Þjóðviljinn - 02.03.1984, Síða 1
DJQÐVIIIINN
Færeyjaroghaf-
ið umhverfis
hefur verið frið-
lýst sem kjarn-
orkuvopnalaust
svæði.
Sjá 2
mars
föstudagur
49. árgangur
52. tbl.
Harðar deilur í Sjálfstæðisflokknum
Rannsóknarréttur settur
yflr fjármálaráðherranum
Þorsteinn Pálsson segir að Albert Guðmundsson fái
viðeigandi meðferð í Sjálfstœðisflokknum
„Ég hef það eitt sagt um þetta, að þessi samnings-
gerð væri í mínum augum og míns flokks alvarleg. Við
myndum bregðast við því í samræmi við það. Við
munum að sjálfsögðu ræða þetta innan okkar flokks og
meta þessar aðstæður á þeim vettvangi“, sagði Þor-
steinn Pálsson formaður Sjálfstæðisflokksins í utan-
dagskrárumræðu á alþingi í gær. Stjórnarandstöðu-
þingmenn kváðu þetta undarlega yfirlýsingu í meira
lagi og nefndu kviðdóm og rannsóknarrétt í því sam-
bandi.
Yfirlýsing Þorsteins kom í kjölfar harðrar gagnrýni
stjórnarandstöðuþingmannanna Karls Steinars,
Ragnars Arnalds, Kjartans Jóhannssonar og Guð-
mundar Einarssonar á það moldviðri sem Sjálfstæðis-
flokkurinn og samráðherrar Alberts Guðmundssonar
hafa þyrlað upp í tilefni af undirritun samningsins við
Dagsbrún á dögunum.
Albert Guðmundsson kvaðst einfaldlega hafa verið
að leiðrétta misræmi eins og honum bæri. Auðvitað
gæti hann ekki liðið óréttlæti. Er einhver sem vill
ásaka mig fyrir það? Er einhver hér inni sem vill
viðhalda þessu misrétti? spurði Albert.
Þorsteinn Pálsson kvaðst afar óánægður með samn-
inginn og taldi hann gefa slæmt fordæmi fyrir aðila
vinnumarkaðar. Þetta varðar ríkisstjórnina alla og
hann litið það alvarlegum augum. M,áli sínu lauk for-
maður með því að segja málið verða afgreitt í Sjálf-
stæðisflokknum. -óg
Hulduher
Alberts
Leynifundur á Sögu
Um kl. 17 ígœr tókfólk að drífa að Átthagasal Hótel
Sögu. Þar var á ferðinni „Hulduher“ Alberts Guð-
mundssonar sem hafði verið kvaddur saman til þess að
rœða stöðu mála eftir Dagsbrúnarsamkomulagið og
hótanir formanns Sjálfstæðisflokksins í garð fjármála-
ráðherra. „Hershöfðinginn“sjálfur varmættur á staðn-
um.
í „Hulduhernum“ eru dyggustu stuðningsmenn Al-
berts sem oft hafa komið saman er fyrir hafa legið
mikilvægar ákvarðanir eða kosningar á stjórnmálaferli
hans. Á fundinn mættu rúmlega 70 manns og varniður-
staða hans að Albert ætti ekki að láta flokks-
eigendaklíkuna reka sig úr ráðherraembætti heldur
taka slaginn affullum krafti.
í viðtali við Helgarpóstinn sem kom út í gærkvöldi
segir Albert að það sé mjög líklegt að hann muni segja
af sér. Eftir leynifundinn hjá „Hulduhernum“ á Hótel
Sögu er þessi yfirlýsing í Helgarpóstinum ekki lengur í
gildi. Albert segir í sama viðtali að hann hafi verið
fjarstaddurþegar stjórnin samþykktiogblandaðisérí
ÁSÍ-VSÍsamningana. Ríkisstjórnin hafigert rangt íþví
að falla frá yfirlýstri stefnu sinni og leiði það til meiri
verðbólgu þá álíti hann að stefna stjórnarinnar sé ekki
lengur framkvæmd og hún sé farin að vinna eftirstefnu
sem kemur annarsstaðar frá.
Þjóðviljinn tók myndir afnokkrum úr Hulduhernum
á leið til fundar á Hótel Sögu ígœrfrá v. Ásgeir Hannes
Eiríksson, pylsusali, Sveinn Björnsson kaupmaður,
Grétar Bergmann kaupmaður, Brynhildur Jóhanns-
dóttir eiginkona Alberts og „hershöfðinginn“ sjálfur.
Ljósm.: eik.
Logandi illdeilur í Landeyjahreppum:
Meðhjálpari segir af sér
Biskup íslands hefur gripið í taumana og
Óvíst hvort Eggert Haukdal mætir
Illdcilur harðvítugar hafa blossað upp í báðum Landeyjaahreppum, austur og vestur. Snúast þessar deilur
um þá Eggert Haukdal alþingismann og bónda á Bergþórshvoli og séra Pál Pálsson sóknarprest á sama stað.
Fyrir skömmu kom til átaka á sóknarnefndarfundi í V-Landeyjum, þar sem Eggert kom til kirkju að
lokinni messu til að taka þátt í kosningu eins manns í sóknarnefnd og hafði sigur. Samt hafði prestur stytt
messuna niður í 30 mínútur til að snúa á Eggert og hans menn en tókst ekki. Nú hafa deilurnar líka blossað
upp í A-Landeyjum og hefur meðhjálparinn þar sagt af sér og ncitað að skrýða prest. Loks hefur það svo
gerst að Biskup íslands hefur gripið í taumana og kallað sóknarnefndir beggja hreppanna ásamt presti til
fundar í dag. Ovíst er hvort Eggert mætir á fundinn.
Svoharðareruþessardeilurað Landeyjum klofnaði og sögðu 5 konur séra Páls, sem sögðu óver-
jafnvel kvenfélagið í V- konur sig úr félaginu, stuðnings- andi með stuðningskonum Egg-
heldur sáttafund í dag
erts.
Prestur hefur kært eitt sóknar-
barna sinna til sýslumanns og
ríkissaksóknara fyrir að hafa ætl-
að að aka á sig út á vegi. Var
kærunni vísað frá á báðum stöð-
um. Sóknarbarnið fékk hinsveg-
ar afrit af kærunni og las hana
upp í kirkjunni á Akureyri, þegar
kosning sóknarnefndarmanns fór
fram.
„Ég hef aldrei upplifað aðrar
eins deilur og hef þó verið sókn-
arnefndarformaður í yfir 50 ár og
mér sýnist á öllu að það sé Drott-
inn sjálfur sem verður að sætta
þessa menn, prestinn og
prestsoninn, sagði Erlendur
Árnason í Skíðbakka í A-
Landeyjunt í samtali við Þjóðvilj-
ann í gær. Okkur hina ætti biskup
að geta sætt, bætti hann svo við.
-S.dór