Þjóðviljinn - 10.05.1984, Page 12
20 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 10. maí 1984
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Munið
vorhappdrættið!
Dregið 10. maí!
Gerið skil
sem fyrst!
Stjórn ABR.
Aðalfundur 4. deildar ABR
Grensásdeild
Aðalfundur 4. deildar ABR verður haldinn fimmtudaginn 10. maí kl.
20.30 að Hverfisgötu 105. - Stjórn 4. deildar.
ABR
Samráðsnefnd í stefnuumræðu
Samráðsnefndarmenn, munið fundinn á fimmtudag, 10. maí kl.
20.30, að Hverfisgötu 105
Alþýðubandalagið
í Borgarnesi
Föstudaginn 11. maí verður haldin skírnarhátíð í hús-
næði félagsins að Brákarbraut 3. Hefst hátíðin kl. 21.
Helgi Seljan alþingismaður mætir á hátíðina og slær á
létta strengi. Boðið verður uppá fjölbreytt skemmtiefni,
m.a. leikur nýstofnuð djasshljómsveit Gunnars Ring-
sted. Góðar veitingar verða fram bornar. Hafið sam-
band í síma 7628 eða 7506. Allir velkomnir. - Alþýðu-
bandalagið í Borgarnesi.
Helgl Seljan.
Hjörleifur
Skólamál -
Nýr umræðuhópur
• Hvað er að gerast í ráðuneyti og á alþingi í skóla- og
fræðslumálum?
• Hvert er viðhorf kennara, námsmanna og foreldra til
áforma ríkisstjórnarinnar?
Þessar og fleiri spurningar verða ræddar í umræðu-
hópi sem fer af stað laugardaginn 12. maí kl. 16 aö
Hverfisgötu 105.
Hjörleifur Guttormsson byrjar umræðuna í framhaldi af
ályktunum landsfundar og sveitarstjórnarráðstefnu
AB. Allt áhugafólk velkomið. - Skólamálahópur AB.
i Æskulýðsfylking Alþyðubandalagsins
Reggie-kvöld
Föstudaginn 11. maí kl. 20.30 verður minningarkvöld um Bob Marley á
þriggja ára dánarafmæli hans. Jónatan Garðarsson mun kynna tónlist
hans, líf og trú á Jamaica. Allir Reggie-aðdáendur velkomnir á Hverfis-
götu 105 n.k. föstudag. - Nefndin.
Opinn stjórnarfundur
Sunnudaginn 13. maí verður opinn stjórnarfundur kl. 16.30 að Hverfis-
götu 105. Allir félagar velkomnir. - Stjórnin.
FJÓRÐUNGSSJÚKRA-
HÚSIÐ Á AKUREYRI
Staöa YFIRLÆKNIS Á GEÐDEILD F.S.A. er
laus til umsóknar.
Umsóknir er greini námsferil og fyrri störf
sendist framkvæmdastjóra F.S.A., sem gef-
ur nánari upplýsingar.
Umsóknarfrestur er til 1/6 1984.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
AÐALFUNDUR
Alliance francaise auglýsir aðalfund sem
verður haldinn mánudaginn 14. maí kl. 20.30
að Laufásvegi 12.
Stjórnin.
Minningarstofnun
um Maurice Bishop
Minningarstofnun um Maurice
Bishop forsætisráðherra Grenada
og þau sem féllu með honum 19.
október 1983, varð til á Grenada í
janúar s.l. Frumkvöðlar að henni
voru stuðningsmenn stjórnar Bis-
hops og eftirlifandi ráðherrar úr
stjórn hans.
Ríkisstjórn Maurice Bishops
komst til valda 13. mars 1979 þegar
einræðisstjórn Eric Gairys var
steypt af stóli. Hún naut almenns
stuðnings, ekki síst vegna bættra
lífskjara og félagslegra aðstæðna
alþýðufólks sem urðu í hennar tíð,
Hún hóf umfangsmikla uppbygg-
ingu og endurskipulagningu efna-
hagslífs á eyjunni, en það var á
frumstæðu stigi og mjög tengt
þjónustu við bandaríska ferða-
menn. í stjórnartíð Bishops komst
árlegt atvinnuleysi til að mynda úr
um 50% niður í 14%. Hagvöxtur
var árið 1982 5.5%, en á árunum
1960-75 var hann að meðaltali
1.6%.
Innrás Bandaríkjahers og herja
nokkurra ríkja í Karabíska hafinu á
Grenada fáum dögum eftir dauða
Bishops hafði í för með sér grund-
vallarbreytingar á stjórnarháttum
og högum almennings. Hið nýja
ríkisráð sem starfar undir leiðsögn
bandarískra ráðgjafa hefur meðal
annars stöðvað áætlanir á sviði fé-
lagsmála, lokað iðnfyrirtækjum á
vegum ríkisins og gert ráðstafanir
Annað tölublað kvennatímarits-
ins Veru á þessu ári er nú komið út.
Útgefandi er kvennaframboðið í
Reykjavík. Vera er einsog alltaf
troðfull af fróðlegu efni, þar er
meðal annars tekið vel á hvernig
tölvutæknin snertir konur og þar
koma fram þær upplýsingar að í
ritvinnslu eru konur miklu fjöl-
mennari en karlar en í forritun og
gagnavinnsiu snýst dæmið við. Af
hverju? Kayptu Veru og lestu þér
til um málið.
