Þjóðviljinn - 02.03.1984, Blaðsíða 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 2. mars 1984
Áhorfendur
skipta
mestu máli
Viðtal við Sunnu Borg leikara á Akureyri
Leikfélag Akureyrar hefur
verið að klífa brattann und-
anfarin ár og í vetur hefur það
vakið óvenju mikla og góða
athygli. Ein helsta leikstjarn-
an þar nyrðra er Sunna Borg
og nú um þessar mundir
leikur hún aðalhlutverk í
Súkkulaði handa Silju, auk
My Fair Lady og hefur fengið
afbragðs dóma. Við heim-
sóttum hana á heimili hennar
í Grundargerði á Akureyri
fyrir skömmu og hún tók
okkur alúðlega og var fús til
að spjalla við okkur. Við byrj-
uðum á að spyrja hana dá-
lítið út í leikferilinn.
- Ég útskrifaðist úr leikskóla
Þjóðleikhússins á sínum tíma og
fékk svo Rotary-styrk til að fara í
framhaldsnám til Bandaríkjanna.
Ég sá hann auglýstan uppi á töflu í
Þjóðleikhúsinu, nánast af tilviljun.
Mér leiddist þessi barátta og það
átti sinn þátt í að ég dreif mig til
Ameríku.
Leiklist í ættinni
Má ekki segja að leiklistin liggi í
ættinni hjá þér?
- Þetta er ansi vinsæl spurning.
Ég held aðættarnafn mitt hafi ekk-
ert komið mér til góða og kannski
heldur veriö mér til trafala í
leiklistinni til að byrja með. Ég var
alvarlega farin að hugsa um það á
tímabili að kalla mig Sunnu Geirs-
dóttur. En ég held að fólk sé nú
alveg hætt aö tengja frammistöðu
mína þessu ættarnafni og það er til
goös.
En það er orðin löng leiklistar-
hefð í ættinni?
- Já, amma mín var Stefanía
Guðmundsdóttir og allar föður-
systur mínar nema ein voru í ieik-
list.
Af hverju fluttistu til Akur-
eyrar?
- Ég er nú í fyrsta lági hálfur Ak-
lék fyrst, lét plata mig til að leika
með Leikfélagi Akureyrar. Mér
leist nú ekki vel á þetta í byrjun og
hafði ekki nokkurn áhuga á leik-
list. En bakterían var ekki lengi að
koma og síðan hef ég ekki verið
laus við hana.
Og svo hefurðu sótt aftur á forn-
ar slóðir?
- Já, ég kom hingað haustið 1979
á ný og hef verið hér síðan. Ég
hafði þá verið búsett í Reykjavík
frá 1972/3, var gift og komin með
barn, og hafði leikstýrt víða um allt
land. Eg hitti þá Odd Björnsson,
þáverandi leikhússtjóra á Akur-
eyri, í Þjóðleikhúskjallaranum og
hann spurði mig hvort það væri
ekki upplagt að skreppa norður.
Ég ætlaði ekki að vera lengi en hér
er ég ennþá.
Og ert kannski ekkert á förum?
- Eg fer ekki meðan mér ekki
leiðist. Mér líkar vel að búa hér,
það er ekki eins stressað og í
Reykjavík. Við förum líka oft til
Reykjavíkur og fáum mikið af
heimsóknum. Hálf ættin er búin að
Mér leist nú ekki vel á þetta í byrjun og hafði ekki nokkurn áhuga á leiklist.
Ljósm.: Atli.
leiða á að sjá sömu andlitin á svið-
inu vetur eftir vetur, en við setjum
ekki svo upp sýningu að nýtt andlit
bætist ekki í hópinn. í My Fair
Lady höfum viðt.d. ArnarJónsson
og Ragnheiði Steindórsdóttur frá
Reykjavík í aðalhlutverkum og í
Súkkulaðinu leika fjórir aðkomnir
leikarar: 'Guðlaug Bjarnadóttir,
Edda Guðmundsdóttir, Gunnar
Rafn og Ragnheiður Tryggvadótt-
ir. Ég hugsa að fjölbreytnin sé
jafnvel meiri hér en annars staðar.
Það er náttúrulega skemmtilegt að
vinna með nýjum og nýjum leikur-
um og maður getur þá ekki orðið
fullbókuð um helgar. Annars
finnst mér hóteláðstaðan hér á Ak-
ureyri fyrir neðan allar hellur og á
sumrin verður að bægja ferða-
mönnum frá Akureyri vegna hót-
elsskorts. Það er engin tilviljun að
„ Bed and Breakfast“-staðir hafa
sprottið hér upp. Þeir eru ósköp
hugglegir en ekki allir sem vilja þá.
