Þjóðviljinn - 25.02.1984, Page 22
22 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 25.-26. febrúar 1984
um helgina
Tvœr ólíkar sýningar opnaðar
á Kjarvalsstöðum í dag:
„Þetta er óhemju tímafrekt“ - listamaðurinn við eina mynd sína á Kjarvalsstððum, blýantsteikningu á
málaðri plötu. Til hliðar er önnur stór teikning á lérefti. Ljósm.-eik.
Hringur Jóhannesson:
Sýnir 140 myndir
á tveimur stöðum
Hringur Jóhannesson list-
málari opnar í dag tvær sýn-
ingar á verkum sínum: Kl. 14 í
vestursal Kjarvalsstaða og kl. 15 í
Asmundarsal, við Freyjugötu. A
þessari tvískiptu sýningu Hrings
eru ríflega 140 myndir, olíumál-
verk, teikningar, litkrít og olíu-
pastelmyndir. Þetta er 20. sýning
Hrings en hann sýndi fyrst í Boga-
salnum 1962.
Á Kjarvalsstöðum eru einkum
myndir málaðar á vinnustofu.
Þar kennir ýmissa grasa og er stór
hluti myndanna málaður norður í
Aðaldal, en þar hefur listamað-
urinn haft vinnustofu á sumrin sl.
10 ár, að Haga, þar sem hann er
fæddur. Á Kjarvalsstöðum er
einnige.k. „afleggjari“ af sýning-
unni með léttum skissum gerðum
á Kanaríeyjum, en í Ásmundars-
al eru eingöngu olíupastelmynd-
ir, náttúrustemmningar sem unn-
ar eru á staðnum.
Þessi sýning Hrings er sú lang-
stærsta sem hann hefur haldið og
mun fjölbreyttari en fyrri sýning-
ar hans. Árið 1982 hlaut hann 12
mánaða starfslaun og felldi þá
niður kennsluna sem hann hefur
stundað frá 1962. „Starfslaunin
gerðu það að verkum að ég var
frjálsari og vann meira“, sagði
Hringur, „en þau dugðu ekki til
neinna 12 mánaða, heldur aðeins
fjögurra. En það er betra að sýna
þetta allt í einu en að halda tvær
sýningar eða fleiri,“ sagði hann,
en síðasta einkasýning hans var í
Norræna húsinu 1980. Síðan þá
hefur Hringur tekið þátt í fjölda
samsýninga hér heima og er-
lendis og einnig haldið smærri
sýningar á verkum sínum úti á
landi.
Hringur lauk myndlistarnámi
1952 en hélt fyrstu sýninguna 10
árum síðar. „Abstraktið var að
skella yfir“, sagði hann, „ég gerði
heiðarlega tilraun og hætti svo al-
veg í ein 8-9 ár. Þá voru komnir
nýir straumar og ég fór að vinna
meira fígúratíft og stíliserað. Síð-
an þá hef ég rnálað."
Negatífan af einni mynd úr myndröð Jóns Óskars.
Jón Óskar:
Myndir af
mönnunum
Ungur myndlistamaður, nýút-
skrifaður úr School of Visual Arts
í New York opnar kl. 15 í dag sína
fyrstu einkasýningu á Kjarvals-
stöðum. Hann heitir Jón Óskar
og sýnir þar 40 verk unnin á síð-
ustu tveimur árum. Á sýningunni
eru ljósmyndir og málverk.
Margar myndanna eru unnar á
Ijósnæman pappír með blandaðri
tækni en einnig er á sýningunni
hluti af stærri Ijósmyndaröð af
mönnum máluðum akryllitum.
„Ég nota gömul íslensk og
keltnesk tákn til að draga fram
þjóðrembuna", segir Jón Óskar,
en risastórar myndir af karl-
mönnum eru áberandi á sýning-
unni. „Þetta eru menn sem
standa fastir fyrir einhverja hug-
sjón, -eitthvað sem þú sérð ekki.
