Þjóðviljinn - 02.03.1984, Síða 15
Föstudagur 2. mars 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15
íþrottir
Umsjón:
Viðir Sigurðsson
FRÍ sækir um heims-
bikarkeppni í maraþon
Frálsíþróttasamband Islands
hefur ákveðiö að sækja um að
Keppa í
Gautaborg
Þeir Sigurður T. Sigurðsson og
Gísli Sigurðsson verða meðal
keppenda á Evrópumeistaramót-
inu í frjálsum íþróttum innanhúss
sem haldið verður í Gautaborg í
Svíþjóð nú um næstu helgi. Sig-
urður keppir í stangarstökki og
Gísli í 60 m grindahlaupi en þeir
dvelja um þessar mundir í Vestur-
Þýskalandi við æfingar og keppni.
Helgar-
sportiö
Körfubolti
Nítjánda og næst-síðasta
umferð úrvalsdeildarinnar hefst
í kvöld með leik UMFN og KR í
Njarðvík kl. 20. Á morgun mæt-
ast Valur og ÍR kl. 14 í Selja-
skóla og kl. 14 á sunnudag
Haukar og Keflavík í Hafnar-
firði. UMFN, Valur og KR eru
komin í 4-liöa úrslil og Haukar
fara þangað líka ef þeir sigra
Keflavík.
Handbolti
Aðeins er leikið í 3. deild og
markverðasti leikur þar er Þór-
ÍA kl. 20 í kvöld á Akureyri.
Blak
Tveir leikir í 1. deild karla í
Hagaskóla á morgun, Þróttur-
Fram kl. 14 og Víkingur-ÍS kl.
15.20.
Knattspyrna
Innanhússmót UMSK í yngri
flokkum verður haldið í Digra-
nesi í Kópavogi laugardag og
sunnudag. Keppni í 6. og 5.
flokki hefst kl. 10 í fyrramálið en
í 4., 3. og 2. flokki kl. 10 á
sunnudagsmorgun. Sjónvarp
er á staðnum þannig að hægt
verður að fylgjast með leik
Everton og Liverpool í beinni út-
sendingu.
Badminton
Norðurlandamót unglinga
hefst í Laugardalshöll í þag (í
morgun) og stendur fram á
sunnudag. Nánar annars stað-
ar.
Badmintonmót UMSK verður
haldið að Varmá í Mosfellssveit
á morgun, laugardag, og hefst
kl. 9.30 í fyrramálið.
Hlaup
Stjörnuhlaup FH hefst kl. 14
á morgun við Lækjarskóla í
Hafnarfirði. Karlar hlaupa 8 km,
konur 4 km, drengir 4 km, piltar
2 km og telpur 2 km. Umsjón
hefur Sigurður Haraldsson,
sími 52403.
Júdó
Fyrri hluti (slandsmeistara-
mótsins fer fram í íþróttahúsi
Kennaraháskólans á morgun,
laugardag, og hefst kl. 15.
Skíði
Bikarmót í alpagreinum 13-
16 ára unglinga verður haldið á
Húsavík um helgina.
halda heimsbikarkeppnina í mara-
þonhlaupi árið 1987. Þessi keppni
er tiltölulega ný af nálinni en áhugi
á þessari grein hefur vaxið mjög að
undanförnu og vafalítið kæmi hing-
að fjöldi erlendra hlaupara ef af
yrði. Ákvörðun um keppnisstað
verður tekin síðar á þessu ári.
Ross ráðinn
þjálfari Vals
Kemur til landsins í þessum mánuði
Lárus Guðmundsson.
Hefur ekki brot
ið af sér gagn-
vart okkur66
„Lárus Guðmundsson hefur
ekkert brotið af sér gagnvart okk-
ur og ég sé því enga ástæðu tii að
gripið verði til refsinga í hans
garð af hálfu KSÍ,“ sagði Ellert
B. Schram, formaður KSÍ, í sam-
tali við Þjóðviljann í gær. Eins og
fram kom í einu dagblaðanna í
gær, hefur Lárus viðurkennt að
hafa, ásamt öðrum leikmönnum
Waterschei, þcgið 30 þúsund
belgíska franka (15 þúsund (!) ís-
lenskar krónur) frá Standard
Liege fyrir tveimur árum. Stand-
ard vann leikinn og varð þar með
Belgíumeistari.
