Þjóðviljinn - 27.04.1984, Side 11
Fimmtudagur 26. aprfl 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11
íþróttir Víðir Sigurðsson
Helgar-
sportið
Handbolti
Bikarúrslitaleikur karla milli Víkings og
Stjörnunnarverðurháðurum helgina. Sjá
annars staðar á síðunni.
Knattspyrna
Tveir leikir fara fram á Reykjavíkurmót-
inu í meistaraflokki karla. Fylkir og Ár-
mann mætast á Melavellinum kl. 14 á
morgun og Víkingur-KR á sama stað og
samatímakl. 14ásunnudag. Víkingurog
Fram leika í kvennaflokki kl. 19 á mánu-
dagskvöldið á Melavellinum. Okkur hafa
engar upplýsingar borist um Litlu bikar-
keppnina en í henni verður sjálfsagt leikið
um helgina.
Hlaup
Hvammstangahlaupið margáðuraug-
lýsta fer loks fram á morgun, laugardag,
og hefst við félagsheimilið á Hvamms-
tanga kl. 14.
Lyftingar
Meistaramót íslands kraftlyftingum
verður haldið í Laugardalshöllinni á morg-
un, laugardag. Léttari flokkarnir byrja kl.
10, miðflokkarnir kl. 13 og þyngstu flokk-
arnir kl. 16.
Glíma
Íslandsglíman 1984 verður haldin á
morgun, laugardag, að Laugum í Suður-
Þingeyjarsýslu.
Skíði
Andrésar Andar-leikarnir fara fram á
Akureyri. Þeir verða settir í kvöld, keppni
hefst kl. 10 í fyrramálið og lýkur á mánu-
dag. Reiknað er með 500-600 þátttak-
endum af yngri kynslóðinni víðs vegar að
af landinu.
Bláfjallagangan 1984, skíðaganga fyrir
almenning og keppnisfólk, verður haldin
á laugardaginn í fimmta skipti. Gengið
verður frá Bláfjöllum í Hveradali, 20 km
leið, og sér Skíðafélag Reykjavíkur um
framkvæmd göngunnar.
Skráning fer fram í Hveradölum kl. 11 í
fyrramálið og kl. 11.45 fer rúta þaðan í
Bláfjöll. Þátttökugjald er kr. 200 og fá
keppendur hressingu á leiðinni og í Hver-
adölum að göngu lokinni.
(Ath. - Til að greint verði frá íþróttavið-
burðum komandi helgar í Helgarsportinu
þurfa upplýsingar um þá að hafa borist á
hádegi á fimmtudegi.)
-----7--------——-------------
Svanhildur
fímmfaldur
meistari
Svanhildur Kristjónsdóttir, Breiðabliki,
sigraði í fimm greinum á Héraðsmóti
UMSK í frjáisum íþróttum innanhúss sem
lauk fyrir viku. Hún hljóp 50 m grindahlaup
á 9,1 sek, stökk 5,18 m í langstökki, 2,52 m í
langstökki án atrennu, kastaði kúlu 9,18 m
og hljóp 50 m á 6,8 sek. Inga Ólafsdóttir,
Breiðabliki, vann hinar tvær kvenna-
greinarnar. Hún stökk 1,20 m í hástökki án
atrennu sem er héraðsmet og 1,60 m í há-
stökki með atrennu.
Sigsteinn Sigurðsson, Aftureldingu,
vann þrjár karlagreinar; stökk 3,24 m í
langstökki án atrennu, 9,42 m í þnstökki án
atrennu og 1,55 m í hástökki án atrennu.
Sigurjón Valmundsson, Breiðabliki, vann
tvær; hljóp 50 m grindahlaup á 7,8 sek, og
stökk 6,67 m í langstökki. Helgi Hauksson,
Breiðabliki, sigraði í hástökki, stökk 1,75
m, og Hjalti Árnason, Aftureldingu, í kúlu-
varpi, kastaði 12,13 metra.
Middlesboro er
nánast sloppið
Middlesboro tryggði sér í fyrrakvöld nánast
örugglega áframhaldandi sæti í 2. deild ensku
knattspyrnunnar með því að sigra efsta liðið,
Sheffield Wednesday, 2-0. Boro er þar með kom-
ið níu stigum uppfyrir fallsæti þegar fjórum um-
ferðum er ólokið. Sheff.Wed. hefði tryggt sér 1.
deildarsæti með jafntefli en er öruggt upp eftir
sem áður, þarf aðeins eitt stig úr síðustu fimm
leikjunum og ætti að ná því á heimavelli gegn
Cr.Palace á morgun. í 3. deild á Bradford City
möguleika á 2. deildarsæti eftir 1-0 sigur á New-
port. _VS
Tap gegn Noregi í Evrópukeppninni í körfuknattleik:
Lokamínútur hálfleíkj -
anna voru verstar
ísland beið lægri hlut fyrir hávöxnu liði
Norðmanna, 63-84, í C-riðli Evrópukeppn-
innar í körfuknattleik sem nú stendur yfir í
Noregi. Þetta var fyrsti leikur íslands af fjór-
um en liðið mætir Portúgölum í kvöld,
Dönum á morgun og Skotum á sunnudag.