Þeir eru ummyndaðir og verða
allir eins, - nánast dauðir.“
ýmislegt
MÍR-salurinn
Sovéska kvikmyndin „Vindarnir siö“
(meö ensku tali) verður sýnd f MIR-
salnum, Lindargötu 48, sunnudaginn
26. febrúar kl. 16.00. Þessi mynd er frá
árinu 1962 og merkileg aö þvl leyti, aö
hún er ein af fyrstu kvikmyndum hins
fræga leikstjóra Stanislavs Rostotskí,
sem komið hefur hingað til lands og
þekktastur er fyrir myndina „Og hér rlkir
kyrrð í dögun".
Aðgangur að MÍR-salnum er ókeypis
og öllum heimill.
Kvikmyndaklúbburinn Norðurljós
Sunnudaginn 26. febrúar kl. 17.00 hefj-
ast sýningar að nýju í Kvikmyndaklúbbn-
um Norðurljós f Norræna húsinu.
Fyrsta myndin sem sýnd verður er
sænska kvikmyndin „Lángt borta och
Nára'' en hún var gerð árið 1976. Leik-
stjóri er Marianne Ahrne og hefur hún
einnig samið handrit ásamt Bertrand
Hurault. I aðalhlutverkum eru Lilga Ko-
vanko og Robert Farrant.
Myndin gerist á geðsjúkrahúsi og
segir frá ungri stúlku, sem starfar við
sjúkrahúsið. Verður hún ástfangin af
sjúklingi, sem talar ekki vegna sálrænna
truflana. Lýst er ást þeirra og því sam-
bandi sem næst, þar sem málið er ekki
eina tækið til tjáskipta.
Alls verða sýndar 6 kvikmyndir til vors
og verða sýningarnar I Norræna húsinu
kl. 17 á sunnudögum. Meðal myndanna
má nefna kanadísku heimildarmyndina
„Not a Love Story" gerð af Bonnie Sherr
Klein og fjallar um klámiðnaðinn í
Bandaríkjunum. Myndin var sýnd á Kvik-
myndahátiðinni 1982 og vakti mikla at-
hygli.
Aðgangskort að öilum sýningunum
kosta kr. 100 og að einstakri sýningu kr.
20. Kortin eru til sölu í Norræna húsinu.
Rithöfundafundur
Skemmtifundur verður haldinn hjá Fé-
lagi íslenskra rithöfunda sunnudaginn
26. febrúar kl. 14.00 að Skálafelli, Hótel
Esju. Þessir höfundar lesa úr verkum
sínum: Ásgeir Hvítaskáld, Gunnar Dal,
Hrafnhildur Valgarðsdóttir, Indriði Ind-
riðason, Indriði G. Þorsteinsson, Óskar
Aðalsteinn og Pjetur Hafstein Lárusson.
Bókmenntir i kennslu
Félag skólasafnvarða og Samtök móö-
urmálskennara efna til fundar í Kennslu-
miðstöðinni, Laugavegi 166, n.k. þriðju-
dag kl. 20.30 um efnið Bókmenntir I
kennslu. Silja Aðalsteinsdóttir mun flytja
erindi um hvert stefni i fslenskum barna-
og unglingabókmenntum og Þuríður Jó-
hannsdóttir mun fjalla um þýðingar á
barna og unglingabókmenntum. Fund-
arstýra verður Rósa Þorbjarnardóttir,
endurmenntunarstýra Kennaraháskóla
Islands.
