Þjóðviljinn - 27.01.1984, Qupperneq 9

Þjóðviljinn - 27.01.1984, Qupperneq 9
8 SIÐA - ÞJOÐVILJINN Föstudagur 27. janúar 1984 Föstudagur 27. janúar 1984 ÞJOÐVILJINN - SÍÐA 9 HÖFUM ENGAN LEIKBRÚÐUKOMPLEX segir Castro, forseti Kúbu í viðtali við Newsweek i tilefni 25 ára byltingarafmælis Kúba stendurfremst meðalþjóða þriðja heimsins í menntun ogfélagslegri þjónustu og á Kúbu eru nú hlutfallslega fœrri ólœsir eða hálflœsir en í Bandaríkjunum. Myndin sýnir kúbönsk skólabörn. í tilefni 25 ára byltingarafmælis frá yináttufélögum Norðurlandanna AVARP Nú eru liðin 25 ár síðan skeggjaðir skœruliðar undir forystu Fidels Castro úku sigurvögnum inn í Havanaborg við gífurleg fagnaðurlœti almenn- ings. Af því tilefni senda vinúltufélög Norður- landannu (íslands, Noregs, Finnlands, Sviþjóðar og Danmerkur) og Kúbu frá sér eftirarandi álykt- un sem samþykkt var á árlegum Norramum fundi félaganna í Kaupmannahöfn dagana 7. og8. jan- úar s. I.: „Sigurinn yfir Batista einræöisherra var undan- fari róttækustu þjóðfélagsbyltingar sem orðið hefur í nokkru landi eftir seinni heimsstyrjöld- ina. Árangur Kúbumanna á sviði mennta- og heilbrigðismála á þessurn 25 árum hefur vakiö aðdáun um allan heim. Ólæsinu, sem náði til einnar milljónar manna, hefur vcrið útrýmt og nú eiga allir landsmenn kost á níu ára skóla- göngu. Komið hefur verið á heilsugæslukerfi meó ókeypis lækna- og sjúkrahúsaþjónustu fyrir alla, og meðalævin hefur lengst úr 52 árum í 73. Efnahagslega og pólitískt haföi byltingin í för með sér frelsun undan þeim yfirráðum sem Bandarfkin höfðu á eynni frá 1898 til 1959. Sú frelsun hefur átt sér stað þrátt fyrir 25 ára linnu- lausa árcitni af hálfu nágrennans volduga í norð- ri. Og nú. þegar fleiri ríki í Mið-Ameríku eru að varpa af sér oki bandrískrar heimsvaldastefnu og Reagan situr í forsetastóli, færist hin bandartska áreitni í aukana. Nýjasta sönnun þess er innrás Bandartkja- manna í litla eyríkið Grenada. Þar beittu þeir vopnum til að gera að engu nýtt samfélag, sem kúbanskir læknar, tæknifræðingar og byggingar- verkamenn aðstoðuðu við að byggja upp. Kúba er ekki aðeins fordæmi fyrir öll þróun- arríki sefn berjast við að útrýma eymd og volæði og losa sig úr klóm heimsvaldastefnnnar- Kúbu- mcnn styðja þcssi ríki í verki með því að vcita þeim efnahagslega og mannúðlega aðstoð. Síðast en ekki síst eru Kúbumenn eljusamastir baráttu- manna fyrir því að kröfur þróunarríkjanna um nýja og réttláta efnahagsskipan í heiminum nái fram aö ganga. Samstaða með og stuðningur við Kúbu er sam- staða með og stuðníngur við þessi markmið, og jafnframt framlag til baráttunnar gegn þcirri her- skáu stefnu sem Bandaríkjamenn reka, ekki að- cins gcgn Kúbu, heldur og gegn öllum löndum Mið-Ameríku. Lífið á Kúbu er í engu samræmi við þá skrum- skældu mynd sém fjölmiðlar auðvaldsins kapp- kosta að halda að almcnningi í löndum okkar. Besta ráðið gegn þessum andkúbanska áróöri og til að styrkja samstöðuna með Kúbu er hcimsókn til Kúbu, og því hvctjum við fólk í löndum okkar að fara þangað og sjá með eigin augum hvað áunnist hefur - annaðhvort sem ferðamenn eða þátltakendur í hinum vinsælu. árlegu, norrænu vinnuferðum - Brigada Nordica." Ef kúbanska þjóðin hefði ekki fund- ið sjálfa sig í byitingunni hefðum við iíklega beðið ósigur, því hin vold- ugu Bandaríki hafa beitt öllum brögðum gegn kúbönsku bylting- unni. Það er fólkið sem ber hana uppi. Þettaerekki gagnrýnislaus stuðningur í blindni. Þvert á móti má greinilega heyra á tali fólksins á göt- um úti að það talar óhikað um það sem því fellur miður, a.m.k. séu