Þjóðviljinn - 07.04.1984, Síða 32
wðviuinn
Helgin 7.-8. apríl 1984
Ummœli Sverris
vekja athygli:
Er þetta
satt?
Þau ummæli Sverris Hermanns-
sonar iðnaðarráðherra, sem höfð
voru eftir honuni í tveimur stærstu
blöðum Finnlands, að ísland væri
kjörið land fyrir erlenda auðhringi
að fjárfesta í, þar sem laun væru
hvergi lægri en hér og að ísland
væri „Singapore“ Norður-Evrópu,
vöktu feiknalega athygli í Finn-
landi.
í vikunni sem er að líða voru
fjórir íslenskir blaðamenn þar ytra
í boði finnska utanríkisráðuneytis-
ins. Eftir að ummæli Sverris birtust
urðu þeir oft að svara spurningunni
- Er þetta satt? -
Þeir Finnar sem spurðu undirrit-
aðan að þessu sögðust hafa haldið
að ísland væri velferðarríki á borð
við önnur Norðurlönd.
Þetta er svo sem ekki í fyrsta sinn
sem iðnaðarráðherra viðhefur
þessi ummæli, því eins og menn ef-
laust muna var þetta sama sagt í
bæklingi sem iðnaðarráðherra lét
semja og senda vítt um heiminn sl.
haust, þegar hann var að reyna að
laða að erlenda auðhringi.
- S.dór
Dreifa
ágóðanum
til fólksins
segir Albert
um skuldabréfa-
sölu bankanna
„Það er gott þú minntir mig
á þetta, ég ætlaði einmitt að fá
upplýsingar um þessa hluti
hér í ráðuneytinu. Ef bank-
arnir hafa efni á því að yfir-
bjóða okkur þá hlýtur það að
vera gott fyrir fólkið að
eitthvað af ágóða bankanna sé
dreift svona eða á annan
hátt“, sagði Albert Guð-
mundsson fjármálaráðherra
aðspurður hvort skuldabréfa-
saia bankanna væri ekki yfir-
boð á ríkisvíxlasölu ríkis-
stjórnarinnar
Vaxandi samkeppni um spariskírteinin
Utvegsbankinn býður
2000 króna skírteini
Aðalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tíma er
hægt aö ná í blaðamenn og aöra starfsmenn blaösins í þessum símum: Ritstjórn
81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er
hægt að ná í afgreiðslu blaösins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348
og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld.
Aðalsími Kvöldsími Helgarsími
81333 81348 81663
Iðnaðarráðherra Sverrir Hermannsson skýrir fréttamönnum frá kaupum Japana á hlutabréfum í Járnblendi-
verksmiðjunni. Á myndinni eru frá v. Hjörtur Torfason, SH, Jóhannes Nordal og Gunnar Schram. Ljósm.-eik-
Járnblendiverksmiðjan á Grundartanga:
Japanir kaupa 15%
Samninganefnd um stóriðju
sem svo heitir ásamt iðnaðarráð-
herra boðaði fréttamenn á sinn
fund í gær til að tilkynna um sam-
komulag sem náðst hefur við Elk-
em A/S og japanska fyrirtækið
Sumitomo um að Japanirnir kaupi
15% hlutabréf í Járnblendiverk-
smiðjunni af Elkem A/S. Jafnframt
skuldbinda Japanirnir sig til að
kaupa 20 þúsund tonn árlega af
framleiðslu verksmiðjunnar. Þá er
gert ráð fyrir óbreyttu raforkuverði
til verksmiðjunnar, þar til ákveð-
inni arð- og eiginfjárstöðu verk-
smiðjunnar er náð, þá geta samn-
ingar um hækkun raforkuverðs
hafist. Þá skuldbindur Elkem A/S
sig til að kaupa 30 þús. lestir af
framleiðslu verksmiðjunnar ár-
lega. Þannig er tryggð 30 þúsund
lesta sala á járnblendi árlega.
Þá eru í samningsdrögunum
ákvæði um breytingar á hluthafa-
lánum í hlutafé og að núverandi
hluthafar leggi fyrirtækinu til nýtt
eigið fé að upphæð 120 milj. Nkr.
