Þjóðviljinn - 20.03.1984, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 20.03.1984, Blaðsíða 10
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriajudagur 20. mars 1984 Sænskunámskeið í Framnás lýðháskóla Dagana 30. júlí til 10. ágúst nk. gefst 15 (slendingum kostur á að sækja námskeið í sænsku í lýðháskólanum í Framnás í Norður-Svíþjóð. Þeir sem hyggja á þátttöku í námskeiðnu verða að taka þátt í fornámskeiði í Reykjavík, sem ráðgert er að verði 15.-17. júní. Námskeiðið hefst síðdegis á föstudag og lýkur um hádegi á sunnudag. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar um skipulag námskeiðsins og þátttökukostnað fást í menntamálaráðu- neytinu, verk- og tæknimenntunardeild, sími 25000. Umsóknarfrestur er til 18. apríl. Undirbúningsnefnd. ÚTBOÐ Tilboð óskast í að framleiða og afhenda greinibrunna fyrir Hitaveitu Reykjavíkur. Utboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Fríkirkjuvegi 3. Reykjavík gegn 1500 kr. skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 29. mars kl. 11 f.h. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800 Hreppsnefnd Eyrarbakkahrepps býður hér með út silungs- og laxveiði í net í Ölfusá fyrir landi Óseyrarness í Eyrarbakkahreppi til næstu fjögurra ára. Tilboð skulu send til oddvita Eyrarbakkahrepps, Túngötu 40, 820 Eyrarbakka, fyrir 10. apríl n.k. Oddviti veitir jafnframt allar nánari upplýsingar. Áskilinn er réttur til þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Hreppsnefnd Eyrarbakkahrepps. LAUS STAÐA Staða ríkisbókara er laus til umsóknar og verður veitt frá og með 1. júní 1984. Umsóknir sendist ráðuneytinu fyrir 25. apríl 1984. Reykjavík 19. mars 1984 Fjármálaráðuneytið Sprunguþéttingar Þéttum sprungur í steinveggjum, þéttum bárujárnsþök sem farin eru að ryðga. Látið fagmenn sjá um viðgerð- irnar. 10 ára reynsla á þéttiefnum á íslandi. Upplýsing- ar í síma 66709 og 24579. STAÐA Staða ríkislögmanns er laus til umsóknar. Umsóknir berist ráðuneytinu fyrir 25. apríl n.k. Fjármálaráðuneytið 19. mars 1984 Minning Ingólfur Steínar Kristinsson F. 28.1. 1963 - D. 31.10. 1983 Sl. laugardag var Ingólfur Steinar Kristinsson jarðsunginn frá Staðarhólskirkju í Saurbæ, en hann fórst með Ms. Haferninum frá Stykkishólmi við Bjarneyjar á Breiðafirði hinn 31. október s.l., en með honum fórust tengdamóðir hans tilvonandi, Kristrún Óskars- dóttir og Pétur Jack. Það var þungur óveðursbakki yfir Breiðafirði þennan örlagaríka dag. Dimm og drungaleg ský slógu óhugnanlegum svip yfir land og haf. „Þrútið var loft og þungur sjór“. Þannig getur hinn fagri Breiðafjörður orðið í illviðraham, og þetta var örlagadagur. Allt um- hverfið og veðurgnýrinn lagði áherzlu á þá staðreynd, að við, mannanna börn, erum svo ósköp lítil í samspili okkar við náttúruöfl- in, við erum svo veik og vanmáttug þegar alvara lífsins blasir við. Og hér varð engum vörnum við kom- ið. Ingólfur var sonur Kristins Steinars Ingólfssonar, veghefils- stjóra, að Jaðri í Saurbæ og konu hans Jakobínu Jóhannesdóttur. Hann ólst upp í Saurbænum, í fag- urri sveit með foreldrum sínum og systkinum, Gunnari og Hönnu Lóu, og var hann yngstur, ljúfur drengur, glaðlyndur og hlýr, og við, sem fylgdumst með honum, vissum, að hann átti góða æsku, en þó mátti hann vita hvað alvara lífs- ins gat verið erfið, því hann fæddist með hjartagalla og varð því að bregðast við ýmsu á annan veg en alheilbrigður væri, m.a. varð hann að fara erlendis til lækninga á unga aldri. En aldrei var hægt að sjá að slíkt hefði íþyngjandi áhrif á hug hans. Tiltölulega ungur fór hann að heiman og vann hjá Vegagerð ríkisins við þungavinnuvélar víða um land og við brúa- og ræsagerð og reyndist þar hinn traustasti verkmaður af svo ungum manni að vera, úrræðagóður, áreiðanlegur, útsjónarsamur og verklaginn. Hann var nýlega seztur að í Stykkishólmi, en þar var heimili unnustu hans, Ingveldar Eyþórs- dóttur, og þar höfðu þau gert ráð- stafanir til að stofna eigið heimili. Framtíðin virtist blasa við, björt og fögur. Kraftur æskunnar ólgaði í blóðinu og lífið krafðist útrásar í starfi og athöfnum. En skjótt bregður sól sumri. í einu vetfangi missa foreldrarnir son