Þjóðviljinn - 02.03.1984, Blaðsíða 19
i' ■■iii * i > i 111 r' >v ’i,.T.Ti'i' ) />v ')\
Föstudagur 2. mars 1984 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 19
RUV 1
Föstudagur
2. mars
7.00 Veöurfregnir. Fréttir. Bæn. Á virkum
degi. 7.25 Leikfimi 7.55 Daglegt mál.
Endurt. þáttur Erlings Siguröarsonar frá
kvöldinu áöur.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veðurfregnir.
Morgunoró - Snorri Jónsson talar
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: „Leikur í
laufi" eftir Kenneth Grahame Björg
Árnadóttir les þýðingu sina (23).
9.20 Leikfimi. 9,30Tilkynningar. Tónleikar
9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veöurfregnir. Forustugr.
dagbl. (útdr.).
10.45 „Það er svo margt að minnast á“
Torfi Jónsson sér um þáttinn.
11.15 Dægradvöl þáttur um frístundir og
tómstundastörf i umsjá Anders Hansen.
11.45Tónleikar.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veöurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
14.00 „Klettarnir hjá Brighton" eftir Gra-
ham Greene. Haukur Sigurðsson les
þýöingu sina (13).
14.30 Miðdegistónleikar Ríkishljómsveitin
i Moskvu leikur „Átta rússnesk þjóðlög"
i hljómsveitarútsetningu Anatols Liadov;
Svetlanov stj.
14.45 Nýtt undir nálinni Hildur Eiríksdóttir
kynnir nýútkomnar hljómplötur.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veöurfregnir.
16.20 Síðdegistónleikar: Han de Vries og
Kammersveitin i Zagreb leika Óbókon-
sert í c-moll eftir Domenico Cimarosa;
Tonko Ninic stj./María-Joao Piris og
Gulbenkiankammersveitin leika Píanó-
konsert nr. 9 í Es-dúr K.271 eftir Wolf-
gang Amadeus Mozart; Thjeodor
Guschlbauer stj.
17.10 Siðdegisvakan
18.00Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.50 Við stokkinn Stjórnandi: Heiödís
Norðfjörð (RÚVAK).
20.00 Lög unga fólksins. Þóra Björg Thor-
oddsén kynnir.
20.40 Kvöldvaka a. Dalamannarabb
Ragnar Ingi Aðalsteinsson ræðir við
Einar Kristjánsson fyrrum skólastjóra að
Laugum, um æskuár hans, skólagöngu
og skólastjórn. b. Úr þáttum Sögu-
Gvendar Rósa Gisladóttir frá Krossa-
gerði les úr Þjóðsagnasafni Sigfúsar
Sigfússonar; fyrri hluti. Umsjón: Helga
Ágústsdóttir.
21.10 Frá tónlistarhátiðinni í
Schwetzingen / fyrrasumar Carlo Ber-
gonzi syngur lög og ariur eftir Donaudy,
Tirindelli, Bellini, Lalo, Tosti, Verdi og
Caccini. Eduardo Moeller leikur með á
píanó.
21.40 Fósturlandsins Freyja Umsjón:
Höskuldur Skagfjörð. Lcsari með honum:
Guðrún Þór.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Oagskrá morg-
undagsins. Lestur Passiusálma (11)
22.40 Djassþáttur Umsjónarmaður: Gerard
Chinotti. Kynnir: Jórunn Tcmasdóttir.
23.20 Kvöldgestir - þáttur j inasar Jón-
assonar
00.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Næturútvarp frá RÁS 2 hefst með
veðurfregnum kl. 01.00 til kl. 03.00.
Föstudagur
2. mars
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Á döfinni Umsjónarmaður Karl Sig-
tryggsson. Kynnir Birna Hrólfsdóttir.
20.55 Trylltur dans Bresk mynd um nýtt
dansæði, sem breiðist nu út um heiminn,
en á upptök sín á götum fátækrahverfa í
New York. Þetta er „break" dansinn
svonefndi sem minnir helst á fimleika.