íslenska liðið sýndi mjög góðan varnarleik
í fyrri hálfleik og hélt hávöxnum Norsurum
(tveir þeirra eru reyndar bandarískir) alveg í
skefjum. Lítið var skorað í byrjum, staðan
4-4 eftir 6 mínútur og 18-17 fyrir Noreg á 14.
mínútu. Rétt fyrir hlé munaði þremur stig-
um, 30-27, en með óðagoti og flumbrugangi
misstu íslensku strákarnir þá norsku átta stig-
um framúr fyrir hálfleik, 29-37.
Norðmenn juku fljótlega forystuna í seinni
hálfleik, 47-35 eftir 4 mínútur og síðan 69-53
uppúr miðjum hálfleik. Sá munur hélst framá
Torfi Magnússon var yfirburðamaður í ís-
lenska liðlnu í gærkvöldi.
lokamínútuna, staðan var 78-63 þegar hún
upphófst en þá upphófst sama vitleysan hjá
íslenska liðinu og undir lok fyrri hálfleiksins
og Norðmenn skoruðu sex síðustu stigin, 84-
63.
Torfi Magnússon var yfirburðamaður í ís-
lenska liðinu og lék stórvel í vörn og sókn.
Jón Sigurðsson fyrirliði stóð sig vel og Flosi
Sigurðsson einnig. Sá hávaxni piltur lék
þama sinn besta leik í íslensku landsliðs-
peysunni að mati Hilmars landsliðsþjálfara,
„blokkaði" mikið af skotum í vörn og hitti
mjög vel. Kristján Ágústsson komst ágætlega
frá leiknum en aðrir voru lakari. Allir tíu
komu inná í leiknum.
Stigin skoruðu Flosi 12, Jón Sig. 12, Torfi
12, Kristján 8, Valur Ingimundarson 8, Pálm-
ar Sigurðsson 6 og Jón Kr. Gíslason 5.
Á undan unnu Portúgalir Skota 66-56 og í
fyrradag voru tveir fyrstu leikirnir. Noregur
vann Skotland 103-74 og Danmörk vann Por-
túgal 80-73. Staðan er því þessi:
Bikarúrslitin í handbolta í kvöld:_
Stjarnan með sterk-
Noregur...................2 2 0 187-137 4
Danmörk...................1 1 0 80-73 2
Portúgal..................2 1 1 139-136 2
fsland....................1 0 1 63-84 0
Skotland..................2 0 2 130-169 0
-VS
asta - vafí með Viggó Ross lék með
Stjarnan og Víkingur mætast í úrslitaleik
bikarkeppni karla í handknattleik í Laugar-
dalshöllinni kl. 20 í kvöld. Vfldngar eru hand-
hafar bikarsins og vel sjóaðir í úrslitaleikjum
en þetta er það lengsta sem handknattleiks-
menn Stjörnunnar hafa náð í sögu félagsins.
Stjarnan verður með sitt sterkasta lið í
kvöld, Brynjar Kvaran og Gunnar Einars-
son, sem báðir voru útilokaðir í leiknum gegn
Val í fyrrakvöld, verða með þar sem aga-
nefnd HSÍ fundaði ekki um mál þeirra í gær.
Hannes Leifsson er búinn að ná sér eftir
meiðslin sem héldu honum utan vallar í úr-
slitakeppninni á dögunum. Hjá Víkingi er
Eyjólfur Bragason fyrlrli&l Stjörnunnar. Tekur
hann vlð bikarnum í kvöld?
íslensku strákarnir hirtu
af þremur!
„Þetta er framtíðarlandsliðskjarni hjá
okkur, nú eigum við loksins stráka sem eru
ekkert síðri en toppmennirnir í sterkustu
löndum Evrópu. Löng leið er að baki, það
er skammt síðan okkar unglingalandslið
var að tapa fyrir þjóðum á borð við þær sem
við lékum við að þessu sinni með 60-80 stiga
mun“, sagði Einar Bollason þjálfari ung-
lingalandsliðsins í körfuknattleik sem kom
heim úr Evrópukeppninni í Vestur-
Þýskalandi í gær.
íslenska liðið lék í riðli með þremur A-
þjóðum, V-Þjóðverjum, Tékkum og ísra-
elsmönnum, og auk þeirra voru Skotar í
riðlinum. Fyrsta ieiknum, gegn V-
Þjóðverjum, tapaði ísland 79-89 eftir að
hafa verið 45-43 yfir í hálfleik og leitt 75-74
þegar aðeins þrjár mínútur voru til leiks-
loka. Frammistaða strákanna kom gífur-
lega á óvart, Vestur-Þjóðverjar eru með
geysisterkt lið sem vann síðan riðilinn.
Næst var leikið við Tékka en ísland átti
aldrei möguleika, Tékkar leiddu 47-34 í
hálfleik og unnu 86-61. Þriðji leikurinn var
•mikil óvissa með Viggó Sigurðsson. Hann á
við meiðsli að stríða en Víkingar töldu þó í
gær að hann myndi harka af sér og leika.
