Þjóðviljinn - 02.03.1984, Page 16
16 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINNFöstudagur 2. mars 1984
^ | I »1
Alþýðubandalagið
Miðstjórnarfundur
Miðstjórn Alþýðubandalagsins er boðuð til fundar laugardaginn 3. og
sunnudaginn 4. mars n.k. að Hverfisgötu 105, Reykjavík. Fundurinn
hefst kl. 13.30 á laugardag.
Á dagskrá fundarins verða m.a. kjaramál, utanríkismál, fjármál Alþýðu-
bandalagsins, undirbúningur stefnuskrárumræðu flokksins, nefndakjör
og önnur mál.
Alþýðubandalagið á Egilsstöðum:
Góðir félagar - Hreppsmáiaráð
Fundur hjá Hreppsmálaráði Alþýðubandalagsins á Egilsstöðum
verða sem hér segir fram á vor:
Mánudagur 5. mars. Umræðuefni: Umhverfismál.
Mánudagur 19. mars. Umræðuefni: Staðamála, Dagheimiliog Safna-
stofnun.
Mánudagur 2. apríl. Umræðuefni: Skipulagsmál.
Mánudagur 16. apríl. Umræðuefni: Samstarf hreppa á Héraði og
sameiningarmál.
Fundirnir verða haldnir að Dynskógum 3 (kjallara), og hefjast kl. 20.30
stundvíslega.
Hreppsmálaráð hvetur alla félagsmenn til að mæta og láta Ijós sitt
skína. -Stjórnin.
Alþýðubandalagið Akranesi
Bæjarmálaráð
Alþýðubandalagið á Akranesi heldur bæjarmála-
ráðsfund mánudaginn 5. mars kl. 20.30 í Rein.
Fundarefni:
1) Fjárhagsáætlun 1984.
2) Önnur mál.
Stjórnin
Almennur félagsfundur - Keflavík
Almennur félagsfundur verður haldinn í Stangveiðihúsinu við Suður-
götu, mánudaginn 5. mars kl. 20.30. Dagskrá 1) Erindi miðstjórnar.
2) Onnur mál. Gestir fundarins verða frá Æskulyðsfylkingu Alþýðu-
bandalagsins. AUk þess lítur Úlfar Þormóðsson við. Allir velkomnir. -
Stjórnin.
Alþýðubandalagið í Reykjavík:
Spilakvöld
Þriðjudaginn 6. mars verður síðasta kvöldið í
þriggja kvölda spilakeppni aö Hverfisgötu 105, og
hefst kl. 20 stundvíslega.
Þeir sem ekki hafa haft tök á að koma á fyrri
kvöldin eru velkomnir, því veitt eru verðlaun fyrir
hvert keppniskvöld.
Skúli Alexandersson, alþingismaður, kemur í kaff-
ihléi og spjallar við mannskapinn. - Nefndin.
Alþýðubandalagið:
Stjórn LAL og annað
áhugafólk um landbúnað;
I tengslum við miðstjórnarfund sætum við lagi og hittumst á Hverfis-
götu 105, sunnudaginn 4. mars kl. 10 árdegis. -Stjórnin.
Alþýðubandalagsfélag Selfoss og nágr.
Viðtalstími Garðars Sigurðssonar verður n.k. laugardag kl. 15.00 að
Kirkjuvegi 7, Selfossi. -Stjórnin
Vinsamlega sendið eða hringið inn auglýsingar í þennan
dálk fyrir klukkan 16 daginn áður en þær eiga að birtast og
talið við Valþór eða Álfheiði. Ritstj.
Æskulýðsfyíking Alþýðubandalagsins j
Fræðslufundur um Kúbu
Fyrirhugað er að halda fræðslufund um Kúbu 15. mars nk. að Hverfis-
götu 105 Reykjavík. Nánar auglýst síðar. - Æskulýðsfylking AB.
PÓST- OG
SÍMAMÁLASTOFNUNIN
óskar að ráða fólk til
SKRIFSTOFUSTARFA
Æskilegt er að umsækjendur hafi vélritunarkunnáttu
auk nokkurrar bókhalds- og málakunnáttu.