Þátturinn „Konur á vinnumark-
Maurlce Blshop fyrrum forsætlsráó-
herra Grenada sem myrtur var
skömmu fyrir innrás Bandaríkjahers
sl. haust.
til einkareksturs ríkisjarða. Hin
nýju stjórnvöld viðhafa tilraunir til
þess að afmá eða sverta minning-
arnar um Bishop og það fólk sem
með honum starfaði. Áróður af því
tagi er hafður í frammi í fjölmiðl-
um, innan verkalýðshreyfingarinn-
ar og á veggspjöídum.
Markmið stofnunarinnar er sam-
kvæmt tilkynningu frá aðstandend-
aði“ snýr sér að þessu sinni að
sjúkraliðastarfinu, fróðleikur um
fæðingarorlof er í Veru, skemmti-
leg grein segir frá takmörkun barn-
eigna gegnum tíðina og auk þess
eru bókadómar, gluggað í lög-
fræðilegt mat á konum, og merki-
leg grein sem fjallar um hvernig
auglýsingar geta oft og tíðum verið
ærið fjandsamlegar konum.
Vera fæst í öllum góðum bóka-
búðum, og náttúrlega á Hallæris-
planinu þar sem framvörðurinn er
til húsa. Reyfarakaup! -ÖS
um hennar 21. janúar 1984, á þessa
leið:
„Maurice Bishop og þau sem
týndu lífi með honum eru fulltrúar
hins besta og fómfúsasta í byltinu
okkar. Þess vegna skal minning
þeirra heiðruð. Stofnunin á að
tryggja að nöfn þeirra lifi áfram
fyrir augum og í hjörtum og hugum
fólks á Grenada...“
„Meginmarkmiðin em þessi:
• Að reisa minnisvarða til heiðurs
og minningar um hina myrtu.
• Að setja á stofn miðstöð sem
mun safna og dreifa efni og rit-
um um líf og störf þeirra.
• Að safna fé til aðstoðar þeim
sem eiga um sárt að binda vegna
atburðanna 19. október s.l.
• Að stofna sjóð til að styrkja fólk
til menntunar í æðri
menntastofnunum.
• Að vinna að því að mikilvægir
staðir á Grenada beri nöfn
þeirra sem féllu.
• Að finna jarðneskar leifar
þeirra og jarðsetja með virð-
ingu.
Stofnunin mun starfa í mörgum
deildum bæði á Grenada og í öðr-
um löndum.“
Hér hefur verið opnaður banka-
reikningur til stuðnings stofnun-
inni; og er utanáskriftin þesi:
Maurice Bishop Memory Foundat-
ion c/o Kristiina Björklund, 11943
Vesturbæjarútibú Landsbanka ís-
lands.
Kvennaframboð pœlir í tölvutœkni
Ný Vera komin út
Létta verður undir
með sjómönnum
Eftirfarandi ályktun hefur borist
Þjóðviljanum frá fundi skip-
stjórnarmanna og vélstjóra:
„Almennur fundur skipstjórnar-
manna og vélstjóra haldinn í Ólafs-
vík 5. apríl 1984 vekur athygli á því
ófremdarástandi sem nú er að
skapast vegna samdráttar í leyfi-
legum afla og orsakar stórfellt
atvinnuleysi og tekjurýrnun sjó-
manna. Fundurinn skorar á
stjórnvöld að taka nú þegar til at-
hugunar á hvern hátt létta megi
sjómönnum þá fjárhagslegu erfið-
leika sem nú blasa við þeim.
Nú þegar þessi ályktun er gerð
hafa 10 bátar eða 50% Ólafsvíkur-
báta stöðvast, þar sem þeir hafa að
fullu klárað sinn kvóta og er ekki
að sjá nein verkefni fyrir þá á næst-
unni.“
Samvinnuferðir-Landsýn
Aðödarafsláttur 4.7. milj.
A aðalfundi Samvinnuferða-
Landsýnar, sem haldinn var 27.
mars kom fram, að reksturinn hef-
ur eftir eftir atvikum gengið vel á sl.
ári, enda þótt heildartala farþcga í
utanlandsfcrðum ferðaskrifstof-
unnar hafi lækkað. Utan fóru 8.685
á móti 9.876 1982. Nemur fækkun-
in um 12%. Segja þarna til sín efna-
hagsþrengingar almennings. A
hinn bóginn fjölgaði erlendum
ferðamönnum, sem komu til iands-
íns a vegum skrifstofunnar úr 3.600
árið 1982 í 4.100 1983.
Brúttóvelta ferðaskrifstofunnar
var 204 milj. kr., jókst um 65%. Á
síðasta ári veitti skrifstofan 4,7
milj. kr. í aðildárafslátt. Horfur
eru á að afslátturinn verði á sjö-
undu milj. r' ár. Fjárfestingar á ár-
inu voru 1,2 milj. Vareinkum unn-
ið að endurbótúm á húsnæði
skrifstofunnar áð Austurstræti 12.
I stjórn Samvinnuferða-
Landsýnar eru þeir Hallgrímur Sig-
urðsson, Ásmundur Stefánsson,
Erlendur Einarsson, Haraldur
Steinþórsson, Ingi Tryggvason,
Axel Gíslason og Sigurður Þór-
hallsson. Eysteinn Helgason
framkvstj; hefur fengið leyfi frá
störfum í eitt ár. Á meðan gegnir
Helgi Jóhannsson framkvæmda-
stjórastarfinu.
-mhg