Þjóðviljinn - 07.04.1984, Side 4
4 SÍÐA - ÞJÖÐVÍLJINN Helgin 7.-8. aprfl 1984
Við skulum ekki neita því, að
margt er svipað með ástinni og
kettinum; hvort tveggjaer silki-
miúkt, en hefir samt sínar
hvössu klær, - hvort tveggja á til
Ijúfa mýkt og slægð, yndisþokka
og fals.
Louis Desnoyers
Þorsteinn Erlingsson
„Líkast er
það Ijósum
draum“
Kvæði Þorsteins Erlingssonar hafa
löngum yljað mönnum um hjartarætur.
Við skulum rifja upp vísur hans:
Líkast er það Ijósum draum
að liggja svona og heyra
heillar nœtur glasaglaum
glymja sér við eyra.
Pennan hvella hljóm ég læt
hringja mig að beði;
mér er hann angan unaðssœt
ásta, víns og gleði.
Pangað til að þennan klið
þaggar blundur sætur,
ligg ég hér og leik mér við
Ijúfar myndir nœtur.
Pað er sárt að sofna frá
söngum minna fljóða,
enga mjúka arma fá
eða vínið góða.
Ó, hvað leið hún undur fljótt
í þeim töfra glaumi,
þessi blessuð brúðkaups nótt,
betri hverjum draumi.
Petta aðeins englum má
eilífð stutta gera,
og ætti ég þeim að una hjá,
yrði’hún svona að vera.
Kæra frú, hve fegnir vér
föðmum þínar dætur,
gæfan sæla sjálfri þér
sendi slíkar nætur.
Nú vil ég heldur hópinn þinn,
en hittu sálu mína,
ef þú byrjar annað sinn
æskuleika þína.
Svæfðu mínar meyjar blítt,
mildi næturkliður,
minntu þær á margt og frítt,
meðan þær leggjast niður.
„Island: Velferðarríki fyrir hvern?“
Stefán Ólafsson, lektor:
„Sundrung lam-
ar allt aðhald"
„Megn óánægja með yfirþyrmandi
vald fyrirtækjanna í landinu og
Sjálfstæðisflokksins og hvernig þessir
aðilar beita valdinu til að skerða og
halda niðri lífskjörum almennings hefur
vakið fólk til umhugsunar," sagði
Stefán Ólafsson, lektor, í samtali við
Þjv. um ráðstefnuna ísland:
Velferðarríki fyrir hvern? sem haldin
verður í Gerðubergi í dag. Ráðstefnan
hefstkl. 13.00.
„I skjóli þessa valds hafa fyrirtækin og
íhaldsöflin byggt upp velferðarríki fyrir-
tækjanna, sem blómstra á kostnað launa-
flólks,“ sagði Stefán Ólafsson. „Fyrirtækin
fá allt sem þau biðja urn. Ráðherrarnir
gangaá millifunda hjá þrýstihópum fyrir-
tækjanna, Vinnuveitendasambandinu,
Verslunarráðinu og hjá iðnrekendum, og
þar skýra þeir vikulega frá því, hvað þeir
séu að gera fyrir fyrirtækin.
Ég vil nefna tvö dæmi. Hið fyrra er um
skattlagningu á hollustudrykki til þess að
geta lækkað verð á gosdrykkjum. Þetta
gerðist þannig að gosdrykkjaframleiðendur
snéru sér til Alberts með beiðni um ívilnan-
ir sér til handa. Albert Guðmundsson brást
skjótt við ög hækkaði söluskatt á drykkj-
um, sem skólabörn voru blessunarlega
farin að neyta í ríkum mæli, og lækkaði
skatta á gosdrykkjum, þannig að nú er mun
ódýrara að senda barnið í skóla með kók-
flösku heldur en einhvern hollustudrykk.
Þarna er neytendasjónarmið eða velferð al-
mennings ekki höfð að leiðarljósi, heldur er
einblínt á velferð fyrirtækjanna.
Annað dæmi er hvernig verið er að greiða
götuna í gjaldeyrismálum. Ég óttast, að hér
sé verið að opna hraðbraut fyrir peninga-
streymi úr landi; ég tala nú ekki um ef hér
verða opnaðir erlendir bankar, eins og einn
ráðherranna hefur minnst á að komi vel til
greina. Þeir sem hafa fjármagn ráðstafa því
auðvitað eins og þeim hentar best. Fjár-
streymi úr landi er böl, sem margar þjóðir
heimsins búa nú við og vil ég nefna Breta
sem dæmi, en þeir geta sig nær hvergi hreyft
einmitt vegna þess að féð streymir úr landi.
