Þjóðviljinn - 02.03.1984, Síða 7
Föstudagur 2. mars 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7
Musteri „sterku“
Jón Oskar sýnir á Kjarvalsstöðum
Allar götur frá lokum seinni
heimsstyrjaldarinnar hefur djúp-
stætt bil verið staðfest milli evr-
ópskrar og amerískrar myndlistar.
Reyndar má fara töluvert lengra
aftur í listasöguna og finna dæmi
um það hve ólíkar tilfinningar
liggja að baki listum þessara
tveggja heima. En það væri órétt-
og byrja að starfa á skynjun áhorf-
andans um leið og hann gengur í
salinn.
En hvað segja myndirnar og
hvernig virka þær? Flestar eru risa-
stór portrett af ónefndum mönnum
og blandar Jón Óskar saman ljós-
myndatækni og akrýllitum. Undir-
staðan er þykkur og grófgerður
Halldór B. Runólfsson
skrifar um
myndlist
á skyldleika málaliða nútímans við
víkinga fortíðarinnar. Hinir glæstu
forfeður okkar létu jarla og kon-
mannanna
unga kaupa sig til herþjónustu fyrir
gull og gersemar og gilti þá einu um
málstaðinn. Þessa norrænu gull-
græðgi má kenna af síðustu spjöld-
uni Njálu, enda áttu víkingar á
borð við Ragnar loðbrók ættir að
rekja til Sigurðar Fáfnisbana, þess
sem skirrtist við að skila hinum
rauða ntálmi til réttra eigenda og
framlengdi þar með bölvuninni
sem á honunt hvíldi.
Burtséð frá slíkri samanburðar-
fræði, þá standa áhrif mynda Jóns
Óskars óhögguð og verða ekki svo
auðveldlega lesin ofan í kjölinn.
Honunt hefur tekist og e.t.v. fyrst-
unt manna að láta myndir stemma
við þennan sal. Þar með hefur hann
skotið Jóhannesi gamla ref fyrir
rass, því verk Kjarvals hafa ein-
hvern veginn aldrei notið sín
fullkomlega í þessu kúltúrpakkhúsi
þótt alls konar fídusar hafi verið
reyndir við upphengingu þeirra.
látt að gera samanburð á list álf-
anna tveggja frá tímum þegar Am-
eríka var enn nokkurs konar menn-
ingarleg hálfnýlenda Evrópu á
sviði myndlistar. Öðru máli gildir
um eftirstríðsárin, þegar nýi
heimurinn náði vissu forskoti á
hinn gamla og stríðshrjáða, plag-
aðan af vonleysi eftir áralanga
áþján fasisma og kreppu.,
Fyrst eftir stríðið var Evrópubú-
um starsýnt á stærðirnar í banda-
rískri list, þessa tröllauknu fleka og
risavöxnu höggmyndir. Þetta var
auðvitað sett í samhengi við
brandarann „ Allt er svo stórt í Tex-
as“. Var nokkuð eðlilegra en menn
sem bjuggu í háhýsum og óku í
stórum bílum hefðu auga fyrir list
sem væri stór í sniðum?
Þegar betur er að gáð er það þó
engan veginn stærðin sem gefur
amerískri list sinn sérstæða svip
heldur pragmatískt eðli hennar.
Það er engin tilviljun að fyrsta al-
bandaríska liststefnan, abstrakt-
expressionisminn, skuli hafa hlotið
viðurnefnið „Action-painting" eða
átakalist. Fyrsti boðberi þeirrar
listar var enda amerískur í húð og
hár, Jackson Pollock, og sór hann
að hann hefði ekkert til evrópskrar
listar að sækja. Hitterþó merkilegt
að sá maður sem lengst hefur hald-
ið þessari stefnu á lofti er Hol-
lendingurinn Wilhelm de Kooning,
borinn og barnfæddur í því landi
sem einna dýpstum rótum stendur í
evrópskri myndlistarhefð. Enn
furðulegra er að sjá hvernig vestur-
heimskt andrúmsloft breytti mál-
verki samlanda hans, Piets Mond-
rians. Þessi hreinlífisheimspeking-
ur flatarstílsins virðist hafa um-
hverfst í einhvers konar djass-
geggjara þegar hann var kominn
vestur um haf.
