Þjóðviljinn - 02.02.1984, Page 2

Þjóðviljinn - 02.02.1984, Page 2
2 SÍÐÁ - ÞJÓÐVILJINN Finíihtudagur 2. febrúar 1984’ Kísilmálmverksmiðjan á Reyðarfirði: Sverrir ætlar útlend- ingum verksmiðjuna Hefur sent 14 erlendum aðilum kynningarrit um málið í svari Sverris Hermanns- sonar iðnaðarráðherra á Al- þingi við fyrirspurn Hjörleifs Guttormssonar um hvenær ríkisstjórnin hyggist hefja framkvæmdir við Kísilmálm- verksmiðjuna á Reyðarfirði, hvenær leitað verði eftir hei- mild Alþingis til að hefja fram- kvæmdir og hvað liði við- ræðum við útlendinga um hugs- anlega eignaraðild, kom fram að iðnaðarráðherra hyggst láta útlendinga eiga og reka verk- smiðjuna. í þessu skyni hefur iðnaðarráðherra Sverrir Her- mannsson látið útbúa kynn- ingarrit, sem hann hefur sent aðilum i Evrópu, Japan, Kana- da og Bandaríkjunum. Enn- fremur sagði hann að nú þessa dagana væri verið að hafa sam- band við þessa aðila og óska eftir viðræðum. Hjörleifur Guttormsson sagði í sinni ræðu, að allur undirbúningur verksmiðjunnar hjá fyrrverandi ríkisstjórn hefði miðast við að hún yrði í meirihlutaeigu íslendinga. Núverandi ríkisstjórn hefði breytt um stefnu í þessu máli eins og öðru. Þá kom það fram í máli Sverris að enn hefði ekki verið tekin ákvörðun um hvenær leitað yrði heimildar Alþingis og því engar á- kvarðanir verið teknar um það hvenær hafist yrði handa. Þá gat Sverrir þess að verð á tonni af kísilmáli yrði að vera 1450 dollarar til þess að borgaði sig að ráðast í verksmiðju sem þessa. Hjörleifur Guttormsson sagði aft- ur á móti að verðið væri 1337 doll- arar. Þjóðviljinn leitaði eftir því hjá Geir A. Gunnlaugssyni hjá Kísil- málmverksmiðjunni hvor talan væri rétt. Sagði hann að þær gætu báðar verið réttar og færu eftir því hvaða forsendur menn gæfu sér. í tölu Sverris væri miðað við spá frá í fyrra og þá gert ráð fyrir ákveðnum arði af rekstri verksmiðjunnar. í tölu Hjörleifs er miðað við fram- leiðslukostnað síðan í nóvember sl. og þar væri gert ráð fyrir því að endar í rekstri verksmiðjunnar næðu saman, þ.e. að fjármagns- kostnaður og afskriftir væru inní því dæmi. Ljóst er á svari Sverris Her- mannssonar að ekki er fyrirhugað að hefja neinar framkvæmdir við verksmiðjuna á þessu ári. -S.dór Æskulýðsfylking Alþýðubandalagsins Stuðningur við verkafólk fSAL Æskulýðsfylking Alþýðubanda- lagsins hefur lýst yfir fullum stuðn- ingi við verkafólk og iðnaðarmenn sem nú eiga í verkfalli í Straumsvík og fordæmir harðlega afskipti Vinnuveitendasambandsins af deilunni og telur þau þjóna þeim tilgangi einum að ala á ríg á milli hinna vinnandi stétta. í ályktun stjórnarfundar ÆFAB frá 29. jan- úar segir einnig: „Stjórn ÆFAB bendir einngi á að afskipti Zverriz Hermannzzon- ar af launadeilu starfsmanna Ál- versins og ummæli hans í fjölmiðl- um þar sem því er lýst yfir að „öllum ráðum verði beitt sem duga munu“ til þess að berja á bak aftur réttmætar kröfur starfsmanna ÁI- versins sýna svo um munar stefnu stjórnvalda í launamálum. Þeirri stefnu ber verkalýðshreyfingunni að mæta af fullri hörku og brjóta á bak aftur“. Áskriftarsimi 81333 / / Utflutningur afurða ISAL á milli áranna 1982 og 1983 Verðmætið jókst yfír 100% í skýrslum frá Hagstofu íslands kemur í Ijós að útflutningsverð- mæti áls og álmelmis frá dótturfyr- irtæki Alusuisse í Straumsvík jókst um meira en 100% á milli áranna 1982 og 1983 og er þá búið að fram- reikna útflutninginn frá árinu 1982 miðað við breytingar á gengi er- lends gjaldeyris á milli áranna. í skýrslum Hagstofunnar um verðmæti útflutnings segir að á ár- inu 1982 hafi ál og álmelmi verið flutt út fyrir 852.175 miljónir króna. Sú upphæð á meðalgengi erlends gjaldeyris ári síðar er 1.612.315 miljónir en það er 89.2% hækkun á milli ára. Á síðasta ári nam verðmæti útflutnings áls og álmelmishinsvegar 3.273.481 milj- ón króna. Þessi aukni útflutningur sýnir verulega bætta stöðu íslenska álfé- lagsins á síðasta ári