Þjóðviljinn - 25.02.1984, Blaðsíða 28

Þjóðviljinn - 25.02.1984, Blaðsíða 28
Aðalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tíma er hægt að ná i blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins i þessum símum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgreiöslu blaðsins í sima 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663 Samningarnir í Straumsvík marka tímamót: PROSENTA hækkun launa Nýr kjarasamningur verkafólks í álverksmiðjunni í Straumsvík var nær einróma samþykktur á fundum í verksmiðjunni í gærdag. Gerir hið nýja samkomulag ráð fyrir 16 - 20% launahækkunum á samningstímanum og vekur athygli að laun hinna lægstlaunuðu hækka strax um 10% sem m.a. þýðir að krafan um 15.000 króna lágmarkslaun fyrir dagvinnu náði fram að ganga. Þá skerðast ekki laun manna undir 18 ára aldri né yflrvinnuáiagið eins og hið nýgerða samkomulag ASÍ-VSÍ gerir ráð fyrir. Samningurinn gerir ráð fyrir 5% launahækkun til allra starfsmanna strax. Síðan koma áfangahækkanir sem hér segir: 2.5% þann 13. apríl 1984, 2.5% 14. september 1984 og loks 3% 1. janúar 1985. Samtals gerir það í reynd rúmlega 13% hækkun á samningstímanum, sem er til 31. mars á næsta ári. Launa- liðir samningsins eru uppsegjan- legir miðað við 1. september í haust og 1. janúar 1985. Auk beinna launahækkana var samið um framleiðni- og fram- leiðslubónus, svonefndan Alhvata, og einnig voru gerðar lagfæringar á framleiðnihvetjandi kerfi sem fyrir var. Er reiknað með að bónusinn geti þýtt rúmlega 6% hækkun launa. Sérstakar ráðstafanir eru í þessu samkomulagi varðandi þá sem erif á lægstu töxtum. Tveir neðstu taxt- arnir eru skornir burtu sem í reynd þýðir um 5% launahækkun fyrir það fólk sem tekur slík laun. Sam- tals verða því byrjunarhækkanir þeirra lægst launuðu um 10% þeg- ar við undirritun samkomulagsins. Þar með hafa lægstu laun í álverinu hækkað um 20% í heild sem gerir það að verkum að engin laun fyrir dagvinnu verða undir 15.000 króna tekjumarkinu hér eftir. - v. Lágmarkslaunakrafan um 15.000 kr. náðist fram!! • Fólk undir 18 ára aldri með sömu kjör og aðrir • Engin skerðing á yfirvinnuálaginu Sérstök 5 % launahœkkun fyrir þá lœgstlaunuðu Samningarnir í Straumsvík voru samþykktir á fundum félaga í gær. Þessi mynd var tekin er fyrri fundur Verkamannaféiagsins Hiífar var að hefjast. Ljósm. eik. Þröstur Ólafsson hjá Dagsbrún fellst á Hefiast í næstu vikur J J komið í Ijós að menn voru mjög viðræður - Ég túlka þennan fund á tvo vegu. Annars vegar að þarna hafi - Vinnuveitendasambandið hef- ur fallist á að hefja viðræður við okkur í næstu viku, sagði Þröstur Olafsson hjá Dagsbrún í viðtali við Þjóðviljann í gær. Þegar samning- arnir voru felldir á Dagsbrúnar- „Viðtökurnar voru ekkert siæm- ar og ekkert sérstaklega góðar. Það var tæplega fullur salur og Hrafn svaraði nokkrum spurningum áhorfenda eftir sýningu“, sagði Helgi Hilmarsson námsmaður í Berlfn í gær, en kvikmynd Hrafns Gunnlaugssonar, „Hrafninn flýgur“ var sýnd á Kvikmyndahá- fundinum í fyrradag var ákveðið að fara fram á nýjar viðræður við VSÍ. Þjóðviljinn leitaði eftir áliti Þrastar á hinum mikla stemmn- ingsfundi Dagsbrúnara: tiðinni þar á fimmtudagskvöld. Um 20 íslenskir námsmenn voru á sýn- ingunni og sagði Helgi að þeir hefðu flestir veið þokkalega ánægðir með þennan íslenska „norðra“ eins og hann nefndi myndina. Að sögn Peters Waltzgebers, blaðafulltrúa Kvikmyndahátíðar- oanægðir með samninginn sem að liggur fyrir - og að ekki skuli hafa betur verið tekið í okkar sérmál. - Hins vegar tel ég að á þessum mikla fundi hafi brotist út sú niður- bælda reiði og óánægja sem er innar birtust engir blaðadómar um myndina í gær, enda væri þess vart að vænta þar sem athyglin beindist fyrst og fremst að þeim kvikmynd- um sem taka þátt í keppninni um Berlínar-björninn, en þess mis- skilnings hefur gætt á Islandi að Hrafninn væri í henni. „Um kvik- myndir, sem ekki eru í keppninni vegna ástandsins í þjóðfélaginu. Þessi óánægja brýst fram í réttláta reiði þegar lífsneisti er kveiktur í hinu stóra húsi. Þarna voru um 800 manns sem lét vilja sinn skýlaust í ljós, þannig að enginn þarf að fara í grafgötur með afstöðu Dagsbrún- armanna, sagði Þröstur Ólafsson. -óg sjálfri, er fjallað síðar og oftast sameiginlega, en móttökurnar hafa verið mjög góðar“, sagði hann. Waltzgeber, sem sér um „Sond- erausstellung", þann þátt kvik- myndahátíðarinnar sem Hrafninn flýgur er á, stýrði í gær blaða- mannafundi með Hrafni, sem heppnaðist mjög vel að hans sögn. Auk blaðamanna voru þar mættir ýmsir gagnrýnendur og sagðist Waltzgeber telja að myndin hefði góða möguleika á að komast í dreifingu til margra ianda. „Það var töluvert rætt um íslenska kvik- myndagerð á blaðamannafundin- um í dag“, sagði hann, „og ég vona að þýskir og amerískir dreifingar- aðilar láti sig ekki vanta á þær tvær sýningar sem eftir eru“. _ Vopnaða ránið Þrír hand- ÍAl/nír Þrír menn, Bandaríkja- maður, sem hefur verið bú- settur hér á landi í um 30 ár og tveir synir hans voru hand- teknir, er þeir ætluðu með flugvél til Bandaríkjanna í fyrrakvöld, grunaðir um að vera viðriðnir bæði vopnaða ránið i síðustu viku og ránið úr útibúi Iðnaðarbankans í Breiðholti á dögunum. Mennirnir munu hafa gefið þá skýringu á brottför sinni að frænka þeirra væri veik og þeir ætluðu að heimsækja hana. Við yfirheyrslur bar þeim ekki saman'um þessa umræddu frænku, kránkleika hennar né annað. Rannsóknarlögreglan hef- ur haft mennina í stanslausum yfirheyrslum stðan, en þeir munu sem komið er (síðdegis í gær) ekki hafa játað neitt. í gær var óskað eftir gæsluvarð- haldsúrskurði yfir mönnunum en dómarí tók sér frest þar til í dag. - S.dór Kvikmynd Hrafns Gunnlaugssonar: „Hrafninn flýgur sýnd í V-Berlín

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.