FH vann
FH-ingar verða ís-
landsmeistarar í meistara-
flokki karla í handbolta, -
um það er íþróttafrétta-
maður blaðsins ekki í vafa
eftir sigur þeirra á Víking-
um í gær. Stjarnan og Val-
ur gerður jafntefli.
______________Sjá 30
Stjórn Sjó-
mannasambandsins
Vill verk-
fallsheimild
Framkvæmdastjórn Sjómanna-
sambands íslands beindi í gær þeirn
tilmælum til aðildarfélaga sinna að
þau afli sér verkfallsheimildar hið
fyrsta. Jafnframt var samþykkt að
vísa kjaradeilu sjómanna og út-
gerðarmanna til sáttasemjara.
Skipstjórar á farskipum hafa
boðað verkfall dagana 16.-18. og
24.-27. aprfl og í gær hafði ekki
verið boðaður sáttafundur í deilu
þeirra.
Flugfreyjur á DC-8 vélum hafa
boðað verkfall 12. þ.m. og hefur
sáttafundur verið boðaður.
Þá hefur ríkissáttasemjari boðað
samninganefnd starfsmanna ríkis-
verksmiðjanna til sáttanefndar á
þriðjudag en þeir felldu samning-
ana á dögunum. -ÁI
Miðstjórn ASÍ varar ríkisstjórnina við:
Griðrof stjórnvalda
verði hótanir um skattahœkkanir framkvæmdar
Forsendur kjarasamninga eru
brostnar að mati miðstjórnar Al-
þýðusambands íslands, ef ríkis-
stjórnin hyggst framkvæma hót-
anir ráðherra um stórfelldar
skattahækkanir og miklar álögur
á nauðþurftir. 1 ályktun mið-
stjórnarinnar í gær segir m.a.:
„Miðstjórn ASí varar stjórnvöld
við. Með slíku áhlaupi á afkomu
launafólks væru forsendur samn-
inganna brostnar og þau griðrof á
ábyrgð stjórnvalda“.
Alyktun miðstjórnarinnar frá í
gær hljóðar svo:
„Með nýgerðum kjarasamn-
ingum var stefnt að því að við-
halda á samningstímanum þeim
kaupmætti, sem launafólk bjó við
á fjórða ársfjórðungi síðasta árs
og bæta sérstaklega stöðu þeirra
tekjulægstu og þeirra sem búa við
þunga framfærslu.
Efnahagsstefna stjórnvalda
ræður hins vegar úrslitum um
endanlega niðurstöðu í þessu
efni. Það er grundvallarforsenda
samninganna að stjórnvöld hagi
stefnu sinni í samræmi við þau
markmið sem sett voru við samn-
ingsgerðina.
Við afgreiðslu fjárlaga gáfu
ráðamenn yfirlýsingar um að
fjárlagagerðin stæði á föstum
grundvelli og ekki kæmi til frek-
ara skattaálags á launafólk.
Nú hóta ráðherrar aftur á móti
stórfelldum skattahækkunum og
miklum álögum á nauðþurftir.
Fari þessi áform fram, munu þau
valda þungum búsifjum hjá lág-
launafólk. og sérstaklega fólki
með þunga framfærslu. Ymislegt
í niðurskurðaráformum ríkis-
stjórnarinnar sýnist stefna í sömu
átt.
Miðstjórn Alþýðusambands
íslands varar stjórnvöld við. Með
slíku áhlaupi á afkomu launa-
fólks væru forsendur samning-
anna brostnar og þau griðrof á
ábyrgð stjórnvalda“. - ÁI
Albert Guðmundsson vill í borgarstjórn aftur
Ráðherrastóllmn
ekki æviráðnmg
Háir mér að geta ekki setið borgarstjórnarfundi
en Landsbankinn
setur lágmarkið
við 10.000 kr.
