Þjóðviljinn - 02.03.1984, Side 3
Föstudagur 2. mars 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
Trúnaðarráðsfundur kennara í Reykjavík
Harmar ,,smánarsamning“
• Skorar á alla kennara að fella samkomulagi BSRB
• Vill endurskoða aðild Kennarasambandsins að BSRB
Trúnaðarráðsfundur kenn-
ara í Reykjavík hélt fund í gær
þar sem rætt var um samninga
BSRB og ríkisins. Var þar sam-
þykkt harðorð ályktun gegn
samningunum og kennarar ein-
dregið hvattir til að feila þá.
Jafnframt er óskað eftir því að
aðild Kennarasambands Is-
lands að BSRB verði tekin til
endurskoðunar á þingi KÍ síðar
á þessu ári. Ályktunin, sem
samþykkt var samhljóða á
fundinum í gær, er á þessa leið:
„Trúnaðarráðsfundur kennara í
Reykjavík harmar þann smánar-
samning sem forysta BSRB hefur
gert við ríkisvaldið.
Ljóst er að stórir hópar innan
BSRB fá lítið sem ekkert til baka af
þeirri miklu kjaraskerðingu sem
átt hefur sér stað í tíð núverandi
ríkisstjórnar.
Trúnaðarráðsfundurinn heitir á
alla kennara að greiða atkvæði
gegn þessunr samningi. Ljóst er að
lítill skilningur er á stöðu uppeldis-
stétta innan BSRB. Það er hart til
þess að vita að kennara þurfi bæði
að semja við harðsnúið ríkisvald og
kljást við neikvæða afstöðu innan
samninganefndar BSRB í garð
þeirra stétta er liafa að starfi upp-
eldismenntun.
Það er ljöst að kennarar lögðu á
það mikla áherslu að ná frarn
jöfnuði á vinnutíma kennara á
grunnskólastigi. Þetta náðist ekki
frarn þrátt fyrir gefin loforð fyrr-
verandi fjármálaráðherra. Því vill
fundurinn ítreka þá afstöðu sína að
kennarar greiði atkvæði gegn þess-
um samningi. Jafnframt óskar
trúnaðarráðsfundurinn eftir því við
fulltrúa á fulltrúaþingi KÍ er haldið
verður nú í sumar, að þeir taki til
endurskoðunar aðild Kennara-
sambands íslands að BSRB".
Enn eitt dœmið um kvótakerfið:
Ætli ég
verði ekki
gjaldþrota
segir Sveinn Sigurgeirsson
í Grindavík, sem skipti um bát og
má nú veiða 60 tonn á árinu
„Ef þessu verður haldið til
streitu, þá hlasir ekkert annað en
gjaldþrot við mér. Málið er þannig
vaxið að ég átti 24ra ára gamlan 10
tonna bát sem ég seldi í haust og
keypti 5 ára gamlan 15 tonna bát.
Sá hefði verið í rciðilcysi í nokkur
ár og ég yfir tók allar skuldir hans
við Fiskveiðisjóð og aðra og þarf að
vciða um 300 tonn á ári til að standa
í skilum. Kvótinn sem ég fæ með
bátnum er hinsvegar aðeins 60 tonn
á þessu ári og ég er þegar búinn að
veiða helminginn af honum. Ég
hefði hinsvegar átt að fá vel á annað
hundrað tonn útá gamla bátinn
minn“ sagði Sveinn Sigurgeirsson
skipstjóri og eigandi bátsins Jó-
hannes Gunnar GK í samtali við
Þjóðviljann í gær.
Sveinn sagðist hafa farið í sjávar-
útvegsráðuneytið um leið og hann
fékk kvótann sinn og þar var hon-
um sagt að kæra ntálið, sem hann
og gerði. Síðan hefur hann ekkert
frá ráðuneytinu heyrt.
„Það er ekki bara að ég fái ekki
að veiða nema þessi 60 tonn, held-
ur er útilokað fyrir mig að losna við
bátinn þótt ég vildi, það kaupir
enginn bát sem aðeins má veiða 60
tonn á ári. Því er engin leið fyrir
mig útúr þessu. Ég get ekki borgað
og því hlýtur að verða gengið að
mér, nema að ráðuneytið breyti
þessu eitthvað", sagði Sveinn Sig-
urgeirsson urn einn eitt dæmið
hvernig kvótakerfið sem öllu átti
að bjarga leikur menn. -S.dór'
Þótt þetta skip hafi dregið fleiri tonn úr sjó en nokkurt annað í flotanum
fær það engan kvóta hjá yfirvöldum. Hér er um að ræða gamla Gretti,
dýpkunarskipið kunna sem kom til landsins árið 1949 og þjónaði þar til
fyrir sex árum. Það bíður nú niðurrifs. Ljósm. Atli.