Nánari upplýsingar verða veittar hjá starfsmanna-
deild.
íslenska
óperan:
Þrjár óperur um helgina!
Hjálmar Kjartansson, Kristinn Hallsson og Anna Júlíana Sveinsdóttir í hlutverkum sínum í La Traviata.
Nú um helgina verða þrjár óperur fluttar í íslensku
óperunni, Rakarinn í Sevilla, Orkin hans Nóa og La
Traviata.
Rakarinn í Sevilla eftir Gioacchino Rossini verður
sýnd í kvöld, föstudag 2. mars kl. 20 og er uppselt á þá
sýningu. Rakarinn verður svo sýndur annað kvöld kl.
23.30 á miðnætursýningu.
Ópera Brittens Örkin hans Nóa, verður sýnd á
sunnudag kl. 15.00 og er þar tilvalið tækifæri fyrir alla
fjölskylduna að sjá skemmtilega sýningu. Það eru
Halldór Vilhelmsson og Hrönn Hafliðadóttir sem
syngja Nóa og konu hans en auk þeirra koma fram í
sýningunni á annað hundrað söngvara, hljóðfæra-
leikara og dansara sem flest eru börn og unglingar.
La Traviata eftir Verdi verður síðan á sunnudags-
kvöld kl. 20.00. Er nú sýnt í 22. sinn og ávallt við
mikinn fögnuð áheyrenda enda „sýningin í einu orði
sagt stórkostleg“ eins og Eyjólfur Melsted komst að
orði í gagnrýni sinni eftir frumsýningu í haust. Ætti
því enginn unnandi óperutónlistar að láta þessa sýn-
ingu fram hjá sér fara.
Leikfélag Reykjavíkur:
Fimm leikrit
u m helgina
Fimm leikrit verða á fjölunum í
Iðnó um helgina, - Guð gaf mér
eyra, Hart í bak, Gísl, Forseta-
heimsóknin og Tröllaleikir.
í kvöld (föstudagskvöld) er
bandaríska leikritið Guð gaf mér
eyra eftir Mark Medoff á sýningar-
skrá Leikfélagsins. Þetta leikrit
hefur vakið óskipta athygli en þar
er fjallað um ástir heyrnarlausrar
stúlku og talkennara hennar. Berg-
lind Stefánsdóttir og Sigurður
Skúlason fara með aðalhlutverkin
en meðal annarra leikara eru Karl
Ágúst Úlfsson, Lilja Þórisdóttir,
Valgerður Dan, Harald G. Har-
aldsson og Sigríður Hagalín. Leik-
stjóri er Þorsteinn Gunnarsson.
Sýningum fer nú að fækka á þessu
verki.
Annað kvöld er Hart í bak
Jökuls Jakobssonar á fjölunum.
Áróra spákona, Jónatan skipstjóri
faðir hennar og Láki, sonur henn-
ar, eru þar helstu persónur, en með
þau hlutverk fara Soffía Jakobs-
dóttir, Jón Sigurbjörnsson og
Kristján Franklín Magnús. Þá eru í
stórum hlutverkum Edda Back-
man, Sigurður Karlsson, Steindór
Hjörleifsson og Aðalsteinn Berg-
dal.
Þá er annað kvöld miðnætursýn-
ing á Forsetaheimsókninni vegna
mikillar aðsóknar en sýningar á
verkinu nálgast nú 40. Þar fara
nokkrir helstu leikarar Leikfélags-
ins á kostum í þessum bráðfyndna
gamanleik, meðal þeirra Kjartan
Ragnarsson, Gísli Halldórsson,
Guðrún Ásmundsdóttir, Sigríður
Hagalín, Soffía Jakobsdóttir, Guð-
mundur Pálsson og Hanna María
Karlsdóttir. Nú eru síðustu forvöð
að sjá þessa vinsælu sýningu.
