Þjóðviljinn - 25.02.1984, Page 19
Helgiir 25.-26. febrúar 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19
bridge
Bridgehátíð 1984:
Sterkasta mót
á Islandi
Brigdehátíð 1984 verður sterk-
asta mót sem haldið hefur verið á
íslandi fram að þessu, en hún hefst
nk. föstudagskvöld. Til leiks mæta
nokkrir af allra frægustu keppnis-
spilurum heims, fyrr og síðar.
Sjálfur Belladonna með félagana
Garozzo og DeFalco mætir og mun
takast á við íslenska brigdespilara.
Sú frétt flýgur fjöllum hærra, að
Belladonna og Garozzo hafi ekki
tapað tvímenningskeppni saman
undanfarin ár. Hvað hæft er í því
selur þátturinn ekki dýrara en hann
keypti það, en þau tvímennings-
mót sem þeir félagar taka þátt í
saman, sem makkerpar, eru víst
orðin teljandi, svo fá sem þau eru.
Allt þetta og meira til gerir hingað-
komu þeirra enn merkilegri og
verður seint full þakkað það starf
sem ábyrgðarmenn Bridgehátíðar
1984 hafa innt af höndum.
Góðvinur okkar að vestan, Alan
Sontag, nýbakaður heimsmeistari í
sveitakeppni með U.S.A. landslið-
inu, kemur hingað þriðja árið í röð.
Að þessu sinni koma ungir spilarar
með honum og raunar hafa tveir af
þremur þeirra komið hingað áður,
þeir Molson og Sion. Molson spil-
aði í fyrra á móti Mittelmann, þá
nýbökuðum heimsmeistara í tví-
menningskeppni í blönduðum
flokki. Sion kom hingað með Sont-
ag og félögum í fyrra, en tók ekki
þátt í Brigdehátíð 1983, þó hann
hafi látið til sín taka á öðrum bri-
dgevígstöðvum, þ.e. í heimarú-
bertu með Einari Guðjohnsen á
móti helstu stórspilurum okkar, t.d
Þórarni o.fl.
Einar Guðjohnsen (sonur Aðal-
steins Guðjohnsen) býr í U.S.A.,
og tekur þar þátt í helstu keppnum.
Hann hefur átt drjúgan þátt í
undirbúningi og komu frægra spil-
ara frá Bandaríkjunum, enda spil-
að með Sontag og Sion í sveit þar
vestra. Fróðlegt væri að sjá til
kappans, gæfi hann sér tíma til að
spila hér heima á móti.
Fjórði meðlimur bandarísku
sveitarinnar er svo Cokin, sem
mun spila við Molson.
Frá Bretlandi koma svo Sowter
og Lodge, sem sigruðu í fyrra í
sveitakeppninni á Bridgehátíð ’83.
Sterkt par.
Frá Svíþjóð koma Hans Göthe
og Tommy Gullberg, margreynt
sænskt landsliðspar. Hafa þeir báð-
ir komið hingað áður, Göthe á Bri-
dgehátíð og Gullberg með sænska
landsliðinu á NM ’78, sem spilað
var í Reykjavík. Gullberg er frægur
„nöldrari" við græna borðið, og
frægur varð makkerskapur þeirra
Gullbergs og Pyk hér á árum áður,
þegar allt var í háloftunum, þó
árangurinn væri oftast góður eða
frábær.
En Göthe hlýtur að bæta félags-
skapinn og vel það, enda með
prúðari mönnum við græna borðið
(Hann er einn af þeim sem dregur
upp Alberts-vindla í upphafi hverr-
ar setu og spyr hvort andstæðing-
unum sé ekki sama hvort hann
reyki. Ef þeim er sama stingur
hann þeim í vasann og glottir í-
skyggilega). Eða þannig....
