Þjóðviljinn - 25.02.1984, Side 21

Þjóðviljinn - 25.02.1984, Side 21
4>S<>! ísinli! .d£—,?i' nui»?i Yt\ flV*J,OV4 ■• ?">' Helgin 25.-26. febrúar 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 21 Þá tökum viö aftur til við „kekkina í hafragrautnum“ og að þessu sinni veröum við eingöngu með vísur eftir Jónas Friðmunds- son frá Fremstafelli, en eftir hann var m.a. sá ágæti Grána-bragur sem birtist í fyrsta þætti okkar. Eftir Jónas hafa varðveist fjöl- margar vísur, enda eru þær með þeim hætti að menn sóttust eftir þeim á sinni tíð. Fyrst eru þá tvær vísur sem hann nefnir „Heimþrá“ og eru allar vísurnar sem hér verða birt- ar með starfsetningu Jónasar: Jeg hugsa heimí dalinn minn, jeg hugsa um mína sveit, því jeg er fjarri firstum sinn og frí jeg ekkert veit. Jeg sit oft hljóður síðla kvölds og stari útí geim, því nætur húm og hríðarvölds hindra mig í að komast heim. „Um stúlku“ heitir næsta vísa: Þú ert vel af guði gjörð, giðja norður landa gráttu hœkt um gleðinnar jörð glöð og Ijett í anda. Næst koma nokkrar lausavís- ur: Seint og snemma hjér hjá oss svanur er á veiðum. Töfra guma tigna hross til og frá á heiðum. Mörg er meyan björt og blíð bros hír mild og fögur. En álit mitt á þessum líð á hjér eingar sögur. Alstaðar er eitt hvað að engin alsœll verður, er það nokkur eða hvað hjér er aldrei friður. Borð stólana reisir rjétt, rösk á elthús beknum. Klukkan þín, og kanski óþjett krímd er undir serknum. Ó, að fari að flíta sjér fagra vorið blíða, svo það geti sungið mjer söng er mætti á hlíða. Singandi í lopti svifur lóga sólin vermir kalda jörð, í mónum heiri jeg smalan hóga hoppar um grundir fjörug hjörð. Opt er það nú, opt um sinn, opt í solli hreinum, ef jeg kissa mætti á kinn konurnar í leynum. Næst kemur svo vísa um æsk- uástina: Æ opt, æ opt jeg hugsa um þig og okkar skauta ferð. Þá gegstu hlið að hlið við mig og hlógst að hættu merð. Þú leiddir mig, jeg leiddi þig, við leiddumst bæði tvö. Eitthvað hefur skáldið verið óánægt með tilveruna þegar næsta vísa ort: Eitt er víst og víst er eitt í veröldinni heima. Mjer er orðið lífið leitt látlaust einn jeg sveima. í>á kemur vorvísa: Opt á vorin skríði í skjól skrítin lömb í haga. Sínast þó með sada vömb en svona er lífsins saga. Um ástleitni kvenna orti Jón- as: Kven fólk oft er kátt í lund þá karlmenn ber að garði. Hugxar sjer á ásta fund áður en nokkurn varði. Einhver var orðinn lúinn og tók sér hvfld, þá orti Jónas: Ertu lagxtur, lítið má littlu beri granda. Farðu á fætur reindu þá fljótt nú reindað anda. Ort var níðvísa um Jónas og hann svaraði: Þú mát irka níð um mig meðan að jeg þeigi. En konur munu meiða þig í mirkri og björtum deigi. Ortu lof og ortu níð ortu líka um bandann. Ortu um mig og ortu um líð ortu allan fjandann. Afmælisvísa heitir sú næsta: Sjötíu og fimm þú árin sjerð sorg og þreita á þeim er. Drottinn gefi þjer glaða ferð þegar guðs á fund þú fer. Á gamals aldri orti Jónas: Jeg er gamall orðinn grár giktveikur og marinn. Rifinn sundur allur sár sálin aðeins ófarin. -S.dór BJ ÓÞJ Jóhann Hjartarson hefur að öllum líkindum tryggt sér tvo þriðju af stórmeistaratitli. Þótt og tellt, brenna eldar undir niðri. Mynd -eik- >rðið sé slétt Athugasemd Jóhann J. E. Kúld hefur beðið blaðið að koma því á framfæri að línurit sem hann birti með grein sinni í Þjóðviljanum sl. þriðjudag var ekki unnið á vegum Hafrann- sóknastofnunar heldur að frum- kvæði Farmanna- og fiskimanna- sambandsins og Ingólfs Stefáns- sonar framkvæmdastjóra þess og fyrst birt í Sjómannablaðinu Vík- ingi í grein eftir Ingólf. 