Rakin er saga þessa fyrirbæris, Rock
Steady-flokkurinn sýnir, en hann er skip-
aður fyrrum götustrákum, auk þess er
kynnt nýbylgjulpopp sem dansinum er
skylt. Þýðandi Jóhanna Þráinsdóttir.
21.25 Kastljós Þáttur um innlend og erlend
málefni. Umsjónarmenn: Bogi Ágústsson
og Sigurveig Jónsdóttir.
22.25 John og Mary bandarísk biómynd
frá 1969. Leikstjóri Peter Yates. Aðalhlut-
verk: Dustin Hoffman og Mia Farrow.
John og Mary hittast á skemmtistað í
New York og eyða nótt saman áður en
raunveruleg kynni þeirra heljast. Pýðandi
Kristrún Þórðardóttir.
23.50 Fréttir i dagskrárlok
Er baráttan að byrja?
Samningur sá er forystumenn
ASÍ og VSÍ komu sér saman um
og fékk meðmæli á formannsráð-
stefnu ASÍ er nú til umfjöllunar
hjá verkalýðsfélögunum. Það
vakti athygli mína að hjá
Verslunarmannafélagi Reykja-
víkur mættu innan við hundrað
manns á fundi um samningana,
en félagsmenn munu vera yfir sex
þúsund. Af þessum hundrað,
sem mættu á fundinn, greiddu 73
atkvæði með samningunum. Mér
er spurn: Var þessi fundur illa
boðaður eða er verslunarfólk al-
veg dautt í afstöðu um sín laun og
kjaramál?
Öðru vísi og á raunhæfari hátt
tóku verkamennirnir í Dagsbrún
á þessum málum. Par mættu hátt
í 800 manns á fundi og kolfelldu
samningana. Og svo í kvöld bár-
ust fréttir af því að verkalýðs-
félögin í Vestmannaeyjum hefðu
fellt samningana.
Enda þótt ýmislegt sé í þessum
samningum nýtilegt, þá ber því
ekki að neita, að kjaraskerðing
sú sem orðið hefur frá því núver-
andi ríkisstjórn kom til valda er
Vil Bryndísi
aftur í Stundina
Sigrún B. Björnsdóttir skrifar:
Mig langar til að koma á fram-
færi þeirri ábendingu til sjón-
varpsins að vel verði hugað að
Stundinni okkar næsta vetur og
umsjónarmaður eða umsjónar-
menn valdir af mikilli kostgæfni.
Ég hef fylgst með þessari stund í
mörg ár, bæði með mínum börn-
um og nú barnabörnum, og gæð-
in hafa verið mismikil. Mest voru
gæðin hjá henni Bryndísi
Schram. Hún vandaði verulega
til þáttanna og gerði þá af þeirri
kostgæfni og virðingu, sem börn-
um ber að sýna þótt lítil séu.
Helst af öllu vildi ég að hún tæki
við þáttunum aftur. Ég vil alls
ekki lasta aðra umsjónarmenn
Stundarinnar - en Bryndís ber
bara svo af þeim öllum, að mér
finnst eðlilegt og rétt að hún sé
umsjónarmaður.
Svo þakka ég sjónvarpinu allt
sem það hefur gert vel, en það er
vissulega margt.
að engu bætt. Og hver vill full-
yrða eða taka ábyrgð á að vörur
og þjónusta hækki ekki á
samningstímabilinu?
Hingað til hafa ríkisfyrirtæki
verið fremst í flokki með hækk-
anir á allskonar þjónustu. Er
nokkur von á að breyting verði á
því? Sannieikurinn er sá í þessu
máli, að pukrað hefir verið með
öll þessi samningsmál. Verka-
lýðsfélögin sem slík hafa lítið ná-
lægt þeim komið. Mikil leynd
ríkti yfir samningamakki ASÍ-
forystunnar við forkólfa VSÍ.
