Þjóðviljinn - 28.02.1984, Blaðsíða 16
20 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 28. febrúar 1984
ALÞYÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið
Miðstjórnarfundur
Miðstjórn Alþýöubandalagsins er boðuð til fundar laugardaginn 3. og
sunnudaginn 4. mars n.k. að Hverfisgötu 105, Reykjavík. Fundurinn
hefst kl. 13.30 á laugardag.
Á dagskrá fundarins verða m.a. kjaramál, utanríkismál, fjármál Alþýðu-
bandalagsins, undirbúningur stefnuskrárumræðu flokksins, nefndakjör
og önnur mál.
Svavar
Bjarnfríður
Alþýðubandalagið
í Kópavogi
Féiagsfundur
ABK heldur félagsfund í Þinghól
29. febrúar nk. Fundurinn hefst
kl. 20.30 stundvíslega.
Dagskrá:
1) Félagsmál
2) Tengsl verkalýðshreyfing-
arinnar við flokkinn og
kjaramálin. Framsögur hafa Svavar Gestsson og Bjarnfríður Leós-
dóttir.
Athugið: Mætið vel og stundvíslega. Allir velkomnir. stjórn ABK
Söfnum leikföngum
Félagið okkar í Reykjavík er nú komið með nýja og glæsilega aðstöðu
að Hverfisgötu 105. Stórátak meðal félagsmanna hefur gert drauminn
um gott húsnæði að veruleika og skapað góða aðstöðu til starfs og
leikja.
En ennþá vantar fé. Meðal þess sem foreldrar hafa rekið sig á að
sárlega vanhagar um er leikaðstaða barna. Leikföng eru fá til í flokks-
miðstöðinni enn sem komið er. Nú er hafin söfnun meðal flokksfólks
og velunnara Alþýðubandalagsins til að bæta úr þessu. Allt verður vel
þegið, hvort sem það eru fjárframlög eöa gömul nothæf leikföng. Ef
þið lúrið á einhverju, vinsamlega látið Kristjári Valdimarsson vita í síma
17500 eða Auði Styrkársdóttur í síma 81333 (heimasími 79017).
Framlög verða sótt heim ef óskaö er.
Alþýðubandalagið á Egilsstöðum:
Góðir félagar - Hreppsmálaráð
Fundur hjá Hreppsmálaráði Alþýðubandalagsins á Egilsstöðum
verða sem hér segir fram á vor:
Mánudagur 5. mars. Umræðuefni: Umhverfismál.
Mánudagur 19. mars. Umræðuefni: Staða mála, Dagheimili og Safna-
stofnun.
Mánudagur 2. apríl. Umræðuefni: Skipulagsmál.
Mánudagur 16. apríl. Umræðuefni: Samstarf hreppa á Héraði og
sameiningarmál.
Fundirnir verða haldnirað Dynskógum 3 (kjallara), og hefjast kl. 20.30
stundvíslega.
Hreppsmálaráð hvetur alla félagsmenn til að mæta og láta Ijós sitt
skína. -Stjórnin.
Svart-hvít Ijjósmyndaþjónusta sf.
Auóbrekku 14,200 Kópavogi,
RO. Box 301, Sími 46919
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Minning
Rögnvaldur Guðjónsson
F. 20.9. 1919.
D. 17.2. 1984.
Þegar mér barst sú fregn að
Rögnvaldur Guðjónsson hefði
andast á Landskotsspítala 17.
þessa mánaðar kom mér það ekki á
óvart, svo var af honum dregið er
ég heimsótti hann á sjúkrahúsið
nokkrum dögum áður, að sýnt var
að hverju stefndi - sá hafði sigrað
er okkur öll sækir að lokum.
Rögnvaldur heitinn var fæddur
að Tjörn í Biskupstungum 20. sept-
ember 1919, sonur Guðjóns bónda
þar, sem jafnframt var kennari við
barnaskólann í Reykholti og
hreppsnefndaroddvitii Biskups-
tungnamanna um nokkur ár.
