Þjóðviljinn - 30.05.1984, Qupperneq 16
dioðviuinnX A&alsimi Pjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tima er hægt að ná í blaðámenn og aðra startsmenn blaðsins í þessum simum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 -12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. Aðalsími Kvöldsími Helgarsími
Miðvikudagur 30. maí 1984 81333 81348 81663
i
MS-ísinn og brauðin borga
Mörgum verður starsýnt á hið stóra
og glæsilega húsnæði sem Mjólkursam-
salan er að byggja við Bitruháls í
Reykjavík. Mikiil kraftur er nú í bygg-
ingunni og frágangi lóðar, þannig að
húsið setur æ meiri svip á allan hálsinn.
Aftur á móti hefur það vafist fyrir
mörgum hvernig Mjólkursamsalan hef-
ur efni á að byggja þetta hús, þar sem
hún er rekin með það fyrir augum að
greiða bændum grundvallarmjólkur-
verð og uppbót ef um hagnað er að
ræða.
Guðlaugur Björgvinsson forstjóri
MS sagði í samtali við Þjóðviljann í
gær, að á síðasta ári hefðu verið lagðar
64 miljónir króna í húsið en hagnaður
af Emmess-ísnum og brauðgerð sam-
sölunnar hefði numið 75 miljónum
króna, ásamt afskriftum og verðbreyt-
ingagjöldum. Hann sagðist standa við
fyrri yfirlýsingar um að annað stæði
ekki eftir í rekstrinum en þetta. Allt
sem viðkemur mjólkursölunni umfram
kostnað rennur til bænda.
Eins og nýja mjólkurstöðin stendur
nú kostar hún 120 miljónir króna og
hvfla engin lán á henni. Aftur á móti er
fyrirhugað að stöðin fullbyggð og búin
tækjum kosti 420 miljónir króna.
- S.dór
Menntamálaráðherra tilkynnir breytingu á samræmdum prófum
Prófanefnd segir af sér
• Ekki hlustað á niðurstöður 500 sérfrœðinga í skólamálum
Ákvörðun um breytt fyrir-
komulag samræmdu prófanna í
9. bekk grunnskóla hefur verið
tilkynnt af hálfu menntamála-
ráðuneytisins. í dreifibréfi frá
ráðuneytinu kemur fram að
ákveðið hefur verið að halda
samræmdu prófln fyrstu dagana í
maímánuði. Einnig er ákveðið að
prófa í sömu greinum og fyrr.
Ennfremur er tilkynnt að úr-
vinnsla og einkunnargjöf verði á
vegum skólanna eingöngu.
Prófanefnd sendi menntamála-
ráðherra bréf í gær þar sem hún
óskar ekki eftir endurskipun
næsta vetur. Formaður skólamái-
aráðs sagði í viðtali við Þjóðvilj-
ann í gær að ákvörðun mennta-
málaráðherra væri í andstöðu við
álit 500 manna þings um skólamál
sem haldið var í fyrra haust.
„Stjórn og skólamálaráð sendi
ráðuneytinu bréf í desember um
niðurstöður þingsins, þar sem
fjallað var um samræmdu prófín.
Þar kemur fram að við erum á
móti samræmdu prófunum í því
formi sem þau hafa verið. Þau
ættu bara að vera fyrir skólana til
að meta skólastarfíð, en ekki mat
á árangri einstakra nemenda.
Með ákvörðun menntamálaráðu-
neytisins er verið að færa sam-
ræmdu prófin í gamlan farveg
landsprófsfyrirkomulagsins og er
það miður. Enda í andstöðu við
niðurstöður 500 sérfræðinga um
kennslu og skólamála á þingi
skólamanna í fyrra“, sagði Svan-
hiidur Kaaber formaður skóla-
málaráðs Kennarasambands ís-
lands við Þjóðviijann í gær.
„Já, það er rétt að Prófanefnd
tilkynnti menntamálaráðuneyt-
inu í dag að hún óskaði ekki eftir
endurskipun næsta vetur, enda
rennur skipunartími hennar út
31. maí. Ef á að halda áfram að
hafa samræmd próf þarf að fram-
kvæma þau af samræmingu og
nákvæmni. Ráðuneytið hefur til-
kynnt um breytingu á fyrirkomu-
lagi samræmdu prófanna.
