Þjóðviljinn - 25.02.1984, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 25.02.1984, Blaðsíða 12
12 SÍÐA- — ÞJÓÐVILJINN Helgin 25.-26. febrúar 1984 Þessi vesturþýska kona ætlar að fylla tómið með múslímskri dulspeki. Sértrúarsöfnuðir standa með blóma Krishnafélagar í Kolumbíu. Mæta ekki sömu mótspyrnu og stundum áður. Á dögum kreppu og ótta: Margskonar söfnuöir og trúflokkar, sumir hinir undar- legustu, og mjög tengdir fyr- irmyndum úr Asíu, standa nú með blóma víða um heim. Margt misjafnt spyrst jafnt og þétt um bílífi og fjár- plógsstarfsemi margra af leiðtogum slíkra hreyfinga, en það hefur ekki komið í veg fyrir það, að þær vaxa allört og að löggjafar og almenn- ingur sýnir þeim minni fjand- skap en oft áður. Fyrir nokkrum árum fór hrollur um blaðalesendur heims yfir myndum af um þúsund manna söfnuði sem hafði framið hópsjálfs- morð í Guyana að skipan foringja síns Jims Jones. Héldu margir að þar með hefði fólk fengið viðvörun um þann háska sem búinn er áhangendum hinna kröfuhörðu sértrúarflokka, sem heimta yfir- leitt skilmálalausa hlýðni við yfir- boðarann í nafni kenningarinnar. Svo hefur ekki verið: einstæðingar og ráðvilltir eru nógu margir og ör- vinglaðir til að senda jafnt og þétt liðsauka þessum söfnuðum, sem flestir bjóða upp á einhverja „vissu" og svo einskonar „nýtt fjöl- skyldulíf" - margir freistast til þess að gefa upp á bátinn frjálsa og gagnrýna hugsun, sem þeir ekki vita hvert leiðir þá, fyrir öryggi innan harðsnúins hóps sem hefur fungið sér sinn „sannleika“. Mikil fjölbreytni Sem fyrr segir eru margar hreyfingarnar tengdar indverskum arfi - Boðskapur hins Guðdómlega Ljóss (Maharaj Ji), Rauðgula fólk- ið hans Bhagwans Shree Rahne- esh, Alþjóðlegt félag Krishnavit- undar og fleiri. Hundruð þúsunda manna eru í þessum söfnuðum. En ein öflugasta og ríkasta hreyfingin er Einingarkirkja Kóreumannsins Sun Mjung Moons, sem telur nær þrjár miljónir meðlima - og virðist það ekki hafa minnstu áhrif á við- gang þessa undarlega afleggjara frá kristni, að Moon sjálfur er ákærður í Bandaríkjunum fyrir meiriháttar skattsvik. Hvergi er önnur eins fjölbreytni safnaða og í Brasilíu, þar eru um 4000 flokkar, margir byggðir á fornri þjóðtrú og galdri. Hugmyndaflugi meistaranna í hreyfingum þessum eru reyndar lítil takmörk sett: Til dæmis starfar skammt frá Sevilla á Spáni 140 manna kaþólsk villuhreyfing sem kallar sig „Reglu hinnar Heilögu Ásjónu". Foringinn er uppgjafar- prestur. Regla þessi lýsir frati á Jó- hannes Pál páfa en hefur gert Franco sálaða og einræðisherra Spánar að einum helsta dýrlingi sínum. Liðsmaður Ananda Marga í Sid- ney: Margir flokkar eiga sér ind- verskar rætur. Fylla tómið Söfnuðurnir krefjast venjulega mikillar fórnfýsi af limum sínum - sumir ganga svo hart fram að helst má líkja því við að fólk sé hneppt í þrælahald við vinnu, ekki aðeins að útbreiðslu sannleikans heldur að því að reka ýmiskonar fyrirtæki (heilsufóðurveitingastaði, götu- sölu, útvarpsstöðvar o.m.fl.) sem skila arði í sjóð hreyfingarinnar. Hinir andlegu leiðtogar eru hins- vegar oftar en ekki mjög gefnir fyrir glæsilíferni - þeir kaupa hallir og landsetur, Rahneesh sem fyrr var nefndur er t.d. sagður eiga 35 Rolls Roys bfla. Þá fara af sumum söfnuðum hinar herfilegustu sögur um grimmar aðferðir við að heila- þvo nýja áhangendur og troða „nýrri vitund“ í þá í staðinn. En ekkert af þessu virðist fæla fólk frá svo nokkru nemi - að vísu er þess að geta, að ýmsir söfnuðir, ekki síst þeir sem stærri eru, hafa lagt sig nokkuð fram um að draga úr hörku við trúaða og bæta með ýmsum hætti sambúð sína við „venjulegt" fólk. En sem fyrr segir er það nokk- uð sameiginlegt einkenni, að for- ingjar safnaðanna vantreysta öllum utan