Hótelin t.d. KEA og Varðborg að
ég tali nú ekki um Hótel Akureyri
eru gömul en selja þó gistingu á
fullu verði. Hér þyrfti að koma ný-
tískuhótel. Ég hef reyndar heyrt að
það eigi að fara að byggja hér mód-
el, það fyrsta sinnar tegundar hér á
Ég var alvarlega farin að hugsa um það á tímabili að kalla mig Sunnu Geirsdóttur. Ljósm.: Atli.
sendi inn umsókn og fékk þennan
styrk eftir miklar bréfaskriftir.
Kaninn vill fá að vita allt um mann
og ég hefði kannski aldrei sótt um
ef ég hefði vitað fyrirfram um allt
umstangið í kringum þetta. Ég
fékk síðan inni í leiklistardeild há-
skólans í Aþenu í Georgíuríki og
var þar í tæpt ár. Þar var hægt að
læra allt milli himins og jarðar, en
ég tók leik og bókmenntir sem að-
algreinar.
Þú hefur kannski talið þig standa
betur að vígi til að fá hlutverk með
þetta framhaldsnám?
- Ég þurfti svo sem ekki að
kvarta, en það eru ákaflega margir
útskrifaðir leikarar hérlendis og
hlutverkin koma ekki á færibandi.
ureyringur því að mamma mín
Guðrún Ragnars, er héðan. Ég
dvaldist oft á Akureyri sem krakki
og var hér einu sinni hálfan vetur í
barnaskóla. Seinna var ég svo send
á kvennaskóla á Englandi, leiddist
þar ákaflega og kom þaðan feit og
falleg. Mamma hafði þá farið
norður til að annast um aldraða
móður sína og þegar ég kom heim
frá Englandi hugsaði ég með mér
að best væri að heimsækja mömmu
og vera hjá henni í nokkra daga, en
var þá búin að fá vinnu áður í
Reykjavík. Mamma sagði að ég
færi nú ekki að fara aftur úr því að
ég væri komin og ég sló til, fékk
vinnu í Landsbankanum á Akur-
eyri og var í 2 ár. Það var þá sem ég
koma. Það er eins og þeir segja á
ensku: „Never a dull moment".
Fjölbreytni meiri
en annars staðar
Færðu nægilega útrás hér?
- Ég fengi aldrei svipaða útrás í
Reykjavík. Ég er fastráðin við LA
og leik í ákaflega ólíkum hlutverk-
um. Maður er ekki settur í eina
tegund hlutverka eins og gerist
með suma leikara, ekki settur í
eina skúffu eins og það er kallað.
Að fást við fjölbreytt hlutverk
þroskar mann sem leikara og það
er það sem gerir það svo skemmti-
legt að vera hér. Fólk hefur spurt
mig hvort Akureyringar fái ekki
Núverandi leikár er algjört met sem verður örugglega aldrei slegið þó að
maður ætti auðvitað aldrei að segja aldrci. Ljósm.: Atli.
svo átakanlega leiður á félögum
sínum.
Hvað eru margir fastráðnir
leikarar við LA?
- Það er aðeins fjórar og hálf
staða svo að við þurfum nýtt fólk í
hverja sýningu. Við getum ekki
skipt okkur í mjög marga parta þó
að við gerum það að vísu stundum.
Og My Fair Lady hefur slegið í
gegn?
- Já, sýningin hefurvakiðlands-
athygli, það er ekki hægt að segja
annað. Það hafa komið hingað
hópferðir frá Hornafirði og ísafirði
svo að dæmi séu nefnd til að sjá
sýninguna og helgarpakkarnir sem
Flugleiðir bjóða upp á hafa orðið
mjög vinsælir. Hótelin eru alltaf
landi. Það væri óskandi að það
kæmist upp.
Líður afskaplega
vel hérna
Ég heyri að Akureyri á mikil ítök
í þér?
- Já, ég get ekki leynt því. Mér
líður afskaplega vel hérna og sé þá
ekki ástæðu til að flytja. Hérernæg
atvinna og gott að vera með fjöl-
skyldu. Ég fer á skíði á veturna og
er í briddsklúbb. Það er afskaplega
afslappandi frá leiklistinni því að
auðvitað verður maður stundum
leiður á henni eins og öðru. Það er
varla rætt um annað en leiklist
meðal leikara og þá er betra að fara