Þjóðviljinn - 07.04.1984, Side 30
30 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 7.-8. aprfl 1984
ALÞYÐUBANDALAGIÐ
Æskulýðsfylking Alþýðubandalagsins
Fylkingin
UTBOÐ
Tilboö óskast í litla skurögröfu (keöjugröfu)
fyrir Rafmagnsveitu Reykjavíkur.
Utboösgögn eru afhent á skrifstofu vorri Frí-
kirkjuvegi 3, Reykjavík.
Tilboðin veröa opnuö á sama staö
fimmtudaginn 26. apríl n.k. kl. 11 f. hád.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800
Alþýðubandalagið á Selfossi
og nágrenni
Fundur verður haldinn um atvinnumál á Selfossi laugardaginn 7. apríl
kl. 14 að Kirkjuvegi 7, Selfossi. Framsögumaður verður Þorsteinn
Garðarson iðnráðgjafi. - Stjórnin.
Alþýðubandalagið á Selfossi
og í nágrenni
Viðtalstímar
Garðar Sigurðsson alþingismaður hefur viðtals-
tíma að Kirkjuvegi 7 á Selfossi laugardaginn 14.
apríl kl. 15. Athugið breytta dagsetningu.
Garðar
Æskulýðsfylking Alþýðubandalagsins:
Þjóðmála- og
utanríkismálanefnd
Fundurverðuríþjóðmála- og utanríkismálanefnd á laugardag, 7. apríl
kl. 11 árdegis að Hverfisgötu 105, Reykjavík. Fundarefni: Friðarstarfið
um páskana og kosning framkvæmdanefndar. Nefndin
Vinsamlega sendið eða hringið inn auglýsingar í þennan
dálk fyrir klukkan 16 daginn áður en þær eiga að birtast og
talið við Einar Karl eða Álfheiði. - Ritstjórn.
Hvað vi11 Fylkingin?
Fundur um kreppuna, ríkisstjórnina og baráttu verkalýðsstéttarinn-
ar. Framsögur: Pétur Tyrfingsson, Már Guðmundsson, Árni Sverris-
son. Fundurinn verðurfimmtudaginn 12. apríl kl. 20.30 að Hverfisgötu
105.
Baltasar á Kjarvalsstöðum:
íslandsmótið í handknattleik:
verður haldinn laugardaginn
7. apríl kl. 13.30 í húsnæði
Alþýðubandalagsins,
Aðalstræti 42. Anna Hildur
Hildibrandsdóttir og Ólafur
Ástgeirsson frá ÆF í
Reykjavík mæta á fundinn.
Ungt fólk er hvatt til að fjölmenna.
Skýjafar, illfygli og hestar
Garðar Margrét Steingrímur
Árnesingar - uppsveitamenn:
Opinn fundur í Arnesi
Opinn stjórnmálafundur veröur haldinn í Árnesi miðvikudaginn 11.
apríl kl. 21. Garðar Sigurðsson, alþingismaður, Margrét Frímannsdótt-
irgjaldkeri Alþýðubandalagsins og Steingrímur J. Sigfússon alþingis-
maður mæta á fundinn. Allir velkomnir.
Stjórn AB í uppsveitum Árnessýslu.
Alþýðubandalagið Hafnarfirði
Bæjarmálaráðsfundur.
Fundur verður haldinn í bæjarmálaráði ABH mánudaginn 9. apríl kl.
20.30 á Skálanum. Undirbúningur fyrir næsta bæjarstjórnarfund.
Stjórnin.
Æskulýðsfylkingin
Stofnfundur Æskulýðsfylkingar AB
á ísafirði
sagt. Þessar myndir kallar Baltasar
Goyeskur - þær lýsa aliskonar há-
bölvuðum klíkuskap, sem miklu
ræður, og taki hver til sín sem vill...
Baltasar sýnir 55 málverk frá
1982 og fram á þennan dag. Mynd-
unum skiptir hann í flokka. „Sólar-
hringur á vinnustofunni“ er sam-
heiti yfir myndir af því sem sést út
um glugga listamannsins: Keilir er
þar fastagestur, góð viðmiðun og
formföst, en yfir honum mikið af
himni: Það er skýjafarið sem einatt
ræður landslaginu á íslandi, segir
Baltasar.
Einn flokkurinn er um vini og
fjölskyldu og eru sumir þeir vinir
ferfættir. Landslagsmyndaflokkur
annar fjallar um sumar og vetur. í
langri röð eru naktar konur. En
andspænis þeim stórar myndir
tengdar Fjallræðunni: Þetta eru,
segir Baltasar, frjálsar æfingar
mínar, sem ég gerði meðan ég var
að nálgast það viðfangsefni að búa
til geysistóra veggmynd fyrir Víði-
staðakirkju í Hafnarfirði.
Og svo eru það hestarnir, gamlir
og nýjir gestir á sýningum Baltasar.
