Þjóðviljinn - 25.02.1984, Síða 26
26 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 25.-26. febrúar 1984
ALÞYÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandaiagið
Vestmannaeyjum
Viðtalstímar
Framvegis veröur Garðar Sigurðsson alþingis-
maður með viðtalstíma að Bárugötu 9, síðasta
laugardag í mánuði kl. 16-19. Næsti viðtalstími
verður laugardaginn 25. febrúar. Kaffi á könnunni.
- AB Vestmannaeyjum.
Garðar
Húsvíkingar -Þingeyingar
Alþýðubandalagið á Húsavík auglýsir árshátíð sína sem haldin verður
laugardaginn 25. febrúar í Félagsheimili Húsavíkur.
Hátíðin hefst með borðhaldi kl. 20.00. Húsið opnað kl. 19.30.
Steingrímur og Stefán koma og verða með ef færð og veður leyfa.
Skemmtiatriði við allra hæfi. Látið skrá ykkur sem allra fyrst í símum
41813 og 41397.
Athugið: Hátíðin er ætluð öllum Allaböllum í Þingeyjarþingi. Hafið
samband. - Nefndin.
Alþýðubandalagið
Miðstjórnarfundur
Miðstjórn Alþýðubandalagsins er boðuð til fundar laugardaginn 3. og
sunnudaginn 4. mars n.k. að Hverfisgötu 105, Reykjavík. Fundurinn
hefst kl. 13.30 á laugardag.
Á dagskrá fundarins verða m.a. kjaramál, utanríkismál, fjármál Alþýðu-
bandalagsins, undirbúningur stefnuskrárumræðu flokksins, nefndakjör
og önnur mál.
Alþýðubandalagið
í Kópavogi
Félagsfundur
ABK heldur félagsfund í Þinghól
29. febrúar nk. Fundurinn hefst
kl. 20.30 stundvíslega.
Dagskrá:
1) Félagsmál Svavar Bjarnfríaur
2) Tengsl verkalýðshreyfing-
arinnar við flokkinn og
kjaramálin. Framsögur hafa Svavar Gestsson og Bjarnfríður Leós-
dóttir.
Athugið: Mætið vel og stundvíslega. Allir velkomnir. stjórn ABK
Stjórnmálafundir á
Skagaströnd og Blönduósi
Alþýðubandalagið efnir til almennra stjórn-
málafunda á Norðurlandi vestra um næstu
helgi á eftirtöldum stöðum:
Skagaströnd í félagsheimilinu, kl. 13 n.k.
laugardag 25. febrúar.
Blönduós í félagsheimilinu, sama dag kl.
16.30.
Ragnar Arnalds alþingismaður hefur framsögu á fundunum.
Frjálsar umræður og fyrirspurnir. Fundirnir eru öllum opnir.
Ragnar
Söfnum leikföngum
Félagið okkar í Reykjavík er nú komið með nýja og glæsilega aðstöðu
að Hvertisgötu 105. Stórátak meðal félagsmanna hefur gert drauminn
um gott húsnæði að veruleika og skapað góða aðstöðu til starfs og
leikja. ,
En ennþá vantar fé. Meðal þess sem foreldrar hafa rekið sig a að
sárlega vanhagar um er leikaðstaða barna. Leikföng eru fá til í flokks-
miðstöðinni enn sem komið er. Nú er hafin söfnun meðal flokksfólks
og velunnara Alþýðubandalagsins til að bæta úr þessu. Allt verður vel
þegið, hvort sem það eru fjárframlög eða gömul nothæf leikföng. Ef
þið lúrið á einhverju, vinsamlega látið Kristján Valdimarsson vita í síma
17500 eða Auði Styrkársdóttur í síma 81333 (heimasími 79017).
Framlög verða sótt heim ef óskað er.
Alþýðubandalagið á Sauðárkróki
Bæjarmálaráðsfundur veröur haldinn mánudaginn 27. febrúar í Villa
Nova. Dagskrá: Fjárhagsáætlun. - Stjórnin.
