Þjóðviljinn - 28.04.1984, Side 12
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 28- - 29. apríl, 1984 ,
1
17 dagar meö
Sandínistum
GREIN
EINAR KARL HARALDSSON
SEGIR FRÁ
FERÐ UM NICARAGUA
í Nicaragua,
herrar mínir,
étur músin köttinn!
Hitinn skeliur á mann eins og löðrungur um leið og stigið er
út í loftkældri DC-10 frá Iberia-flugfélaginu á flugveilinum í
Managua, og opnar allar svitaholur upp á gátt. Það er heitasti
árstíminn á vesturströnd Nicaragua, þurrt og græni liturinn
sem er ráðandi hefur á sér sviðinn blæ. Og moldin brúna
þyrlast í golunni því það er „fresco“ eins og þarlendir segja,
svalandi vindur sem gerir hitasvækjuna bærilega. í Nicarag-
ua eru tvær árstíöir, „verano“ hin þurra tíð, sumarið, sem
stendur frá nóvember og lýkur í apríl, og veturinn „invierno",
hin blauta tíð frá maí til október.
Ferðalangur rekur augun í
nokkrar magnlitlar loftvarnarbyss-
ur við flugvöllinn sem minna á að
Nicaragua er umsetið land sem
Bandaríkjastjórn rekur óopinbert
stríð gegn. I Jose’Martinez flug-
vellinum á Kúbu standa Illjushin
vélarnar í röðum, en í Managua er
ekki annað að sjá en ómerkta DC-8
vél, gamla DC-6 og nokkrar smár-
ellur sem bera á sér ellimerki.
Draugamiðborg
Höfuðborgin Managua er slíkur
viðburður í augum aðkomumanns
að þau eiga erfitt með að nema allt
sem fyrir ber. Miðbærinn er enn í
rúst eftir jarðskjálftana miklu
1972, en áður voru þar byggingar í
spænskum barokkstíl, nýtísku
skýjakljúfar og markaðir. Horfið
var frá því að byggja upp að nýju á
jarðskjálftasprungunni, og smám-
saman er verið að breyta svæðinu í
útivistarparadís. En jafnvel verk-
smiðjur Somoza, sem þarna voru,
hafa ekki verið endurreistar. í
þessari draugamiðborg hefst enn
við fjöldi fólks og eru aðstæður all-
ar ömurlegar. Við ökum síðan út
fyrir borgina áleiðis í næturstað og
strax á fyrsta degi stinga í augun
þau fyrirbæri sem eru svo einkenn-
andi fyrir ástandið í Nicaragua.
650 þúsund manns búa í Manag-
ua, og borgin teygir sig yfir stórt
svæði þar sem skiptast á verka-
manna „barrio" og miðstéttar-
hverfi í nánu sambýli. „Ó þetta fólk
mitt í kassafjalahúsunum", segir
eitt suður-ameríska skáldið í
kvæði. Hrófatildur með moldar-
gólfum og byggingarefni úr öllum
áttum sem hrúgað er saman er sjón
sem allsstaðar blasir við. Þó er ekki
allt sem sýnist og þegar inn í verka-
mannahverfin kemur sést að þau
eru skipulögð og inn á milli hafa
verið byggð góð hús með hlöðnum
veggjum til hálfs, timburgrind og
klæðningu, sem oft er svo illa til-
sniðin að hún gefur húsunum fá-
tæktarblæ. Viðurinn er harður og
verkfærin léleg. (Hér má skjóta því
inn að bandarísk auðfélög höfðu
gengið hart að skógunum á austur-
strönd Nicaragua fyrir byltinguna
og rúið þá af kjörviði. Þar á ofan
bætist að umsvif „contrunnar"
svokölluðu á helstu skógarhöggs-
svæðunum hafa gert alla viðarað-
drætti erfiða og hækkað verð á
borðviði um 50% á hálfu ári. Þann-
ig má sjá að það stríð sem banda-
ríska Ieyniþjónustan CIA skipu-
leggur til þess að lama efnahags-
kerfi Nicaragua hefur sín áhrif.