Mikil samkcppni virðist í upp-
siglingu milli bankanna um að ná
til sín innlánum viðskiptavinanna
og hafa bæði Landsbanki íslands
og Útvegsbanki íslands boðið til
kaups nýja tegund spariskírteina
sem bcra 6% hærri vexti cn al-
mennar sparisjóðsbækur. Lands-
bankinn reið á vaðið fyrr í vik-
unni og tilkynnti um 10.000 króna
skírteini, en í gær ákvað banka-
stjórn Útvegsbankans að ganga
lengra og býður til sölu 2000
króna skírteini. Hefst sala skír-
teinanna á mánudag.
f reglum bankanna varðandi
þessi nýju innlán segir að
kaupandi geti innleyst þau hve-
nær sem er að 6 mánuðum liön-
um. Ef hann kaupir aftur skír-
teini til annarra 6 mánaða nær
hann 22.1% ársvöxtum en þess
má geta að ársvöxtun sparisjóðs-
bóka er aðeins 15% í dag. Inn-
leysi kaupandinn ekki skírteinið
á gjalddaga sér bankinn um að
leggja áfallna vexti við upphæð-
ina og ávaxtast hún þá á kjörum
almennra sparisjóðsbóka. Þess
má geta, að breytist almennir
vextir á tímabilinu haldast vextir
spariskírteinanna óbreyttir.
Eins og áður segir hefst sala
skírteina Útvegsbankans og
Landsbankans nk. mánudag, 9.
apríl og verða þau seld á af-
greiðslustöðum bankanna um allt
land. Menn ráða upphæð skír-
teinanna en þó að því tilskildu að
hjá Landsbankanum er lágmark-
ið 10.000 krónur. Útvegsbankinn
stflar hins vegar meira inn á „litia
manninn“ eins og einn talsmanna
bankans komst að orði í gær og
seturlágmarkið við aðeins 20C0
krónur.
- v. k ast
„Það vil ég ekkert um segja. Ráð-
herrastóllinn er ekki æviráðning og
ekki heldur borgarfulltrúastaðan
sem slík. Eg ætla bara að reyna að
gegna þeim trúnaðarstörfum sem
borgarbúar hafa kosið mig í sem 1.
þingmaður Reykvíkinga og ég er
borgarfulltrúi og ég ætla að reyna
að sinna þeim störfum sómasam-
lega“, sagði Albert Guðmundsson
fjármálaráðherra í samtali við
Þjóðviljann í gær aðspurður um
hvort afturkoma hans í borgar-
stjórn Reykjavíkur væri vísbend-
ing um að hann hyggðist bráðlega
hætta ráðherrastörfum.
„Það hefur ekkert létt á mér
borgarmálum fyrir einstaklinga
síðan ég varð ráðherra. Þeir leita til
mín hingað í ráðuneytið alveg eins
og þeir gerðu áður. Ég sé ekki að
það hafi breytt miklu þó ég hafi
fært mig um set. Ég hef lítið getað
fylgst með störfum borgarstjórnar
síðan ég fór þaðan og það háir mér
að geta ekki setið borgarstjórnar-
fundi, en ég ætla ekki inn í nein af
þeim embættum sem ég var í
áður“.
Þú segir í samtali við Morgun-
blaðið að störf flestra borgarfull-
trúa sé ekki annað en mæta tvisvar í
mánuði á borgarstjórnarfundi. Er
málum þannig háttað hjá ykkur
Sjálfstæðismönnum?
„Það eru líka flokksfundir til
undirbúnings og síðan ráðast störf-
in af því í hve mörgum nefndum
menn starfa hverju sinni en út af
fyrir sig þá eru þetta ekki nema
borgarstjórnarfundirnir. Þetta
verður ekki tímafrek vinna utan
við það hjá mér núna“.
Átt þú von á góðum móttökum
samflokksmanna þinna?
„Ég hef alltaf fengið góðar mót-
tökur enda eru það ekki mennirnir
sem einstaklingar sem ráða því
hverjir raðast saman, það eru borg-
arbúar sem kjósa í borgarstjórn og
það er ekkert spursntál um mót-
tökur eða ekki móttökur", sagði
Albert Guðmundsson.
-lg-