Nefndin um
rekstrargrundvöll
útgerðarinnar:
Enginn
fundur
í þrjár
vikur
Allir kannast við hina frægu
„kvótanefnd"sem svo var kölluð og
fæddi af sér reglur og leiðir í
aflakvótamálinu, sem nú er hvað
mest til umræðu í þjóðfélaginu. I
skipunarbréfi nefndarmanna var
tekið fram að þegar kvótamálinu
væri lokið ætti nefndin að taka til
við að tinna rekstrargrundvöll
fyrir útgerðina.
í byrjun vur eitthvað leitaö að
þessum margfræga grundvelli en
nú hefur ekki verið haidinn fundur
í nefndinni í einar 3 vikur að því er
Seinn nefndarmanna tjáði Þjóövilj-
anum í gær. Síöast þegar fundað
var hafði rekstrargrundvöllurinn
ekki fundist, en livort einhverjir
aðrir hafa fundið hann síðan, eöur
hvort leit að honum hefur veriö
hætt er ekki vitað. - S.dór
Mettaður kjötmarkaður leiðir til lœkkunar á svínakjöti
*
I samkeppni við smyglaða kjötið
Svínakjöt komið niður í 92.20 krónur kílóið frá framleiðendum
Kjötmarkaðurinn hér á landi
er alveg mcttaður, bæði vegna of-
framleiðslu og smyglaðs kjöts á
markaðnum, sagði Halldór Krist-
insson formaður Svínaræktarfé-
lags íslands í viðtali við Þjóðviljann
í gær en félagið hefur ákveðið að
lækka verð á svínakjöti 15% eða
niður í 92.20 krónur kílóið.
Halldór sagði að með þessari
lækkun hefði svínakjöt lækkað frá
áramótum unt 20%. Vegna frjálsu
álagningarinnar hefði svínakjötið
verið dýrt samanborið við aðrar
kjöttegundir fram að þessu, en nú
væri það orðið samkeppnishæft í
verði.
Halldór sagði að svínaræktar-
bændur hefðu átt í harðri samkepp-
ni við innlenda framleiðslu og
smyglað kjöt. Framleiðslu-
kostnaður á svínakjöti væri trúlega
orðinn lægri en á kindakjöti um
þessar mundir og m.a. þess vegna
væri kleift að lækka verðið.
-óg
ísfilm í borgarstjórn
Kristján sat hjá
Á fundi borgarstjórnar í gær-
kvöldi var samningur Davíðs Odds-
sonar um aðild borgarinnar að Is-
film hf. staðfestur. 12 borgarfull-
trúar Sjálfstæðisflokksins greiddu
samningnum atkvæði sín, 8 fulltrú-
ar minnihlutaflokkanna voru á
móti en Kristján Benediktsson,
Framsóknarflokki, sat hjá.
Borgarstjóra var falið að fara
með hlutafé borgarinnar sem er 2
miljónir króna en jafnframt ákveð-
ið að aðild að samningnum skuli
tekin til endurskoðunar fyrir árslok
1985.
Tillaga Sigurðar E. Guðmunds-
sonar Alþýðuflokki um að samn-
ingnum yrði frestað og gert yrði að
skilyrði að ísfilm yrði opið almenn-
ingshlutafélag var felld.
Svavar Þröstur Margrét Kristín
Miðstjórn Alþýðubandalagsins
F undur um helgina
Miðstjórn Alþýðubandalagsins hefur verið hoðuð
til fundar nú um hclgina og hefst hann kl. 13.30 á
morgun, laugardaginn 3. mars og stendur fram á
sunnudag. Verður fundurinn í Flokksmiðstöðinni
að Hverfisgötu 105, Reykjavík.
Á dagskrá fundarins mun margvísleg málefni
verða rædd og framsögur fluttar. Formaður flokks-
ins, Svavar Gestsson mun ræða urn utanríkismál,
Þröstur Ólafsson formaður Verkalýðsmálaráðs AB
fjallar um kjaramálin, Kristín A. Ólafsdóttir um
undirbúning stefnuskrárumræðu og loks mun Mar-
grét Frímannsdóttir gjaldkeri AB hafa framsögu um
fjármál flokksins. Þá eru á dagskránni liðir eins og
nefndarkjör og önnur mál.
Fundurinn hefst kl. 13.30 á morgun eins og áður
segir. " _v.
-v/ÁL.