Þjóðviljinn - 02.03.1984, Side 5
Föstudagur 2. mars 1984 ÞJÓÐVILJINN - SIÐA 5
Frá 32. þingi Norðurlandaráðs í Stokkhólmi
Norðurlandaráð gagnrýnir ríkisstjórnir Norðurlanda
Deigar í baráttunni
gegn atvinnuleysinu
segir m.a. í ályktun ráðsins um efnahagsmál
Frá fréttaritara Þjóðviljans í Stokk-
hólmi, Árna Þór Sigurðssyni:
Miklar umræður urðu á þingi
Norðurlandaráðs í fyrradag um
efnahagsmál landanna og var
samþykkt ályktun þar sem nor-
ræna ráðherranefndin er
gagnrýnd harkalega fyrir að-
gerðarleysi og vanhugsaðar til-
lögur í baráttunni gegn atvinnu-
leysi. Er ráðherranefndinni falið
að semja nýja áætlun um efna-
hagsmál sem skal vera tilbúin
fyrir næsta þing Norðurlanda-
ráðs í Reykjavík 1985. Þar skuli
höfuð markmiðið vera aukin
atvinna og meiri hagvöxtur.
Við umræðurnar var m.a. lagt
fram álit Efnahagsmálanefndar
þingsins og var það samþykkt í lok-
in. Þar segir m.a. að þrátt fyrir
merki um að efnahagur Norður-
landanna fari batnandi aukist at-
vinnuleysið jafnt og þétt auk þess
sem verðbólga hafi á síðasta ári
verið yfir meðaltali OECD land-
anna. Atvinnuleysið hafi aukist frá
árinu 1982 til 1983 úr 9.7% í 10.5%
í Danmörku, úr 5.9% í 6.2% í
Finnlandi, úr 0.7% í 1.0% á ís-
landi, úr 2.6% í 3.3% í Noregi og í
Svíþjóð hafi atvinnuleysið aukist
úr 3.1% í 3.4% á sl. ári.
Fulltrúar á þinginu lýstu þeirri
skoðun sinni að ráðherranefndin
hefði velt atvinnuleysisvandanum
á undan sér. Jafnframt voru ríkis-
stjórnir landanna krafðar svara um
það til hvaða ráða þær hygðust
grípa til að auka framleiðsluna og
skapa fleirum atvinnu. Var ráð-
herranefndinni falið að gera til-
lögur að efnahagsáætlun er einkum
tæki mið af eftirfarandi fjórum at-
riðum: Að samin yrði áætlun um
Norðurlönd sem heimamarkað, að
norræn útflutningssamvinna yrði
styrkt, að þróunarhjálp verði betur
skipulögð og að orku- og umhverf-
isiðnaður yrði styrktur verulega.
- v.
Fyrsta grænlenska sendinefndin við upphaf 32. þings Norðurlandaráðs í
Stokkhólmi.
N or ður landaþj óðir nar
í vígbúnaðinum
sagði Guðrún Helgadóttir í ræðu sinni
Frá fréttaritara Þjóðviljans á þingi
Norðuriandaráðs, Árna Þór Sigurðs-
syni:
Tveir íslendingar tóku til
máls á sameinuðu þingi
Norðurlandaráðs í Stokkhólmi í
fyrradag. Matthías Á. Mathie-
sen talaði sem fulltrúi í 5-
manna nefnd sem hefur það
verkefni að endurskoða skipu-
lag á starfsemi ráðsins með
það fyrir augum að minnka
skrifræði. Nefndin hefur skilað
inn tillögu um að slá saman
nokkrum skrifstofum ráðsins-
en Matthías lýsti andstöðu við
nokkrum af þeim hugmyndum
þar sem hann óttaðist að það
leiddi til of mikilla áhrifa emb-
ættismanna á kostnað áhrifa
stjórnmálamannanna.
Guðrún Helgadóttir ræddi m.a.
um vopnakapphlaupiö í sinni ræöu
í gær og minnti á að nokkur
Norðurlandanna tækju þátt í þeim
leik af fullum krafti. Annaðhvort
sem aðilar að NATO ellegar sem
afkastamiklir vopnaframleiðend-
Guðrún Helgadóttir.
ur. Tími væri til að hætta einungis
sífelldu tali um nauðsyn friðar í
heiminum og nær væri að gera
vinnu einstakra Norðurlanda varð-
andi auðlindanýtingu og minnti
m.a. á samning íslands og Noregs
um Jan Mayen. Lýsti hún þeim
vonum sínum að Færeyingar og ís-
lendingar kæmust að niðurstöðu
um nýtingu hafsbotnsins í efna-
hagslögsögu landanna.
Athygli vakti að í ræðu sinni fjall-
aði Olof Palme forsætisráðherra
Svíþjóðar nær eingöngu um um-
hverfisvernd og mengunarmál en
minna um utanríkis- og efna-
hagsmál. Minnti Palme á að
Norðurlandaþjóðirnar hefðu sam-
ið alþjóðlega áætlun um hvernig
ætti að standa að losun úrgangs-
efna í náttúruna og að mikilvægt
væri að hinar norrænu þjóðir væru
öðrum til fyrirmyndar í þeim efn-
um sem öðrum.