út- lendingar ekki nálægir. Við vitum að margt er enn ógert, en okkur miðar áfram. í upphafi áttum við bara hug- myndir, nú getum við einnig státað af nokkurri reynslu. Þannig kemst Fidel Castro meðal annars að orði í opinskáu viðtali sem hann átti við bandaríska vikuritið Newsweek í tilefni 25 ára afmælis kúbönsku byltingarinnar. í við- talinu er víða komið við varðandi samskipti Kúbu og Bandaríkjanna, ástandið í Mið- Ameríku, atburðina á Grenada o.fl. Varðandi samskiptin við Bandaríkin, þá segir Fidel að um hugmyndafræðilega sátt eða málamiðlun við Reagan-stjórnina geti ekki orðið að ræða, en sú staðreynd að Kúba haldi áfram að vera sósíalísk og Bandaríkin kapítalísk þurfi ekki að fela í sér að stjórnir ríkjanna geti ekki unnið saman uppbyggilegt starf á afmörkuðum sviðum. Sem dæmi nefnir hann að Reagan-stjórnin gæti lagt hugmyndafræðilega áráttu sína á hilluna og hlýtt kalli Contadora-ríkjanna um að vinna að lausn á málefnum Mið- AmeríkU við samningaborðið. Þá skapaðist möguleiki fyrir Kúbu, Bandaríkin og önnur ríki á svæðinu á því að koma á friði og leggja grundvöll að þeim lýðræðilegu breytingum sem nauðsynlegar eru fyrir Mið-Ameríku. Fidel sagði að Kúba hefði hvorki áhugá né möguleika á að flytja byltingu út til ann- arra ríkja í þessum heimshluta og að Banda- ríkin hefðu sömuleiðis ekki möguleika á að hindra slíkar byltingar. Grenada í umfjöllun um atburðina á Grenada kemur ýmislegt athyglisvert í ljós. Fidel segir: Fyrir innrásina í Grenada höfðum við misst náinn og mikilhæfan vin, 'sem var Maurice Bishop. Með dauða hans var bylt- ingin búin að vera. Með innrásinni voru Bandaríkin að ráðast á lík um leið og þau frömdu fáheyrðan glæp, gegn fullveldi, frelsis- og framfaraþrá þjóða Karíbahafsins og Rómönsku Ameríku. Með innrásinni sýndi Reagan að hann skirrist ekki við að gera innrás í fullvalda ríki og að hann er enn ákveðinn í að styðjast við sama gamla vald- ahrokann. Afstaða okkar til nýju stjórnarinnar á Grenada var alkunn. Samskipti okkar og stuðningsmanna Coards voru mjög slæm. Við hefðum trúlega lokið okkar verki við flugbrautina og síðan yfirgefið landið. Hugsanlega hefðum við skilið eftir ein- hverja lækna í mannúðarskyni. En við hefðum stórlega dregið úr allri samvinnu. Mat okkar var að Coards-hópurinn gæti ekki staðist eftir að hann hafði drepið Bis- hop. Byltingin hafði framið sjálfsmorð. En það réttlætti ekki innrásina. Banda- rískir jjegnar á eyjunni voru í engri hættu. Öfgasinnarnir höfðu gefið þeim tryggingu og við vissum að þeir voru ekki í neinni hættu. Við komum þeirri vitneskju á fram- færi við bandarísku stjórnina 72 klukku- stundum áður en innrásin hófst. Öll kenn- ingin sem Reagan bjó til, til þess að réttlæta innrásina, var fölsk. Hrein lygi frá upphafi til enda... Þetta var heigulsleg, tækifæris- sinnuð pólitísk aðgerð, þar sem Reagan tók sér í nyt harmleikinn sem átt hafði sér stað á eynni. Annað kom einnig til: Reagan vitnaði til örlaga gíslanna í Iran. Sú reynsla varð bandarísku þjóðinni niðurlæging. Þá höfðu 230 bandarískir hermenn verið drepnir í Líbanon helgina á undan. Og ósigurinn í Víetnam var í fersku minni. Reagan not- færði sér öll þessi atriði til þess að setja innrásina á Grenada á svið sem stórsigur. Þetta er hættuleg stefna. Þetta er ábyrgðar- laus stefna sem auðveldlega getur leitt til nýrrar styrjaldar og til nýrra hernaðaræfin- týra í E1 Salvador, Nicaragua eða á Kúbu. Þá spyr blaðamaður Castro hvers vegna hann hafi ekki vitað af því hættuástandi sem vofði yfir á Grenada, þar sem hann hefði haft svo náið samband við