Þjóðviljinn - 02.02.1984, Side 5
Fimmtudagur 2. febrúar 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5
Mikill munur á verði
hárgreiðslustofa
Annað tölublað „Verðkynning-
ar“, sem Verðlagsstofnun gefur út,
er nú komið og er þar greint frá
verðkönnun á hárgreiðslustofum í
Garðabæ, Hafnarfirði, Mosfells-
sveit og á landsbyggðinni. Verð-
lagsstofnun hafði áður gert sams
konar könnun í Reykjavík, Kópa-
vogi og á Seltjarnarnesi. Helstu
niðurstöður þessarar könnunar eru
þær, að verðmunur er verulegur
milli hárgreiðslustofa og að samráð
milli fyrirtækja um verð er
allnokkurt. Slíkt er óheimilt sam-
kvæmt lögum um verðlag, sam-
keppnishömlur og óréttmæta við-
skiptahætti.
Mestur verðmunur reyndist vera
á hárþvotti. Lægsta verð á honum
var hjá hárgreiðslustofu Brvndísar
Bragadóttur á Blönduósi en þar
kostaði þvotturinn 20 krónur.
Hæsta verð var rúmlega fjórfalt
hærra en það var hjá Hafsteini á
Akureyri, krónur 86 kostaði þvott-
urinn þar.
í fjórum öðrum tilvikum er
hæsta verð meira en tvöfalt hærra
fyrir sams konar þjónustu. Þannig
munar á permanetti í sítt hár 116
prósentum. Ódýrast var þetta hjá
Bryndísi Bragadóttur á Blönduósi,
en dýrast hjá hársnyrtistofunni á
Ráðhústorgi á Akureyri. Á perm-
anetti í stutt hár var munurinn á
lægsta og hæsta verði 105 prósent
(lægsta verð hjá Bryndísi Braga-
dóttur á Blönduósi og hæsta verð
hjá Maríu í Stykkishólmi).
Hæsta, lægsta og meðalverð
Meöalverðí Mismunurá
Reykjavík, Kópavogi og Seltjarnarnesi Meðal- verð Lægsta verð Hæsta verð hæsta og lægsta verði
Formkllpping kvenna venjuleg, efni innifalið 224.80 204.75 150.- 250,- 67%
Hárþvottur 53.50 50.45 20,- 86,- 330%
Hárlagning stutt hár, efni innifalið 229.40 211.35 150.- 260.- 73%
Hárlagning sítt hár, efni innifalið 272.20 238.65 173,- 320.- 85% •
Permanent stutt hár, hárþv. og efni innifalið 668.65 635.60 400,- 850,- 113%
Permanent sitt hár, hárþv. og efni innifalið 790.25 758.75 450.- 971.- 116%
Hárblástur stutt hár, efni innifalið 251.90 228.50 150,- 260.- 73%
Hárblástur sítt hár, efni innifalið 287.95 252.30 180.- 310.- 72%
Lokkalitun (strípur) stutt hár, efni innifalið 424.90 414.35 280,- , 567,- 103% '
Lokkalitun (strípur) sítt hár, efni innifalið 510.55 493.85 330.- 665.- 102%
3.714.10 3.488.55 2.283,- 4.539.- 99%
Ef allir þjónustuliðir í könnun-
inni eru keyptir þar sem þeir eru
ódýrastir þyrfti að borga samtals
2.283 krónur. Ef þjónustan er hins
vegar keypt þar sem hún er dýrust í
hverju tilviki þyrfti að borga 4.509
krónur eða 98 prósent hærra verð.
í könnuninni í Reykjavík, Kópa-
vogi og á Seltjarnarnesi var þessi
munur nokkru hærri eða 106 prós-
ent.
f fréttatilkynningu frá Verð-
lagsstofnun um verðkönnunina
segir, að athygli veki að í könnun-
inni korni í nokkrum tilvikum
fram, að sams konar þjónusta kost-
ar mjög svipað á öllum eða flestum
hárgreiðslustofum í santa byggðar-
laginu. Þannig sé ekki um neina
verðsamkeppni að ræða á þessum
stöðum. (Úr könnuninni má lesa,
að dæmi um þetta séu Akranes og
Vestmannaeyjar).
Samhliða verðkönnuninni var
athugað hvort hárgreiðslustofurn-
ar upplýsa viðskiptavini sína urn
verð, en samkvæmt gildandi regl-
um á verðlisti að íiggja frarnmi á
áberandi stað. í ljós kom að
meirihlutinn fer að þessum fyrir-
mælum.
Verðkannanir Verðlagsstofnun-
ar liggja framrni fyrir almenning
hjá Verðlagsstofnun, Borgartúni
7, og hjá fulltrúum stofnunarinnar
úti á landi. Þeir sem þess óska geta
gerst áskrifendur að „Verðkynn-
ingu Verðlagsstofnunar" sér að
kostnaðarlausu. Sírninn er 91-
27422.