Guðjón var ættaður af Akranesi,
sonur Rögnvaldar Jónssonar
bónda á Tanga í Innri Akranes-
hreppi og mun ætt hans vera úr
Dölum vestur og úr byggðum
Borgarfjarðar. Guðjón fluttist sem
kennari í Biskupstungurnar og gift-
ist þar ungri og glæsilegri stúlku,
Guðbjörgu Þórðardóttur bónda í
Arnarholti Halldórssonar. Hófu
þau búskap á jörðinni Tjörn, sem
var gott meðalbýli, en jafnframt
búskapnum varð Guðjón að sinna
kennslunni svo bústörfin að vetrin-
um hlutu að hvfla mestanpart á
herðum hinnar ungu húsfreyju.
Þau hjónin eignuðust 2 börn er upp
komust, Arnbjörgu og Rögnvald,
en eina dóttur misstu þau korn-
unga. Er Rögnvaldur var um 10 ára
gamall slitu foreldrarnir samvistum
og fylgdu börnin móður sinni er
síðar tók upp samnbúð með
Guðmundi Ingimarssyni frá Efri
Reykjum í Biskupstungum. Þau
Guðbjörg og Guðmundur eignuð-
ust 3 börn, Erlend, Svöfu og Gyðu,
sem öll eru kunn að gjörvileik og
manndómi. Þeirbræður Rögnvald-
ur og Erlendur áttu síðar hús og
heimili hlið við hlið í Hveragerði,
og unnu saman sem húsasmiðir.
Rögnvaldur kaus síðan að leggja
stund á landbúnaðarvísindi, þegar
hann hafði aldur til og að loknu
búfræðiprófi frá Hólum í Hjaltadal
innritaðist hann í Landbúnaðarhá-
skólann í Kaupmannahöfn og varð
kandídat þaðan vorið 1947.
Að námi loknu gerðist hann
ráðunautur hjá Búnaðarsambandi
Suðurlands til ársins 1950. Sjálf-
sagt hafa löng ferðalög og fjarvistir
frá heimili og fjölskyldu valdið því
að Rögnvaldur tók að nema húsa-
smíðar í Hveragerði, þar sem hann
var búsettur, og lauk verknáms-
samningi, en hirti aldrei um að afla
sér fullra réttinda í faginu. Vann
hann svo við húsasmíðar, fyrst í
Hveragerði til ársins 1968, en flutt-
ist þá til Reykjavíkur og vann þar
að smíðastörfum þar til hann kom
til starfa hjá Rannsóknastofnun
landbúnaðarins 1974. Þar starfaði
hann við fóðurrannsóknir og fóðu-
reftirlit uns veikindi bundu enda á
og hann varð að leggjast inn á
sjúkrahús - æfiskeiðið var á enda
runnið.
Kynni mín af Rögnvaldi Guð-
jónssyni voru nánast engin þar til
leiðir okkar lágu saman á
Rannsóknastofunum landbúnað-
arins, en ég hafði komið þar til
starfa árinu fyrr. Við vissum þó
hvor af öðrum enda lengi átt heima
á sömu slóðum í Árnessýslu. Sjálf-
sagt hefur þetta leitt til þess að við
urðum fljótlega málkunnugir og
höfðum um fleira að tala eftir því
sem árin liðu. Fjarri fór þó því að
Rögnvaldur væri það sem kallað er
opinskár og lítt eða aldrei vék hann
tali að sjálfum sér eða einkamálum
sínum. Svarakaldur gat hann verið
ef tilefni voru til að hans dómi og
vissi ég að sumum fannst hann af
þessum sökum fráhrindandi og
áttu erfitt með að umbera hina hár-
beittu og meitluðu kaldhæðni í
svörum er oft fuku og kannski ekki
alltaf af fullu tilefni um menn og
málefni. Það vissum við þó, sem
löng kynni höfðum af manninum,
að undir sló heitt hjarta og dýpri og
meiri réttlætiskennd en mörgum er
gefin.
í öllum þeim störfum sem
Rögnvaldur vann, hvort sem um
var að ræða vísindastörf eða verk-
legar framkvæmdir, var hann flest-
um snjallari að skipuleggja og
koma auga á hagkvæmustu leiðir til
lausnar. Vegna þessara yfirburða
vannst honum betur en þeim sem
meira bar á og voru meiri fyrirferð-
ar - framhleypni og yfirlæti voru
víðs fjarri hans skapgerð.
