Þjóðviljinn - 14.02.1984, Síða 6

Þjóðviljinn - 14.02.1984, Síða 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 14. febrúar 1984 Uiaupu ■Ankara TURKIÍT SYRIEN SOVJET' UNIONEN IRAN kacr\ci u AV/CT Aukakosningar í Bretlandi Tony Benn /vv * nour a vaoio Mikilvæg aukakosning um sæti á breska þinginu er nú framundan í borginni Chesterfield. Frambjóðandi Verkamannaflokksins er Tony Benn, óformlegur leiðtogi vinstri vængsins í flokknum, en kjördæma- breytingar ollu því að hann féll naumlega út af þingi í kosningunum á síðasta sumri. Fyrstu skoðanakannanir sem gerðar voru eftir að Benn hafði verið valinn frambjóðandi bentu til þess að hann myndi hljóta yfir- burðasigur. Benn hefur hins vegar unnið sér einstakt hatur breskra fjöl- miðla, og því allsendis óvíst hvernig úrslit falla eftir að áróð- ursherferð sorpblaðanna gegn honum er hafin. Úrslit þingkosninganna Fyrir síðustu þingkosningar voru gerðar kjödæmabreytingar, sem leiddu m.a. til þess að kjör- dæmi það í Bristol, sem Tony Benn hafði verið fulltrúi fyrir í 33 ár þurrkaðist út. í stað þess að taka boðum um örugg þingsæti í Lundúnum eða Skotlandi ákvað Benn að halda tryggð við Bristol- búa, og fór hann þar fram í kjör- dæmi sem vitað var fyrirfram að hefði ógæfulega íhaldsslagsíðu. Benn náði ekki kjöri, en fylgistap Verkmannaflokksins í kjördæm- inu varð þó mun minna en víðast annars staðar á Englandi. Síðan hafa menn gert að því skóna að hann myndi freista gæfunnar í fyrstu aukakosningunum sem byðust. Traust fylgi Chesterfield er kolanámu- svæði, þar sem Verkamanna- flokkurinn hefur alla tíð átt traust fylgi. Um alllangt skeið hefur Eric Varley verið þingmaður kjördæmisins, en hann hefur m.a. gegnt embætti gjaldkera í stjórn Verkamannaflokksins. Þá átti hann sæti í skuggaráðuneyti flokksins frá 1979, og hefur verið talsmaður hans í atvinnumálum. Sem slíkur hefur hann þótt fremur Iinur, og þrátt fyrir hroða- lega frammistöðu íhaldsstjórnar- innar í atvinnumálum jók hann ekki hróður Verkamannaflokks- ins í átökum við talsmenn stjórn- arinnar á þingi. Neil Kinnock for- maður Verkamannaflokksins fól því öðrum þingmanni atvinnu- málin við myndun núverandi skuggaráðuneytis. Þótti Varley þá sem framavonir sínar á þingi væru brostnar og sagði nýverið af sér þingmennsku til þess að ger- ast forstjóri kolanámufyrirtækis. Tony Benn var einn þeirra sem sótti um að verða frambjóðandi flokksins, en flokksforystan var bersýnilega ekki yfir sig hrifin af því. Því veldur bæði að innan flokksins eru ýmsir sem vilja halda jafn baráttuglöðum sósíal- ista fjarri þinginu, en einnig hitt, að endalaus áróður fjölmiðla gegn honum þótti líklegur til að veikja stöðu flokksins. Tap í jafn öruggu kjördæmi og Chesterfield yrði ekki túlkað öðru vísi en sem meiriháttar áfall fyrir flokkinn. Hægri vængurinn snýst gegn Benn Benn hlaut eigi að síður flestar tilnefningar í framboðssætið frá verkalýðsfélögunum í Chester- field. I fyrstu vildi flokksforystan þó ekki samþykkja hann í hóp þeirra 5 frambjóðenda, sem endanlega skyldi valið úr, og þurfti aðalfundur flokksdeildar- innar að taka völdin af stjórninni, þannig að Benn varð endanlega valinn til þingframboðs. Sem fyrr segir sýndu fyrstu skoðanakannanir að Benn ætti greiða leið inn á þingið. Verka- mannaflokkurinn hefur einnig að undanförnu verið í jafnri sókn og er nú ekki langt á eftir íhaldinu samkvæmt skoðanakönnunum. Flokknum ríður nú á að staðfesta þennan meðbyr með góðum sigri í Chesterfield og umfram allt að sýna fram á að bandalag krata og Tony Benn - býður sig fram á ný eftir ósigurinn í sumar frjálslyndra standi þeim langt að baki. Hins vegar hefur banda- lagið átt góða leiki í aukakosning- um um bæjarstjórnarsæti, sem fóru fram í Chesterfield fyrir skömmu, og því er of snemmt að svo stöddu að telja Tony Benn og Verkamannaflokknum sigur vís- an. Ö.S. Suitanahmet-herfangeisið í Istanbul: í Tyrklandi eru nú 117.000 pólitískir fangar samkvæmt opinberum tölum, og fer fjölgandi Tyrkland: Kúgunin heldur áfram Hernaöareinræði ríkirenn í Tyrklandi, þrátt fyrir sýnd- arkosningarnar sem haldnar voru í haust. Þetta kemur fram í nýjum fréttum af morð- um á pólitískum föngum, pólitískum réttarhöldum og nýjum lögum sem takmarka allt frelsi til stjórnmálastarfa og gagnrýni á stjórnvöld. Svo virðist sem ekkert hafi dregið úr völdum hersins þrátt fyrir þingkosningarnar í haust. 