Samtök um friðaruppeldi:
Nám og uppeldi
rækti friðarvilja
Wiener Blockflötenensemble.
Samtök um friðaruppeldi voru
stofnuð sl. laugardag í Norræna
húsinu og sóttu yfír 200 manns
stofnfundinn. I stofnskránni, sem
samþykkt var á fundinum, segir
m.a. að samtök um friðarúppeldi
séu stofnuð til að vinna að alheims-
friði og afvopnun og að þau taki
þátt í alþjóðlegri baráttu gegn
kjarnorkuvá og beiti sér að því að
fé, sem nú sé eytt í vígbúnaðar-
kapphlaup, verði notað gegn
hungri, sjúkdómum og mcnntunar-
skorti.
Nína Baldvinsdóttir setti fund-
inn og norska konan Eva Nordland
flutti erindi. Jónas Pálsson, rektor
Kennaraháskóla fslands, flutti
ávarp og Magne Askeland, for-
maður „Lærere for fred“ í Noregi,
flutti einnig ávarp. Söngkonan
Birgitte Grimstad söng og nem-
endur í uppeldisfræði við Háskóla
íslands ræddu um verkefni, sem
þeir hafa unnið um menntun í þágu
friðar.
í stofnskrá samtakanna segir
m.a.:
„Samtökin geta unnið með hvers
kyns tiltækum, friðsamlegum að-
gerðum, ein eða í samvinnu við
aðra. En einkum ætla samtökin að
stuðla að því að nám og uppeldi
rækti með fólki friðarvilja þess,
Gegn framvísun
þessa miða feerð
þú 12 %
ky.nningar-
afslátt
á plötum
í nýrri og
endurre.istri
STUE-búð.
veki skilning á öðrum þjóðum og
umburðarlyndi með þeim, hvetji til
alþjóðlegrar samvinnu.
Samtökin eru óháð öllum
stjórnmálasamtökum og taka ekki
afstöðu til þjóðmála, annarra en
þeirra sem koma friðarmálum
beint og bersýnilega við. Hins veg-
ar geta þau starfað með öðrum
samtökum, innlendum eða út-
lendum, að sameiginlegum mark-
miðum og gerst aðilar að varanlegu
samstarfi friðarsamtaka."
Keneva Kunz er ein þeirra sem
unnið hefur ötullega að undirbún-
ingi að stofnun samtakanna. Ken-
eva sagði í samtali við blaðið að sér
sýndist í alla staði vel hafa til tekist.
Á fundinum var kjörin þriggja
manna ársnefnd til að stýra starfinu
og eiga í henni sæti: Gunnar Karls-
son, Nína Baldvinsdóttir og Sólveig
Georgsdóttir. Ársnefndin skal
fjölga í nefndinni með því að bæta
við fulltrúum starfshópa.
Frá stofnfundinum sl. laugardag.
Laugavegi20 Sími27670
Góðir gestir frá Vínarborg:
Tónleikar og námskeið
Dagana 3.-10. febrúar mun Wi-
ener Blockflötenensemble hafa við-
dvöl í Reykjavík og halda þar
tvenna tónleika, svo og námskeið í
flautuleik.
Fyrri tónleikar hópsins verða kl.
17, laugardaginn 4. febrúar í
Áskirkju á vegum Musica Antiq-
ua. Á efnisskrá eru verk frá
endurreisnar- og barrokktímabil-
inu. Mánudaginn 6. febrúar kí.
20.30 verða svo tónleikar í Bú-
staðakirkju á vegum Musica Nova
en þar verða eingöngu flutt verk
sem samin eru á þesari öld, sum
hver sérstaklega fyrir hópinn.
Þá mun hópurinn halda riám-
skeið á vegum Tónlistarskólans í
Reykjavík og verður það haldið í
Stekk, húsnæði skólans að Lauga-
vegi 178 á laugardag kl. 10-12 og
sunnudag kl. 15-17. Öllum er
heimill aðgangur að námskeiðinu.
Wiener Blockflötenensemble
var stofnað 1972 af Hans Maria
Kneihs og fimm þáverandi nem-
endum hans við Tónlistarháskól-
ann í Vín. Þau komu þó ekki fram
opinberlega fyrr en 1974 eftir
tveggja ára þrotlausar æfingar og
undirbúningsvinnu, síðan hafa þau
unnið sér fastan sess í alþjóðlegu
tónlistarlífi og eru tíðir gestir í
hljómleikasölum í nær öllum
löndumEvrópusvoogíJapan. Þau
eru jafn eftirsótt á tónlistarhátíðir
með gamalli sem og nýrri tónlist.