Þjóðviljinn - 07.04.1984, Side 31

Þjóðviljinn - 07.04.1984, Side 31
í'801 íit;j,s .3- W/Jí I:'/Ot. Helgin 7.-8. aprfl 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 31 Ályktun SFR um utanríkismál Stuðningur við alþýðu E1 Salvador Á aðalfundi Starfsmannafélags ríkisstofnana var samþykkt eftir- farandi utanríkismálaályktun en hún var flutt af Ragnari Stefánssyni og fleirum: „Aðalfundur SFR lýsir yfir ein- dregnum stuðningi við baráttu þjóðfrelsisafla E1 Salvador. Undir merkjum þjóðfrelsisafla E1 Salvador, FMLN/FDR, berjast fjöldasamtök verkafólks, náms- manna, bænda og millistétta, margir pólitískir flokkar, raunar öll félagsleg og pólitísk öfl í E1 Salva- dor, sem ekki eru öfgasinnuð hægri öfl. Flrikaleg kúgun herstjórnar E1 Salvador hefur gert vopnað and- svar þjóðfrelsisaflanna nauðsyn- legt. Frá því í október 1979 hefur her E1 Salvador og hálfopinberar dauðasveitir myrt fleiri en 50 þús- und óbreytta borgara. Ógnarstjórn í E1 Salvador er al- gerlega háð fjárhagslegum og hernaðarlegum stuðningi Banda- ríkjastjórnar. Nyti hún ekki þessa stuðnings væri hún löngu fallin. Vegna vaxandi andstöðu í Banda- ríkjunum sjálfum og víða um heim á Bandaríkjastjórn sífellt erfiðara með að fá stuðning sinn við ógn- arstjórnina samþykkta. Til þess að reyna að villa um fyrir almenningi og til að bæta stöðu sína til áfram- haldandi stuðnings við þessi öfl, lét Bandaríkjastjórn efna til sýndar- kosninga 25. mars s.l., þar sem fólk var neytt til þess að viðlagðri refs- ingu að kjósa án þess að geta kosið raunverulega fulltrúa sína, þá sem berjast fyrir mannréttindum, friði og mannsæmandi lífi í E1 Salvador. Aðalfundur SFR skorar á íslensk stjórnvöld að þau beiti sér fyrir því á alþjóðavettvangi að Bandaríkin hætti íhlutun sinni í E1 Salvador og láti af ógnunum sínum gegn Nicar- agua, og ríkisstjórn fslands viður- kenni FMLN/FDR sem fulltrúa E1 Salvadorsku þjóðarinnar. Aðalfundur SFR felur stjórn SFR að skipuleggja og taka þátt í samstarfi með öðrum verkalýðsfé- lögum á ísíandi til stuðnings alþýðu E1 Salvador og annarra landa Mið- Ameríku.“ El Salvadornefndin á íslandi s Félagsfundur I das o o E1 Salvadornefndin á fslandi boðar til félagsfundar í dag að Hverfts- götu 105, 4. hæð kl. 14.00. Á fundinum verður sagt frá nýafstöðnum forsetakosningum í landinu og rætt um starfið framundarrhjá nefnd- inni. Þá verður sýnd vídeóspóla frá frelsuðu svæðununr í E1 Salvador, en hún heitir Vegurinn til frelsisins. Þar segir ma. frá hlut kvenna í x byltingunni. -v. Hin fagra aðalbyggíng Kleppsspítala lítur ekki vel út þessa dagana, en það stendur allt til bóta, því búist er við að framkvæmdum við húsið Ijúki að nokkru í sumar. Hér hefur annar stigagangur þess verið rifinn niður og þar á að koma fyrir þjónustuherbergjum. Ljósm. eik. Enn eitt „gatið“ í ríkiskerfinu Miklar endur- bætur á Kleppi Miklar endurbætur standa nú yflr á aðalbyggingu Kleppsspítala og hefur byggingin verið rýmd að mestu leyti. Eru nú aðcins sjúk- lingar á efstu hæð hússins en sjúk- lingar annarra dcilda hafa verið fluttir annað til bráðabirgða. Símon Steingrímsson hjá Ríkis- spítölum sagði að endurbætur á hinum ýmsu álmum Kleppsspítala hefðu staðið yfir um árabil. Varð- andi aðalbygginguna hefði að und- anförnu verið unnið að marghátt- uðum endurbótum innanhúss. Með tilkomu nýs lyftuhúss sem tengdi álmurnar saman hefði verið kostur á að brjóta