Þjóðviljinn - 27.01.1984, Síða 16

Þjóðviljinn - 27.01.1984, Síða 16
 Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudags. Utan þess tíma er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum símum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími Föstudagur 27. janúar 1984 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndír 81257. Laugardaga kl. 9 -12 er hægt að ná I afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663 BOÐIÐ UPP Á BRASK Báðar tillögurnar bjóða upp á kvótaverslun - sjómenn mótmæla, ráðuneytið situr hjá Tillögur kvótanefndar- innar, sem eru tvær eins og skýrt var frá í Þjóðvilj- anum í gær, til sjávarút- vegsráðherra voru birtar í gær. Par birtast hugmynd- ir meirihlutans um afla- kvóta og minnihlutans um sóknarkvóta. í báðum til- lögum er gert ráð fyrir að versla megi með kvótann, en þetta atriði hefur verið eitt aðal ágreiningsefnið í nefndinni, þar sem fulltrú- ar sjómanna eru þessu al- gerlega andvígir og láta fylgja sérstaka bókun til ráðherra vegna þessa. Þar benda þeir á að útgerðar- menn eigi ekki einir ráð- stöfunarrétt á veiðiheim- ildum, heldur eigi áhöfnin þar hlut að máli. Þá tók Jón Arnalds ekki afstöðu til þessa máls. í báðum tillögunum er gert ráð fyrir að þær feli í sér svo mikinn aflasamdrátt að óhjákvæmilegt sé að leita nýrra og róttækra leiða til þess að draga úr sókninni, og minnka þar með útgerðarkostnað. Þá segir að greina megi þrjár leiðir til að takmarka sókn í ákveðna fiskstofna. í fyrsta lagi aflakvóta, öðru lagi sóknarkvóta og í þriðja lagi skattlagningu afla, svo mikla að héldi aftur af sókninni, eða þá sölu veiðileyfa. Síðasta hugmyndin er þó ekki framkvæmanleg, sökum þess að lög skortir til að koma henni á; hinar tvær leiðirnar eru innan ramma gildandi laga. f áliti nefndarinnar eru dregnir fram kostir og gallar bæði sóknar- kvóta og aflakvóta. Verður það síðan sjávarútvegsráðherra sem þarf að velja þarna á milli, eða þá Þreyttur á umræðu um atvinnumálin segir bæjarfulltrúi Sjálfstæðisfiokksins á Akureyri, og stendur að uppsögnum á tugum manna „Gunnar Ragnars forstjóri Slippstöðvarinnar þarsem tugum manna hefur verið sagt upp leyfir sér að lýsa því yfir í útvarpi að hann sé orðinn þreyttur á umræðu um atvinnumál á vegum Alþýðubanda- lagsins“, sagði Sigríður Stefáns- dóttir bæjarfulltrúi Aiþýðubanda- lagsins í samtali við Þjóðviljann í gær. Samdráttur í iðnaði á Akureyri hefur leitt til aukins atvinnuleysis þar. Þess vegna leggur Alþýðu- bandalagið mikla áherslu á skjóta atvinnuuppbyggingu á Akureyri. Tillögur Alþýðubandalagsins í atvinnumálanefnd voru í megin- atriðum samþykktar á bæjarstjórn- arfundi sl. þriðjudag. Þar á meðal var áskorun á ríkisstjórnina, sem handhafa meirihlutafjár í Slipp- stöðinni, að hún ásamt Akureyrar- bæ beiti sér fyrir fjárhagslegri fyrir- greiðslu þannig að Slippstöðin og Útgerðarfélag Akureyrar geti nú þegar gengið frá samningum um smíði nýs togara. Meirihluti í bæjarstjórn Akur- eyrar er sammála um aðgerðir til eflingar atvinnulífs bæjarins. Þrátt Þorsteinn Pálsson rýnir þungbúinn í plögg sín, en Svavar Gestsson svarar glaðbeittur spurningu utan úr sal í Hafnarfjarðarbíói í gær. Ljósm. Atli. Fyrrverandi formaður VSÍ ákveður næstu kjarasamn- inga fyrir hönd ríkisstjórnarinnar