Vegna hæfileika sinna og áhuga
á þjóðféiagsmálum kom að sjálfu
sér að Rögnvaldur yrði virkur og
áberandi á þeim vettvangi. Hann
átti nokkrum sinnum sæti á lista
Sósíalistaflokksins í Árnessýslu til
þingkosninga. Þá sat hann um tíma
í hreppsnefnd Hveragerðis sem
fulltrúi vinstri manna og stjórnaði
verklegum framkvæmdum hrepps-
ins á því tímabili. Átti sæti í nefnd-
um og ráðum á vegum sósíalista og
Alþýðubandalags, en um þann þátt
hans í félagsmálastarfi er mér ekki
svo kunnugt að ég geti um það fjall-
að.
Á námsárum sínum í Kaup-
mannahöfn kynntist Rögnvaldur
og gekk að eiga Bodil Katrínu,
dóttur Marie og Sóren Petersen
trésmíðameistara frá Fjóni. Þau
eignuðust 3 börn, Gunnvöru,
Ásdísi og Hjalta, hinn kunna
leikhúsmann. Þeim öllum og öðr-
um aðstandendum sendi ég mínar
dýpstu samúðarkveðjur og bið
þeim blessunar.
Ásgrímur Jónsson
Útför Rögnvaldar Guðjóns-
sonar var gerð mánudaginn 27. fe-
brúar.
Emil Fenger
Kveðjuorð til vinar og starfsfélaga
Ungur maður fellur í valinn, að-
eins þrítugur að aldri. Við hin eldri
sem eftir stöndum spyrjum - af
hverju? Af hverju eru hinir bestu
oft burtkallaðir svo fljótt? Af
hverju er lítill snáði sviptur föður
Adda
Bjarnfríöur
Vllborg
Guðrún
Hverju eru konur bættari
með kjarasamningunum?
Miöstöð kvenna boðar til fundar að Hverfisgötu 105 n.k. þriðjudagskvöld, 28. febrúar kl
20.30.
Umræðuefni: Kjarasamningarnir og kjör kvenna.
Máishefjendur: Bjarnfríður Leósdóttir, Vilborg Harðardóttir og Guðrún Ágústsdóttir.
Fundarstjóri: Adda Bára Sigfúsdóttir.
Allt áhugafólk velkoijiið. - Miðstöð kvenna.
sínum svo ungur? Við skiljum það
ekki og fáum engin svör.
Ég kynntist Emil Fenger haustið
1980 þegar kona hans, Asta Böðv-
arsdóttir, réðist kennari að skól-
anum á Hellu. Reyndar hafði ég oft
heyrt son minn og tengdadóttur
tala um vini sína og skólafélaga,
Ástu og Emil, en kynntist þeim
ekki fyrr. Kynnin við Emil urðu
nánari, þegar hann hóf kennslu við
skólann haustið eftir. Að öðrum
ólöstuðum hef ég aldrei kynnst
neinum með slíka hæfileika til
kennslu. Hann var svo opinn og
tilfinninganæmur að nemendur
hans hlutu að elska hann og virða.
Frásagnir hans voru svo lifandi og
myndríkar að unun var á að hlýða.
Ógleymanlegar eru mér samveru-
stundir okkar á kennarastofunni
þegar hann flutti mig með frásögn-
um sínum til Mexikó eða Mið-
Ameríku eða sagði mér frá fólki,
sem hann hafði kynnst. Sumum er í
vöggugjöf gefið að laða fram það
besta í öðru fólki. í návist Emils
fannst mér ég vera betri manneskja
en ella. Aldrei gleymist mér fögn-
uðurinn þegar Finnur litli fæddist,
þá var veisla á kennarastofunni og
bjart yfir öllu.
Við sáumst síðast í október sl.
Þrátt fyrir að dimm ský hefði dreg-
ið fyrir sólu hvarflaði ekki að mér
að það yrði okkar síðasta samtal.
Ég var að vona að okkar næsti
fundur yrði með meiri gleðibrag,
en svo átti ekki að fara, a.m.k. ekki
hér á jörðu. Ásta mín, Finnur litli,
foreldrar Emils og systkini. Orð
eru svo lítils megnug. Ég get aðeins
sagt til huggunar að eftir lifir minn-
ing um góðan dreng.
Kæri vinur, far þú í friði.
A.M.J.
Notum Ijós
í auknum mæli
— í ryki, regni.þoku
A . °£só1-
Jú',
IUMFEROAR
RÁÐ