Þjóðviljinn - 25.02.1984, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 25.02.1984, Blaðsíða 13
Helgin 25.-26. febrúar 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13 Þýskir dagar í Reykjavík: Ódýrar Þýska- landsferðir Upplýsinga- og fræðsludagskrá fyrir almenning um sumarleyfis- ferðir til Þýskalands verður haldin að Hótel Loftleiðum í dag, laugar- daginn 25. febrúar. Dagskráin stendur yfir frá kl. 14-18. Þarna sýna þýsk fyrirtæki vörur sínar og leikin verður þýsk tónlist. Tónlistina flytja listamenn frá Þýskalandi og verða þeir klæddir í samræmi við gamlar hefðir sinnar heimabyggðar. Þá matreiða þýskir kokkar að Hótel Loftleiðum, og eru það einir færustu kokkar frá Hotel Frankfurter Hof, þeir Hort Heilmann og Ulrich Backes. Óhætt er að mæla með því sem þeir framreiða, en þýsk matargerð er rómuð um allan heim. Það eru Hótel Loftleiðir og þýska ferðamannaráðið sem standa að þessari kynningu. í frétt frá Hótel Loftleiðum segir, að und- anfarin ár hafi ferðamannastraum- urinn verið að breyta um farveg. Æ fleiri ákveði nú að verja sumar- leyfum sínum á meginlandi Evrópu og áberandi sé, hversu margir ís- lenskir ferðalangar kjósi nú að hafa meiri sveigjanleika í ferðum sín- um. Möguleiki sé nú á t.d. í Þýska- landi að dvelja á einum stað eða fleirum og hafa bflaleigubfl allan tímann. Fólk getur þá ráðið tíma sínum sjálft. Upplýsingar um ferðir til Þýska- lands má fá hjá söluskrifstofum Flugleiða svo og hjá öllum ferða- skrifstofum landsins. Taka sæti á Alþingi Tveir varaþingmenn úr Austur- landskjördæmi hafa nú tekið sæti á Alþingi. Eru það þeir Sveinn Jóns- son, er tekur sæti Helga Seljan, sem er frá störfum um sinn vegna veikinda, og Tryggvi Gunnarsson, sem mætir fyrir Sverri Hermanns- son iðnaðarráðherra. -mhg Sveinn Jónsson Tryggvi Gunnarsson HEILSURÆKT hatúni 12 - iosreykjavík - sImi 29709 Hvernig væri nú að koma sér úr startholunum og komast á stjá Hjá okkur sjúkraþjálfarar Blandaðir tímar - En panta þarf fyri Við sem erum á stjái Stúdentaleikhúsið „Breyttu heiminum...“ Stúdentaleikhúsið efnir til tón- listarkvölds laugardaginn 25. febrúar kl. 20.30 í Félagsstofnun Stúdenta við Hringbraut. Fluttir verða söngvar úr leikritum Bertolt Brechts og flutt ljóð eftir hann, bæði lesin og sungin. Tónlistin er eftir þá Hanns Eisler, Paul Dessau, Kurt Weill og fleiri. Dagskráin er fólki fyrst og fremst til skemmtunar en um leið áminning. Yfirskriftin gæti verið: „Breyttu heiminum, þess þarfnast hann“. Full þörf er á að hver og einn átti sig á því hvers hann er megnugur og að hægt sé að breyta til hins betra. Sungið verður m.a. um hörmungar styrjalda, um of- beldið og hvatt er til umhugsunar. Nokkur ljóð Brechts hafa verið þýdd sérstaklega í tilefni þessarar dagskrár og fluttir verða söngvar sem trúlega hafa aldrei verið sungnir opinberlega hér á landi. Dagskrána tóku þau Hafliði Arngrímsson og Margrét Pálma- dóttir saman. Flytjendur eru: Ást- ríður Helga Ingólfsdóttir, Bára Lyngdal Magnúsdóttir, Guðlaugur Viktorsson, Kristján Viggósson, Margrét Pálmadóttir og Sigríður Eyþórsdóttir. Sjö manna hljóm- sveit skipa: Bjarni Jónatansson (pí- anó), Jón Björgvinsson (slagverk), Joscph Fung (gítar, banjó), Knut- ur Birgisson (kiarinett), Richard Korn (kontrabassi), Rúnar Vil- bergsson (fagott) og Sigríður Eyþórsdóttir (flauta). AUGOfSNTASTnrANHf* Staður hagstæðra % stórínnkaupa Kjöt, mjólk, brauð, pakkavörur og niðursuðuvörur. Pappírsvörur, kerti-leikföng og gjafavörur. ■STEKKJARBAKKI 9 # SKEMMUVEGI 4A KOPAVOGI

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.