Þjóðviljinn - 07.04.1984, Page 5

Þjóðviljinn - 07.04.1984, Page 5
Helgin 7.-8. aprfl 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5 T / •• Wsmlí Landsbanki mo«m UA "'"—IOOOO. eTmuérs'°**l e’a3naa * a"mnr’L"»< Se*rn*ndöifrAúar’nUs‘"mj,ls ,'re,^ogSeð(abaL?e9''enve«l' *'neW8ðSex '&,<,n*'í«ÍVeduj '^^monnrasr m'iðnu,,’frál Zet,ramSe,‘an^ZÍ>sbál'a' ^’nlsibs og ^ " °9a*»e«l r ' ÞW' »«« =ön 'ríá'«í)*ð/ :6! á SO áru LANdsb, OtSíJí EIN BESTA AVOXTUN SPAEIFIAR! Sparifjáreigendum gefst nú kostur á að ávaxta fé sitt með kaupum á Landsbankaskírteinum sem seld verða á afgreiðslustöðum bankans um land allt. Lág- marksupphæð hvers skírteinis er kr. 10.000 en að öðru leyti fer upphæð þeirra eftir óskum kaupenda. Skírteinin eru innleysanleg að 6 mánuðum liðn- um frá kaupdegi og jafnframt framseljanleg á tíma- bilinu eins og almenn viðskiptabréf. Eigandi Landsbankaskírteinis fær 6% vaxtaálag á ári umfram almenna sparisjóðsvexti sem nú eru 15%. Nafnvextir skírteinanna eru því alls 21% en þeir sem kaupa ný skírteini við innlausn eldri skír - teina ná 22,1% ávöxtun á heilu ári. Sé skírteini ekki innleyst hjá bankanum að sex mánuðum liðnum frá kaupdegi mun bankinn sjálfkrafa leggja áfallna vexti við upphæð skírteinisins og ávaxta inn- eignina eftir það með kjörum almennra spari- sjóðsbóka. Landsbankaskírteinin eru stimpilfrjáls bæði við útgáfu og framsal og enga þóknun þarf að greiða til bankans. Skírteinin og vaxtatekjur af þeim eru skattfrjáls á sama hátt og annað sparifé í bönkum. Með útgáfu skírteinanna hyggst Lands- bankinn örva sparnað sem efla mun fyrir- greiðslu til atvinnuvega og einstaklinga. í boði er einföld og örugg ávöxtun með betri kjörum en völ hefur verið á undanfarin ár. Hugið að fjármálum ykkar og ávaxtið spariféð í Landsbankaskírteini. LANDSBANKINN Græddur er geymdur eyrir ARGUSCO

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.