Þetta kemur sér afar illa því víða
um landið má sjá glögg merki um
mikla húsnæðisuppbyggingu, jafnt
til sveita sem í borgum.)
Allsstaðar
eru börnin
Og svo eru það börnin. Allsstað-
ar eru börnin. 5-6 og 7 á vappi
kringum húsin innanum hænur,
grísi og hunda sem alþýða manna
hefur við hus sín hvort sem búið er í
bæ eða sveit. Þau virðast flest vel
haldin og útþandir hungurmagar
eru ekki algeng sjón. Betl er sjald-
gæft, en hungur er þó áreiðanlega
víða á bæ, enda eru um 25% íbú-
anna í landinu utan við þann vísi af
velferðarkerfi sem komið hefur
veriðuppfrá„Sigrinum“ 1979. Það
er fólk sem lifir á götuverslun,
svartamarkaðsbraski og hvers-
konar lausamennsku, og hefur enn
enga festu í sínum lífsháttum. Eða
þá fólk sem býr á svæðum sem
skipulag hefur náð til nema hvað
snertir bólusetningarherferðir og
lestrarkennslu. Barnadauðinn í
Nicaragua var með því hæsta sem
þekkist í heiminum á Somoza tím-
anum. Með gífurlegu átaki í
heilbrigðismálum, sem hvergi
nærri er þó fullkomnað, er barna-
dauði orðinn minni en í flestum
þróunarríkjum. Þjóðinni hefur
fjölgað um 20% eftir „Sigurinn“ og
börnin setja svip sinn á allt þjóðfé-
lagið. Margir halda því fram að
barnadauði sé mælikvarði á þjóð-
skipulag í þróunarríkjum. Á þeim
mælikvarða stendur Nicaragua
hátt.
Barnabylting
Á byltingartorginu í Managua
halla sér tveir drengir, líklega
u.þ.b. tíu ára, upp að styttu. í
kjöltu þeirra liggja tveir fornlegir
rifflar og mynda kross þar sem þeir
sitja þétt hvor við annan heldur
syfjulegir í hitanum, og hafa stuðn-
ing hvor af öðrum. Þeir brosa
feimnislega þegar við tökum að
smella af þeim myndum í gríð og
erg. Þetta var sjón sem ég var lengi
að venjast. Kornungt fólk sem
byltingarverðir, og 14-15 ára strák-
ar sem fullgildir í varaliðinu við
varðgæslu nálægt átakasvæðum.
En þannig var það að æskufólkið,
allt niður í 8-9 og 10 ára tók virkan
þátt í uppreisn alþýðunnar gegn
Somozaeinræðinu og bandaríska
arðráninu. Krakkarnir í verka-
mannahverfunum fóru í kapp um
það hvaða hópur væri fljótastur að
reisa varnarvirki, og veittu bylting-
armönnum margvíslega aðstoð,
t.d. með því að bera skilaboð á
milli og halda uppi njósn. Fræg er
hetjusaga Luis Alfonso Velasques,
sem er einn af píslarvottum bylt-
ingarinnar. Níu ára gamall var
hann leiðtogi hreyfingar forskóla-
barna. Hann dreifði áróðri
þjóðfrelsishreyfingar Sandinista,
safnaði fé til stuðnings verkfalls-
mönnum og veitti Sandinistum
skjól í bardögum með því að kasta
bensínsprengjum að þjóðvarðlið-
um. Saga hans er ekki aðeins saga
um mikla hugdirfsku heldur ber
hún einnig vott um þann mikla pól-
itíska þroska sem einkennir margt
æskufólk í Nicaragua. Luis Al-
fonso Velasques var skotinn til
bana af dauðasveit Somoza í maí
1979.