Alþýðubandalagið á Akureyri
Stofnun kvennahóps -
breyttur fundartími
Konur í Alþýðubandalaginu og aðrar sem áhuga hafa eru hvattar til að
mæta á rabbfund í Lárusarhúsi, Eiðsvallagötu 18, mánudaginn 27.
febrúar kl. 20.30. Kaffiveitingar. Athugið breyttan fundardag, þ.e.
mánudagskvöld í stað sunnudagskvölds eins og áður hafði verið
auglýst. - Áhugasamar konur.
Æskulýösfylking Alþýðubandalagsins
Framhaldsstofnfundur
Æskulýðsfylkingarinnar á Húsavík
Fundurinn verður haldinn laugardaginn 25. febrúar í Félagsheimilinu.
Allir ungir vinstrimenn á Húsavík og nágrenni mæti hressir og kátir. Á
fundinn koma Steingrímur Sigfússon, alþingismaður, og Ólafur Ólafs-
son, stjórnarmaður ÆFAB.
Nefndin
Verkalýðsmálanefnd ÆAFB
Rabbfundur verður í verkalýðsnmálanefnd ÆFAB laugardaginn 25.
febrúar kl. 13 í flokksmiðstöðinni Hverfisgötu.
Skagstrendingur hf. borgar eina miljón á ári í þóknun
Okur í Landsbankanum?
Fyrir að útvega 12.793.750
svissneskra franka lán tekur
Landsbanki íslands í þóknun
7.350.015 kr. ísienskar, sem
dreifist á átta ár eins og lánið,
þannig að árlega fær Landsbank-
inn 931.518 krónur fyrir það eitt að
útvega lánið. Þannig segir í bréfi
frá Skagstrendingi h.f. á Skaga-
st rönd scin sent hefurverið til bank-
aráðs Landsbankans, en í bréfinu
kvartar útgerðarfélagið yfir allt of
hárri þóknun til bankans.
Forsaga málsins er sú, að Lands-
bankinn útvegaði Skagstrendingi
h.f. lán uppá 12.793.750 svissneska
franka þegar skuttogarinn Örvar
HU 21 var smíðaður. Á því 1 Ví ári
sem liðið er síðan lánið var tekið
hefur Skagstrendingur h.f. greitt í
vexti og þóknanir til Landbankans
og þess erlenda banka sem útveg-
aði lánið 1.159.968,10 svissneska
franka. Af þessu hefur 185.314
svissneskir frankar runnið til
Landsbankans eða sem svarar
2.465.269 íslenskum krónum.
Síðan segir í bréfi Skagstrend-
ings h.f.: „Á meðfylgjandi fylgi-
skjali nr. 2 (það fylgir með bréfinu)
höfum við reiknað út heildarþókn-
un Landsbankans samtals 552.510
sv. franka eða ísl. kr. 7.350.015,
sem fellur til á endurgreiðslutíma
skuldabréfsjns, 8 árum. Að með-
altali er því Skagstrendingi gert að
greiða Landsbankanum kr.
937.518 árlega vegna þessarar láns-
töku og svarar sú fjárhæð til rúm-
lega 3% af brúttóaflaverðmæti
meðal skuttogara á árinu 1983.
Eins og tekið er fram í upphafi
lítum við svo á að þóknun til
Landsbankans sé í hæsta máta
óeðlileg og í engu samræmi við
þann kostnað og fyrirhöfn sem
bankinn óhjákvæmilega hlýtur að
hafa vegna þessa...“
Þetta bréf er sent til ráðherra,
þingmanna Norðurl.kjd. vestra og
LÍU.