Hvers vegna var ekki skýrt jafn-
harðan frá því sem fram fór í
samningaviðræðunum? Hvers
vegna leituðu forystumenn
verkalýðsfélaganna ekki til sinna
félagsmanna, kynntu þeini
hvernig málin stæðu og leituðu
álits þeirra?
Það er sagt, að eining sé afl.
Þetta ættu verkalýðsforkólfarnir
að vita af áratuga reynslu. Ef á að
ná fram mannsæmandi samning-
um þá þarf sameiginlegt afl alls
launafólks til. Og það mun sýna
sig á næstu vikum hjá Dagsbrún.
Það hefir nú þegar sýnt sig hjá
verkamönnunum í Straumsvík.
Eining er afl. Og það er það afl,
sem atvinnurekendur skilja.
Og það er víst að hörð átök eru
framunda. Það er búið að sverfa
það að fólki, að það lætur ekki
bjóða sér meira af slíku.
Oskar L. Arnfinnsson
Rás 2 föstudag kl. 16.00:
Jóhanna Harðar og Helgin
Helgin framundan nefnist þátt-
ur, sem Jóhanna Harðardóttir
stjórnar á Rás 2 á föstudögum
milli kl. fjögur og sex. Og eins og
nafnið ber með sér er þættinum
ætlað að koma til skila helstu við-
burðum helgarinnar.
„Ég tek alltaf viðtal við ein-
hvern sem stendur fyrir einhverju
um helgina og læt fræða hlustend-
ur um málin", sagði Jóhanna þeg-
ar við spurðum hana um þáttinn.
Hún var hins vegar ekki búin að
ákveða hver það yrði þegar við
hringdum.
„Svo hringi ég í fólk og spyr
hvað það ætli að gera um helgina.
Þetta er svona í gamni gert. Ég les
líka fréttir frá félögum, sam-
tökum og öðrum, sem standa
fyrir einhverjum uppákomum
um næstu helgi, en helst ekki frá
þeim sem hafa reglulega fundi
eða uppákomur. Jóhanna sagði,
að fólk mætti senda bréf að
Hvassaleiti 60 í þáttinn Helgin
framundan, ef það vildi koma á
framfæri tilkynningum um at-
burði.
Og svo er það tónlistin. „Hún
er auðvitað uppistaðan í þætt-
inum eins og öllum þáttunum á
Rás 2“, sagði Jóhanna. „Ég reyni
að vera með lög frá ýmsum tím-
Jóhanna Harðardóttir sér um þáttinn „Helgin framundan“ á Rás 2.
(Ljósm. -eik)
um og er með gamalt popp og allt
upp í nýbylgjutónlist. Fólk pant-
ar stundum lög með frétta-
tilkynningum sínum og ég reyni
að verða við þeim óskum - þ.e. ef
ég finn lögin“.
Sjónvarp föstudag kl. 20.55:
Stællinn í New York
Sjónvarpið sýnir nokkuð for-
vitnilegan þátt í kvöld, er nefnist
á íslenskunni Trylltur dans, og
hefst sýning hans kl. 20.55.
Þarna er greint frá nýjasta
dans- og músíkæðinu, sem þessa
dagna streymir ótt frá Ameríku.
Dans þessi þykir nú það fínasta,
sem hægt er að spóka sig með á
diskótekum heimsins. En upp-
rurtninn er hann hjá strákum
nokkrum í New York, sem kalla
sig Rock Steady Crew og segja
þeir: í stað þess að fara út og
drepa nokkra samborgara ætti
fólk að huga að dansment sinni.
Sagt er í kynningu með þættin-
um, að strákarnir séu fyrrum
götustrákar í New York, en með-
alaldur þeirra er fimmtán ár.