Og að lokum koma þrír gestir frá
kóngsins Kaupinhöfn. Par á eigin
vegum og makker Sævars Por-
björnssonar, sem nú dvelur við
nám ytra. Heitir sá Torben Bernes
og veit þátturinn lítið um hann,
annað en að hann hlýtur að vera
nokkuð glúrinn fyrst Sævar gerir
sér ferð til þátttöku á Bridgehátíð
1984 á móti honum. Hver veit.
Bridgehátíð 1984 hefst á Loft-
leiðum næsta föstudagskvöld, með
setningu. Eitthvert stórmennið
mun þá setja mótið og að því loknu
hefst sjálf tvímenningskeppnin,
með þátttöku 44 para. Þeirri
keppni lýkur á laugardagskvöldi en
á sunnudegi hefst svo sveitakepp-
nin, sem er öllum opin. Þar verða
spilaðir 7x16 spila leikir eftir Monr-
ad kerfi, sem lýkur á mánudags-
kvöld og verður þá móti slitið.
Frá Bridgefélagi
Breiðholts
Sveit Gunnars Traustasonar
vann verðskuldað í aðal-
sveitakeppni félagsins, sem lauk
s.l. þriðjudag. Auk hans urðu fé-
Umsjón
Ólafur
Lárusson
lagsmeistarar Guðjón L. Sigurðs-
son, Ólafur Tryggvason, Sveinn
Harðarson, Trausti Eyjólfsson.
Alls tóku 12 sveitir þátt í keppn-
inni. Röð efst;
1. Gunnar Traustason 166
2. Anton Gunnarsson 152
3. Heimir Þ. Tryggvason 151
4. Rafn Kristjánsson 139
5. Baidur Bjartmarsson 119
6. Gunnlaugur Guðjónsson 118
Ekkert varð af fyrirhugaðri
heimsókn Húsvíkinga þessa helgi,
og verður því ekki af spilamennsku
í dag.
Næsta keppni félagsins er 3ja
kvölda „Butler-tvímenningur“ sem
eins og fyrr greinir er tvímenning-
ur, með sveita-útreikningi, eða
meðalskor yfir sal.
Öllum heimil þátttaka, meðan
fjöldi leyfir. Spilað er í Gerðu-
bergi, Breiðholti, þriðjudag kl.
19.30.
Mætið tímanlega til skráningar.
Frá Bridgefélagi
Hornafjarðar
Úrslit í sveitakeppni B.H.:
sv. Jóns G. Gunnarssonar stig 115
sv. Skeggja Ragnarssonar 106
sv. Árna Stefánssonar 100
sv. Björns Gíslasonar 64
sv. Stefáns Helgasonar 60
sv. Svövu Gunnarsd. 45
sv. Ragnars Snjólfssonar 39
sv. Jóhanns Magnússonar 31
Auk Jóns Gunnars eru í
sveitinni: Kolbeinn Þorgeirsson,
Gísli Gunnarsson, Guðbrandur Jó-
hannsson og Ingi Már Aðalsteins-
son.
S.l. fimmtudagskvöld hófst að-
altvímenningur félagsins. Spilað
verður 4 kvöld. Veitt verða þrenn
verðlaun, en til að geta hlotið þau
verður par að hafa spilað 3 kvöld af
4.
Sigurður og
Valur langefstir
Eftir 30 umferðir af 43 í aðaltví-
menningskeppni B.R., hafa þeir
Sigurður Sverrisson og Valur Sig-
urðsson tekið afgerandi forystu.
Má mikið vera ef þeir láta hana af
hendi.
Staða efstu para er:
stig
1. Sigurður Sverrisson -
Valur Sigurðsson 495
2. Ásgeir P. Ásbjörnsson -
Guðbrandur Sigurb.ss. 326
3. Jón Ásbjörnsson -
Símon Símonarson 304
4. Guðmundur Pétursson -
Sigtryggur Sigurðss. 302
5. Aðalsteinn Jörgensen -
Runólfur Pálsson 289
6. Júlíus Snorrason -
Sigurður Sigurjónss. 225
7. Hclgi Jóhannsson -
Páll Valdimarsson 185
8. Jón Baldursson -
Hörður Blöndal
9. Guðmundur P. Arnarson ■
Þórarinn Sigþórsson
10. Halla Bergþórsdóttir -
Kristjana Steingrímsd.