117 þús. pólitískir fangar Nýlega bar einn þingmanna „al- þýðlega flokksins“ á þinginu í Ank- ara fram tillögu um sakaruppgjöf fyrir þá pólitísku fanga, sem hafa ekki gerst sekir um vopnaða bar- áttu eða hafa hlotið innan við 10 ára dóma. í greinargerð hans með tillögunni kom fram að 117.000 pólitískir fangar væru í Tyrklandi, þar af 37.000 í fangelsum hersins. Til þess að slík sakaruppgjöf náist í gegn þarf bæði stjórnarskrár- breytingu og 2/3 meirihluta í þing- inu. Náist slíkur meirihluti getur Evren forseti krafist þess að málið verði tekið fyrir að nýju. Litlar lík- ur eru því taldar á því að sakar- uppgjöfin nái fram að ganga. Kosningarnar í haust urðu ekki til þess að opna fangelsi herstjórn- arinnar. Þvert á móti fylgdi hand- tökuherferð í kjölfar þeirra, sem bitnaði á flestum eða öllum þeim flokkum sem herstjórnin hafði bannað að taka þátt í kosningun- um. Handtökuherferð þessi var túlkuð sem eins konar vísbending frá yfirstjórn hersins um að kosn- ingarnar hefðu engu breytt um það, hver færi með hin raunveru- legu völd í landinu. Fangar pyntaðir til dauða Síðustu fregnir herma að hörmu- legur aðbúnaður fanga í tyrknesk- um fangelsum og brotin loforð yfir- valda um bættan aðbúnað hafi leitt til hungurverkfalls og mótmæla í Diyarbakir-fangelsinu í hinu tyrk- neska Kúrdistan í suð-austurhluta landsins. Var þessum mótmælum fanganna svarað með því að 3 fang- ar voru pyntaðir til dauða. í umræddu fangelsi eru geymdir pólitískir fangar hvaðanæva úr tyrkneska Kúrdistan, og er þetta fangelsi eitt það illræmdasta í öllu landinu. Fyrr í haust fóru fangar í hungurverkfall vegna bágborinna aðstæðna. Þeim var þá lofað m.a. að þeir fengju lengri heimsóknar- tíma og að þeir fengju að tala móð- urmál sitt við gesti. Hins vegar var ekki staðið við loforðin og því hófst nýtt hungurverkfall í byrjun janú- ar. Þann 22. janúar réðust her- menn inní tvo sali þar sem 300 fangar voru í hungurverkfalli. Dag- inn eftir var þrem þessara fanga skilað til ættingja sinna, og voru þeir allir látnir og báru merki pynt- inga. Einn þeirra hafði skipulagt hungurverkfallið. Er tíðindin bár- ust til samfanga þeirra sviptu 2 þeirra sig lífi í mótmælaskyni. Ó- staðfestar fréttir herma að aðrir 15 fangar hafi látist í fangelsinu með voveiflegum hætti eftir að þetta gerðist. Óvissan um örlög fanganna gerðu það að verkum að ættingjar réðust að fangelsismúrunum þann 31. janúar sl. og nokkrir þeirra hótuðu að brenna sig lifandi utan múranna, fengju þeir ekki að hafa samband við ættingja sína. Heim- sóknir í fangelsið voru leyfðar á nýjan leik 4. febrúar. Kúgunin fest í sessi Forystumaður í samtökum opin- berra starfsmanna í Svíþjóð var ný- veriðíheimsókníTyrklandi. Hann segir að ekkert bendi til þess að hinir fjölmörgu pólitísku fangar sem fylia fangelsin í Tyrklandi fái sakaruppgjöf. Því síður sjáist þess merki að lýðræði hafi aukist við kosningarnar til þingsins. Þingið samþykkti þvert á móti ný lög þann 6. desembersl., þar sem tyrknesk- um þegnum er bannað með lögum að tala máli þeirra pólitísku sam- taka sem herstjórnin bannaði, sem og þeirra einstaklinga sem mynda umrædd samtök. Þá er öllum fyrri tilskipunum herstjórnarinnar gefið stjórnarskrárgildi samkvæmt þess- um lögum og öll gagnrýni á yfir- stjórn hersins er sömuleiðis bönnuð. Þá eru í lögum þessum enn fleiri ákvæði sem takmarka frelsi fjölmiðla. - Ég veit ekki hvort kúgunin hef- ur aukist,- sagði sænski verkalýðs- leiðtoginn- , en hún hefur verið fest í sessi með lögformlegum hætti innan hinnar opinberu stjórnskip- unar. Aðildin að Evrópuráðinu Það er von að íhaldsmönnum hafi verið umhugað að koma í veg fyrir umræður um lýðræðið í Tyrk- landi á þingmannafundi Evrópu- ráðsins í Strassborg á dögunum. Með því tókst þeim að tryggja tyrk- nesku stjórninni á ný aðild að Evr- ópuráðinu, en eitt megin markmið þess hefur verið að standa vörð um lýðræði í álfunni. En þess er vænst að aðild Tyrklands að Evrópu- ráðinu komi á dagskrá á ný í maf næstkomandi. Á meðan halda pól- itísku réttarhöldin og kúgunin áfram undir yfirskini þess að þing- bundinni lýðræðisstjórn hafi verið komið á í landinu. ólg./DN

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.