Þjóðviljinn - 28.02.1984, Blaðsíða 15
Nemendur í starfsdaganefnd, fr.v.: Erlendur V. Indriðason, Edda Rós
Karlsdóttir, Viktor Kjartansson og Ágúst Ásgeirsson. Ljósm.: Atli.
Starfsdagar í
Fjölbrautaskóla
Suðurnesja
Starfsdagar Fjölbrautaskóla
Suðurnesja hófust í gær. Er þar
margt sem starfsliðið og nem-
endur skólans geta gert sér ti I
gagns og gamans. A staðnum
eru t.d. vídeó, leiktæki, kynning
á mat, listaskemma þar sem
listamenn skólans fá að
spreytasig. Ljósmyndasýning,
kassabílasmíði og út verður
gefið blað í öllum dögum starfs-
daganna.og héráeftirverður
dagskráin skráð í grófum drátt-
um.
Alla dagana mun koma út blað
þar sem fjallað verður um hvað er á
seyði og hvað hefur verið að gerast
um dagana. Einnig verður ýmislegt
skemmtiefni sem fylgir með.
Vídeósýningar verða á hverjum
degi sendar út á þrem rásum og
verður það bæði léttmeti og lær-
dómsríkt efni í sambandi við
skólann. Leiktækjasalur verður
starfræktur á staðnum og verður
ókeypis aðgangur svo spilasjúkir
ættu að geta gert sér glaðan dag.
Nokkuð skemmtileg hugmynd var
að setja kynningu á matargerðar-
list fjarlægra þjóða en það er án efa
sjaldgæft hér á landi. Kynntur
verður matur frá Kína og Italíu en
einnig verður öllum leyft í lokin að
bragða á alþjóðlegu hnossgæti.
í listaskemmunni svokölluðu,
sem er matsalur nemenda, verður
skreyttur veggur og geta þeir sem
halda sig ótvíræða óuppgötvaða
listamenn spreyta sig. Hver veit
nema þarna komi fram einhver
sem mun láta mikið að sér kveða í
listamannastéttinni seinna meir?
Ljósmyndasýning verður á
staðnum og þar ættu nemendur og
kennarar að geta rifjað upp
skemmtileg atvik frá á síðustu
misserum. Að lokum segjum við
(blm) frá kassabílasmíði og verða
þeirHéðinn Skarðhéðinsson, Stur-
laugur Björnsson og Jón Vald-
imarsson leiðbeinendur. Hefst
smíðin eins fljótt og unnt er á Iða-
völlum.
í starfsdaganefnd eru þau Edda
R. Karlsdóttir, Erlendur V. Ind-
riðason, Ágúst Ásgeirsson og Vikt-
or Kjartansson og má hér þakka
þeim fyrir vel unnin störf.
Lýkur hér þessum stutta pistli
um starfsdagana.
Við minnum á að opið er fyrir
alla í bænum og hvetjum við fólk
eindregið til þess að mæta.
Hálf, Han, Har.
Ný ritröð um öryggis- og
alþjóðamál frá Oryggismálanefnd
NATO og notkun
kj arnorkuv opna
Aðfangaskrá
Öryggismála-
nefndar einnig
komin út
Öryggismálanefnd hefur hafið
útgáfu á nýrri ritröð um öryggis- og
alþjóðamál. Er hér um að ræða rit-
gerðir í fjölriti og verða þær gefnar
út samhliða prentuðum og viða-
meiri verkum en þrjú rit af þeirri
tegund hafa þegír verið gefin út af
nefndinni. Markmiðið með hinni
nýju ritröð er að gefa yfirlit um
einstaka þæti öryggismála og jafn-
framt að kynna mál sem eru ofar-
lega í umræðu á alþjóðavettvangi.
Fyrsta ritgerðin í hinni nýju rit-
röð ber heitið „Atlantshafsbanda-
lagið og umræðan um fyrstu not-
kun kjarnorkuvopna" og er
höfundur hennar Gunnar Gunn-
arsson. f ritgerðinni er gerð grein
fyrir tillögu sem verið hefur mikið
til umræðu allt frá miðju ári 1982
en þá hvöttu fjórir þekktir Band-
ríkjamenn til að horfið verði frá
þeirri yfirlýstu stefnu Atlantshafs-
bandalagsins að það geti orðið
fyrra til að beita kjarnorkuvopnum
í hugsanlegum átökum við Varsjár-
bandalagið. f rauninni er hér um að
ræða þá spurningu hvaða hlutverki
kjarnorkuvopnum er ætlað að
gegna í öryggiskerfi Atlantshafs-
bandalagsins og þá um leið hvert
skuli vera vægi þeirra miðað við
hefðbundin vopn.
Þá hefur einnig verið gefin út
„Aðfangaskrá Öryggismálanefn-
dar“. Þegar Öryggismálanefnd hóf
störf varð fljótlega ljóst að gögn til
rannsókna á sviði utanríkis- og ör-
yggismála voru ekki til hér á landi
nema að mjög takmörkuðu leyti og
hefur það verið liður í starfsemi
nefnarinnar frá upphafi að koma
upp safni gagna á þessu sviði. Að-
fangaskráin sem nú er gefin út telur
samtals 750 titla og einnig koma
fram í henni þau tímarit sem nefnd-
inni berast reglulega en þau eru 20
talsins.
Ritgerðir og aðfangaskráin eru
fáanlegar á skrifstofu Öryggis-
málanefndar að Laugavegi 170-
172.
Þriðjudagur 28. febrúar 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19
Maðurinn minn, faðir, tengdafaðir og afi
Einar Pálsson
Baldursgötu 1,
andaðist 24. febrúar.
Sigríður Guðmundsdóttir
Mjöll Einarsdóttir Ásmundur Daníelsson
Guðmundur H. Einarsson Vilborg Runólfsdóttir
Maria, Beta og Heiðrún.
DJÚDVHJ/NN
Fréttimar
semtólk
talar um