Þjóðviljinn - 28.03.1984, Page 2
2 SÍÐÁ - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 28. mars 1984_____________________________
Fjölgun Ragnhildar á skrifstofustjórum í menntamálaráðuneytinu:
Lögbrot og pólitísk misnotkun
segja tveir fyrrverandi
menntamálaráðherrar
Allheitar amræður urðu í Sam-
einuðu alþingi í gær þegar
menntamálaráðherra svaraði loks
fyrirspurn þeirra Ingvars Gftla-
sonar og Ragnar Arnalds um hvaða
lög lægju að baki þeirri ákvörðun
að fjölga skrifstofustjórum í ráðu-
neytinu úr einum í þrjá. Hvort sú
fjölgun hefði verið samþykkt af rík-
isstjórn? Hvort aðstoðarmaður
ráðherra hygðist sækja um aðra
stöðuna, og hvort ráðherra ætlaði
þá að ráða sér nýjan aðstoðarmann
ef núverandi aðstoðarmaður Sól-
rún Jensdóttir yrði skipuð skrif-
stofustjóri?
Ragnar Arnalds rakti í upphfi
máls síns aðdragandann að þessari
fyrirspurn þeirra Ingvars sem væri
sá að þann 13. febrúar sl. skipaði
Ragnhildur til bráðabirgða í tvær
nýjar stöður skrifstofustjóra í ráðu-
neyti sínu og í aðra þeirra pólitísk-
an aðstoðarmann sinn. 11 dögum
síðar, þann 24. febrúar, voru þess-
ar tvær stöður síðan auglýstar
lausar til umsóknar og frestur gef-
inn til 14. mars að skila inn um-
sóknum.
Daginn áður, þ. 13. óskuðu þeir
eftir svörum menntamálaráðherra
við fyrrgreindum fyrirspurnum þar
sem þeir teldu framferði hennar
brjóta í bága við lög um Stjórnar-
ráð íslands og engin heimild væri í
fjárlögum fyrir fleiri en einum
skrifstofustjóra í ráðuneytinu.
Ragnhildur neitaði þá að svara
frambornum fyrirspurnum sem
hún hafði fengið afhentar deginum
áður og sú afstaða hennar væri ein-
stæð í sögu þingsins. Hann vissi
ekki til þess að ráðherra hefði sýnt
alþingi áður slíka óvirðingu. Slík
framkoma væri embættishroki sem
ekkert þing gæti þolað.
! Fró v. Valgerður Guðgeirsdóttir, Úlfhildur Dagsdóttir og Inga Rún Kristinsdóttir. Þeim var boðið í Offísera-
klúbbinn.
Skólakrakkar í Vogaskóla
Aróðursferð á her-
völlinn í Keflavík
„Þetta var ekki starfskynning,
heldur einhliða áróður“, sögðu
nokkrir nemendur úr 9. bekk
Vogaskóla eftir að þeim hafði ver-
ið boðið í svokallaða starfskynn-
ingu á herstöðina í Keflavík.
Nemendurnir höfðu samband
við Þjóðviljann vegna þessa máls
og sögðu að það væri orðinn ár-
viss viðburður í þeirra skóla að
nemendum væri boðið í starfs-
kynningu hjá iögreglunni og
hernum. Síðastliðinn fimmtudag
var farið í slíka ferð og var fyrsti
viðkomustaðurinn álverið í
Straumsvík þar sem þau fengu að
kynnast erlendri stóriðju og
öllum hennar kostum. Að því
loknu var haldið til Keflavíkur en
á leiðinni þangað var haldinn yfir
þeim fyrirlestur um ágæti hersins
og aðildar okkar að Nato.
í Keflavík var síðan snæddur
hádegisverður hjá Aðalverk-
tökum og að því loknu var nem-
endum skólans boðið í offísera-
klúbbinn þar sem þeim voru
sýndar slædsmyndir um herinn og
samtímis var spilaður af bandi
áróður um hvað kaninn er góður
og hvað rússinn er vondur. Töldu
nemendur þetta vera mjög ein-
hliða áróður og tjáðu Þjóðviljan-
um að athugasemdum þeirra hafi
verið tekið misjafnlega.
Einnig hafi blaðafulltrúi hers-
ins kvartað yfir því að ísland væri
eina NATO-landið þar sem her-
menn gætu ekki farið á skemmti-
staði að eigin vild vegna þess að
ríkisstjórnin leyfði það ekki.
- Raþ.
Herstöðva-
andstæðingar
á Breiðumýri
Herstöflvaandstæðingar í Þing-
eyjarsýslu og Húsavík efna til bar-
áttusamkomu fyrir friði, gegn víg-
búnaðarógn og hernaðarbanda-
lögum, undir kjörorðinu: ísland úr
Nato - herinn burt. Samkoman
verður að Breiðumýri 30. mars nk.
kl. 21.00.
Dagskrá verður fjölbreytt,
mikið um söng, upplestur og tón-
list. Ræðu flytur Tryggvi Gíslason
skólameistari Menntaskólans á
Akureyri og ávarp María Kristjáns-
dóttir, leikstjóri á Húsavík.