Frá Brigdedeild
Skagfirðinga
Þriðjudaginn 21. febr. var spiluð
síðasta umferð í aðalsveitakeppni
deildarinnar og lauk með sigri
sveitar Magnúsar Torfasonar, með
Magnúsi spiluðu Guðni Kolbeins-
son og Keflvíkingarnir Jóhannes
Sigurðsson, Gísli Torfason, Guð-
mundur Ingólfsson og Karl Her-
mannsson:
stig
sv. Magnúsar Torfasonar 125
sv. Sigmars Jónssonar 119
sv. Guðmundar Theódórssonar 113
sv. Guðrúnar Hinriksdóttur 104
sv. Björns Hermannssonar 103
Þá var einnig spiluð Boáfd and
Match sveitakeppni sem sveit Sig-
mars Jónssonar vann með 24 stig-
um. 2. Sveit Sverris Kristinssonar
23 stig.
Næsta þriðjudag hefst ný kepp-
ni, spilað verður Board and Match
sveitakeppni og verða veitt 1. og 2.
verðlaun (peningar). Skráning er
þegar hafin hjá Sigmari Jónssyni í
síma 687070 eða 35271, og hjá
Guðmundi Kr. í síma 21051.
Spilað er í Drangey, Síðumúla
35, kl. 19.30 stundvíslega.
Frá Bridgefélagi
Akureyrar
Nú er lokið firmakeppni Brigde-
félags Akureyrar sem spiluð var
jafnhliða Tvímenningskeppni fé-
lagsins, Akureyrarmóti. Spiluð
voru alls 24 spil fyrir hvert fyrir-
tæki, eftir Barometersfyrirkomu-
lagi, þ.e. allir spiluðu sömu spilin.
Að þessu sinni sigruðu með yfir-
burðum matsölustaðirnir Bautinn-
Smiðjan sem eru bæjarbúum svo
og ferðafólki að góðu kunnir.
Hlaut Bautinn-Smiðjan 184 stig en
þeir sem spiluðu voru Stefán
Gunnlaugsson einn af eigendum
Bautans-Smiðjunnar og spilafélagi
hans Arnar Daníelsson.
Röð fyrirtækjanna var þessi:
Bautinn-Smiðjan
Arnar Daníelsson -
Stefán Gunnlaugss. 184
Almenna tollvörugeymslan
Magnús Aðalbjörnsson -
Gunnlaugur Guðmundss. 135
Verktœkni s.f.
Gissur Jónasson -
Ragnhildur Gunnarsd. 133
Höldur s.f.
Ármann Helgason -
Jóhann Helgason 128
Iðnaðardeild Sambandsins -fataiðnaður
Soffía Guðmundsd. -
Þormóður Einarsson 127
Lögfrœðiskrifstofa Gunnars Sólnes
Tryggvi Gunnarsson -
Reynir Helgason 125
Brunabótafélagið
Alfreð Pálsson -
Júlíus Thorarensen 120
Hafskip - umboð Akureyri
Kári Gíslason -
Sigfús Hreiðarsson 111
Ljósgjafinn
Grettir Frjmannsson -
Olafur Ágústsson 108
Fasteigna- og skipaþjónustan
Kristján Guðjónsson -
Jón Sverrisson 107
Næst að stigum voru íspan með
106 stig, Sjallinn 104, Flugleiðir 99,
Mjólkursamlag KEA 96, Pan 93,
Kjötiðnaðarstöð KEA 88, Al-
mennar tryggingar 83, Nudd- og
gufuabaðstofan 81, Teiknistofa
Hauks Haraldssonar 78 og Sjó-
mannaféiag Eyjafjarðar með 77
stig.