Dansinn nefnist „Break“ og
minnir einna helst á fimleika. I
þætti þessurn er einnig litið við á
skemmtistaðnum Roxy, sem er
víst eina pleisið í New York sem
nöfnum tjáir að nefna, skilst
manni. Þar er nú verið að þróa
fyrirbæri, sem gestir staðarins
kalla „klór“. Felst fyrirbærið í því
að plötusnúðurinn snýr plötu-
num að sinni vild, stoppar þær,
leikur tii baka o.s.frv. og um leið
er haldið uppi tali til gestanna.
Þetta er sagt koma mjög vel út.
Þá sjáum við í þættinum Spoonie
Gee og fáum að hlusta á elekt-
róníska tónlist Jonzun Crew og
Afrika Bambaataa.
Kvöld-
gestir
Jónasar
! KVÖLDGESTIR Jónasar
Jónassonar verður á dagskrá út-
varpsins í kvöld kl. 23.20. í
þættinum koma fram Helgi
Hallgrínisson, forstöðumaður
Náttúrgripasafnsins á Akureyri
og María Valgarðsdóttir, hús-
freyja að Hátúni í Skagafirði,
og rabba við Jónas um lífið og
tilveruna.
bridge
Þaö er ekki ott sem úrslit í USA mótum
eru birt í bridgedálkum hér á landi. Raun-
ar minnist umsjónarmaður þess ekki aö
hafa séö úrslit frá helstu mótum þaðan. (
tilefni Bridgehátíðar 1984 gerum við því
undantekningu í þetta sinnið og birtum
eftirfarandi úrslit í Reisinger sveita-
keþþninni, sem sþiluð var nýlega:
1. Oswald Jacoby, Edgar Kaþlan, Norm-
an Kay, Bill Root, Richard Pavlicek. Þeir
hlutu 41.9135 stig.
2. Ronnie Rubin, M. Becker, B. Eisen-
berg, E. Kantar, M. Lawrence, P.
Weicsel. Þeir hlutu 41.5000 stig.
3. Chiþ Martel, L. Stansby, P. Pender, H.
Ross meö 41.3057 stig.
4. Steve Robinson, P. Boyd, H.
Weinstein, L. Robbins með 38.0532 stig.
5. G. Rosenkranz, E. Wold, J. Mecks-
troth, E. Rodwell, E. Manfield.
6. B. Bramley, M. Cohen, J. Sutherlin, R.
Gerard.
7. V. Mitchell, M. Granovetter, A. Rand,
E. Stein.
8. C. Russell, C. Smith, R. Levin, H. Lilie,
P. Nagy, D. Berkowitz.
9. D. Hoffner, D. Sacks, L. Sealy, M.
Caþþeletti.
10. B. Reinhold, R. Arnold, R. von der
Porten, J. Jacoby og Kyle Larsen.
11. M. Brachman, B. Wolff, B. Hamman,
R. Aandersen, B. Goldman, P. Soloway.
Þetta voru 11 efstu sveitirnar í Rei-
singer mótinu i USA, sem er ein „mesta“
sveitakeþpnin þar, ásamt Sþingold og
Grand national.
Endanleg úrslit urðu svo að efsta
sveitin sigraði með glaesiþrag, og áttu
fáir von á því, miöað við meðalaldur
sveitarinnar, sem var (er) vel yfir 60 ár
(heiðursmeðlimur hennar er að sjálf-
sögðu Ozzie Jacoby, aðeins 81 árs rúm-
lega).
Asmundur Pálsson ætti því að vera i
„toppformi" í kringum 2010, ekki satt
Ási?
Tikkanen
Evrópu er skipt í tvennt. En
hvorugnr hlutinn heyrir Evr-
ópu til.
Gœtum
tungunnar
Sagt var: Hússeín er í arabisku
sendinefnd í Moskvu.
Rétt væri: ... í arabiskri sendi-
nefnd...
Eða: ... í hinni arabisku sendi-
nefnd ...
Eða: ... arabisku sendinefn-
dinni í Moskvu.
Hefur JBflk
Þaö^Öl
bjarga
þér
yUJ^FEBOA
■0