hreyfingarinnar, hafa illan bifur á spurningum og efa- semdum, reyna að slá múr utan um liðsmennina svo þeir geti einbeitt sér að leiðtoganum eða spámann- inum, sem situr uppi með svör við öllu, þau ein eru rétt og björgun er ekki annarsstaðar að finna. Afskiptaleysi Ástæður fyrir velgengni hreyf- inganna eru margar: Oftast er talað um að margt fólk hafi misst fótanna nú á tímum örra breytinga og yfir- vofandi kjarnorkuháska. Streita og áhyggja leggst þungt á andlega munaðarleysingja og gerir þá mót- tækilega fyrir afdráttarlausu fagn- aðarerindi. Liðsmenn safnaða eru ekki sérlega mælskir um ástæðurn- ar fyrir því að þeir byrjuðu nýtt líf með þessum hætti, en gjarnan segja þeir sem svo, að líf þeirra hafi verið giska tómleg, en nú hafi það fyllst tilgangi. Bara tilgangi. Ein- hverjum. Annað er að hinar hefðbundnu kirkjur hafa flestar gefist upp við að berjast gegn trúarsöfnuðum þessum - sumir telj a meira að segj a að það sé meiri von í að ná aftur fráföllnum sauðum, ef þeir detti úr guðsafneitun inn í sértrúarsöfnuð um skeið. Þá eru foreldrar og yfir- völd ekki eins iðin við það og var um tíma, að reyna að sækja ungt fólk í greipar spámanna. Yfirleitt er það svo, segir í nýlegri saman- tekt um þessi mál í vikuritinu Newsweek, að almenningur bregst ekki reiður við umsvifum sértrúar- manna í sama mæli og áður, hann er kærulausari og afskiptalausari. (áb tók saman). Að bæta böl með stillingu hugaraflsins Nýlokið er sex vikna íhugunarátaki 7000 áhang- enda spámannsins Mahar- ishi Mahesh Yogi (sem eitt sinn var lærifaðir Bítlanna) í háskólabæ einum í Banda- ríkjunum. Hugleiðingar- menn hafa þá trú, að ef kvaðratrótin af einu pró- senti af íbúum jarðar kemur saman til að samstilla hug- ina, þá megi beina inn í heiminn jákvæðum krafti, sem muni margt böl bæta, enda veiti ekki af. Níu ár eru síðan MIU, Alþjóð- legur háskóli Maharishis, keypti húsakynni aflagðs skóla í Fair- fields í Iowa. Þar hafa um 7000 stúdentar stundað nám í hug- leiðslufræðum. Og þangað komu sem fyrr segir um 700 „sidhar“ til að hugleiða, og hafa slíkar til- raunir reyndar verið gerðar áður á vegum samtaka þeirra sem mynduð hafa verið um spámann- inn Maharishi og kallast „Heims- stjórn uppljómunar“. Meðan á hugleiðingarátakinu stendur fylgjast liðsforingjar Ma- harishis með allskonar fréttum í heiminum og ef eitthvað gerist sem þeim finnst jákvætt, þá gefur það auga leið að það er að þakka íhuguninni jákvæðu. Kannski er Ronald Reagan í betra skapi þessa daga, kannski talar hann vinsamlegar til Rússa - þá eru lærisveinar spámannsins að Maharisshi: 7000 lærisveinar eru kvaðratrótin af einu prósenti mannkynsins. verki. Sömuleiðis ef bílslysum verðbréf hækka í verði í fækkar í Bandaríkjunum, ef að kauphöllum í Sidney og Amster- dam, ef að færri farast en búast mátti við í jarðskjálftum í Japan. Eins og nærri getur er slík rök- fræði fullkomlega skotheld. David Orme-Johnson heitir yf- irmaður sálfræðideildar Maharisihi-háskólans. Hans kenning hljóðar á þessa leið: „Við erum að örva sameinað djúpt liggjandi svið, sem inun skipuleggja allt“. Þannig er nú það. Þess má geta að lokum, að ekki eru mörg ár síðan að Mahrishi- menn efndu til fjöldahugleiðing- ar til að skjóta niður vandræði í nokkrum heimshlutum - lögðu þeir sérstaka áherslu á fran, Lí- banon og grennd og Mið- Ameríku. Skömmu síðar tók Khomeini við, stríð braust út við Persaflóa, upplausn Líbanons gekk hraðar og stórfelldum morðum fjölgaði í E1 Salvador. En þeir sem trúa á afl samstilltra huga munu að sjálfsögðu svara athugasemd af þessu tagi á þá leið, að allt hafi gengið vel meðan hugleiðslan fór fram - en síðan hefði átt að halda áfram....

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.