Félagi hestur heitir sá flokkur,
fjórtán myndir. Myndir sem geyma
margt úr mínum persónulegu
endurminningum, segir listamað-
urinn: Það sem menn elska kemur
aftur og aftur, eins og það sem
menn hata.
Sýningin er opin til 23. apríl.
áb
Þegar komið er á sýningu sem ýmsum herfílegum fígúrum, flest-
Baltasar er að opna á Kjarvalsslöð- um í mannsmynd, og leggja þær
um blasir við flokkur mynda af stund á vafasamt athæfí, vægast
Baltasar við eina þeirra mynda sem hann málar í anda landa síns Goya.
(Ijósm. Atli)
Stórkostleg vörn FH
og meistaratitillinn sama og í höfn
eftir yfirburðasigur á Víkingi
Það er enginn vafi - FH verður
Islandsmeistari í handknattleik
karia 1984. í gærkvöldi hófst þriðja
úrslitaumferð 1. deildarinnar í
Laugardalshöllinni og í síðari
leiknum mættust efstu liðiqt FH og
Víkingur. FH vann stórsigur, 31-
22, og hefur 14 stig, Víkingur 6,
Valur 5 og Stjarnan 3 þegar hvert
lið á eftir 5 leiki.
FH-ingar mættu mjög ákveðnir
til leiks, sýndi stórkostlegan varn-
arleik sem braut Víkinga gjörsam-
lega niður og þeir urðu ráðvilltir í
öllum sínum sóknaraðgerðum. FH
beitti einnig skæðum hraðaupp-
hlaupum óspart og hafði sex mörk
yfir í hléi, 16-10. í upphafi seinni
hálfleiks komst FH í 21-11 og var
8-11 mörkum yfir það semeftirvar,
31 -20 rétt fyrir leikslok en Víkingur
átti tvö síðustu mörkin.
Kristján og Atli voru mest teknir
úr umferð en þá blómstruðu hinir
eldsnöggu og fljótu Pálmi og Þor-
gils Óttar. Vörn FH var hreint frá-
bær og hún lagði grunninn að þess-
um glæsta sigri. Pálmi skoraði 9
mörk, Óttar 8, Sveinn 5, Kristján
5(4), Hans 2 og Atli 2.
Guðmundur Guðmundsson og
Sigurður Gunnarsson voru bestir
Víkinga, Guðmundur var sá eini
sem barðist á fullu allan tímann.
Sigurður skoraði 6(3) mörk, Guð-
mundur 5, Steinar 3, Hilmar 2,
Karl 2, Ólafur 2 og Hörður 2. Gíf-
urleg stemmning var í Höllinni,
Hafnfirðingar að sjálfsögðu í sjö-
unda himni en stuðningsmenn Vík-
ings létu einnig vel í sér heyra,
meira að segja þegar úrslitin voru
orðin borðleggjandi.
Á undan gerðu Valur og Stjarn-
an jafntefli, 25-25, í slökum leik.
Valur hafði undirtökin, leidi 13-11
í hálfleik og síðan 24-19 þegar stutt
var eftir en Gunnlaugi Jónssyni
tókst að jafna fyrir Stjörnuna 3 sek-
úndum fyrir leikslok.
Gunnar Einarsson var yfir-
burðamaður hjá Stjörnunni og
Eyjólfur og Bjarni voru þokka-
legir. Júlíus var bestur Valsara og
næstir komu Ólafur H. og
Steindór. Gunnar skoraði 9 fyrir
Stjörnuna, Bjarni 4 og Eyjólfur 4
en Júlíus 6 mörk og Stefán með 5
voru markahæstir Valsara.
-Frosti/VS
húsbyggjendur
ylurínn er
" góður
AlnroiAnm pinannrunainiast
Afgreiðum einangiunarplast a
Stór-Reykjavikursvcðið Irá
manudegi — lostudags.
Afhendum voruna á byggingarstað.
viðskiptamonnum að kostnaðar
lausu. Hagkvæmt verð og
greiðsluskilmalar
við llestra hsfi.
Borgarplasl hf
Lúðrasveit verkalýðsins
Tónleikar í dag
Lúðrasveit verkalýðsins heldur sína árlegu tónleika í Austurbæjarbíói í
dag laugardaginn 7. aprfl og hefjast þeir kl. 14.
Efnisskráin verður að vanda fjölbreytt, bæði innlend og erlend lög við
allra hæfi. Hljóðfæraleikarar eru 31, stjórnandi err Ellert Karlsson og
kynnir Jón Múli Árnason.
Myndina tók Ijósmyndari Þjóðviljans, eik, á æfingu lúðrasveitarinnar.
Pípulagningar
Tek að mér alla almenna pípulagningavinnu.
Einnig gripahúsainnréttingar úr járni. Magn-
ús Hjaltested, pípulagningameistari, sími
81793.