Reykjavík
fer fram frá Dómkirkjunni 30. janúar kl. 15.
Fyrir hönd vandamanna
Jóhanna Arnmundsdóttir Backman
Jónína S. Helgadóttir Backman
Arnmundur Sævar Backman
Inga Jónína Backman
Ernst Jóhannes Backman
Edda Heiðrún Backman.
áttunda barn þeirra hjóna af tólf,
sem öll komust til manns. Hann er
sá sjöundi er héðan hverfur. Níu
ára gamall er hann sendur í fóstur
til móðursystur sinnar Jensínu
Guðmundsdóttur að Óspakseyri,
var mjög kært á með þeim.
Afi í Ásgarði hafði mjög gaman
af að segja frá og hann hafði hug-
fangna hlustendur í barnabörnum
sínum. Eitt sinn er hann dvaldist
hjá okkur um skeið, þá sagði hann
dætrum mínum frá því er hann nít-
ján ára gamall lagði land undir fót
og gekk alla leiðina suður til
Reykjavíkur. Það þótti þeim þrek-
virki mikið og minnast oft á það.
Þann 9.10. 1937 kvæntist Magn-
ús eftirlifandi konu sinni Þórdísi
Árnadóttur frá Þverhamri í
Breiðdal og var það ástríkt hjóna-
band. Annaðist Þórdís hann í
veikindum hans af einstaka dugn-
aði og ástúð. Þau eignuðust þrjú
börn, Árna giftan Móeiði Þorláks-
dóttur, Jensínu gifta Hjörleifi
Þórðarsyni og Herstein giftan Sig-
ríði Skúladóttur. Barnabörnin eru
sjö að tölu.
Ég vil þakka afa í Ásgarði fyrir
allt og allt.
Tengdadóttir
Þeir hverfa nú hver af öðrum,
verkamennirnir sem voru kjarni
Dagsbrúnar á árunum 1940-1970.
En sá hópur er án efa stéttvísasti og
heilasti flokkur sem nokkurt
verkalýðsfélag hefur átt. í dag
verður til moldar borinn einn þess-
ara manna, Magnús Guðmunds-
son, Ásgarði 33.
Magnús var fæddur að Melum í
Árneshreppi. Foreldrar hans voru
Guðmundur Guðmundsson bóndi
þar og kona hans Elísabet Guð-
mundsdóttir, Péturssonar óðals-
bónda í Ófeigsfirði. Gagnmerka
hjón. Börn þeirra voru tólf og var
Magnús áttundi í röðinni, þau
komust öll upp. Níu ára að aldri fór
Magnús í fóstur að Óspakseyri til
móðursystur sinnar Jensínu Guð-
mundsdóttur. Dvaldist Magnús
þar í tíu ár og var mjög kært með
honum og fóstru hans. Nítján ára
að aldri fór Magnús suður til vers.
Eins og títt var á þeim árum þá
gekk hann frá Óspakseyri á strönd-
um norður og til Suðurnesja. Eftir
það bjó hann í Reykjavjk og stund-
aði mest sjóróðra ásamt verka-
mannavinnu.
Hann hafði hug á námi í stýri-
mannaskólanum enda góðum gáf-
um gæddur. Atvikin höguðu því
svo til að úr því gat ekki orðið.
Ógæfa samtíðar hans var sú að
Minning
Anna Jórunn
Loftsdóttir,
hjúkranarkona
F. 21. júlí 1911
D. 14. janúar 1984
Anna Loftsdóttir, hjúkrunar-
kona, lést 14. janúar 1984. Anna
fæddist 21. júlí 1911 á Bakka í
Austur-Landeyjum. Foreldrar
hennar voru Loftur Þórðarson
bóndi og Kristín Sigurðardóttir
Ijósmóðir. Anna var ein átta
systkina, Bakka-systkinanna. Þau
komust öll á legg en einn bróðir er
á undan genginn á besta aldri,
Guðni. Það læðist að mér grunur
um að ljósmóðirin hafi kunnað til
verka við að koma ungviði á legg,
svo mjög sem ljóma stillingar og
festu, elsku og tryggðar, bregður af
þeim systkinum bæði að atgervi og
skaphöfn. Þannig var Anna, stór
og sterk, en jafnframt hógvær og
kærleiksrík. Anna var hjúkrunar-
kona og starfaði við hjúkrun alla
tíð, heima og erlendis, og kom hún
víða við á sviði hjúkrunar. Anna
tók líka virkan þátt í félagsmálum
og var hún annar íslenski formaður
Hjúkrunarfélags íslands næst á
eftir Sigríði Eiríksdóttur. „Þá vann
hún mikið og vanþakklátt starf á
sviði kjaramála fyrir félagið á tím-
um kjarabóta starfsmanna ríkis og
bæja 1963“ eins og segir í afmælis-
hefti Tímarits Hjúkrunarfélags ís-
lands á 50 ára afmæli félagsins
1969. Ég held að Anna hafi gert sér
grein fyrir að hjúkrun er fullgilt
starf sem ber að greiða sem slíkt og
ekki „aðeins" óeigingjarnt líknar-
starf kvenna unnið af fórnarlund
og með afneitun á jafnrétti og sjálf-
sögðum mannréttindum.
Anna var frænka þess sem ritar,
móðir mín og Anna voru
systkinabörn. Ég minnist Önnu
best sem unglingur eða barn í
hennar umsjá eitt sumar á Bakka.