Breytingin er ekki í samræmi við
það sem við onuðum að yrði
gert í framhaidi af hugmyndum
um framtíðarskipulag prófanna,
sem send var til skólanna fyrir
tveimur árum“, sagði Ólafur
Proppé.
„Ég er orðinn þreyttur á for-
mennsku í Prófanefnd. Ég hef
ekki verið aðdáandi samræmdra
prófa því ég tel þau hættuleg og of
mikið stýrandi. Það hef ég bent á
í ræðu og riti í mörg ár“.
-jp
Fegin að mér
var boðið
sagði Lovísa Matthíasdóttir listmál-
ari í stuttu spjalli á Kjarvalsstöðum
Eiturlyfjasmygl
5 teknir
í fyrrinótt handtóku tollverðir og
lögregluþjónar menn sem voru að
bera mikið magn eiturlyfja í land
úr MS Eyrarfossi í Reykjavíkur-
höfn, en þangað hafði skipið komið
skömmu áður. Það magn sem
fannst við ieit og tekið var af mönn-
unum voru 400 grömm af hassolíu
og 700 grömm af amfetamíni.
Verðmæti varningsins skiptir
milljónum króna og mun þetta vera
eitt mesta eiturlyfjasmyglmál sem
upp hefur komið hér á landi. MS |
Eyrarfoss var að koma frá Rotter-
dam og fleiri Evrópuhöfnum.
Fimm menn voru handteknir
vegna þessa máls og hefur verið
farið fram á gæsluvarðhald yfir
þeim öllum. Að sögn fíkniefnalög-
reglunnar er enginn þessara manna
úr áhöfn skipsins og hefur ekkert
komið fram sem bendir til að skip-
verjar hafi verið í vitorði með
þeim. Þrír af þessum fimm
mönnum eru þekktir eiturlyfjasal-
ar en tveir hafa ekki komið við
sögu fíkniefnalögreglunnar áður.
- S.dór
„Þetta er ósköp blátt áfram
sveitamyndir“, sagði Lovísa Matt-
híasdóttir listmálari er Þjóðviljinn
náði tali af henni á Kjarvalsstöðum
í gær. Hún var að hengja upp um 50
málverk sem verða á samsýningu
10 íslenskra gesta listahátíðar sem
búsettir eru erlendis. Það er listvið-
burður að fá verk Lovísu hingað
heim því að hún hefur sárasjaldan
sýnt á íslandi en er kunnur lista-
maður í Bandaríkjunum þar sem
hún hefur verið búsett síðan 1942.
Lovísa var hógværðin uppmáluð
þegar blaðamaður sneri sér að
henni og sagðist bara ekkert hafa
að segja. Undanfarið hefur staðið
yfír sýning á verkum hennar á
Manhattan sem vakti mikla athygli
og sagði hún um hana á sinn elsku-
lega hátt: „Hún virtist ganga vel“.
- Þú ert fyrst og fremst með ís-
lensk mótív?
- Já, þetta eru myndir af húsum,
hundum, kindum, hestum og kúm.
- Kemurðu oft heim til að mála?
- Já, ég kem eiginlega á hverju
sumri og geri þá gjarnan skissur í
vatnsliti sem ég mála svo eftir.
- Eru einhverjir sérstakir staðir
sem eru uppáhaldsstaðir?
- Ég mála auðvitað Reykjavík
en Amarfell í Þingvallasveit er mér
ofarlega í huga. Þar átti faðir minn
sumarbústað og ég á þaðan margar
æskuminningar.
- Hvemig finnst þér svo að sýna
hér heima eftir allan þennan tíma?
- Voðalega gott. Auðvitað vil ég
sýna hér sem skiljanlegt er og er
afskaplega fegin að mér var boðið.
- Þú ert ekkert á leiðinni að
flytja heim?
- Nei, mér finnst gott að vera
þar og gott að vera hér og ég get
komið heim til íslands þegar mér
sýnist.
- GFr