„Við vorum heppnir að vinna Þrótt í undan-
úrslitunum, vonandi var það meistaraheppn-
in! Leikurinn í kvöld gæti orðið sá mest
spennandi í allan vetur, ég á von á skemmti-
legri viðureign“, sagði Víkingurinn leik-
reyndi, Ólafur Jónsson, í gær.
„Leikir okkar við Víking hafa ávallt verið
jafnir og þessi verður það eflaust. Þegar við
sáum að við ættum enga möguleika á íslands-
meistaratitlinum, settum við stefnuna á bik-
arinn og við ætlum okkur ekkert annað en
sigur“, sagði Eyjólfur Bragason, fyrirliði
Stjörnunnar.
Búast má við miklu fjölmenni í Höllinni í
kvöld, en miðasala hefst kl. 19. Reiknað er
með að Garðbæingar mæti í stórum fylking-
um til að hvetja sína menn og stuðningsmenn
Víkings láta vart sitt eftir liggja, enda mikið í
húfi; bikarinn og Evrópusæti að auki.
Heiðursgestur á leiknum verður forseti ÍSÍ,
Sveinn Björnsson, og á undan fer fram úr-
slitaleikur í 1. flokki milli Vals og Breiða-
bliks. - VS.
tvenn einstaklingsverðlaun
við ísrael. Island var 34-33 yfir í hléi en
ísraelar stungu af í seinni hálfleik og unnu
89-62. í fjórða og síðasta leiknum hafði ís-
lenska liðið mikla yfirburði gegn Skotum og
vann glæsilega, 80-59, eftir 34-28 í hálfleik.
ísland varð því í fjórða sæti, en hirti samt
tvenn einstaklingsverðlaun af þremur. Jó-
hannes Kristbjörnsson úr KR var valinn
besti leikmaður mótsins og Birgir Mikaels-
son, KR, varð stigahæstur allra. Þessir tveir
báru upp liðið ásamt Henning Hennings-
syni og Guðna Guðnasyni. „Þessir fjórir
eiga allir heima í A-landsliði okkar í dag“,
sagði Einar um þessa lærisveina sína.
Fjórmenningarnir voru stigahæstir í öllum
leikjunum. Birgir skoraði 24 stig og Guðni
19 gegn V-Þjóðverjum, Henning og Birgir
14 hvor gegn Tékkum, Birgir 20 gegn ísra-
elum, Guðni 24 og Birgir 18 gegn Skotum.
Á leiðinni til V-Þýskalands voru leiknir
tveir leikir í Luxemburg. Strákarnir töpuðu
mjög naumlega fyrir A-landsliði heimanna,
71-69, en burstuðu unglingalandslið Lux-
emburgar, 101-58. _ ys.
1. deildarlið Vals í keppnis- og æfingaför til
knattspyrnu er nýkomið Englands þar sem dvalið
heim úr vel heppnaðri var í nágrenni Wolver-
hampton. Þrír leikir
voru spilaðir, fyrst töp-
uðu Valsarar 0-5 gcgn
vel styrktu varaliði Ast-
on Villa í sögulegum leik
sem við höfum áður
greint frá og síðan töp-
uðu þeir 0-1 fyrir utan-
deildaliðinu Malvern.
Loks vann Valur sterkt
utandeildalið, Kidd-
ersminster Harriers 2-0
með tveimur mörkum
Jóhanns Holtons. Ian
Ross (til vinstri) þjálfari
Vals, kom inná í hálfleik
í þeim leik og hafði það
geysigóð áhrif á liðið.
-VS
Ekkert mark
Fram og Þróttur gerðu markalaust jafntefii
í þófkenndum leik á Reykjavíkurmótinu í
knattspyrnu í gærkvöldi. Framarar eru þar
með efstir, hafa 7 stig, KR 6 og Þróttur 5 stig
en hvert þessara þriggja efstu liða hefur leikið
þrjá leiki.
Guðni fer en
Birgir kemur
Úrvalsdeildarlið KR í körfuknattleik
missir að öllum líkindum hinn bráðefnilega
unglingalandsliðsmann Guðna Guðnason til
Bandaríkjanna í haust. Hann hefur mikinn
hug á námi þar í landi. Aftur á móti er öruggt
að KR fær Birgi Mikaelsson aftur í sínar raðir
en hann var í Bandaríkjunum sl. vetur. Birgir
var stigahæsti ieikmaður riðlisins sem ísland
lék í á Evrópumóti unglingalandsliða sem sagt
er frá hér á síðunni. Jóhannes Kristbjörns-
son, sem var valinn besti leikmaður sama
móts, er einnig KR-ingur, verður hins vegar
eitt ár til viðbótar vestanhafs.
-vs
Firmakeppni IBK
Firmakeppni í körfuknattleik á vegum ÍBK
verður haldin í íþróttahúsinu í Keflavík helg-
ina 5.-6. maí nk. Þátttökutilkynningar þurfa
að hafa borist fyrir 1. maí í síma 92-3542 og
92-3120, eftir kl. 18 á daginn.
„Löng leið að baki“