Á sunnudagskvöldið er svo Gísl
Brendans Behans í Iðnó, en upp-
selt hefur verið á allar sýningar til
þessa. Þar blandast gaman og al-
vara, mikið sungið og dansað og
alls koma fram 16 leikendur í sýn-
Jón Sigurbjörnsson og Steindór
Hjörleifsson í hlutverkum sínum í
Hart í bak eftir Jökul Jakobsson:
Jónatan skipstjóri og Stígur skó-
smiður.
ingunni, þeirra á meðal Gísli Hall-
dórsson, Margrét Helga Jóhanns-
dóttir, Jóhann Sigurðarson, Guð-
björg Thoroddsen, Hanna María
Karlsdóttir, Steindór Hjörleifsson,
Guðmundur Pálsson, Sigurður
Skúlason og Aðalsteinn Bergdal.
Tónlistarstjóri er Sigurður Rúnar
Jónsson, leikstjóri Stefán Baldurs-
son.
Klukkan 15 á sunnudag sýnir
Leikbrúðuland svo Tröllaleiki en
það eru fjórar sögur: Ástarsaga úr
Fjöllunum, Risinn draumlyndi,
Eggið og Búkolla.
Þjóðleikhúsið:
Tvö ný verk
I næstu viku verður frumsýndur
ballettinn Öskubuska í Þjóðleik-
húsinu og er frumsýningin fyrir-
huguð á sjálfan öskudaginn, 7.
mars. Þá standa yfir æfingar á
söngleiknum Gæjar og píur og er
frumsýning fyrirhuguð 6. apríl
nk.
Nú um helgina verða þrjú leikrit
á fjölum hússins.
Skvaldur eftir Michael Frayn
verður sýnt tvisvar sinnum í kvöld,
föstudag kl. 20.00 og kl. 23.30.
Búið er að sýna þennan vinsæla
gamanleik yfir 40 sinnum og fer nú
að líða að því að sýningum fækki.
Jill Brooke Árnason er leikstjóri
sýningarinnar og í hlutverkunum
eru Þóra Friðriksdóttir, Gunnar
Eyjólfsson, Sigurður Sigurjóns-
son, Tinna Gunnlaugsdóttir, Bessi
Bjarnason, Sigríður Þorvaldsdótt-
ir, Rúrik Haraldsson, Lilja Guð-
rún Þorvaldsdóttir og Þórhallur
Sigurðsson.
Amma þó! nýja barnaleikritið
eftir Olgu Guðrúnu Árnadóttur
verður sýnt tvisvar sinnum um
helgina, kl. 15.00 á laugardag og
kl. 15.00 á sunnudag, og eru það 4.
og 5. sýningar verksins. Leikstjóri
er Þórhallur Sigurðsson, en í hlut-
verkunum eru Herdís Þorvalds-
dóttir, Edda Björgvinsdóttir, Gísli
Guðmundsson, Jón S. Gunnars-
son, Árni Tryggvason, Pálmi
Gestsson, Örn Árnason, Sigurður
Skúlason, Helga E. Jónsdóttir og
Erlingur Gíslason. Leikritið fjallar
um ævintýralega ömmu og fjöl-
skyldu hennar sem sigrast á öllum
vanda og deyr aldrei ráðalaus hvað
svo sem á dynur. í leikritinu eru
ennfremur skemmtilegir söngvar
sem Olga hefursamið.
Sveyk í síðari heimsstyrjöldinni,
leikrit með söngvum eftir Bertolt
Brecht og Hanns Eisler, byggt á
skáldsögu Jaroslav Haseks um
góða dátann Sveyk, sem ekkert fær
bugað. Leikstjóri er Þórhildur Þor-
leifsdóttir, en hljómsveitarstjóri er
Jón Hlöðver Áskelsson. Með
helstu hlutverkin fara Bessi
Bjarnason (Sveyk), Þóra Friðriks-
dóttir, Baldvin Halldórsson, Gísli
Rúnar Jónsson, Gunnar Eyjólfs-
son og Sigurður Sigurjónsson
(Hitler). Sveyk verður á fjölunum
á laugardagskvöld og á sunnudags-
kvöld og er það 10. sýning verks-
ins, en uppselt hefur verið á flestar
sýningar verksins til þessa.