-Óg.-S.dór
Helgi Bergs bankastjóri Landsbankans:
STÓR LÁN
kosta snr
„Þessi þóknun er alveg eðlileg,
menn verða að gera sér grein fyrir
því að það kostar sitt að taka stór
lán og í þessu tilfelli er um afar stórt
lán að ræða, en ekkert óeðlilegt við
þá upphæð sem þeir verða að
greiða í þóknun. Ef þeir geta feng-
ið svona lán með ódýrari hætti, þá
eru allir viðskiptabankarnir komn-
ir með gjaldeyrisviðskipti", sagði
Helgi Bergs bankastjóri Lands-
bankans er Þjóðviljinn leitaði til
hans vegna bréfs Skagstrendings
h.f. til bankaráðs.
Helgi benti á að þetta lán væri til
mjög langs tíma, bankinn þyrfti að
sinna mikilli vinnu í sambandi við
það, upplýsingastreymi til lán-
veitenda og ekki bara það, heldur
kostar það mikið að halda þeim
samböndum sem þarf til að geta
veitt svona stórlán. Hann benti
einnig á að þeir hjá Skagstrendingi
h.f. hefðu vitað hvað það kostaði,
þegar þeir tóku lánið.
„Skipið er mjög dýrt og allar
tölur í sambandi við svona dýrt skip
verða háar,“ sagði Helgi Bergs
bankastjóri.
-S.dór
Einn eitt hneykslið hjá hárgreiðslumeistara
Nema sagt upp eftir
15 mánaða starf!
Barnshafandi stúlku sagt upp í iðnnámi
- Enn eitt hneykslismálið í sam-
bandi við hárgreiðslumeistara er
nú í uppsiglingu, sagði Kristinn
Einarsson formaður Iðnnemasam-
bandsins í viðtali við Þjóðviljann í
gær. - Iðnnemasambandið þarf nú
að kæra hárgreiðslustofu vegna
þess að hún hefur sagt upp stúlku
sem er ófrísk. Stúlkan hefur verið
15 mánuði í starfsþjálfun. Hér telj-
um við að sé um skýlaust lagabrot
að ræða, og því grípum við til við-
eigandi ráðstafana til að verja okk-
ar félaga.
- Tildrög málsins eru þau að
hárgreiðslustofa sem hér um ræðir
hefur haft nema í 15 mánuði í
starfsþjálfun, þ.e. án námssamn-
ings. Við höfum áður þurft að leita
leiðréttinga vegna vangoldinna
launa og orlofs hjá þessum hár-
greiðslumeistara, en nú tekur þó
steininn úr
- Hárgreiðslumeistarinn hefur
nú sagt nemanum upp eftir 15 mán-
aða starf frá og með 1. mars n.k.
Hún hefur allan tímann unnið
undir lágmarkslaunum og hefur
ekki fengið greitt eftir að hún kom
ur skóla fyrir mánuðina janúar og
febrúar. Nú er hún ófrísk og henni
er sagt upp. Hér er að sjálfsögðu
um skýlaust lagabrot sem og
mannréttindabrot og algert siðleysi
að ræða.
- Við höfum lagt málið fyrir
lögfræðing, sem og Jafnréttisráð.
Og á næstunni munum við grípa til
víðtækari ráðstafana ef ekki fæst
viðunandi leiðrétting.
-óg
Laus staða
Staða húsvarðar í Safnhúsinu v/Hverfisgötu í Reykjavík er laus til
umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og starfsferil skulu hafa
borist menntamálaráðuneytinu eigi síðar en 15. mars næstkom-
andi.
Menntamálaráðuneytið, 22. febrúar 1984.
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Adda
Bjarnfríður
Vilborg
Guðrún
Hverju eru konur bættari
með kjarasamningunum?
Miöstöö kvenna boðar til fundar aö Hverfisgötu 105 n.k. þriðjudagskvöld, 25. febrúar kl.
20.30.
Umræðuefni: Kjarasamningarnir og kjör kvenna.
Málshefjendur: Bjarnfríöur Leósdóttir, Vilborg Harðardóttir og Guörún Ágústsdóttir
Fundarstjóri: Adda Bára Sigfúsdóttir.
Allt áhugafólk velkomið. — Miðstöð kvenna.