sem stafar af aukinni eftirspurn eftir fram- leiðslunni og mun hærra verði á heimsmarkaði. Það er með skír- skotun til þessara staðreynda sem verkafólk í álverksmiðjunni er nú að krefjast þess að fá til baka þann hluta launa sinna sem ríkisstjórnin hefur af því tekið og afhent hinum svissneska auðhring. _v. í ályktun sinni bendir stjórn ÆFAB á að í réttmætum launa- hækkunarkröfum starfsmanna Ál- versins felist sú staðreynd að úr digrum sjóðum Alusuisse komi aukið fjármagn inní veltu þjóðfé- lagsins, sem ella færi úr landi. Þannig séu launahækkanir til starfsmanna Álversins í þágu þjóð- arhagsmuna í heild. Því sé ljóst af framansögðu að afskipti VSÍ og iðnaðarráðherra séu hreinasta ósvífni í garð launafólks og auk þess sýni þau þjónkun og undir- gefni gagnvart erlendum auðhring. —v. Stutfar fréttir Varð konu að bana í gær viðurkenndi maður í Reykjavík að hafa orðið 39 ára gamalli konu að bana í húsi við Njálsgötu. Atburðurinn átti sér stað í fyrradag og mun mikil ölvun hafa verið erþetta gerðist. Rétt fyrir klukkan 7 í fyrrakvöld hringdi umræddur maður og tii- kynnti lögreglunni að hann hefði framið þetta voðaverk. Fór hún á staðinn og fann konuna látna en tveir menn voru þá í íbúð- inni. Voru þeir handtcknir en ekki var hægt að yfirheyra þá fyrr en í gær sakir ölvunar- ástands þeirra. Hinum manninum var sleppt í gær. Sjálfkjörið hjá Þrótti Sjálfkjörið var í stjórn og trúnaðarráð hjá Vörubílstjórafélaginu Þrótti fyrir starfsáriö 1984-1985. Stjórn félagSins skipa: Guð- mundur Magnússon, formaður, Brynjólfur Gíslason, varaformaður, Trausti Guð- mundsson, ritari, Magnús Emilsson, gjald- keri, og Sæmundur Gunnólfsson, með- stjórnandi. Eyfirðingar skemmta sér Eyfirðingafélagið, sem er eitt elsta starf- andi átthagaféiag í höfuðborginni, efnir til árlegs fangaðar síns í Átthagasal Hótels Sögu föstudaginn 3. febrúar. Ræðumaður kvöldsins er Jón G. Sólnes fyrrverandi alþingismaður og bankastjóri og Ómar Ragnarsson mun sjá um skemmtiefni. Fjölbreyttur matur verður á boðstólum m.a. þorramatur og nóg af laufabrauði. Norðanmenn sem staddir kunna að vera í borginni eru velkomnir. Aðgöngumiðar verða seldir í dag, fimmtudagfrá kl. 17-19 íÁtthagasal Hótels Sögu. Ver ðlaunabækur á sýningu Nú stendur yfir í bókasafni Norræna hússins sýning á norrænum bókum, sem til- nefndar hafa verið til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs, en þau hafa verið veitt frá 1962. Sýningin stendur út febrúar og er hægt að fá bækurnar léðar í skammtímalán meðan á sýningunni stendur. Kvenstúdentar funda Aðalfundur Kvenstúdentafélags íslands og Félag íslenskra háskólakvenna verður haldinn í Kvosinni, laugardaginn 4. febrúar kl. 14. Á dagskrá er stjórnarkjör og önnur mál. Fundur einstæðra foreldra í kvöld „Réttur barna til að eiga tvo foreldra" er fundarefni á almennum fundi sem haldinn verður í Skeljahelli, Skeljanesi 6 í kvöld, fimmtudaginn 2. febrúar kl. 21 og Félag einstæðra foreldra boðar til. Málshefjendur eru Ólöf Pétursdóttir, deildarstjóri í dómsmálaráðuneytinu, og Sigrún Karlsdóttir, starfsmaður barna- verndarnefndar. Tveir einstæðir foreldrar greina frá reynslu sinni, þau Kolbrún Bjarnadóttir og Guðlaugur Gauti Jónsson. Einnig koma á fundinn Helga Hannesdóttir, barnageð- læknir og Dögg Pálsdóttir, formaður bama- verndarnefndar Reykjavíkur. Nesti í alla grunnskóla Fræðsluráð Reykjavíkur ákvað á síðasta ári að nemendum í grunnskólum Reykja- víkur yrði gefinn kostur á skólanesti, en í fyrra var gerð tilraun með skólanesti í fjór- um grunnskólum Reykjavíkur. Nestis- pakkaþjónusta var boðin út og var tiiboði Mjólkursamsölunnar tekið. Sala nesti- pakkanna hófst nú í janúar. í tilboði Mjólkursamsölunnar var gert ráð fyrir hádegismat grunnskólanema og útbúinn plastbakki með tveimur hálfum samlokum og eftirrétti sem er til skiptis ávöxtur, jógúrt, frómas eða kökubiti.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.