Þetta er í áttunda sinn sem her-
stöðvaandstæðingar hér um slóðir
efna til samkomu sem þessarar 30.
mars að Breiðumýri. Hafa þær
samkomur ætíð verið vel sóttar af
fólki úr öllum flokkum.
Varla ætti að þurfa að minna á
hvað mánaðardagurinn 30. mars
táknar í íslandssögunni.
Starri.
Styðja Sókn
Samtök kvenna á vinnumark-
aðnum hafa lýst yfir fyllsta stuðn-
ingi við stjórn og sammnganetnd
Starfsmannafélagsins Sóknar í
þeirri kjarabaráttu sem félagið nú
heyr. Benda samtökin á að í ný-
útkominni skýrslu kjararannsókn-
arnefndar komi í ljós að Sóknarfé-
lagar hafi lökustu kjörin á íslensk-
um vinnumarkaði nú. Segir í frétt
frá Samtökum kvenna á vinnu-
markaðnum að þau vonist til að
barátta Sóknar nú verði vísir að því
að bæta kjör láglaunafólks.
- v.
„Búðin“ rifín
Guðmundur Axelsson í
Klausturhólum og fleiri eigendur
Breiðfirðingabúðar við Skóla-
vörðustíg 6B hafa óskað eftir leyfi
til að rífa „Búðina“. Bygginga-
nefnd hefur erindið nú til umfjöll-
Því næst tók Ragnhildur Helga-
dóttir til máls og sagði að hún gæti
ekki svarað öllum frambornum
spurningum. Efni þeirra væri ekki
til þess fallið að spyrja um. Hún
hefði skipað fyrrverandi aðstoðar-
mann sinn Sólrúnu Jensdóttur
skrifstofustjóra í ráðuneytinu frá
og með 1. mars sl. og sömuleiðis
Örlyg Geirsson fyrrv. deildar-
stjóra. Sólrún hefði lagt fram mjög
glæsileg gögn með umsókn sinni.
Beiti minni lagatúlkun
Þessi kerfisbreyting í ráðuneyt-
inu væri eftir tillögum Gunnars
Guðmundsson rekstrarhagfræð-
ings sem hefði unnið að úttekt á
ráðuneytinu fyrr í vetur. Þessar til-
lögur væru til hagræðingar og
sparnaðar og gerðar með velvilja
ríkisstjórnar. Um lagalegt gildi
sagði menntamálaráðherra að lög
stjórnarráðsins væru þannig fram-
sett að beita þyrfti mjög rúmri út-
skýringu til að túlka þau lög. Lögin
hefðu alla tíð verið túlkuð rúmt og
vitnaði ráðherra til símaskrárinnr
til að staðfesta orð sín. Hvergi
segði í lögum stjórnarráðsins að
skrifstofustjórar mættu ekki vera
fleiri en einn og þvf yrði að túlka
þessi lög rúmt.
Löglausar aðgerðir
Ragnar Arnalds sagði að svör
ráðherra væru fátækleg. Símaskrá-
in væri haldbærasta lögskýringar-
gagn ráðherrans. í lögunum stæði
skýrum stöfum að aðeins einn
maður gegndi stöðu skrifstofu-
stjóra í hverj u ráðuneyti, það þyrfti
ekki að rökræða frekar. Lögskýr-
ingar ráðherra væru fjarri öllu lagi.
Hagræðingarátak ríkisstjórnar-
innar fælist nú í því að fjölga skrif-
stofustjórum. Engin rök væru fyrir
þessari fjölgun. Ráðherra vildi ein-
ungis setja pólitískan skjólstæðing
sinn yfir öll skólamál í landinu og
ráða sér síðan annan aðstoðar-
mann. Varaði hann harðlega við
því að ráðherra kæmist upp með
þessa lögleysu.
Ingvar Gíslason sagði að þessi
uppstokkun á ráðuneytinu væri
byggð á mjög hæpnum lagagrund-
velli og illa útfærð í alla staði. í
þessu fælist engin hagræðing og
enginn sparnaður. Gripið væri til
löglausra aðgerða sem væru alls
ekki til fyrirmyndar og hér væri um
hættulegt fordæmi að ræða sem
ráðherra ætti að taka til alvarlegrar
endurskoðunar. Þessi einleikur
ráðherra kæmi mörgum á óvart.
Stórbrotin
pólitísk misnotkun
Ólafur Ragnar Grímsson sagði
að ef aðrir ráðherrar fylgdu „hag-
unar og hefur óskað álits umhverf-
ismálaráðs.
