Þjóðviljinn - 27.01.1984, Síða 3
. Föstudagur 27. janúar 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
Starfsmenn í kerskálum Álversins hlýða daprir í bragði á trúnaðarmann sinn Ásbjörn Vigfússon lýsa samningstilboðum eigenda Alversins. „Við slíkri ósvinnu eiga menn ekki
nema eitt svar, verkfall“, var samdóma álit starfsmanna. Þjóðviljamynd -eik.
„Þeir hafa fengið nóg af
ókeypis vinnu hjá okkur“
Mikil samstaða og einhugur meðal starfsmanna sem eiga
ekki orð yfir ósvífni og hótanir iðnaðarráðherra
- Það er rétt að segja það í upp-
hafi að ástandið í samningamálum
er engan veginn gott. Staðan er því
sem næst á núlli, sagði Eyjólfur
Bjarnason trúnaðarmaður starfs-
manna þegar hann ásamt Ásbirni
Vigfússyni aðaltrúnaðarmanni
starfsmanna í kerskálum Álversins
gengu inn í þéttskipaða kaffistofu
kerskálamanna um miðjan dag í
gær. Starfsmenn hlýddu á skýring-
ar trúnaðarmanna frá gangi samn-
ingaviðræðna síðustu daga og
þcirri áætlun sem skipulögð hafi
verið fyrir fyrsta allsherjarverkfall
í Álverinu. Það fór ekki á milli mála
að samstaða starfsmanna um að-
gerðir er mikil og verkamenn í
Straumsvík ætla ekki að láta iðnað-
arráðherra segja sér til um hvort
eigi að sitja eða standa.
í máli þeirra Ásbjarnar og Ein-
ars kom fram að tilboð sem fulltrú-
ar eigenda verksmiðjunnar lögðu
fram á samningafundi síðdegis í
gær, eftir að iðnaðarráðherrá hafði
látið sín fleygu orð falla í útvarpi,
hafi verið eitt það furðulegasta sem
sést hefði í viðræðunum til þessa og
ekki annað en hrein ósvífni í garð
verkamanna eins og Ásbjörn lýsti
því. Boðið var uppá 1% launa-
hækkun, endurskoðun á bónus-
greiðslum sem metin var uppá 2%
sem síðar skyldi endurskoðuð eftir
heildarkjarasamninga (þ.e. öllu
stolið aftur) og skipti á föstum frí-
dögum fyrir heilsdagsfrí á jóladag
eða gamlársdag. Þá óskuðu
eigendur eftir því munnlega, að fá
keypt aftur það viðbótarorlof sem
starfsmenn Álversins fengu áunnið
á sl. sumri samkvæmt úskurði dóm-
stóla.
„Þetta er það sem okkur er boðið
uppá. Eins og staðan er í dag þá
stefnir í verkfall á miðnætti“, sagði
Ásbjörn.
Aðeins 13 menn
munu starfa áfram
„Verkfallsnefnd hefur setið á
löngum fundum um skipan mála
næstu daga hér í verksmiðjunni og
við erum hér með tillögur sem eru
nýjung í þessum efnum“, sagði Ás-
björn um leið og hann minnti
starfsmenn á það ákvæði í samn-
ingum ÍSAL við verkalýðsfélögin,
að ef til verkfalla kæmi þá séu fé-
lögin ábyrg fyrir því að framleiðslu-
tækin verði ekki fyrir skemmdum,
burtséð frá framleiðsluvörunni
sjálfri.
Samkvæmt skipulagi verkfalls-
nefndar urðu aðeins 13 starfsmenn
eftir við störf í Álverinu frá mið-
nætti í nótt. 8 eftirlitsmenn í ker-
skálum, 3 í steypuskála, 1 rafvirki
og 1 hliðvörður. Þá verður einn
starfsmaður auk matsveins starf-
andi í mötuneyti. Þessi starfs-
mannafjöldi mun sjá um að halda
heitu á bræðslukerjum næstu 32
Eini kosturinn
„Eins og staðan er í dag þá líst
manni illa á þetta. Það hefur eng-
inn efni á því að fara í verkfall, en
eins og fyrirtækið hefur hagað
sér, þá er ekki um annað að ræða
en fara í verkfall“, sagði Magnús
Einarsson starfsmaður í ker-
skála.
Hvernig er hugur í mönnum?
„Það er mjög góður hugur í
mönnum. Þeir eru á einu máli um
þessar aðgerðir. Ummæli iðnað-
arráðherra þjappaði mann-
skapnum mikið saman. Það hefur
vegið þungt á metum nú á úrslita-
stund.“
Eiga menn von á harðri bar-
áttu?