Bridgefélag Akureyrar þakkar
öllum er þátt tóku í firmakeppni
félagsins fyrir velvild og stuðning.
Frá Bridgedeild
Barðstrendingafélagsins
Aðalsveitakeppni félagsins lauk
ntánudaginn 20. febrúar með þátt-
töku 14. sveita. Sveit Þórarins
Arnasonar sigraði. Auk hans spil-
uðu í sveitinni Ragnar Björnsson,
Sigurbjörn Ármannsson, Ragnar
183 Þorsteinsson og Helgi Einarsson. Garðar Guðjónsson og
Urslit 8 efstu sveita: stig Gunnar Þórðarson Geir Eyjólfsson og 114
182
Þórarinn Árnason 223 Kristinn Ólafsson 112
164 Ingvaldur Gústafsson Viðar Guðmundsson 173 163 B-riðill: stig
Sigurður Kristjánsson 153 Skúli Jónsson og
Hannes Ingibergsson 144 Einar Svansson 128
Þorsteinn Þorsteinsson 139 Björn Guðnason og
Ólafur Jónsson 123 Margrét Guðvinsd. 118
Guðmundur Jóhannsson 122 Stefán Skarphéðinsson og -
Mánudaginn 27. febrúar hefst
firmakeppni félagsins og er þegar
fullskráð í hana. Spilað er í Síðu-
múla 25 og hefst keppni stundvís-
lega kl. 19.30.
Frá Bridgefélagi
Sauðárkróks
Mánudaginn 13. febrúar var spil-
aður tvímenningur hjá félaginu.
Úrslit urðu þessi:
A-riðill: stjg
Geirlaugur Magnússon og
Agnar Kristinsson 121
Agnar Sveinsson og
Valgarð Valgarðsson 116
116
114
Kristján Sölvason
Jón Dalman og
Sigrún Angantýsd.
Happdrœtti
Bridgesambandsins
Bridgesamband íslands hefur
hleypt af stokkunum happdrætti í
fjáröflunarskyni fyrir starfsemi
þess. f boði eru stórglæsilegir
vinningar, m.a. nokkrir ferðavinn-
ingar til Evrópu.
Er hérmeð komið á framfæri við
velunnara bridgehreyfingarinnar
sú beiðni að þeir bregðist vel við
þessari málaleitan og styrki B.í.
Hjúkrunarfræðingur
óskast
Hjúkrunarfræðing vantar sem fyrst í fullt starf
til haustsins. Upplýsingar í símum 97-8118
og 97-8221.
Elli og hjúkrunarheimilið
Höfn Hornafirði
Starfsfólk
, \V-S í V
tó' /v
$Z\\
J5 OOO £
í w
veitingahúsum! ^
Fundur um samningana verður haldinn á
Hótel Esju mánudaginn 27. febrúar kl. 20.30.
Stjórnin
Lausar stöður
Stöður fulltrúa við embætti ríkisskattstjóra,
rannsóknardeild, eru hér með auglýstar
lausar til umsóknar.
Nauðsynlegt er að umsækjendur séu endur-
skoðendur, eða hafi lokið prófi í lögfræði,
hagfræði eða viðskiptafræði eða hafi stað-
góða þekkingu á bókhaldi og skattskilum.
Umsóknir með upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf sendist rannsóknar-
deild ríkisskattstjóra, Skúlagötu 57, Reykja-
vík, fyrir 21. mars. n.k..
Reykjavík 21. febrúar 1984.
Ríkirannsóknarstjóri
Iðja, félag verksmiðjufólks,
heldur almennan
FÉLAGSFUND
í Iðnó mánudaginn 27. febrúar n.k. kl. 17.00.
Dagskrá: Samningarnir.
Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna og
koma beint úr vinnu.
Stjórnin