Þjóðviljinn - 02.06.1984, Síða 5
Einkenni nýliðinnar vertíðar
Helgin 2. - 3. jóní 1984 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA5
Otío
og
þorskleysi
Botnfiskafli bátaflotans fyrsta ársþriðjung þessa árs var
rúmar 113 þúsund lestir en var tæpar 140 þús. lestir á sama
tíma í fyrra. Hér er um verulegan samdrátt að ræða sem segir
sína sögu um útkomu vertíðarinnar, en minnkunin er að
mestu leyti í þorskafla.
Mun minni samdráttur var í botnfiskafla togaranna fjóra
fyrstu mánuði ársins miðað við sama tíma í fyrra. Nú veiddu
þeir rúmar 105 þús. lestir en tæpar 111 þús. lestir í fyrra.
Samdráttur í þorskafla togaranna var hinsvegar um 6.500
lestir á þessum tíma.
Heildarbotnsfiskaflinn er því
orðinn um 219 þúsund lestir miðað
við rúmar 250 þúsund lestir í fyrra.
Þar af er þorskaflinn orðinn rúmar
109 lestir sem er réttum 30 þús.
lestum minni afli en á fyrsta þriðj-
ungi sl. árs. Er óhætt að segja að
þetta er nokkru minni afli en menn
almennt reiknuðu með að fengist á
vertíðinni, en gefnir hafa verið út
kvótar fyrir nærri 250 þús. tonna
þorskveiði á árinu. Því á enn eftir
að veiða um 140 þús. lestir af þor-
ski og langstærstan hluta þess afla
eiga togararnir inni, því flestir
bátar eru búnir eða langt komnir
með sinn þorskkvóta, og trúlega
verður lítið um veiðar fyrir þá báta
sem ekki komast á loðnu eða sfld í
haust.
Eins og áður sagði var útkoman
á vertíðinni hjá bátaflotanum lé-
legri en menn væntu og réði þar
mestu fádæma ótíð framan af eink-
um við verstöðvar á SV-horninu.
Nokkur ufsa- og ýsuveiði var úti
fyrir suðurströndinni, en þorskur
lét lítið sjá sig. Það var aðeins á
Breiðafirði sem sjómenn komust í
góða þorskveiði þegar stór ganga
gekk í fjörðinn í ætisleit á eftir
loðnunni í marsmánuði, og bætti
það mjög hag sjómanna á Sæfells-
nesi. Hér á eftir verður farið á
hundavaði yfir heildaraflann í
helstu verstöðvum sunnan og vest-
anlands og aflahæstu báta.
Aflahæsti báturinn á vertíðinni
að þessu sinni var Suðurey VE með
tæpar 1435 lestir. Höfrungur III
ÁR var næst-hæstur með 1316 lest-
ir og Valdimar Sveinsson VE í
þriðja sæti með 1233 lestir, en alls
fengu 6 bátar yfir 1000 lestir á ver-
tíðinni.
V estmannaeyj ar:
Heildaraflinn var um 26.500 iest-
ir en var rétt um 30.000 lestir á
sama tíma í fyrra. Bátaaflinn var
rúm 19 þús. lestir og afli togaranna
um 7.500 lestir.
Aflahæstu netabátarnir voru
Suðurey VE sem um miðjan maí
var komin með að landi 1.434,8
lestir. Valdimar Sveinsson VE var
með 1.233,1 lest og Þórunn
Sveinsdóttir VE með 1.031,7 lestir.
Aflahæstir trollbáta voru Smáey
VE með 771,8 lestir, Frár VE með
566,6 og Helga Jóhannsdóttir VE
með 560,5 lestir.
Af togurunum á sama tíma er
Breki VE aflahæstur með 1.816
lestir, Klakkur VE með 1.371 og
Vestmannaey VE með 1.330 lestir.
Þorlákshöfn:
Um 3000 lestum minna barst á
land í Þorlákshöfn á vertíðinni en í
fyrra. Þá var aflinn 19.600 lestir en
nú rétt um 16.700. Aflahæsti bátur-
inn var Höfrungur III ÁR með
1.315,7 lestir. Friðrik Sigurðsson
ÁR var með 956,5 lestir og ísleifur
ÁR með 792,9 lestir.
Grindavík:
Svipaða sögu er að segja frá
Grindavík, þar var aflasamdráttur-
inn réttar 2000 lestir, 20.400 lestir í
ár á móti 22.400 í fyrra. Einn neta-
bátur náði yfir 1000 lestir, það var
Höfrungur II GK, sem fékk
1.071,4 lestir, Hópsnesið GK var
með 911,5 lestir og Hafberg GK
með 811 lestir.
Keflavík og Njarðvík:
Nokkru meiri afli kom á land í
Keflavík á þessari vertíð en í fyrra
eða tæpar 8000 lestir á móti 6.800
þá. Aflahæsti báturinn var Stafnes
KE 1.036,5 lestir. Búrfell KE var
með 960,3 lestir og Happasæil KE
með 776,4 lestir.
Sandgerði:
Aflinn þar var nokkru minni en í
fyrra eða um 9.300 lestir á móti
rúmum 10.000 lestum í fyrra. Afla-
hæstu bátarnir voru Barðinn RE
með 835,8 lestir, Arney KE með
803 lestir og Bergþór KE með 490
lestir.
Akranes:
Vertíðaraflinn á Akranesi var
um 1250 lestum minni í ár en í
fyrra. Nú var landað þar um 2.375
lestum, en 3.630 í fyrra. Aflahæsti
báturinn var Haraldur AK með 560
lestir. Sigurborg AK var með 528
lestir og Sólfari AK með 421 lest.
Rif:
Á Rifi var aflinn með þokkaleg-
asta móti á þessari vertíð. í byrjun
maí voru komnar á land 5215 lestir,
en voru réttar 5000 lestir í fyrra.
Aflahæsti báturinn var Rifsnes SH
með 752 lestir, Saxhamar SH var
með 671 lest og Hamar SH með 662
lestir.
Gr undarfj örður:
4.674 lestir voru komnar á land í
aprfllok sem er um 700 lestum
minna en í fyrra. Aflahæsti bátur-
inn var Haukaberg SH með um 400
lestir.
Ólafsvík:
Vertíðin gekk vel hjá Ólsurum
og þar kom mjög svipaður afli á
land og í fyrra eða um 10.000 lestir.
Aflahæsti báturinn var Gunnar
Bjarnason SH með 679 lestir,
Garðar II SH með 620 lestir og
Steinunn SH með 603 lestir.
-•g-