Þjóðviljinn - 02.03.1984, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 02.03.1984, Blaðsíða 8
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 2. mars 1984 f§| Alhliða rafeindaþjónusta. Talkorfi, kapall, loftnet, CB talstöðvar, rofar, stungur, videospólur, heyrnartœki, tpennu- breytar, tónhausar og nálar, hljóðnemar, hljóm- plötur, transistorar, viðnám, þéttar, IC rásir, öryggi o.m.fl. Bfótum fuNkomna viflgarðarMónuatu * tHnvarpttafcjum, myndbðndum, útvarpataakjum, staraomógnurum, piótu apilurum, aagulbandataakjum, bittaakjum, talatóflvum, fiaki- laitartaakjum og atglingartaakjum. Isetning á bíltækjum Hagstæð innkaupá Akureyri Vió leggjum metnaó okkar í aö bjóöa sem mest úrval af nauðsynjavörum til heimilisins, s.s.matvæli, hreinlætisvörur, fatnaö og búsáhöld, á lægsta mögulega veröi. Þaö kunna neytendur vel aö meta. ...—... HAGKAUP Norðurgötu 62 Sími 23999 Skipulagsstjórn samþykkti Skúlagötuna: Kvennaathvarf á Norðurlandi „Samkeppni getur aldrei orðið öðru vísi en formleikur í framhaldi af því prógrammi sem stillt er upp. Ef prógramminu er stillt upp með spurningunni um hvernig koma megi fyrir byggð með nýtingunni tveimur á svæðinu þá eru auðvitað bæði keppendur og dómnefnd bundin af því. Ef hins vegar á að spyrja hvað sé hæfilegt byggingar- magn á þessu svæði að áliti kepp- enda, til hvers eru menn þá að á- kveða fyrirfram nýtinguna tvo? Menn eyða ekki tveggja mánaða vinnu í samkeppni til þess að sýna hvaða skoðanir þeir hafa, heldur líka til vinnings og því hlýtur vinn- an alltaf að taka mið af því sem um er beðið og verðlauna á. Ég geri mér því miður engar vonir um að samkeppni breyti neinu um þessa nýtingu úr því sem komið er. Til þess hefði þurft að láta nýtingartöl- una vera frjálsa eða t.d. 1-1,2 og gefa leyfi til að sýna fram á meiri nýtingu ef höfundar teldu það rétt. Þá hefði málið horft öðru vísi við.“ -Nú skrifuðuð þið skipulags- stjórn? „Já, við bentum á að borgaryfir- völd hefðu hundsað allar óskir um að kynna þetta skipulag og rökin fyrir því og síðan einhliða sam- þykkt það og vísað öllum athuga- semdum á bug. Við ítrekuðum að þarna er ekki ágreiningur um breytingu á landnotkun, heldur um það hvaða afleiðingar svo mikið byggingamagn hefur. Við bentum á að húsafriðunarnefnd hefur ekki verið spurð álits, álit Borgarskipu- lags var sniðgengið og loks að at- hugandi sé hvort slík framganga fái staðist fyrir lögum sem ætlað er að verja menn fyrir ofríki. Við mun- um að sjálfsögðu kanna það til hlítar", sagði Geirhafóur Þor- steinsson að lokum. -ÁI HNEYKSLI segir Geirharður Porsteinsson, formaður íbúasamtaka Skuggahverfis „Þetta er hneyksli og ó- skiljanlegt fyrir menn sem hafa trúað á máiefnanlega umfjöllun skipulagsstjórnar ríkisins", sagði Geirharður Þorsteinsson formaður íbúa- samtaka Skuggahverfisins í gær, en Skipulagsstjórn ríkisins samþykkti Skúla- götuskipulagið á fundi sín- um á miðvikudag. Aðeins einn fulltrúi í Skipulags- stjórn, Stefán Thors, arkitekt, greiddi atkvæði gegn samþykkt stjórnarinnar. í bókun hans kemur fram að hann er á móti breytingu á nýtingarhlutfalli á svæðinu og telur óráðlegt að staðfesta það fyrr en búið er að sýna að því verði við- komið í deiliskipulagi. í samþykkt skipulagsstjórnar er sá fyrirvari gerður að sækja þurfi um sérstaka staðfestingu á deiliskipulaginu þegar að því kemur. „Sá fyrirvari er óskaplega vill- andi“, sagði Geirharður. „Menn- irnir stinga bara höfðinu í sandinn. Sannleikurinn er sá að það er af- skaplega ólíklegt annnað en að deiliskipulagsvinnan verði unnin undir sömu pressu sem verið hefur „Pílatusarþvottur“ segir Geirharð- ur Þorsteinsson um fyrirvara Skipulagsstjórnar ríkisins. í þessu máli, - þ.e. að pína nýting- arhlutfallið langt upp fyrir allt! Þetta er fremur Pílatusarþvottur en raunhæfur fyrirvari. Og hvers vegna ættu lóðareigendur sem nú fá leyfi fyrir nýtingu upp á tvo að fara að sætta sig við eitthvað minna?“ -Eruð þið þá búin að tapa mál- inu? „Nei, við erum ekki búin að tapa því fyrr en ráðherra hefur sam- þykkt þessa staðfestingu, og það er lengi von á einum. Það er hugsan- legt og vonandi að ráðherra sjái í gegnum þetta mál, sjái þá faglegu galla sem á því eru og þá galla sem verið hafa á málsmeðferðinni allri.“ -Nú hefur verið haft á orði að efnt yrði til samkeppni um deili- skipulag svæðisins? Fær íbúS á Akureyri Sigríður sagði að ennfremur væri í fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar gert ráð fyrir 60 þús. kr. framlagi til kvennaath varfsins. -»g Finni „rokkar“ Félagsmálaráð Akureyrar hefur samþykkt að útvega samtökum um kvennaathvarf á Norðurlandi húsnæði til afnota á Akureyri endurgjaldslaust til þriggja mán- aða. Samtök um kvennaathvarf á Norðurlandi sem stofnuð voru ný- lega stefna að því að opna miðstöð fyrir starfsemi sína á Akureyri á miðju þessu ári. Leitað var til félagsmálaráðs Akureyrar um íbúð undir starfsemina, Ieigulaust í 6 mánuði. „Við í félagsmálaráði höfum lýst vilja okkar til að verða við þessari ósk og útvega kvennaathvarfinu íbúð til reynslu leigulaust í þrjá mánuði", sagði Sigríður Stefáns- dóttir bæjarfulltrúi og formaður félagsmálaráðs í samtali við Þjóð- viljann. Hér á skeri er staddur fínnski hljómlistarmaðurinn Hillel Tokazi- er og mun hann leika á alls oddi, en aðallega píanó, popp og rokk- tónlist af mikilli kúnst og lipurð í veitingahúsinu Broadway og Holly- wood dagana 2.-11. mars, fyrsta kvöldið semsagt í kvöld. Hann ku talinn með færustu popp-rokk pí- anistum í Finnlandi og jafnframt í fremstu röð þesslags tónlistar þar á bæ. Hillel er enginn nýgræðingur í bransanum og á að baki sér Iitríkan og jafnframt afkastamikinn feril sem alhliða tónlistarmaður og lagasmiður. Hafa mörg laga hans náð miklum vinsældum þar ytra, bæði í flutningi hans sjálfs og ann- arra. Mun enginn verða svikinn af því að hlýða á kappann flytja eigin lög og annarra, t.d. rokkkappans Jerry Lee Lewis sem Hillel tekst einkar vel að líkja eftir. -L

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.