niður annan stigaganginn í aðalbygginguna og fá þar rými fyrir skrifstofur og aðra aðstöðu starfsfólks. Aðspurður sagði Símon að húsameistari ríkis- ins hefði haft yfirumsjón með öllum framkvæmdum og reynt hefði verið að gæta þess að raska sem minnst öllu samræmi í húsinu. -v. Porskaflinn í mars: 3 þúsund lestum rninni en í fyrra Heildarþorskaflinn í marsmán- uði sl. var liðlega 50 þúsund lestir sem er um 3000 lesta minni afli en á sama tíma í fyrra. Þorskaflinn það sem af er árinu er nú orðinn 84.066 lestir samkvæmt bráðabirgðatöl- um Fiskifélagsins en var í aprílbyrj- un í fyrra 96.789 lestir. Þrátt fyrir góðan þorskafla hjá vertíðarbátum við Breiðafjörð hafa bátar sunnanlands lítið náð í þorsk á vertíðinni. Þorskaflinn í mars hjá bátunum var um 35.500 lestir en nærri 43.000 lestir á sama tíma í fyrra. Þorskafli togaranna í mars var rúmar 14.000 lestir sem er ríflega 4.000 lestum meiri afli en í fyrra. Heildarfiskaflinn þrjá fyrstu mánuði ársins er nú orðinn 586.512 lestir en var á sama tíma í fyrra aðeins 179.719 lestir. Þarna munar að sjálfsögðu mest um loðnuna en loðnuaflinn þrjá fyrstu mánuði árs- ins var 418.713 lestir. Mestum afla í mars var landað í Vestmannaeyjum 45.641 lest. I Reykjavík komu á land rúmar 24.000 lestir og um 18.500 í Grindavík. Þar var landað mestum þorskafla í mánuðinum eða 5.405 lestum en í Ólafsvík var landað 5.383 lestum af þorski í sl. mánuði. Sveinn Grétar Jónsson, formaður Varðbergs: Tökum undir yfirlýs- ingu Friðarpáska 1984 „Við tökum undir yfirlýsingu gesta á Friðarpáskum 1984 af full- um hug, eins og aðrir gestir þessar- ar friðarviku“, sagði Sveinn Grétar Jónsson, formaður Varðbergs, í samtali við Þjóðviljann í gær. Yfirlýsing þeirra aðila, er að friðarvikunni standa, felur ma. í sér að heitið er á íslensk stjórnvöld að taka upp einarða andstöðu gegn kj arnorkuvígbúnaði og vopna- kapphlaupi. Fulltrúar íslands sátu hjá við atkvæðagreiðslu á tillögu Svíþjóðar og Mexíkó á þingi S.Þ. sl. haust um stöðvun kjarnorku- vopnaframleiðslu. Yfirlýsing Friðarpáskanna 1984 felur einnig í sér að uppsetning nýrra kjarnorku- eldflauga NATÖ í Evrópu verði stöðvaðar, svo og hernaðarfram- kvæmdir hér á landi, meðan kjarn- orkuveldin vinna að samkomulagi um stöðvun kjarnorkuvígbúnaðar og kerifsbundna afvopnun. „Við viljum ná sem breiðustum grundvelli í baráttunni fyrir því takmarki að koma á friði í heimin- um“, sagði Sveinn Grétar enn- fremur. „Fólk vill kannski fara mis- munandi leiðir að því marki, en á- greiningur er ekki um hið endan- lega markmið. Við viljum leggja jafn mikið á okkur til að þessu markmiði verði náð eins og allir aðrir íslendingar, en öll þráum við frið heitast af öllu“. ast Samtök áhugafólks um kvikmyndagerð efna til árlegrar kvikmyndahátíðar um helgina á Hótel Loftleiðum. Verða þar sýndar kvikmyndir sem gerðar eru af áhugafólki og er öllum heimil þátttaka í sýningum. Menn mega koma með bæði filmur og myndbönd, 8 og 16 millimetra. Myndunum verður skipt í tvo flokka, undir og yfir tvítugu. Keppt er um farandbikar, gefinn af Hans Petersen hf, einn í hvorum flokki. Bestu myndirnar verða svo sendar á norrænu kvikmyndahátíðina sem haldin verður síðar. Hátíðin hefst kl. 14 í dag, og á morgun verða verðlaun afhent. Að því loknum hefst þing SÁK. Myndin hér að ofan var tekin á námskeiði SÁK fyrir skömmu.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.