Bishop. Illa upplýst starfslið Fidel: Það er rétt. Það er erfitt að skilja að við skulum ekki hafa vitað um þann klofning sem átti sér stað með öllu því send- iráðsliði sem við höfðum á staðnum. Fyrir þetta höfum við gagnrýnt bæði sendiráðs- starfsmennina, pólitíska starfsmenn okkar og hermenn sem voru á Grenada. Þeir höfðu ekki hugmynd um hvað var á seyði. Og jafnvel þótt Bishop hafi komið í heim- sókn til Kúbu á meðan á þessum deilum stóð, þá minntist hann ekki á það einu orði við mig. Við vitum auðvitað nú hvað gerð- ist. Þaðvardjúpurhugmyndafræðilegur á- greiningur á milli Bishop og Coard.Coard kom fram sem fræðimaður, menntamaður sem var ölvaður af pólitískri fræðikenn- ingu. En ég er sannfærður um að undirniðri hafi hann verið knúinn áfram af sterkri met- orðagirnd. Það var ekki fyrr en daginn áður en Bishop var tekinn til fanga sem hann kom til sendiráðs okkar til að skýra frá því að upp væri kominn alvarlegur klofningur. Hann sagðist óttast um líf sitt. Spurning: Gátuð þið ekkert gert til að bjarga lífi Bishops? Fidel: Ég kom þeirri ósk á framfæri við Coard-hópinn að hann sýndi víðsýni og um- burðarlyndi. Það sem hafði gerst var að Coard-hópurinn hafði náð meirihluta and- spænis Bishop. Það virtist á hreinu, og lög- legt samkvæmt leikreglum lýðræðisins. Menn verða að taka slíkum aðstæðum, jafnvel þótt menn geri sér grein fyrir að Fidel Castro ogMaurice BishopáKúbu 1980. Með þvíað drepa Bishop hafði byltingin á Grenada framið sjálfsmorð og innrás Bandaríkjanna var huglaus árás á lík, segirFidel Castro mistök hafi verið gerð. Við gátum ekki gert meira en það sem við gerðum. Við blöndum okkur ekki í innri málefni flokka eða sam- taka. Áfall fyrir Bandaríkin Biaðamaður: Reagan-stjórnin heldur því fram að innrásin hafi verið alvarlegt áfall fyrir hróður og áform Kúbu í þessum heimshluta. Fidel: Samkvæmt okkar skilningi var innrásin á Grenada áfall fyrir Bandaríkin. Þetta var huglaus og heimskulegur verkn- aður. Innrásin færði Bandaríkjunum enga sæmd. Hún varð hins vegar til þess að marg- efla baráttuanda fólksins á Kúbu og í Nicar- agua og meðal byltingarsinna í E1 Salvador. Spurning: Hafa líkurnar á bandarískri innrás í Nicaragua aukist við innrásina í Grenada? Fidel: Sumir skýrendur telja að þar sem Reagan hafi nú bætt stöðu sína meðal kjós- enda „með ódýrum hætti", eins og það er kallað - það voru nákvæmlega 20 Banda- ríkjamenn drepnir í Grenada - og að hann muni láta sér þennan ávinning meðal kjós- enda nægja. En það væri barnaskapur að ætla Reagan einungis „hófsamleg áform" í ljósi þess óráðs sem hefur knúið hann út í „heilagt stríð“ í Mið-Ameríku í nafni and- kommúnismans. Reagan setur skilyrði og veitir engar tryggingar. Hann hvetur og hjálpar Honduras til þess að ógna Nicarag- ua og heldur áfram að veita gagnbyltingar- sinnum úr liði Somoza og ARDE-hópunum í suðri alla þá hjálp sem þeir þarfnast á landamærunum. Um leið heldur hann áfram að undirbúa sameiginlegar hernaðar- aðgerðir með Honduras og öðrum Mið- Ameríkuríkjum við landamæri Nicaragua. Allt felur þetta í sér hættu sem barnaskapur væri að horfa framhjá. El Salvador Spurning: Sérð þú fram á enn frekari bandaríska íhlutun í E1 Salvador? Fidel: Það er augljóst að Reagan er að reyna að bakka upp herinn í E1 Salvador og um leið er hann að reyna að hreinsa hann af þeim þúsundum morða sem hann hefur gerst sekur um gagnvart þjóðinni. En Re- agan virðist ekki ljóst að hann hefur lítinn tíma til stefnu til þess að ná fram samning- um við skæruliðana, þar sem sigrar þeirra verða augljósari með hverjum deginum sem