„Menn eru tilbúnir að standa í
harðri baráttu hér. Það liggur al-
veg ljóst fyrir. Ég á frekar von á
því að þetta eigi eftir að verða
harðar deilur. Það er spurning
um næsta mótleik hjá þeim“,
sagði Magnús Einarsson. - lg.
Magnús Einarsson: Menn tiibún-
ir í harða baráttu. Þjóðviljamynd
- eik.
klst. Það verður ekki fyrr en á
laugardagsmorgun, standi verkfall
þá enn yfir, að kölluð verður út
fjölmennari vakt til að áltaka kerin
og sjá um skautaskipti. Það starf
mun standa fram á mánu-
dagsmorgun og standi verkfall þá
enn yfir, verður tilkynnt um frekari
skipulag verkfallsvinnu þá.
Áskiljum okkur
allan rétt
„Það er rétt að taka það fram“,
sagði Ásbjörn, „að samninganefnd
okkar lét bóka það á samninga-
fundi með sáttasemjara í gær, að ef
af því verður sem ráðherra hótaði í
útvarpi, þá er þessi áætlun sem ég
lýsti úr sögunni. Við áskiljum okk-
ur þá allan rétt í þessum efnum“,
sagði Ásbjörn og starfsmenn tóku
undir með lófaklappi.
„Þessir menn hafa fengið nóg af
ókeypis vinnu hjá okkur. Verkfall
er það eina sem þeir skilja, það er
áð vísu spurning hvort Sverrir
skilur þetta“, var kallað úr hópi
starfsmanna. Annar tók undir og
sagði: „Ráðherra hótar að setja á
okkur lög. Ef forráðamenn ÍSAL
hafa haft þetta í vasanum frá því
fyrir áramót, þá er ekki að undra
að ekkert gerist í okkar samning-
amálum. Það eina sem ummæli
ráðherra hafa haft upp á sig er að
þjappa okkur saman í þessari kjar-
adeilu. Við rísum upp núna, það er
spurning hvenær þolinmæðina
þrýtur hjá öðru launafólki“.
„Heyr, heyr“! gall við í kaffistof-
unni.
Ekki sama
hvaða fjölmiðill er
Margir starfsmenn tóku til máls
og m.a. var spurt hvers vegna að-
eins blaðamenn frá Þjóðviljanum
væru viðstaddir þennan fund.
„Þessir blaðamenn óskuðu eftir
að fá að sitja þennan fund og ég sá
ekki aðra ástæðu en að leyfa þeim
það. Ég hef þá reynslu af fjölmiðl-
um í dag, að það er ekki sama
hverjir eru og hverjir fá þar inni.
Okkar málflutningur hefur hvergi
fengið að koma fram nema hjá því
dagblaði sem hefur sent fulltrúa
sína hingað. Þeir eru því velkomnir
hér“, sagði Eyjólfur Bjarnason
trúnaðarmaður og starfsmenn tóku
vel undir þau orð hans.
Hættulegur og
óheilsusamlegur
vinnustaður
Mönnum varð tíðrætt um það
ákvæði samninga að starfsmenn
eru ábyrgir fyrir því að ekki verði
tjón á framleiðslutækjum ef til
verkfalla kemur. „Mér er spurn“,
sagði einn starfsmanna, „hvaða
ábyrgð hefur fyrirtækið að gegna
gagnvart okkur. Það er alltaf talað
um að við berum ábyrgð á þeirra
tækjum. Hvaða ábyrgð ber þetta
alþjóðaauðvaldsfyrirtæki á okkar
hag og heilsu? Það er blásið út í
fjölmiðlum að hér hafi menn það
svo gott í Álverinu. Kaupið er al-
veg svimandi, er fólki sagt. Menn
skulu gera sér fulla grein fyrir því
að hér er stór hópur verkamanna
með laun undir 15 þúsund krónum
á mánuði. Við skulum ræða þessi
mál út frá réttum forsendum sem
eru dagvinnutekjur, en ekki ein-
hver bullandi yfirvinna og vakta-
vinna. Ég tala ekki um aðbúnaðinn
hér á staðnum. Kerskálar verða
alltaf hættulegir og óheilsusamlegir
vinnustaðir. Það er allt í lagi að
almenningur sé upplýstur um nið-
urstöður rannsóknar á mengun hér
í kerskálunum sem nýlega voru op-
inberaðar. Það er síður en svo ein-
hver paradís á jörð að starfa hér í
Álverinu," var samdóma álit
starfsmanna þegar þeir gengu af
fundi með trúnaðarmönnum síð-
degis í gær. Skömmu síðar stimpl-
uðu þeir sig út og voru komnir í
verkfall.
-•g-