„Annars verðum við að sjá til
hvert framhaldið á þessu máli
verður þarna ytra. Það er cinum
of snemmt að sctja sig í dómara-
stöðu, málið nýkomið upp, en ég
geri ráð fyrir að það verði útkljáð
í Belgíu,“ sagði Ellert.
I>etta er í fyrsta skipti sem ís-
lenskur íþróttamaður flækist inní
jafn alvarlegt mál. Belgíski
knattspyrnuheimurinn titrar og
skelfur, ekki síst vegna aðildar
landsliðsfyrirliðans, Erics Ger-
ets, sem var fyrirliði Standard á
þessum tíma.
-VS
Valsmenn hafa ráðið Skotann
Ian Ross sem þjálfara 1. deildarliðs
síns í knattspyrnu. Ekkert Magnús-
son úr stjórn knattspyrnudeildar-
innar var staddur í Englandi um
síðustu helgi og samdi þá við Ross
og stjórnin lagði blessun sína yfir
samninginn þegar í stað. Ross er
væntanlegur hingað til lands síðar í
þessum mánuði.
Ian Ross er 37 ára gamall og fór
til Liverpool aðeins 15 ára gamall.
Þar lék hann frá 1964-1971 en fór
síðan til Aston Villa og tók þátt í
endurreisn þess gamalkunna félags
úr 3. deild uppí þá fyrstu. Hann var
fyrirliðj Villa um tíma en þaðan
hélt hann til Peterborough þar sem
hann lauk ferli sínum sem leikmað-
ur 1978-80. Hann var jafnframt
þjálfari hjá Peterborough, gerðist
síðan aðstoðarframkvæmdastjóri
hjá Wolves en hefur síðan verið
þjálfari hjá Birmingham City.
Ross starfaði með John
Barnwell hjá Peterborough og
Wolves en Valsmenn og landsliðið
áttu í viðræðum við Barnwall á
dögunum eins og kunnugt er.
Barnwell var Valsmönnum innan
handar í viðræðunum við Ross.
Þar með virðist loks vera komin
lausn á vanda Valsmanna sem hafa
verið í öngum sínum síðan Sigurð-
ur Dagsson sagði fyrirvaralaust
upp nýbyrjuðu starfi sínu í byrjun
janúar. Róbert Jónsson hefur séð
um Valsliðið síðan og skilað góðu
starfi að sögn Valsmanna.
-VS
Snæfellingar kom-
ust í hann krappan
Snæfell úr Stykkishólmi, sem
ekki hefur tapað leik í 2. deildar-
keppninni í körfuknattleik, komst í
Lava-loppet 7. apríl:
Reiknað með hundrað
Rúmlega 40 erlendir skíða-
göngumenn hafa tilkynnt þátttöku í
Lava-loppet, alþjóðlegu skíða-
göngunni sem haldin verður í Blá-
fjöilum við Reykjavík þann 7. apr-
fl. Vitað er um fjölmargar fleiri sem
hyggja á þátttöku og reiknað með
um 100 keppendum erlendis frá.
Það er Skíðasamband íslands
sem stendur að göngunni í samráði
við ferðaskrifstofuna Úrval og
Flugleiðir. Gangan fór fram í fyrsta
skipti í fyrra og þá voru þátttakend-
ur um 170 talsins en skipuleggjend-
ur hennar reikna með mun meiri
þáttöku í ár.
Framkvæmdanefnd göngunnar
hefur sent 100 skólum og 250 fyrir-
tækjum kynningarbréf ásamt upp-
lýsingabæklingum. Hvatt er til
þátttöku sem flestra, 16 ára og
eldri, einkum í sveitakeppni.