Ekki segi ég að Jón Óskar hafi
fengið bakteríuna beint í æð, en
svipmót mynda hans leynir ekki
uppruna sínum. Stærð þeirra, bein
og umbúðalaus framsetning ásamt
voldugum tæknibrögðum, endur-
speglar „kalda“ hefð New York-
skólans. Upphenging verkanna og
nýting salarins (Kjarvalssalar) er
einnig hluti af þessari pragmatik og
því er hægt að tala um sýninguna
sem „uppsetningu" (installation).
Myndirnar skapa samstæða heild
pappír sem gerður hefur vertð
ljósnæmur. í nærfellt öllum verk-
unum er teflt á andstæður ljósra og
dökkra flata, en segja má að allar
syrpurnar séu litlausar utan sú sem
hangir fyrir endavegg salarins og
nefnist „Glöggvanir" (Clarifati-
ons). Þetta verk sem reyndar er
samsett af þremur stórum ljós-
myndum í lit skapar þá þunga-
miðjusemallt snýst um.Fráþvístaf-
ar samþjappaður kraftur í ætt við
þann sem skín út úr helgimyndum
eða altaristöflum stórra dómkirkna
og fær trúaða til að kikna í hnjálið-
unum. Andlitið er baðað aur og
hárið er skærgult svo augun eru
eini lifandi hluti þessarar þreföldu
mannamyndar.
Einhvers staðar las ég að þetta
væru fasískar myndir. Frekar
mundi ég kalla þetta myndir af fas-
istum. Svona gæti „stóri bróðir"
einmitt litið út á því herrans ári
1984. Hann hefur þróast frá Fant-
omas Feuillades og Dr. Mabuse
Fritz Langs og er orðinn miklu
venjulegri og yfirvegaðri en hinir
geðsjúku myrkrahöfðingjar þöglu
kvikmyndanna. Fasistar Jóns Ósk-
ars eru engir rómantískir fasistar á
borð við Hitler eða Mussolini. Þá
dreymir enga drauma um hreinan
kynstofn eða endurreisn Róma-
veldis. Þeir eru ekki menn gjallar-
horna, heldur hljóðdeyfis. Þetta
eru málaliðarnir, án föðurlands
eða þjóðernis. Þeir fylgja hvaða
hæstbjóðanda sem vera skal og
vinna störf sín í kyrrþey, „hreint"
og „snyrtilega“ með Seiko-
nákvæmni eins og segir í auglýsing-
unni. Áhorfandinn er m.ö.o.
staddur í nútímalegu musteri tekn-
ókratafasismans.
Því skýtur skökku við ef túlka
skal fánana er hanga með myndum
sumra syrpanna sem tákn þjóð-
rembu. Ofurmenni Jóns Óskars
eru hafin upp yfir slíkt, í nietzsch-
önskum skilningi og mundu ekki
einu sinni hafa svo auvirðilega til-
finningasemi í flimtingum. Hins
vegar, ef litið er á þessa fána í
tengslum við heiti verkanna s.s.
„Nýir gulldraumar“ (New Gold
Dreams), þá gengur hið táknræna
dæmi myndanna upp.
Fánarnir með sínum fornu tákn-
um benda nefnilega áhorfandanum
Samvinnubankinn erávallt
skammt undan
Samvinnubankinn starfrækir útibú í öllum landsfjóröungum.
Húsavik
Kópasker
Sauðárkrókur
Svalbarðseyri
Akranes
Grundarfjöröur
Króksfjarðarnes
Patreksfjörður
Leitið ekki langt yfir skammt, leitið til Samvinnubankans.
Samvinnubankinn
Útibúið Svalbarðseyri
8SSJI 'vr’
HJALPARKOKKURINN
KENWOODchef
Er engin venjuleg
hrærivél.
Verö meö þeytara,
hnoöara,
grænmetis- og
ávaxtakvörn,
ásamt plasthlíf
yfir skál:
Kr. 8.430.-
(Gengi 26.11.83)
Til í tveimur litum.
KEN WOOD chef
Ennfremur ávallt fyrirliggjandi úrval
IHIHEKIAHR
Laugavegi 170 -172 Sími 21240 <
Járn- og glervörudeild KEA
Hafnarstræti 91 Akureyri
Sími 96-21400
aukahluta, svo sem, hakkavél,
grænmetisrifjárn, grænmetis- og
ávaxtapressa, kartöfluafhýöari,
dósahnífur o.fl.