Það var mikið ævintýri og minning-
in um foreldra hennar, hagleiks-
bóndann og ljósmóðurina, um
sveitina, Landeyjarnar, um bræður
og systur og annað fólk, sem þar
fékk skjól, lifir. Það var sundriðið,
í leynum étnir hertir þorskhausar
frá Lofti bónda, dottið í læk fullan
af vikri frá Heklugosi og sveitin
skynjuð af óreyndu borgarbarni.
Ýmislegt fleira er geymt í minning-
unum og þá ekki síst öll umhyggja
Önnu fyrir stráknum sem henni var
trúað fyrir. Fyrir slíku gerði ég mér
ekki grein fyrir strax, heldur vinnur
það á með tímanum og vermir.
Hvernig má þakka fyrir slíkt? Aðr-
ar minningar á ég um Önnu, nær og
fjær, mörgum viðhaldið af hlýju
umtali ástvina. Hæst ber þar för
Önnu með öðru íslensku fólki frá
Danmörku í byrjun stríðs 1940 í
svonefndri Petsamoferð. Fyrir
Önnu varð það Stokkhólmsferð,
þar náði metnaður hennar til frek-
ara náms og starfs tökum á henni
og var hún úti öll stríðsárin. Hér
heima eftir stríð man ég Önnu best
í starfi á Röntgendeild Landspít-
alans og síðar f starfi á Hvítaband-
inu og á Vífilsstöðum. Ég man bar-
áttu hennar fyrir lífi lítillar bróður-
dóttur sinnar, baráttu sem við
krakkarnir vissum af og sem end -
aði með sigri.Ég man einnig sér-
staklega eftir því að Anna bauð
mér einu sinni með sér að Gljúfr-
asteini, en Auður eiginkona Hall-
fæstir fengu hæfileika sinna notið.
Hann kvæntist 1937 eftirlifandi
konu sinni Þórdísi Árnadóttur frá
Þverhamri í Breiðdal. Það er góð
kona. Þeim var þriggja barna
auðið, sem öll eru uppkomin og
hafa stofnað sín heimili og barna-
börnin eru orðin sjö.
Árið 1940 gekk hann í Dags-
brún. Þar bættist ágætur maður við
góðan liðsafla. Þar var hann virkur
félagi meðan heilsa leyfði. Sat í
trúnaðarráði félagsins um árabil.
Lengst af vann hann við Reykja-
víkurhöfn en af og til var hann til
sjós. Síðustu starfsár sín vann hann
í Áburðarverksmiðjunni. Magnús
var einlægur verkalýðssinni. Hann
var félagi í kommúnistaflokknum
og einn af stofnendum sósíalista-
flokksins en - í Alþýðubandalagið
gekk hann aldrei. Hvenær sem
hörð verkalýðsbarátta var háð í
Reykjavík var Magnús til staðar.
Hvenær sem þurfti að rétta hlut
þeirra sem erfitt áttu var stuðning-
ur Magnúsar vís. Ég rek ekki alla
þá sögu. Slíkir menn eru oftast
nafnlausir og njóta engrar frægðar,
en baráttan sem þeir háðu og ein-
lægnin við málstaðinn voru skilyrði
þess að ýms helstu réttindamál
fólks náðu fram að ganga.
Síðustu níu árin sem Magnús
lifði átti hann við erfiða sjúkdóma
að stríða og þurfti að líða þungar
þrautir. Við skulum því ekki harma
fráfall hans, svo þjáningarfull urðu
honum síðustu æviárin. En um-
hyggja konu hans og barna og
tengdabarna var einstök.
Dagsbrún þakkar honum sam-
fylgdina og störfin og kveður hann
með þakklæti og sendir konu hans
og fjölskyldu samúðarkveðjur.
í dag verður hann jarðsettur á
köldum vetrardegi frá Fossvogs-
kapellu og það hefir ábyggilega
líka verið kalt þegar hann fæddist á
vetrardegi norður í Árneshrepp
1910. En hugsjónir hans voru
heitar og minningin um hann er
hlý.
Guðmundur J. Guðmundsson
dórs Laxness og Anna voru góðar
vinkonur. Anna var vel vakandi
fyrir því hvað sveinninn þráði þótt
ekki væru það bókmenntirnar.
Aðrar minningar um Önnu fel-
ast í öllu fasi hennar, fágaðri fram-
komu, mildi, tryggð, ástúð og kær-
leika. Hún var líka ein Bakka-
systkinanna, sem við virtum og
undruðumst. Ætli við hin, við há-
væru borgarbörn, höfum nokkurn
tímann skilið þau, þessa hógværu
og æðrulausu frændur okkar og
frænkur, sem komu í foreldra og
afahús, Halldórshús við Laufás-
veginn? Þau voru vinir fóreldra
minna, föður míns og móður.
Anna mun hafa gengið á vit aftur-
eldingarinnar með sama æðruleysi
og fylgdi henni í lífinu.
Ég vil ljúka þessum brotum með
því að votta systkinum Önnu,
Dodda, Didda, Leifi, Bjössa, Dadí
og Stínu, börnum þeirra og öðrum
ættingjum, tengdafólki og skjól-
stæðingum, hluttekningu mína og
míns fólks við fráfall Önnu frænku.
Sérstaklega flyt ég þeim kveðju
móður minnar með þakklæti fyrir
tryggðaböndin.
Guð gefur, Guð tekur
Guð blessi minningu Önnu Jór-
unnar Loftsdóttur.
Svend-Aage Malmberg