Nýlega var kynnt í skipulags-
nefnd tillaga að miklum nýbygg-
ingum við Skólavörðustíginn sunn-
anverðan en höfundar hennar,
Hilmar Ólafsson og Hrafnkell
Thorlacius arkitektar hafa gert
hana fyrir húseigendur á þessum
slóðum. Þá liggur fyrir önnur eldri
tillaga frá Aðalsteini Richter arki-
tekt að uppbyggingu við Skóla-
vörðustíg. Þessar tillögur hafa enga
afgreiðslu fengið. _
Landssamtök öldungadeilda:
Ráðherra lof-
ar lögfestingu
Á döfinni er stofnun landssam-
taka öldungadeilda við mennta-
skólana. 21. mars sl. var haldinn
undirbúningsfundur um slíka
stofnun, þarsem menntamálaráð-
herra lofaði lögfestingu öldunga-
deilda hið fyrsta.
Fundurinn ályktaði að það mál
þyldi enga bið og lýsti ánægju sinni
ræðingu" Ragnhildar þýddi það að
hér yrðu ráðnir 33 skrifstofustjórar
í stjórnarráðinu. Ráðherra hefði
sagt að úttekt á starfsemi ráðuneyt-
isins hefði verið gerð af Gunnari
Guðmundssyni rekstrarhagfræð-
ingi. í blaðaviðtali hefði J. Ingimar
Hansson sagt að einkafyrirtæki
hans, Rekstrarstofan, hefði unnið
þessa úttekt. f framhaldi af þessu
spurði Ólafur ráðherra hvort rangt
væri að Rekstrarstofan hefði unnið
þessa úttekt. Hvers vegna ekki
hefði verið gerður verksamningur
um úttektina, hvort ráðherra vildi
birta alþingi úttektarskýrsluna? þá
endurtók hann þá spurningu hvort
ráðherra hygðist ráða sér nýjan að-
stoðarmann. Sagði Ólafur að með
framferði sínu væri ráðherra að
opna leið fyrir stórbrotna misnotk-
un á pólitískum stöðuveitingum.
Ragnhildur Helgadóttir sagði að
Alþýðubandalagsmenn væru að
ráðast að henni vegna þess að hún
hefði ráðið konu sem væri sjálf-
stæðiskona í embætti. Ræddi hún
um lágkúrulegan málflutning fyrir-
spyrjenda og blandaði inn í um-
ræðuna blaðaskrifum úr fortíð og
nútíð um sér nákomna. Menn
þyldu greinilega ekki að skipað
væri hæfasta fólkið í stöður af því
það væri ekki úr þeirra eigin flokk-
um.
Ólafur Ragnar ítrekaði fyrir-
spurnir sínar til ráðherra og sagði
að þessi pólitísku mistök ráðherr-
ans hefðu ekkert með það að gera
að Sólrún Jensdóttir væri kona.
Verið væri að brjóta lög til að koma
pólitískum aðstoðarmanni ráð-
herra að sem embættismanni í
æðstu stöðum í ráðuneytinu.
Ragnar Arnalds sagði að ráð-
herra forðaðist að ræða kjarna
málsins sem væri tvímælalaust brot
hans á lögum stjórnarráðsins.
Ragnhildur Helgadóttir sagði að
hún væri ekki að brjóta lög. Það
yrði að túlka lögin rúmt. Þá til-
kynnti hún að hún hygðist ráða sér
nýjan pólitískan aðstoðarmann.
Ólafur Ragnar Grímsson sagði
að eins sérkennilegt og það væri þá
kysi ráðherra frekar að ræða sín
fjölskyldumál í stað þess að svara
framkomnum fyrirspurnum.
Hættulegt fordæmi
Ingvar Gíslason átti síðasta orðið
í þessum umræðum og sagði að það
væri full ástæða til að finna að gerð-
um ráðherra. Hann hefði staðið
rangt að málum. Lagabókstafir
væru teygðir í allar áttir sem væri
mjög hæpið ef ekki lögleysa. Ráð-
herra væri að skapa hættulegt for-
dæmi með gjörð sinni og ráðherrar
yrðu að átta sig á því að þeir gætu
ekki ráðskast að eigin vild í eigin
ráðuneytum. - lg.
með loforð ráðherra. Nú eru starf-
andi tíu öldungadeildir við fram-
haldsskólana og telja þær á þriðja
þúsund nemendur. í fréttatilkynn-
ingu frá þeim segir að knýjandi
nauðsyn sé á samstöðu og stofnun
landssamtaka, „einkum vegna ým-
issa blika, sem eru á lofti í efna-
hagsmálum þjóðarinnar“. - óg.
Slydda sunnan-
og vestanlands
Gert er ráð fyrir slyddu í dag
sunnan og vestan lands, samkvæmt
frásögn Gunnars Hvönndals
veðurfræðings hjá Veðurstofunni í
gær.
Gunnar kvað gert ráð fyrir all-
hvössum og austlægum hvössum
vindi á miðum en hægari til lands-
ins, sunnan og vestanlands.
Reiknað er að hitni með deginum
en áframhaldandi úrkomu á Suður-
og Vesturlandi. Veðrið sunnan og
vestanlands var svipað í gær, snjó-
koma og slydda. Gunnar kvað tals-
verðar líkur á að hlýnaði þegar liði
á vikuna og að gera mætti ráð fyrir
rigningu á laugardag. _ ó