Ási f Bæ i Norræna
I tilefni 70 ára afmælis Ása f Bæ mánu-
daginn 27. febrúar efna Vísnavinir og
aðrir vinir og vandamenn skáldsins til
kvöldvöku í Norræna húsinu það sama
kvöld. Hefst kvöldvakan kl. 20.30 og
verða þar flutt lög og Ijóð eftir Ása í Bæ
og lesið verður upp úr verkum hans. Af-
mælisbarnið mætir að sjálfsögðu með
gftarinn undir hendinni og sömuleiðis
bækur. Auk hans koma fram Halldór
Kristinsson, Haukur Mortens, Ólafur
Gaukur og Svanhildur, Árni Johnsen,
Gfsli Helgason, Grettir Björnsson, Arn-
þór Helgason, Andrés Sigurvinsson,
Guðrún Hólmgeirsdóttir, Ingi Gunnar
Jóhannsson, Páll Steingrímsson og
fleiri.
leiklist
Studentaleikhusiö:
Jakob og meistarinn I sfðasta sinn.
Stúdentaleikhúsið mun reka smiðs-
höggið á starfsemi sína i vetur I Tjarnar-
bæ, en eftir helgina mun það flytja starf-
semina yfir í Félagsstofnun stúdenta.
Leikritið „Jakob og meistarlnn"
verður sýnt f allra siðasta sinn á miðnæt-
ursýningu á mánudagskvöld kl. 20.30.
Leikrit þetta samdi Milan Kundera og er
þetta gleðileikur, aö sögn Stúdenta-
leikhússins.
Stúdentaleikhúsið hvetur velunnara
sína til að fjölmenna í Tjarnarbæ, en að-
sókn hefur verið með lakara móti. Það
skal tekið fram, að ekki verða lleiri sýn-
ingar á leikritinu.
Barnaleikhúsið Tinna
frumsýnir leikritið Nátttröllið eftir Ragn-
heiði Jónsdóttur sunnudaginn 26. febrú-
arkl. 15 íTjarnarbíói. MiðasalaeríTjarn-
arbíói á sunnudag frá kl. 13.00. Miða-
pantanir og nánari upplýsingar má fá í
síma 13757. Ókeypis aðgangur er fyrir
fullorðna en vægt gjald fyrir börn.
Leikflokkurinn á Hvammstanga
mun frumsýna leikrit Davíðs Stefáns-
sonar Gullna hliðið á 20 ára dánardæg-
ri skáldsins þann 1. mars næstkomandi.
Síðan er fyrirhugað að fara með leikritið í
nágrannabyggðirnar og verða sýningar
sem hér segir: Hofsósi 3. mars, Miðgarði
4. mars, Hvammstanga 7. mars, Skaga-
strönd 10. mars, Blönduósi 11. mars,
Búöardal 17. mars, Varmalandi 18.
mars og á Hvammstanga 23. mars og
25. mars.
Þjóðleikhúsið:
Sveyk i sfðari heimsstyrjöldinnl eftir
Bertolt Brecht verður sýnt á sunnudags-
kvöld og er það 7. sýning. Bessi Bjarna-
son leikur Sveyk, en með önnur helstu
hlutverk fara Þóra Friðriksdóttir, Baldvin
Halldórsson, Sigurður Sigurjónsson,
Gunnar Eyjólfsson, Gfsli Rúnar Jónsson
og Pálmi Gestsson.
Amma þó barnaleikritið eftir Olgu Guð-
rúnu Árnadóttur verður sýnt í annað sinn
í dag, laugardaginn 25. febrúar, kl. 15 og
í þriðja sinn á sunnudag kl. 15.00. Bráð-
hressilegt leikrit um ævintýralega fjöl-
skyldu í Reykjavík og óvenjulega ömmu,
sem aldrei deyr ráðalaus, þótt engir pen-
ingar séu til f kotinu fyrir mat og húsa-
leigu.
Skvaldur eftir Michael Fraym verður
sýnt tvisvar á laugardagskvöldið. Fyrri
sýningin hefst kl. 20.00 og hin sfðari kl.
23.30. Þetta er eldfjörugur gamanleikur
þar sem allt getur gerst hversu ótrúlegt
sem það er.
fslenska óperan
sýnlr í kvöld kl. 20 tvær óperur eftlr Men-
otti: Sfmann og Miðllfnn og er það sfð-
asta sýning. Sfmlnn er stutt, smellin
gamanópera, hugsanlega ádeila á nýj-
ungagirni manna og það hvernig maður-
inn getur látið stjórnast af tækninni.