líður og hrun stjórnarhersins getur orð- ið með það skyndilegum hætti að ekki verði möguleiki eða þörf á neinum samningum. Spurning: Ef þú hefðir möguleika á að hringja til Henry Kissingers á þessu augnabliki, áður en hann leggur fram skýrslu sína, hvaða ráð myndir þú gefa hon- um? Fidel: Jafnvel þótt þessi möguleiki byðist myndi ég ekki taka upp tólið fyrir Henry Kissinger, því ég hef ekkert við þann mann að tala. Ég ber ekki minnsta traust til hans. Hann sýndi okkur hvaða mann hann hefur að geyma í styrjöldinni í Víetnam. Með köldu blóði lagði hann á ráðin um loftárásir og morð á þúsundum manna. Ég þykist þess fullviss að hann leiki á sömu nótum og Re- agan. Kissinger-skýrslan verður árásar- gjörn og afturhaldssöm. Hún verður spegil- mynd af vilja Reagans. Leppur Sovétríkjanna? Spurning: Reagan stjórnin heldur því fram að þú sért leppur Sovétríkjanna. Hvers eðlis er samband ykkar við Sovétrík- in í raun og veru? Fidel: Bylting okkar er fullkomlega sjálfstæð. En það var okkar gæfa að Sovét- ríkin voru til. Við hefðum ekki getað lifað af án þess að hafa markað fyrir sykurinn og án þess að hafa aðgang að olíu, eða vopnum til þess að verja landið gegn innrás eins og þeirri sem gerð var í Svínaflóa, og gegn hryðjuverkum þeim og morðtilraunum, sem beint hefur verið gegn okkur. Yfirlýs- ingar Reagans valda mér ekki áhyggjum. Hann er hreinræktaður lygari. Þetta er gömul lumma. En við höfum enga leikbrúðukomplexa. Sovétríkin ráða ekki yfir neinum eignum á Kúbu. Við höfum gagnkvæm samskipti, en þeir eru jafn sjálf- stæðir gagnvart okkur og við erum gagnvart þeim. í lok viðtalsins segir Castro að byltingin standi traustum fótum. Kúbanir eru nú í fyrsta skipti sjálfs sín ráðandi, segir hann. Énginn getur lengur lítillækkað þá fyrir að vera svartir á hörund eða misboðið þeim vegna þess að þeir eru konur. Félagsleg staða þeirra ákvarðast ekki af tekjum. Hag- vöxtur hefur verið 4.5% að meðaltali síð- astliðin 25 ár, og óvíða hærri í álfunni, þrátt fyrir viðskiptabann Bandaríkjaiina. Við erum aðrir í röðinni hvað varðar neyslu matvæla á einstakling í álfunni. f heilsu- gæslu, menntun, íþróttum og menningu stöndum við fremst í röð ríkja Þriðja heimsins og höfum þegar skákað mörgum iðnríkjum á þessum sviðum. Það mun lík- lega koma þér á óvart, en ég get frætt þig á því að það eru fleiri ólæsir eða hálflæsir hlutfallslega í Bandaríkjunum en á Kúbu. Og við óttumst ekki um framtíðina. ólg. endursagði Náms- ferðtil Kúbu f tilefni af 25 ára afmæli kúbönsku byltingar- innar gengst Dansk-kúbanska vináttufélagið (Dansk-Cubansk Forening) fyrir námsferð til Kúbu um páskana í ár, 14. - 28. apríl. íslenskum áhugamönnum um Kúbu gefst kostur á þátttöku í þessari ferð, fyrir inilligöngu Vináttufélags ís- lands og Kúbu. Markmið fararinnar er að gefa þátttakendum innsýn í kúbanskt þjóðfélag og þá þróun sem þar liefur orðið á sl. 25 árum. Heimsóttir verða skólar. barnaheimili, heilsugæslustöðvar, menn- ingarmiðstöðvar, kvennasamtök, hverfasamtök, samvrkjubú og bækistöðvar Alþýðuvaldsins (Po- dcr Popular) í Havana og Matanzas-héraði. Kostnaður við ferðina frá Kaupntannahöfn er u.þ.b. 9000 danskar krónur og er þá innifalið: ferðir, fæði, húsnæði, heimsóknir og danskur túlkur, sem jafnframt er fararstjóri. Við þetta bætist að sjálfsögðu ferðin til og frá Kaupmanna- höfn. Nánari upplýsingar veitir Ingibjörg í síma 20798. Umsóknir um þátttöku þurfa að berast Vináttufélagi fslands og Kúbu, pósthólf 318,121 Reykjavík. fyrir 10. febrúar. (Fréttatilkynning).

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.