aðeins 2% skilja á milli Segir - Launastefna ríkisstjórnarinnar ger- ir ráð fyrir því að kaup skerðist ekki nema um 2% á þessu ári. Verkalýðs- hreyfingin hefur viðurkennt í þessum samningum, sem nú er verið að gera, að rétt sé að miða við kaupmátt launa í lok síðasta árs. Það er því aðeins þarna sem skilur á milli, sagði Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, m.a. í iokaorðum sfnum á kappræðufundi með Svavari Gestssyni, formanni Al- þýðubandalagsins, sem haldinn var fyrir fullu húsi í Hafnarfjarðarbíói í gærkveldi. Svavar Gestsson sagði það stór- merkilegt að Þorsteinn væri farinn að fagna kjarasamningum sem ekki væru ennþá til. Hann þættist greinilega hafa öll völd í sínum höndum í þessu landi. Fyrst hefðu hann og félagar hans skorið niður kaup almennings um 30% og ráð- ist að helstu grundvallarmannréttind- um. Nú væri komið til þjóðarinnar þeg- ar búið væri að berja hana sundur og saman og sagt: - Nú skulum við samein- ast, og um leið farið að kætast yfir nýj- um kjarasamningum, sem enginn hefði ennþá séð. Miklar og líflegar umræður voru á kappræðufundinum. Þorsteinn Pálsson sagði að nauðsynlegt væri að koma í veg fyrir að upplausnaröflin næðu undir- tökunum sem þau greinilega stefndu að þessa dagana. Svavar Gestsson lagði hins vegar ríka áherslu á að launafólk tæki höndum saman og sneri baki við stöðugu svartsýnisrausi stjórnvalda. Launafólk sameinaðist um að koma íhaldsöflun- um frá. Það eitt gæfi von um bjartari tíma. -lg búa til einhverja millileiö eins og sjávarútvegsráðherra hefur þegar talið koma til greina. Tillögurnar báðar virðast við fyrsta yfirlestur vel unnar og þeim fylgja margs- konar tölulegar upplýsingar og út- reikningar, þar sem reiknaðir eru út ýmsir möguleikar fyrir hvora leiðina sem farin yrði. -S.dór Forstjóri Slippstöðvarinnar sem einnig er bæjarfulltrúi Sjáifstæðis- flokksins á Akureyri hefur sagt upp tugum starfsmanna. Nú segist hann vera orðinn þreyttur á umræðu um atvinnumál. fyrir það segir í bókun Sjálfstæðis- manna: „Nú leitast sundurleitur meirihlutahópur við að standa saman um eitthvað sem kenna má við atvinnumál.... og það er skoðun okkar að hún komi að engu gagni og sé ekki til framdráttar í baráttunni fyrir framgangi atvinnu- mála þessa héraðs". Sigríður benti á að Gunnar Ragnars forstjóri Slippsins er einn af þeim bæjar- stjórnarfulltrúum sem standa að þessari bókun. Hún sagði að Sjálf- stæðismenn legðu alla áherslu á byggingu álvers við Eyjafjörð, en slíkt telur Alþýðubandalagið ekki raunhæft eins og atvinnuástandið er um þessar mundir. - jp Kjaradeila opinberra starfsmanna: Sáttafundur á þriðjudag Boðað hefur verið til fundar samninganefndar ríkisins og samn- inganefndar opinberra starfs- manna hjá sáttasemjara á þriðju- dag kl. 13.30. Verður þar tekin fyrir kjaradeila þessara aðila. Félag bókagerðarmanna Magnús formaður endur- kjörinn Magnús E. Sigurðsson sigraði í formannskosningu í Félagi bóka- gerðarmanna en talningu lauk í gær. Magnús hlaut 523 atkvæði en Margrét Rósa Sigurðardóttir fékk 130 atkvæði. 32 seðlar voru auðir og einn ógildur. 686 kusu í þessari kosningu en í félaginu eru um 950 manns. Magn- ús hefur verið formaður félagsins frá stofnun þess fyrir þremur árum.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.