sinn og systkinin bróður, og unnustan unga ástvin sinn og hún missti meira, hún missti líka móður sína og faðir hennar bæði eiginkonu og tengdason. Lífið er stundum harð- ur skóli, og oftar en ekki finnst okkur, sem eftir stöndum, að erfitt sé að sætta sig við slík örlög. En maðurinn ályktar, en Guð ræður. Hið jarðneska líf átti ekki að verða lengra, straumur tímans hafði hrifið þau brott og eftir sitja ástvin- ir harmi þrungnir. Hafið tekur oft miklar fórnir og líf sjómannsins er hættulegt og erfitt, það vitum við, en hitt vitum við einnig, að á bak við líf og hel er styrk hönd, sem styður og verndar, huggar og græðir, og sú hönd er nálæg á sorg- arstund, það finnum við svo oft þegar þannig er ástatt. Og nú eru minningarnar einar eftir, góðar minningar um hugljúfan efnismann, sem alls stað- ar kom sér vel og reyndist hinn bezti drengur í hvívetna. Og okkur verður hugsað til orða skáldsins sem kvað: Við rökkur þinna söngva leið sumarið hjá. Svo hvarfstu mér, vinur, og haustid lagðist á. En hvenær sem hafrœna heim í dalinn fer frá kynjalöndum fjarlœgum hún kveðju til mín ber. En ég hef beðið lindina sem líður mér við kinn að flýta sér til hafsins og finna ástvin minn. Og ómarnir svífa af sœnum til lands. Með bergmálum fjallanna flýg ég til hans. T.G. Lífið er ein óslitin ganga, frá vöggu til grafar, mislöng að vísu og ólík á marga grein, margslungin og margvísleg. En allt um það, við tökum þátt í þessari för og ekkert okkar getur vikist undan þátttöku í þeirri göngu. Fram hjá, fram hjá fara hópar ferðamanna nótt og dag. Líkt og blœr, sem blöðum sópar bersl mér þeirra göngulag. Þó menn óttist þeirra veg þykir förin skuggaleg verða þeir að fylla flokkinn fyrr en varir - þú og ég. D.S. En hvað mætir okkur á leiðinni? Hvert getum við leitað í sorg og söknuði? „Ef Guð er með oss, hver er þá á móti oss?“ Þar höfum við svarið. Handleiðsla Guðs er með í för. Á því er enginn vafi. Og þegar dauðinn aðskilur ástvini við hlið lífsins, þá sjáum við sem í skuggsjá birtu eilífðarinnar blasa við. Hið fyrra er farið. Allt er orðið nýtt. Þetta hefur verið trú kynslóðanna, og hún hefur ekki brugðist - og mun ekki gera það. Því vonin lifir, þótt hver bátur brotni vort bezta, sálin, tekur land hjá Drottni. M.J. Minningarnar, sem við eigum um Ingólf og líf hans hér, geymum við og varðveitum, því þær eru all- ar góðar og munu því lifa áfram í hugum þeirra, er hann þekktu og vissu, hversu góður drengur hann var. Ég og mín fjölskylda þökkum liðnar stundir, því í mörg ár bjó fjölskylda hans hér á Hvoli, og þau systkinin voru leikfélagar barn- anna okkar og fyrir það allt er nú þakkað að leiðarlokum. Megi góð- ur Guð leiða hann og vernda á ei- lífiðarbraut. Við sendum unnustu hans, foreldrum, systkinum og öðrum ástvinum hans okkar inni- legustu samúðarkveðjur svo og þeim öðrum, er misstu ástvini sína með honum, og biðjum Guð að blessa þau og leiða um ókomin ár - og jafnframt biðjum við þess, að þau megi eiga þá trú í hjarta sem gerir þeim kleift að sjá birtu og fe- gurð eilífðarinnar rísa við dauðans dyr, - og minnist orða Frelsarans er hann sagði: „Ég lifi og þér munuð lifa“. Ingiberg J. Hannesson UTB0Ð Verslunin Hagkaup óskar eftir tilboðum í 1. áfanga jarðvinnu við verslunarmiðstöð í nýja miðbænum í Reykjavík. í verkinu felst að girða vinnusvæðið, fjar- lægja jarðveg úr byggingarreit og endurfylla að hluta. Helstu magntölur eru: Gröftur 60.000 rúmmetrar. Fylling 10.000 rúmmetrar. Útboðsgögn eru afhent á verkfræðistofunni Fjarhitun h.f. Borgartúni 17, Reykjavík, gegn 2000 kr. skila- tryggingu. Tilboð verða opnuð á skrifstofu Hagkaupa, Lækjargötu 4, föstudaginn 6. apríl 1984 kl. 11 árdegis. L IAHDSVIRKJIIN Útboð Vegna misritunar í auglýsingu sem birtist í dagblöðum helgina 17. og 18. mars s.l. skal vakin athygli á, að tilboð í byggingu á undirstöðum vegna stækkunar tengivirkis við Sigöldu ásamt undirstöðum fyrir sex möstur í Suðurlínu næst tengivirkinu, verða opnuð 9. apríl n.k. en ekki 9. ágúst eins og stóð í auglýsingunni. ÓDÝRARI barnaföt bleyjur leikföng ,'o< *VLa' ,©Y\uro •s' •sWP1 e % Dúllo Snorrabraut 22

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.