í gær ræddi Steingrímur Her-
mannsson við fulltrúa Grænlend-
inga á Norðurlandaráðsþingi og í
dag er ætlunin að forsætisráðherrar
allra landanna komi saman til
skrafs og ráðagerða. - v.
virkar
Olof Palme.
eitthvað raunhæft til að ná því
markmiði.
Guðrún fjallaði einnig um sam-
Norrœn œskulýðsráðstefna í Stokkhólmi:
N or ður land ar áð
ræðir öryggismál
Ungsósíalistar í Noregi, Danmörku og
íslandi halda námsstefnu hérlendis í haust
Æskulýösráöstefna Noröur-
landaráös var haldin í tengslum
við fund Norðurlandaráðs í
Stokkhólmi um helgina. Þau
mál sem tóku mestan umræðu-
tíma á ráöstefnunni voru
öryggismál og þróunarhjálp. í
ályktun ráðstefnunnar var var-
aö viö helstefnuröksemdum
ógnarjafnvægis stórveldanna
og lögö áhersla á að afvopnun-
arviðræðurnar í Genf hæfust á
ný. Æskulýðsráðstefnan skor-
aði á þing Norðurlandaráðs að
taka til umræðu ýmsar tillögur í
öryggismálum Norðurlanda,
svo sem kjarnorkuvopnalaus
svæði. Þá var mikið rætt um
þróunaraðstoð Norðurlanda og
lagt til að ríkin stæðu sameigin-
lega að málum og kæmu sér
upþ samræmdri stefnu, fram-
kvæmd og ráðstöfun fjár til þró-
unaraðstoðar.
SSUN heita samtök ungra sósíal-
ista á Norðurlöndum, sem stofnuð
voru í fýrra. Aðilar að þeim eru
Æskulýðsfylking Alþýðubanda-
lagsins, Socialistisk Ungdom í Nor-
egi og Sosialistisk Folkepartis ung-
dom í Danmörku. Fulltrúi SSUN á
Æskulýðsráðstefnunni í Stokk-
hólmi var Árni Þór Sigurðsson,
sem stundar nám í Osló. Grein var
gerð fyrir SSUN á ráðstefnunni.
Meðan á ráðstefnunni stóð
héldu ungsósíalistar samráðsfundi
og tók þátt í þeim fulltrúi Unga
Þjóðveldisins í Færeyjum. Ákveð-
in var dagskrá námstefnu sem
SSUN ætlar að halda um æskulýðs-
og atvinnuleysisvandamál í Dan-
mörku í vor og samþykkt að halda
námstefnu á Islandi í haust.
í norrænu ráðstefnunni tóku þátt
fulltrúar æskulýðssamtaka stjórn-
málaflokkanna á Norðurlöndum,
norrænu félaganna og Æskulýðs-
sambanda á Norðurlöndum. Frá
íslandi tóku þátt í ráðstefnunni
Runólfur Ágústsson, Æskulýðs-
fylkingu Alþýðubandalagsins,
Árni Sv. Matthiesen, Sambandi
ungra Sjálfstæðismanna, Árni
Hjörleifsson, Sambandi ungra
jafnaðarmanna, Sigurður Jónsson
Sambandi ungra Framsóknar-
manna, Erlendur Kristjánsson og
Hjörleifur Hringsson, Æskulýðs-
sambandi íslands.
- ekh.
tttuyið
GÓLF eða
ÞAKVANDAMÁL að stríða?
Betokem SUM gólfílögn
Engin
samskeyti
Betokem gólílögnin harðnar svo fljótt að þú getur gengið
eða lagt teppið á gólfið eftir 24 tíma. SUM gólfílögn hefur
verið í þróun í Þyskalandi, Svíþjóð og Noregi sl. 15 ár og
hefur sýnt að hún stenst fyllilega allar þær gæða-, þol- og
styrkleikakröfur, sem settar voru í upphafi og síðar hafa
komið fram.
Það hefur enda sýnt sig á söluþróuninni sl. 7 ár að þarna er á
ferðinni algjör bylting í gólfílögn, salan hefur nánast þotið
upp og ekki hefur verið hægt að anna eftirspurn fyrr en nú.
FILLCOAT
gúmmíteygjanleg samfelld húð fyrir málm-
þök.
Er vatnshelld.
Inniheldur cinkromat og hindrar ryðmyndun.
Ódýr lausn fyrir vandamálaþök.
Ábyrgð - greiðslukjör.
LAUSN ER ENDIST ÓTRÚLEGA VEL:
EPOXY - GÓLF
Við erum með f jölmargar gerðir af gólf-
ílagningarefnum sem þola ótrúlegt
álag. Það er sama hvort um er að ræða
gólfið í sturtuklefanum, matsalnum
eða á bílaverkstæðinu. Vandamálið
leysum við á fljótan og öruggan hátt.
HAFNARFIROI SÍMI 50538