Það virðist ekkert lát vera á græðgi fyrir-
tækjanna hér á landi og ráðherrar eru til-
búnir til að gera hvað sem er fyrir fyrir-
tækin. Hið nýjasta eru hugmyndir um skatt-
abreytingar, sem fela mun í sér aukna
neysluskatta og meiri ívilnanir til fyrirtækj-
anna. Fyrirtækin munu heimta meira og
meira, ef ekki verður spyrnt við.
Markmiðið með ráðstefnunni í Gerðu-
bergi er fyrst og fremst það að ræða þessa
Stefán Ólafsson, lektor
þróun mála og kanna hvort vettvangur sé til
fyrir öflugt mótvægi á einhvern hátt.“
Hvert verður áframhaldandi starf ykk-
ar?
„Það verður að ráðast á ráðstefnunni.
Það er að mínu mati ekki þörf fyrir nýjan
stjórnmálaflokk, en sundrung vinstri
aflanna er náttúrlega staðreynd sem lamar
allt aðhald á Sjálfstæðisflokkinn og fyrir-
tækin. Það er kannski okkar böl, að floíckar
breytast ekki auðveldlega - þeir lagast ekki
nýjum aðstæðum, heldur klofna frekar en
að vaxa.
Við hljótum að þurfa að skoða alla vinstri
pólitík frá grunni með það fyrir augum að
unnt verði að mynda heilbrigt jafnvægi á
móti íhaldsöflunum. Ef til vill verður um-
ræðan í Gerðubergi fyrsta skrefið í þá átt-
ina.“
Guðrún Jónsdóttir, borgarfulltrúi:
„Vettvangur fyrir
nýjar hugmyndir"
„Fyrirmérertilgangurinn með
þessari ráðstefnu sá fyrst og fremst að
gefa fólki tækifæri til að ræða og kanna
hugmyndir um hvernig bregðast megi
við þeim vanda, sem hugmyndir um
velferðarríkið eru komnar í,“ sagði
Guðrún Jónsdóttir, borgarfulltrúi í
samtali við Þjv. um tilgang
ráðstefnunnar ísland: Velferðarríki
fyrir hvern? sem hefst í Gerðubergi kl.
13.00ídag.
„Hér gefst langþráð tækifæri fyrir fólk
með ólík sjónarmið til velferðarkerfisins að
hittast og ræða málin“ sagði Guðrún enn-
fremur. „Þetta hefur verið varnarbarátta
undanfarna mánuði og mér virðist engar
nýjar hugmyndir hafa komið fram um
hvernig staðið skuli að uppbyggingu vel-
ferðarkerfisins.
Mér finnst það gerast í vaxandi mæli að
flokkarnir komi með allskyns yfirboð fyrir
kosningar. Þessi boð eru oft mjög óraunsæ,
þau byggja á óskhyggju fyrst og fremst, en
ekki er hugsað um stöðuna, þ.e. hvernig
unnt sé að standa undir velferðarkerfinu.
Fólk þarf einnig að átta sig á vanköntum
þessa kerfis. Það þarf að skilgreina þessa
vankanta og hvernig hafa má áhrif til batn-
aðar.“
Hvert verður áframhaidandi starf?
„Því er ákaflega efitt að svara og verður
að ráðast á ráðstefnunni. Ég sé þetta ekki
sem upphafið að samruna afla, sem ýmist
Guðrún Jónsdóttir, borgarfulltrúi
eru skilgreind sem hægri eða vinstri. Þetta
er vettvangur til að fólk geti þreifað sig
áfram með nýjar hugmyndir varðandi vel-
ferðarríkið. Þetta er nk. prófsteinn á hvað
fólk er að hugsa í þessum efnum."
ast
Frá heimsókn Friðriks
VIII til Islands árið 1907.
Meðal þeirra sem sjást á
myndinni eru Magnus
Stephensen fv. lands-
höfðingi, Hannes Haf-
stein ráðherra, Hall-
grímur Sveinsson bisk-
up og Jóhann Þorkels-
son dómkirkjuprestur,
sem erað heilsa kóngin-
um. Skautbúna konan
er frú Ragnheiður Haf-
stein.