Gangan verður með þrenns kon-
ar hætti. Maraþonganga, 42, km
hálf maraþon, 21 km, og
fyrirtækja-, sveita- og skólakeppni
þar sem gengnir verða 10 km og
keppt um farandbikar sem Flug-
leiðir gáfu í fyrra. Framkvæmda-
nefnd leggur áherslu á að hér sé
fyrst og fremst um almennings-
göngu að ræða og í því skyni hefur
Norðmanninum Harald Grönning-
en verið sérstaklega boðið að taka
þátt. Hann varð margfaldur verð-
launahafi á Olympíuleikum og
heimsmeistaramótum á árunum
1960-70 en er nú nokkurs konar
persónugervingur fyrir almenn-
ingsgöngurí sínu heimalandi. Har-
ald er nefndur „Elgurinn" vegna
hæðar sinnar, um 2 metrar, og er
vel þekktur víða um heini. _vs
hann krappan gegn Akurnesingum
í Borgarnesi á föstudagskvöldið
síðasta. IA komst í 23-9 og leiddi
30-26 í hálfleik en undir lokin sigu
Hólmarar framúr og tryggðu sér
sigur, 68-66. Sigurður Bjarnason
skoraði 20 stig fyrir Snæfell og Rík-
harður Hrafnkelsson 13 en Gísli
Gíslason skoraði 31 stig fyrir ÍA og
Garðar Jónsson 20.
Snæfell lék síðan við Létti á
laugardaginn og vann auðveldlega,
78-48, eftir 36-14 í hálfleik. Rík-
harður skoraði þá 28 stig og Sigurð-
ur 12 fyrir Snæfell en hjá Létti voru
stigahæstir þeir Hörður Gunnars-
son með 13 stig og Þröstur Gunn-
arsson með 10.
-gsm/StykkishóImi
Fréttir af
felumótinu
Þróttur Reykjavík vann Reyni 28-
26 í Sandgerði í fyrrakvöld. Leikur-
inn var liður í felumóti handknatt-
leikssambandsins sem opinberlega
gengur undir nafninu Bikarkeppni
HSL Þróttur er þar með, að því
best er vitað, fyrsta liðið til að kom-
ast í 8-liða úrslitin. _vs
NM-unglinga í badminton í Höllinni:
s
Nær Island þriðja
sætinu í dag?
i
Norðurlandamót unglinga í badminton verður haldið í Laugardalshöllinni
í Reykjavík nú um helgina. Keppni hefst/hófst reyndar í dag, liðakeppni
þjóðanna byrjar/byrjaði strax kl. 9 og stendur fram á kvöld. A morgun
verður byrjað kl. 10 og þá keppt í tvenndarleik, einliðaleik og tvíliðaleik en
undanúrslitin hefjast kl. 10 á sunnudagsmorguninn. Kl. 14 þann dag
hefjast síðan úrslitaleikir með einhliðaleik pilta og stúlkna.
Lene Sörensen frá Danmörku verður líkast tfl atkvæðamikil í Laugardals-
höllinni um helgina.
í liðakeppninni í dag er næsta
víst að Danir og Svíar berjast um
sigurlaunin en þeir mætast í
lokaumférðinni kl. 20.30 í kvöld.
ísland á fyrsta leik við Danmörku
kl 9, mætir Svíum kl. 12.30, Finn-
um íd. 15, Norðmönnum kl. 18 og
loks Færeyingum kl. 20.30.
íslensku unglingarnir ættu að
geta staðið í Finnum og Norð-
mönnum og jafnvel veitt þeim
keppni um þriðja sætið.
Danir og Svíar sópa líklega að
sér efstu sætunum í öllum greinum
mótsins. Helstu stjörnur þaðan eru
Poul Erik Höyer frá Danmörku
sem er líklegur sigurvegari í ein-
liðaleik karla, Charlotta Wihlborg
frá Svíþjóð og Lene Sörensen sem
væntanlega berjast um gullið í ein-
liðaleik kvenna og sjálfir Evrópu-
meistararnir, Gitte Poulsen og
Anders Nielsen frá Danmörku sem
ættu að sigra í tvenndarleik. -VS