Ungt fólk
íöndvegi
Á ferð okkar um Nicaragua hitt-
um við marga af svæðisforingjum í
fj öldahreyfingum Sandinista,
verkalýðshreyfingu bænda,
kvennahreyfingunni, mennta-
hreyfingunni og fl. Flest var þetta
fólk um og yfir tvítugt, en hafði að
baki sér sex til átta ára reynslu í
pólitískri baráttu og vopnuðum
átökum. Þegar þess er gætt að
helmingur þjóðarinnar er undir tví-
tugu, um ein og hálf milljón af tæp-
lega þremur milljónum íbúa, þá er
það ekkert undarlegt að ákveðið
hefur verið að miða kosningaaldur
við 16 ár í kosningunum sem fram
eiga að fara 4. nóvember
næstkomandi. Annað hefði verið
svik við þann æskulýð sem átti stór-
an hlut að sigrinum 1979. í alþjóð-
legum fjölmiðlum hefur þetta verið
lagt út sem bragð af hálfu Sandin-
ista til þess að tryggja sér meiri-
hluta í kosningunum. Hitt er sönnu
nær að æskulýðssamtök Sandinista
hefðu að öðrum kosti snúist gegn
byltingunni, enda í hæsta máta
ólýðræðislegt ef æskufólk hefði
ekki fengið að taka þátt í kosning-
unum.
Og hversvegna skyldi æskufólk í
Nicaragua ekki styðja Sandinista.
Það fær að lifa í stað þess að eiga
dauðann vísann áður, það sér fram
á staðfestu og verkefni, það hefur
fengið að Iæra að lesa, það hefur
fengið að kynnast sinni eigin sögu,
það hefur öðlast trú á land sitt og
þjóð. Jafnvel borgarabörnin snúa
baki við fortíð sinni og hrífast með í
hinni þjóðlegu uppbyggingarstarf-
semi Sandinista.
Vöruskorturinn
Þrátt fyrir að uppbygging blasi
víða við í sveitum landsins og marg-
vísleg stórverkefni séu í gangi bæði
í landbúnaði og iðnaði, þá er kyrk-
ingur í efnahagslífinu og tilfinnan-
Iegur skortur á ýmsum vörum. Það
er í rauninni stórkostlegt upplifelsi
að horfa á bílaflota landsmanna.
Allt sem snýst og hægt er að koma
mótor í er notað. Og um allt getur
að líta bflhræ sem rifin hafa verið í
sundur til þess að nota í varahluti.
Þeir meistarar sem halda vélum og
tækjum gangandi í hinum mikla
skorti á varahlutum eru heldur bet-
ur taldir til manna í Nicaragua og
þá ekki síður sú stétt sjálflærða
„uppfinningamanna“, sem setur
saman þreskivélar og önnur land-
búnaðartól úr gömlu véladrasli
hingað og þaðan.
Almenningssamgöngur eru nið-
urgreiddar og fólk notar sér þær í
ríkum mæli. Gamlar bandarískar
herrútur, nýlegar evrópskar rútur
og mikill fjöldi japanskra skutbíla,
allt rúllar þetta um stræti og vegi,
ekki aðeins fullt, heldur yfirfullt,
svo fullt að fólk hangir á stuðurum,
tröppum og situr upp á farangursg-
rindum.Og á meðan vélarnar æpa
og stynja undan þunganum og
ryðja úr sér reyknum iætur fólkið
sér vel lynda, því hvað jafnast á við
aðhafa farartæki?í Managua er
ekki ráðlegt að fara stuttar leiðir
með bússunum, því farirðu inn að
framan ertu kominn borgina á
enda áður en þú kemst út að aftan.
Árangur
og kyrkingur
Hagvöxtur var 5% á árinu 1983 í
Nicaragua, og mun það vera mesti
hagvöxtur í allri Suður-Ameríku á
sl. ári samkvæmt tölum CEPAL í
Börnin eru allsstaöar - í Nlcaragua býr ung þjóð.