11. Reykjavíkurskákmótið Jóhann enn með vinningsforskot 19/xi\84 REYKJAVÍKUR SKÁKMÓTIÐM í 9. umferð Reykjavíkurskák- mótsins, sem tefld var í gærkveldi að Hótel Loftleiðum, voru biðskák- irnar nokkuð áberandi, en margar magnaðar skákir litu dagsins Ijós. Fyrri hluta kvöldsins átti viðureign Jóhanns Hjartarsonar og Margeirs Péturssonar alla athygli fjölmargra áhorfenda. Jóhann þáði peð, sem Margeir bauð upp á, í staðinn fyrir biskupaparið og virka stöðu. En þegar Jóhann náði uppskiptum á biskupum varð jafntefli óum- flýjanlegt. Eftir það færðist athygl- in yflr til skákar Helga Ólafssonar og Eric Lobron. Þar var það Helgi sem bauð peð, sem svartur þáði, en það sem verra var að Helgi fékk heldur lítið fyrir. En í miklu tíma- hraki fór Lobron að flétta á heldur dapurlegan hátt, og missti við það tökin á ágætri stöðu. Helga tókst að snúa taflinu sér í hag, og á heldur hagstæðari biðskák, þar sem frels- ingi á a-línunni veitir honum ein- hverja vinningsmöguleika, í stað þess að hafa verið með hartnær tapað tafl. Karl Þorsteins átti enn einn stór- daginn, þegar hann sigraði Banda- ríkjamanninn Zaltsman, sem er al- þjóðlegur meistari. Karl var með ævintýralega stöðu, og eftir mikinn klukkubarning undir lok setunnar, féll Zaltsman á tíma, og fyrsti hluti Alþjóðlegs titils er tryggður hjá Karli Þorsteins. Guðmundur Sigurjónsson vann öruggan sigur í skák sinni við Mey- er hinn þýska. Meyer hefur heldur dapra útkomu gegn íslendingum, því fyrr í mótinu tapaði hann fyrir bæði Friðrik og Helga. Nick DeFirmian tapaði í gær- kveldi þriðju skákinni í röð, að þessu sinni gegn sænska alþjóða- meistaranum Schneider. Sagan endurtekur sig, því eins og menn muna var DeFirmian í fremstu röð framan af Búnaðarbankamótinu, en í síðustu umferðunum, þar fór allt úrskeiðis eins og nú. Á hinn bóginn vann Sovétmaðurinn Gell- er, stigahæsti maður mótsins, sinn þriðja sigur í röð gegn Svíanum Wedberg. Geller hefur þannig í síðustu umferðum skotist upp í efstu sæti. Áframhald varð á deilum um niðurröðun keppenda. Þannig deildi Lobron hart á keppnisstjórn- ina, er honum var úthlutað að tefla við Helga. Hann taldi að keppn- isstjórnin væri að hygla íslensku keppendunum. Eftir að dómnefnd hafði skoðað málið var kæru Lo- bron vísað frá, enda hafði keppn- isstjórnin farið að öllu eftir regl- unum. Mótinu lýkur nú um helgina, en tvær síðustu umferðirnar verða tefldar í dag og á morgun, og hefj- ast báða dagana kl. 14.00. -eik Úrslit úr 9. umferð Úrslit í 9. umferð Reykjavíkurskákmótsins í gærkveldi urðu sem hér segir: 01 JóhannHjartarson - Margeir Pétursson '/2 - ‘/2 02 Samuel Reshevsky - Jón L. Árnason Vi - Vi 03 Helgi Ólafsson - E. Lobron Bið 04 L.A. Scneider - N.DeFirmian 1-0 05 TomWedberg - E. Geller 0-1 06 Larry Christiansen - AxelOrnstein 1-0 07 HansRee - Y. Balashov Vi - Vz 08 L. Shamkovich - V. McCambridge Bið 09 KarlÞorsteins - V.F.Zaltsman 1-0 10 P. Ostermeyer - R. Byrne 1-0 11 M.G.Chandler - M.Knezevic 1-0 12 D.King - FriðrikÓlafsson Bið 13 H.Schussler - L.Gutman 1-0 14 L. Alburt - G.Taylor 1-0 15 H. Meyer - Guðmundur Sigurjónsson 0-1 16 PiaCramling - J.M. Nykopp Bið 17 JohnnyHector - Róbert Harðarson 0-1 18 Carsten Höi - Ásgeir Þ. Árnason Vi - Vi 19 Benedikt Jónasson - Haukur Angantýsson 0-1 20 Elvar Guðmundsson - Hilmar Karlsson 0-1 21 K. Burger - Bragi Halldórsson Bið 22 Sævar Bjarnason - Bragi Kristjánsson 0-1 23 K. Tielemann - Magnús Sólmundarson 1-0 24 DanHansson - Benóný Benediktsson Bið 25 Guðmundur Halldórsson - Pálmi Pétursson 0-1 26 Halldór G. Einarsson - LárusJóhannesson Bið 27 Ágúst Karlsson - Þröstur Bergmann Vz — Vi 28 Björgvinjónsson - Andri Áss Grétarsson 1-0 29 Gylfi Þórhallsson - Haraldur Ilaraldsson Bið 30 Leifur Jósteinsson - Arnór Björnsson 0-1

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.