Mlðlllinn er hins vegar andstæða
Sfmans , alvarlegur sorgarleikur er fjall-
ar um fólk sem flæklst fast f sinni eigin
sviksemi.
Á sunnudagskvöld kl. 20 verður sýn-
ing á La Traviata eftir Verdi og fer nú
hver að verða síðastur að sjá þessa vin-
sælu óperu, þvf sýningum fer nú óðum
fækkandi.
Tröllalelklr
Leikbrúðuland sýnir Tröllaleiki f lönó á
sunnudaginn kl. 15.00. Um sfðustu helgi
féll sýningin niður vegna óviðráðanlegra
aðstæðna.
myndlist
Llstmunahúslð
Sýningu Þorvaldar Skúlasonar í
Listmunahúsinu lýkur á sunnudaginn.
Nýllstasafnlð
Sfðastliðinn föstudag var opnuð I Nýlist-
asafninu, Vatnsstíg 3b, sýning á verkum
f eigu safnsins. Verður sýningin opin til 4.
mars.
Nýlistasafnið hefur starfað f 6 ár og
hefur safnast hjá þvf mikill fjöldi verka og
gagna. Aðallega verða sýnd stór mál-
verk og skúlptúrar. Mörg verkanna eru
frá „Súm“-tímabilinu og sjást þar verk,
sem aldrei hafa verið sýnd áður eða ekki
sést lengi á sýningum hér á landi.
Sýningin er opin daglega frá kl. 16-20
virka daga, en frá kl. 16 til 22 um helgar.
tónlist
Spænsk gftartónllst
Sfmon H. Ivarsson heldur gftartónleika f
Grindavíkurkirkju sunnudaginn 26. fe-
brúar kl. 17.15. Á efnisskránni, sem er
tvfþætt, eru spænsk klassísk verk, og
flamencótónlist. Með þessari efnisskrá
vill Símon sýna fram á hina fjölmörgu
möguleika gftarsins og hefur hann valið
til þess tónlist frá „föðurlandi" gftarsins,
Spáni.
Símon (varsson mun vera eini Is-
lendingurinn, sem leikur flamencótónlist
og hefur hann sótt námskeið hjá prof.
Andreas Batista í Madrid á Spáni, en
klassískan gítarleik stundaði Símon við
Tónskóla Sigursveins og sfðan við Tón-
listarháskólann í Vinarborg.
Tónleikar þessir eru haldnir f sam-
vinnu við Tónskóla Grindavfkur.
"Uazzklúbbur Reykjavikur
önnur djamm-sessjón Jazzklúbbs
Reykjavfkur verður í Kvosinni, í húsi Nýja
Bíós sunnudaginn 26. febrúar og hefst
kl. 15.00. Þar koma fram tvær hljóm-
sveitir skipaðar nemendum í Jassdeild
Tónlistarskóla FfH. Einnig kemur fram
söngsextettinn TONEKA ásamt undir-
leikurum. Síðast en ekki síst skal telja
sveiflusveit undir stjórn Guðmundar R.
Einarssonar með trommur sfnar.
Aðgang að sessjóninni fær hver sá
eða sú sem orðin er eða vill gerast félagi
f JR, en félagsgjald er krónur 200.
Bel Canto-kórinn
f Garðabæ syngur undir stjórn frú Guð-
finnu Dóru Olafsdóttur í Frfkirkjunni I
Reykjavfk sunnudaginn 26. febrúar.
Hefjast tónleikarnir kl. 17.00. Organ-
leikari er Gústaf Jóhannesson. Á efn-
isskránni er gömul músfk og ný, m.a.
madrígalar frá ýmsum löndum, íslensk
tónlist og negrasálmar.
Ágóða verður varið til styrktar orgel-
sjóði Frfkirkjunnar.